Dagur - 05.02.1964, Síða 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1166 og 1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
SAMSTARFI
HAFNAÐ
ÞEGAR núverandi stjórnarflokkar
löeðu fram „viðreisnarplögg" sín á
öndverðu ári 1960, og gerðu grein
fyrir áformum sínuin um nýtt „efna-
hagskerfi“, leizt mörgum mönnum
utan j>ings og innan ógiftusamlega
á Jiá stefnu, sein þar var boðuð.
Framsóknarflokkurinn var henni
andvígur þegar í upphafi, enda þótt
hann viðurkenndi, að þá eins og oft
ast áður s.l. tvo áratugi, gaeti verið
þörf á opinberum ráðstöfunum á
þessu sviði.
Framsóknarflokkurinn lagði til á
Alþingi, að hætt yrði við afgreiðslu
á efnahagsmálafrumvarpi ríkisstjórn-
arinnar, sem berýsnilega var glæfra-
spil, en að allir jiingflokkarnir tækju
upp samstarf sín á milli í Jiví skyni
að reyna að koma sér saman um
lausn á þeim vanda, sem fyrir lá í
efnahagsmálum.
En þingmenn stjórnarflokkanna
töldu sig }>á, eftir nýfenginn meiri-
hluta á þingi á grundvelli stjórnar-
skrárbreytingar, báðum fótum í jötu
standa og kærðu sig ekki um neitt
samkomulag. Þeir þóttust geta leyst
vandann einir, samkvæmt formúlum
Iiagfræðibóka, sem byggðar eru á
staðháttum háþróaðra iðnaðarlanda,
sem eiga Jjjóðarbúskap sinn í miklu
minna inæli en við íslendingar „und-
ir sól og regni“. Af íslenzkri reynzlu
á Jiessu sviði undanfarna áratugi,
höfðu Jieir sýnilega ekkert lært, sem
jieir töldu mark á takandi. Þeir fóru
að eins og byggingameistari, sem
teiknar stórhýsi án Jiess að vita hvar
J>að á að standa.
í stað þess að reyna samkomulags-
mtiguleikann hóf ríkisstjórnin árið
1960 stórfelldari verðmætatilfærzlu í
Jijóðfélaginu en menn hafði órað
fyrir. Hækkaði á árunum 1960—1961
verð erlends gjaldeyris meira en
160%. Stórhækkaði vexti bæði af
föstum og lausum lánum. Hækkaði
innflutningstolla yfirleitt í samræmi
við gengisbreytinguna og lagði á
hundruð milljóna í söluskatti á við-
skipti innanlands. Bannaði með lög-
um verðtryggingu kaupgjalds með
vísitölu. Svaraði kauphækkun, sem
samið var um ári síðar, með nýrri
gengisbreytingu. Allar voru Jicssar
aðgerðir svo ólióflegar, að illa hlaut
að fara. Hlutfallið milli stofnkostnað
ar og atvinnutekna var skekkt og
stjóm ríkisins skaut sér undan því
að taka ábyrgð á verðlagsþróuninni
í landinu.
Allir ættu að sjá í hvert óefni er
nú komið enda beinlínis viðurkennt
af stjórnarflokkunum, ef ekki í orði,
}>á á borði með Jieim bráðabyrgða-
ráðstöfunum, (Framh. á bls. 7)
Ný fiskiskip á annað hundrað 1963-64
En 21 skip fórst sl. ár og mörg orðin gömul
í
ÍSLENZKA fiskiflotanum
voru á ofanverðu sl. ári 850—
860 skip fyrir utan opna vél-
báta, en mörg orðin gömul.
Rúmlega 30 fiskibátar voru flutt
ir inn frá útlöndum sl. ár og
álíka margir í smíðum um ára-
mótin, en rúmlega 20 fórust á
árinu. Elztu skip flotans eru frá
19. öld. Skipasmíði innanlands
þarf að auka.
Skipainnflutningur 1963
Á árinu 1963 voru flutt til
landsins 31 fiskiskip, smíðuð er-
lendis og mun kaupverð þeirra
hafa verið hátt á þriðja hundrað
millj. kr. Þessir rúmlega þrír
tugir skipa munu skiptast þann-
ig eftir skráningarstöðum:
Siglufjörður ...........1
Dalvík ................. 2
Grenivík ...............1
Eskifjörður ............ 1
Stöðvarfjörður .........1
Breiðdalsvík .......... . 1
Hornafjörður............ 1
Vestmannaeyjar .........1
Þorlákshöfn ............1
Grindavík ..............2
Sandgerði ..............4
Keflavík................ 3
Vogar á Reykjanesi .... 1
Hafnarfjörður ..........3
Reykjavík ..............4
Akranes ................ 1
Þingeyri................1
Bolungavík .............1
ísafjörður ........... 1
Hér er yfirleitt um stór fiski-
skip að ræða. Algengt verð á
skipi 8—10 millj. kr. Út á þessi
skip mun Fiskveiðasjóður lána
allt að 67% af virðingai'verði,
en algengt er, að hinar erlendu
skipasmíðastöðvar veiti 7 ára
lán, sem greidd verða af Fisk-
veiðasj óðsláninu.
Skipasmíði innanlands
Á þessu sama ári er talið, að
8 þilskip stærri en 12 rúmlestir
hafi verið smíðuð innanlands,
14 minni þilfarsbátar og 10—20
opnir vélbátar til fiskveiða.
Kostnaðarverð stærri þilfars-
bátanna mun hafa verið 75—80
þús. kr. pr. tonn með vél, en
kostnaðarverð minni þilfarsbáta
að jafnaði nokkru lægri og kostn
aðarverð pr. tonn í opnum vél-
bátum 50—60 þús. kr. með vél.
Út á þilfarsbáta smíðaða innan-
lands má lána allt að 75% af
kostnaðarverði, en út á súðbyrð
inga mun vera lánað hlutfalls-
lega minna en aðra báta.
Nú um áramótin er talið, að
32 fiskiskip hafi verið í smíðum
erlendis eða svipað og á sl. ári
og 13 þilfarsbátar af ýmsum
stærðum innanlands. Hér á
Akureyri eru bátasmíðar stöð-
ugt stundaðar.
í Vestmannaeyjum er 160
rúmlesta skip í smíðum, 80—90
rúmlesta skip í Neskaupstað, 140
og 20 rúmlesta skip í Hafnar-
firði, og 160 rúmlesta stálskip í
nýju stálskipasmiðjunni í Arnar
vogi milli Kópavogs og Hafnar-
fjarðar. í Stykkishólmi eru tvö
skip í smíðum, 30 og 60 rúmlest-
ir, á Seyðisfirði 10 rúmlesta skip,
og á Fáskrúðsfirði 2 skip 10—20
rúmlestir.
Skip í smíðum erlendis um ára-
mótin
Skipin, sem voru í smíðum
erlendis um áramótin, munu
skiptast þannig eftir væntanleg-
um skráningarstöðum:
Siglufjörður ........... 2
Dalvík ..................1
Akureyri ............... 2
Reyðarfjörður .......... 1
Vestmannaeyjar ..........3
Grindavík .............. 1
Sandgerði .............. 1
Keflavík ................1
Hafnarfjörður ...........5
Reykjavík ...............7
Akranes ................ 2
Ólafsvík.................2
Stykkishólmur ...........1
Patreksfjörður ..........1
Súgandafjörður...........1
Bolungavík ..............1
Skipstapar á sl. ári
Upplýsingar þessar hefir Dag-
ur fengið hjá ýmsum mönnum,
sem kunnugir eru á því sviði,
sem hér er um að ræða. Þess er
svo jafnframt að geta, að sam-
kvæmt athugun, sem blaðið hef-
ir gert, hefir 21 fiskiskip farist
á árinu, sem leið, þar af 8 stórir
fiskibátar (50—130 rúmlestir),
10 minni þilfarsbátar og 3 opnir
vélbátar. Rúmlega 60 litlir vél-
bátar eru nú 20 ára og eldri, og
40 stærri fiskiskip eru 40 ára
eða eldri samkvæmt skipaskrá i
sjómannaalmanaki.
Á fyrsta mánuði ársins, sem
nú er nýbyrjað, hafa þrír stórir
fiskibátar sokkið á síldveiðum
fyrir sunnan land, sem kunnugt
er og voru tveir þeirra nærri
nýir.
Fjöldi fiskiskipa 1953 og 1963.
í skipaskrá, sem birt er í sjó-
mannaalmanaki fyrir 1964, og
gerð er í október eða nóvember
1963, eru skráð fiskiskip talin
sem hér segir:
Togarar 44.
Hvalveiðiskip 8.
Fiskiskip (bátar) yfir 100
rúml. 122.
Þilfarsbátar undir 100 rúml.
um 680.
Opnir vélbátar eru ekki tald-
ir í þessari skipaskrá, en ætla
má, að slíkir bátar, sem að stað-
aldri eru notaðir til fiskiveiða
séu um fimm hundruð á öllu
landinu.
Fyrir 10 árum (1953) voru
togarar samkvæmt sömu heim-
ild 53, hvalveiðiskip 4, fiskibát-
ar yfir 100 rúml. 51 og þilfars-
bátar undir 100 rúml. 511. Sam-
anburður á heildarrúmlestatölu
fiskiflotans fyrr og síðar hefur
áður verið birtur hér í blaðinu.
Gömul skip.
Samkvæmt skipaskránni virð
ast rúml. 20 skip í fiskiflotanum
vera 50 ára og eldri, og tvö frá
öldinni sem leið. Blíðfari (hét
áður Atli), stálskip, skráð í
Hafnarfirði, 79 rúml. er smíðað
í Noregi árið 1897; Milly, 45
rúml, eikarskip, skráð í Reykja
vík, er þó eldra, smíðað í Grims
by í Englandi árið 1883. Fyrir
2 árum var á skipaskrá eikar-
skipið Aðalbjörg, 41 rúml.,
skráð í Höfðakaupstað, smíðað
sama ár og Milly (1883) í Yar-
mouth í Englandi. Á árinu 1963
var strikaður út af skipaskrá
aldursforseti fiskiflotans, stál-
skipið Vísundur (hét áður
Njörður), 93 rúml. smíðað í
Kaupmannahöfn 1875, árið eftir
að Kristján konungur IX. kom
hingað „með frelsisskrá í föður-
hendi“. Þetta skip er talið end-
urbyggt 1946 og um það leyti
. sett í það ný Ruston-mótorvél.
Vísundur bar síðast umdæmis-
stafina RE 280. □
Leikstarfsemi á Grenivík
FYRIR NOKKRU hitti ég ritstjóra Dags á skrifstofu sinni, og
minntist hann þá á það við mig, að ég léti sig vita, ef eitthvað vel
væri gert, nóg væri um fregnirnar af slysum og óförum manna,
en hitt vildi stundum gleymast, það sem gert væri gott og til
mannbóta horfði. Þá datt mér í hug, að leikstarfsemi á Grenivík
hefir ekki verið getið sem skyldi, hvorki í blöðum né annars stað-
ar, og er þó hér um merka menningarstarfsemi að ræða, þar sem
fólk hefir lagt á sig næstum að kalla takmarkalaust erfiði, í þeim
eina óeigingjarna tilgangi að halda þessari starfsemi gangandi.
Leikstarfsemi á Grenivík og
í Höfðahverfi er ekki nýtt fyrir-
brigði, heldur stendur á göml-
um merg, þó aðstæður og geta
hafi ef til vill ekki alltaf verið
í jöfnu hlutfalli við viljann.
Síðan 1958 hafa að jafnaði ver-
ið tekin til meðferðar 1—3 leik-
rit á ári af jafnmörgum aðilum.
Undanfarin 3 ár hafa svo Kven-
félagið Hlín og íþróttafélagið
Magni haft samvinnu um leik-
starfsemi og sýnt eitt vandað
leikrit á ári. Vegna þröngs húsa
kosts hafa leiksýningar þessar
ekki verið mikið auglýstar.
Þessi þrjú leikrit hafa verið:
„Orrustan á Hálogalandi,"
„Frænka Charles" og nú síðast
„Aumingja Hanna“ eftir Kenn-
eth Horn. Leikstjórn á tveimur
síðast nefndum leikritum hefir
verið í höndum Steinunnar
Bjarnadóttur leikkonu, og má
fullyrða, að með því hafi leik-
starfsemi á Grenivík tekið al-
gerum stakkaskiptum.
Leikritið „Aumingja Hanna“
er gamanleikur, eins og vera
ber, hann lísir lífi og viðbrögð-
um fjölskyldunnar Vilton. Þetta
er ósköp venjulegt millistétta-
fólk, hjón með tvær uppkomn-
ar dætur, og hjá þeim er einnig
móðir frú Vilton, frú Simmons,
öldruð kona. Vilton hjónin hafa
látið það henda sig, að gera upp
á milli dætra sinna, hampa ann-
arri og kúga hina. Þegar leikrit-
■ ið hefst, ríkir mikil eftirvænt-
ing í fjölskildunni, Betty, eldri
dóttirin, hefir boðið í heimsókn
ungum og ríkum manni, Basil
Gilberts, beinlínis til að krækja
í hann. En skömmu áður en
þessi mikilvægi gestur kemur,
gerir yngri systirin, Hanna, upp
reisn, og hótar því að ná í
mannsefnið frá Betty. Þessi til-
drög skapa spennuna í leikinn,
sem er mikil allt til enda.
Eins og áður segir, leikstjórn-
in var í höndum Steinunnar
Bjarnadóttur, og hefir hún átt.
við ótrúlega mikla örðugleika
að etja. Sviðið í skólahúsinu á
Grenivík er mjög lítið og
þröngt, svo það er erfitt að
koma þar fyrir fjórum mann-
eskjum, þannig að svo virðist
að þær séu í rúmgóðri dagstofu,
hvað þá sex og sjö í einu. Það
er einnig erfitt að skapa eðlileg-
an samleik og hraða hjá leikur-
unum, sem flestir eru lítt eða
óvanir leik á sviði. En þetta
tókst, og það var mestur styrk-
ur þessa leiks. Staðsetningar
leikara voru nákvæmar og hrað
inn mikill, svo spennan, sem
þarf að halda uppi slaknaði
aldrei. Fyrir þetta á leikstjór-
inn skilið mikið hrós. En það
orkar ætíð tvímælis hvort það
sé rétt, að leikstjóri hafi einnig
með höndum aðalhlutverkið.
Hanna, í höndum Steinunnar,
var leikin af miklum krafti.
Andstæðurnar í skapgerð henn-
ar voru mjög dregnar fram í
dagsljósið og ýktar, stundum
dálítið um of.
Hin systirin, Betty, var leikin
af Guðrúnu ísaksdóttur. Betty
vera þriðja árið í röð, sem Guð-
rún leikur, og henni hefur stöð-
ugt farið fram. Framsögn henn-
ar er orðin nokkuð góð, og hún
hefir sæmilegt vald yfir hreyf-
ingum sínum og látbrögðum.
Vilton-hjónin voru leikin af
þeim Arnbjörgu Halldórsdóttur
og Haraldi Höskuldssyni. Þau
sýndu ágætan samleik og tókst
vel að sýna þessi yfirborðs-
kenndu og grunnhyggnu hjón.
Sérstaklega vakti leikur Harald
ar athygli, en hann hefur aldrei
áður á svið kornið. Árangur
lians verður að sjálfsögðu að
skrifast á reikning leikstjórans,
og vil ég endurtaka það, það er
furða hve S. B. tókst að vinna
úr þeim efniviði, sem hún hafði
yfir að ráða, og við þær aðstæð-
ur, sem hún bjó.
Það hlutverk, sem þó vakti
mesta athygli og kátínu, var frú
Simmonds, amma þeirra systr-
anna. Þar kom til, að hlutverk-
ið er mjög skemmtilegt frá
er frek og spillt af eftirlæti, og hendi höfundarins, amma er að
tekur engum breytingum í leikn vísu gömul í sjón, en hún er
um eins og Hanna. Þetta mun (Framhald á blaðsíðu 7).
Jakob Jakobsson
stud. odont.
KVEÐJA FRÁ K. A.
FYRIR RUMRI VIKU spurð-
ust þau hörmulegu tíðindi hing-
að til Akureyrar, að Jakob
Jakobsson stud. odont., Skipa-
götu 1, hefði farizt af slysförum
í Þýzkalandi. Snart sú helfregn
næman streng í mörgu brjósti,
því að Jakob átti velvild og vin-
arhug allra þeirra, er honum
kynntust.
Jakob Jakobsson fæddist á
Grenivík 20. apríl 1937, sonur
hjónanna Matthildar Stefáns-
dóttur Stefánssonar útvegs-
bónda þar, og Jakobs skipa-
smiðs Gíslasonar frá Ólafsfirði
Jóhannessonar sjómanns þar og
barnakennara. Á fyrsta ári flutt
ist Jakob með foreldrum sínum
til Akureyrar og átti þar heima
síðan. Um fermingaraldur inn-
ritaðist hann í Menntaskólann á
Akureyri og lauk þaðan stúd-
entsprófi úr stærðfræðideild
1957. Síðan lagði hann stund á
tannlaekningar í Erlangen í
Þýzkalandi og var kominn fast
að lokaprófi, er hann lézt.
Jakob Jakobsson var ágæt-
lega íþróttum búinn, enda lands
kunnur fyrir afburði sína í
knattspyrnu. Mátti og segja, að
það væri ættaríþrótt, er faðir
hans, bræður og frændur eru
kunnir afseksmenn á því sviði.
Hann tók mjög ungur að iðka
þá íþrótt í Knattspyrnufélagi
Akureyrar, og aðeins 17 ára
gamall hóf hann að keppa í
meistaraflokki. Bar öllum sam-
an um, að hann væri í hópi okk-
ar allra beztu knattspyrnu-
manna, enda jafnan í úrvalsliði
Akureyringa, þegar hann gat
því við komið vegna náms síns.
Árið 1957 var hann valinn í
landslið gegn Frökkum og Belg-
um, en gat þá ekki háð þá
— Ojæja annars: Satt að segja þarf hún þess líka sjálf að koma
heim á helgum. Það léttir dálítið fjárhag hennar að fá ofurlítið
búsílag hjá þeim heima. Allt þess háttar er svo dýrt í bænum. Já,
það segja einnig bæjarbúar, þegar þeir koma í sveitina:
— Það er minnstur vandinn fyrir ykkur í sveitinni. Hér hafið
þið nærri allar ykkar nauðsynjar heima fyrir, en við í bænum verð-
um að kaupa allt þetta dýrum dómum.
Jú-JÚ. Þetta stæði víst allt fallega heima, sneri það aðeins ekki
þannig við, að bóndinn þarf á skildingunum að halda til að greiða
öll sín útgjöld og skyldur. Nei, bæjarbúar bera ekki mikið skynbragð
á erfiðleika bóndans. En um það hefur hún því miður heyrt svo allt
of mikið frá bernskuárunum.
Heima hefir pabbi hennar barmað sér seint og snemma og í si-
fellu yfir fjárhagsvandræðum þeirra. Sigríður man ekki til þess, að
pabbi hennar hafi nokkru sinni verið ánægður með neitt þess háttar.
Sæti fjölskyldan öll heima um helgar og spjölluðu um daginn og
veginn, beindi faðirinn brátt samræðunum að fjárhagsmálum heim-
ilisins. Hversu hann hefði orðið að erfiða og þræla öll þessi ár án
þess að bera nokkuð úr býtum. Og þá varð hann svo hávær og stór-
orður, að enginn annar kom þar orðum að.
Mamma hennar varð þá svo þögul og fyrirferðarlítil og döpur á
svipinn. Stundum áræddi hún þá að leggja orð í belg og segja fáein
orð. Hún nefnir t. d. alla timburstokkana, sem þau hefðu selt góðu
verði, og nefnir einnig fleiri góðar tekjur, en hnýtir um leið skýlu-
klútnum fastar undir hökuna.
Æjá, móðir hennar hefir einnig sitt að segja, og margt sem hún
gæti rætt um og vildi gjarnan gera það. Sigríði er allt þetta full-ljóst.
En hvað getur hún gert. Faðir hennar grípur óðar fram í og stöðvar
tal þeirra. — Nei, hefir nokkur heyrt annað eins bull! Hvað er að
tala um skóginn núna. Það er eins og að hjala um snjóinn í fyrra.
Sigríður mundi einnig ýmislegt, sem faðir hennar hefði sagt í annað
sinn við áþekkt tækifæri:
Hann nefndi heilmörg dæmi þess, hve allt sem hann hefði tekið
sér fyrir hendur, hefði mistekizt. Meðal annars var það merin hans.
Hefði hún kannski ekki kastað eintómum hestfolöldum þau tuttugu
árin, sem hún hefði verið hér á bænum! Það er engu líkara, en að
ég sé til þess fæddur og í heiminn borinn, að erfiði og vonbrigði
skuli vera hlutskipti mitt og ill örlög. Þannig hefði faðir hennar
lokið ræðu sinni að þessu sinni.
— Talaðu ekki svona, Þorgils, hafði afi gamli sagt úr sæti sínu
undir einum glugganum. — Það er syndsamlegt að tala svona. Þú
ættir miklu fremur að þakka Drottni, sem stjórnar hefir öllu svo
vel hérna hjá okkur og fyrir okkur öll, svo að við höfum verið
heilsuhraust til þessa dags, og ekkert að okkur amað.
Æjá. Sigríður hefði fundið á sér, að afi gamli hefði rétt fyrir sér
í þetta sinn. En samtímis hefði hún satt að segja verið sammála
föður sínum. Hún hafði svo lengi hlustað á sífelldan harmasöng
hans út af fjárhags-örðugleikum þeirra og öllu þess háttar, að það
var orðið henni og þeim systkinum svo tamt og svo auðvelt að taka
í sama strenginn.
AUÐHILDUR FRÁ VOGI:
GULLNA BORGIN
10
keppni vegna stúdentsprófs. Þá
var hann síðar varamaður í
landsliði, og 1961 lék hann í liði
íslendinga í landskeppni við
Englendinga. Þá varð hann og
á skömmum tíma mjög snjall
golfleikari. Hafði hann óvenju-
lega næmt skyn á öllum knatt-
leikum, og var umfram allt vit-
ur knattspyrnumaður og prúð-
ur á leikvelli. Ég minnist þess
ekki að hafa séð hér á íþrótta-
vellinum öllu laglegri tilþrif en
hans, þegar honum tókst bezt
upp.
Með þessum kveðjuorðum
viljum við vinir hans og félagar
í K. A. votta minningu hans
virðingu okkar og þakka honum
af alhug þann vegsauka, sem
hann ávann félagi sínu, bæ sín-
um og föðurlandi. Veit ég og,
að ég mæli þau orð fyrir munn
allra þeirra, er meta kunna
afrekslund, drengskap og prúð-
mennsku.
Þá viljum við votta aðstand-
endum hans öllum, og eink-
um móður, föður og systkinum,
sem þyngstum harmi eru slegin
við fráfall hans, dýpstu samúð
okkar. Sem fyrr er okkur öll-
um óleysanleg ráðgáta, þegar
vaskir menn eru burt kvaddir í
blóma lffsins, „en á bjartan orð-
stír aldrei fellur, umgjörðin er
góðra drengja hjörtu." Góðan
dreng, sem svo sviplega er horf-
inn, kunnum við ekki betur að
kveðja en með þessum línum úr
harmljóði Tómasar Guðmunds-
sonar:
Og skín ei ljúfast ævi þeirri yfir,
sem ung á morgni lífsins staðar nemur,
og eilíflega, óháð því, sem kemur,
í æsku sinnar tignu fegurð lifir?
Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki
um lífsins perlu í gullnu augnabliki.
Gísli Jónsson.
Heyra lánamál landbúnaðarins undir Gylfa Þ.?
ÞEGAR alþingismenn hafa nú
undanfarið gert fyrirspurnir til
ríkisstjórnarinnar um lánamál
landbúnaðarins, og þá einkum
í sambandi við afurðalán Seðla-
bankans, hefur þeim æfinlega
verið beint til Ingólfs Jónsson-
ar, landbúnaðarráðherra, en
hann orðið fyrir svörum og lát-
ið á sér skilja, að hann hefði
með höndum viðskipti um þau
mál.
En í umræðum á Alþingi s.l.
þriðjudag, lýsti Gylfi Þ. Gísla-
son því yfir, að lánamálin í
heild og sér í lagi afurðalánin,
heyrðu undir sitt ráðuneyti.
Gylfi Þ. Gíslason hefur ekki
farið dult með skoðanir sínar á
bændastéttinni og landbúnaðin-
um, svo sem frægt er orðið.
Ekki mun hinn síðasti boðskap-
ur, sem hér var sagt frá, verða
bændum mikið gleðiefni. □
En hún man einnig, að faðir hennar hefði svarað afa gamla á
þennan hátt:
— Þú fylgist ekki lengur með því, sem hér er um að ræða,
pabbi gamli, og þá áttu ekki að láta annað eins bull út úr þér!
I þetta sinn hafði Sigríður blygðast sín sökum orða föður síns.
Hún hafði séð, hve afi gamli tók þetta sér nærri, lokaði sig inni í
eigin huga og mælti ekki orð framar þetta sunnudagskvöld. Og móð-
ir hennar hefði gengið snögglega fram úr stofunni. Hún sagðist
ætla að ganga út og gefa kálfunum.
Það hefði svosem ekki orðið neitt úr neinu, það sem eftir var
kvöldsins. Látlaust nöldur föður þeirra og ruddalegt svar hans til
afa gamla, — allt þetta hafði í skyndi breytt sunnudeginum í gráan
hversdagsleika. — En voru annars ekki á sama hátt nær allir sunnu-
dagarnir, sem Sigríður var heima? Var nokkur einn öðrum betri?
Henni fannst að raunverulega væri, eins og allir heima biðu sunnu-
dagsins sem eins konar lokadags til reikningsskila einstaklings á
öllu því, sem þeir hefðu borið fyrir brjósti alla virka daga vikunnar.
Núorðið var ástandið heima á þann veg, að því er Sigríði fannst,
að nokkurs helgifriðar varð þar eigi notið á nokkurn hátt.
Eitt sinn fyrir löngu hefði þetta verið á allt annan veg. Þá hefði
afi lesið húslestur, og allt heimilisfólkið, piltar og stúlkur, hefði
setið umhverfis í stofunni og hlustað á lesturinn. Eftir á var sálmur
sunginn, og þá sungu allir með. Engum þótti leiðinlegt, þótt hús-
lestrarstundin yrði næsta löng. Þó gat skéð, að hún og systkinin
yrðu dálítið óþolinmóð, en sátu samt alveg stillt til loka.
Að árdegislestrinum loknum var sannarlega sunnudagur eftir á.
Þá var hvíld, og hversdagsstörfin langt að baki. Þannig hefði þetta
áður verið á gamla ættar-óðalinu að Stóra-Ási.
Sigríður finnur sting í brjósti, er henni verður hugsað til Stóra-
Áss og verður samtímis litið út um lestargluggann á nakið flatlend-
ið með endalausa akrana gaddfreðna um hávetur, og bændabýlin
lágu með glugga nærri því niður við jörð. Og grásteinsgarðana á
alla vegu umhverfis akur og engi og milli bæja. Maður gæti orðið
trylltur af bræði út af öllum þessum grásteini og dauðlangað til að
sópa honum öllum á sjó út og gróðursetja skóg í staðinn!
Skóg! Guð minn góður! Hve nú var orðið langt síðan Sigríður
hafði séð almenilegan skóg! Hún gat ekki kallað skóg þessa gisnu
smá-lundi, sem lestin þýtur framhjá. Nei, skógur, það er greni og
fura, og laufskógur umhverfis bæi og byggð og uppeftir öllum hlíð-
um. Þar standa grenitrén í þéttum breiðum með hundruð af skrauf-
þurrum frækjúkum neðan í greinunum. Skógur? Já, það var skógur
umhverfis Stóra-Ás!
Sigríður nemur staðar í hugarrás sinni og gælir við endurminn-
ingarnar innan úr firðinum. Hún reynir að hugsa sér eitthvað
skemmtilegt, sem sópað get á brott leðindakenndinni, sem er að
síga yfir hana.
Nú er senn komið að því, að lestin bruni inn á „hennar“ stöð. En
hugur hennar vill ekki nema staðar við þær skemmtilegu endur-
minningar, sem hún reynir að rifja upp fyrir sér. Hugur hennar
dvelur aftur á móti látlaust við daginn þann, er þau fluttu frá Stóra-
Ási fyrir fullt og allt. Þann dag voru systkinin fjögur gagntekin eft-
irvæntingu um þennan nýj bæ, sem þau áttu að flytja til. Bæjar-
ins sem lá úti við reginhafið — og landfastur sjálfri borginni! Þess-
um stóra, dásamlega bæ, sem þau hefðu kbmið í nokkrum sinnum
við sérstök tækifæri.
Hvorki Sigríði né Marteini bróður hennar skildist fyllilega, hve
alvöruþrungið það væri að flytja að heiman og yfirgefa ættaróðalið
inni í firðinum, og voru þau þó komin ýfir fermingaraldur. Sú
mikla nyjung sem nú beið þeirra framundan, hafði harðlæst greip
sinni um vit þeirra og vilja. Nú áttu þau að setjast að skammt frá
borginni, og það var nú engin smáræðis hamingja það eitt. Þau
vildu hvorki sjá né heyra alvöru þá, sem nátengd var búferlum
þessum. Enda var varla við því að búast, svo lengi hafði faðir
þeirra rætt og rabbað og rekið látlausan áróður sinn fyrir fjöl-
skyldunni, hvílíkir kostir og kjaramunur biðu þeirra allra á nýja
staðnum. Þar skyldi nú verða búskapur í lagi! Það yrði nú eitt-
hvað annað en hérna langt inni í fjörðum, afskekkt og utangátta
á allan hátt! — Aldrei skulu krakkarnir mínir þurfa að slíta sér
út á þrælkuninni hérna, hefði faðir þeirra sagt svo oft um þær
mundir. Og héðan verðum við að fara! Með þeim orðum lauk hann
jafnan ræðu sinni.
Faðir þeirra gat ekki séð né hugsað sér aðra æskilega lausn mála
en eignast jörð sem allra næst borginni. Því nær því betra! Þá
gæti maður losað sig við afurðir sínar jafnóðum, og svo, — já,
það var ekkert smáræði, hve framúrskarandi gott og kostaríkt allt
myndi verða! Pabbi hafði einnig frá svo mörgu að segja, hve gott
fólk ætti í borginni, og hve lítið það þyrfti á sig að leggja í sam-
anburði við sveitafólkið. Þar þyrfti ekki annað en sitja á skrifstofu
stund úr degi, og fyrir það fengju menn ríkulega launagreiðslu um
hver mánaðamót. — Eða þá að standa og spjalla og spóka sig fyrir
innan búðarborðið! í borginni væru allir fínt fólk. Þar þyrfti eng-
inn að vinna sæmilegt dagsverk. — Já, í borginni ættu allir þeir
að vera, sem þangað gætu komizt! Og faðir þeirra lét jafnvel í
ljós, að eiginlega hefði hann aldrei unað sér við búskap og sveita-
vinnu.
Sigríður minntist þess, að að afi gamli hefði heyrt allar þessar
hrókaræður pabba. Og afi hefði orðið svo alvarlegur og mæddur
á svipinn. — Æ jæja, jæja, Þorgils, hefði hann sagt.
Framhald.