Dagur - 15.02.1964, Side 8
8
. ................................. iimmiimmiimmmiiiiimmiiiiimiimmmmimmmmmmiimmmmmiiimmmmmmiiiiimmimirmiiiimimmmmmmimiimmiimiiiiiiimiimmiiimiimiiimmiiiii,;
| ÖSKUDAGURINN er mikill hátíðisdagur barnanna á Akureyri. Þessi mynd er af einum „öskudagsflokknum.“ Ljósmynd: E. D.) 5
Landbúnaðarvörurnar seldar fyrir 3 ntilljarða kr
cg sjávarafli landsmanna fyrir 3.5 milljarða kr.
r ........... '
Leiklisfarlíf á Norðurlandi
í VETUR HEFUR verið
óvenjulega mikið leiklistar-
starf á Norðurlandi, bæði í
kaupstöðum og kauptúnum
og einnig í sveitum, þar sem
aðstaða er fyrir hendi.
Eftir því sem blaðið hefur
komizt næst, hafa 15 sjón-
leikir verið æfðir nú í vetur
á svæðinu frá Blönduósi til
Húsavíkur og margir þeirra
verið sýndir. Mjög margir
sjónleikir, sem hér um ræð-
ir, eru töluvert veigamiklir
og vandmeðfarnir, og leikfé-
lög hinna ýmsu staða hafa
fengið lærða leikara eða
æfða leikstjóra til leiðbein-
inga á hverjum stað.
Giska má á, að á þriðja
hundrað karlar og konur á
nefndu svæði hafi leikið og
aðstoðað við leiksýmngar
þessar — allir auðvitað kaup
laust nema leikstjóramir, að
leikurum á Akureyri undan-
skildum.
Svo sem á þessu má sjá,
er hér breyting á orðin og
gleðileg, á skemmtanalífi
fólksins, sem ber að þakka.
Knaffspyrnudómarar á Akureyri
MIKILL er hlutur sjávaraflans
í útflutningi og gjaldeyrissköp-
un, enda ekki með sannindum
á móti því mælt. í því sambandi
eru nefnd 90% eða jafnvel meira
af heildarútflutningi landsins.
Um þetta er ekki deilt. Og í slík-
um samanburði hverfur elsti og
annar aðal undirstöðuatvinnu-
vegur þjóðarinnar, landbúnað-
urinn, í skuggann. í vitund fólks
ins, sem alltaf er minnt á, að
útflutningur sjávarútvegsins sé
90% af allri útflutningsfram-
leiðslunni, er verðmætasköpun
landbúnaðarins harla lítil. En lít
um nú nánar á þetta.
Formaður Stéttarsambands-
ins, Gunnar Guðbjartsson bóndi
í Hjarðarfelli, sagði nýlega á
bændaklúbbsfundi á Akureyri,
efnislega:
Hver bóndi skilar 250 þús. kr.
verðmæti í búvörum. Hver sjó-
maður á land afla, sem að verð-
mæti var 300 þús. kr„ síðasta
ár.
Heildarframleiðsla landbúnað
arins 19G4 er áætluð 1570 millj.
kr. Síðasta ár var verðmæti sjáv
arafla, kominn á land, 1700 millj.
kr. að verðmæti.
En þegar búið var að vinna
sjávaraflann, salta síldina, búa
þorskinn til útflutnings o. s. frv.,
var verðmæti hans 3.5 milljarð-
ur króna, en söluverð búvar-
anna, þegar búið var að vinna
þær, var 3 milljarðar.
Þegar þessar tölur eru hafðar
FYRSTA FLUGVÉLIN
LENDIR í HRÍSEY
TRYGGVI Helgason flugmaður
lenti á tveggja sæta kennslu-
flugvél sinni á Hríseyjarflug-
velli í fyrradag. En þar hefur
ekki lent flugvél áður.
Sáð var í flugvöllinn í Hrísey
haustið 1962. Flugbrautin er 370
m löng og 20 m breið.
Hríseyingar eru byrjaðir með
þorskanet og einnig sjómenn á
Árskógsströnd og vona menn að
veiðarnar beri þá meiri árang-
Ur en verið hefur undanfarnar
vikur, □
í huga, sezt bezt, hve þýðingar-
mikil landbúnaðarframleiðslan
er.
Gunnar Guðbjartsson sagði
einnig frá því, að meðaltekjur
allra stétta í landinu hefðu, árið
1962, verið 131 þús. kr., brúttó.
Brúttótekjur viðmiðunarstétta
landbúnaðarins (sjómanna, iðn-
aðarmanna og verkamanna)
voru hinsvegar 126.100.00 krón-
ur. Tekjur bænda voru þetta
ár taldar 99 þúsund krónur.
Voru því bændur tekjulægsta
stétt þjóðfélagsins. En í sam-
bandi við þessar 99 þús. kr. tekj-
ur bændanna er það að athuga,
að veigamiklir kostnaðarliðir
búanna fengust ekki nema að
nokkru samþykktir í verðlags-
grundvellinum, þ. e. fóðurbætir
og áburður, ýmsir minni
sannanlegir kostnaðarliðir bú-
anna ekki heldur. Þegar þessir
og fleiri sannanlegir kostnaðar-
liðir eru dregnir frá 99 þús. kr.
tekjum bændanna, verða ekki
eftir nema um 70 þús. krónur,
sem hændum er ætlað að lifa af,
móti 126.100,00 króna tekjum
þeirra stétta (sjómanna iðnaðar-
manna og verkamanna), sem
SPJÖLL
EINS og hlaðið minntist á sl.
miðvikudag, hópuðust tugir ungl
inga saman á Akureyri á göt-
um bæjarins fyrr í vikunni og
varð þeim í nokkru áfátt í hegð-
un. Munu flokkadrættir milli
bæjarhluta hafa einhverju um
það ráðið, að leiða unglinga
þessa, sem vöru á aldrinum 12—
15 ára, til nokkurra hnippinga.
Á mánudagskvöldið lenti slík-
um fylkingum samaii á kirkju-
lóðinni. Strákar voru vopnaðir
spýtum, slöngubyssum og fl. og
hófu þar bardaga. Þeir hafa
sennilega ekki gert sér grein
fyrir því, að þeir voru staddir á
helgum stað, því þeir frömdu
þau spjöll á sjálfri kirkjunni, að
brjóta dýrmæta myndarúðu í
kórnum, með grjótkasti, senni-
lega úr slöngubyssu.
landslög ákveða til viðmiðunar,
þegar verð búvara, og þar með
tekjur bænda eru ákveðnar,
haust hvert.
Af öllu þessu sézt, hve mjög
er gengið á rétt bændanna. Þá
vantar nær 40% tekna sinna,
sem þeim eru ætlaðar sam-
kvæmt lögum.
Árið 1960 voru laun bænd-
anna reiknuð út, samkvæmt 20
búreikningum, víðsvegar af land
inu. Samkvæmt því fengu bænd
ur kr. 12.00 á klukkutímann. Þá
var Dagsbrúnarkaupið milli 21
og 22 krónur. Hlutfallið er ekki
ósvipað nú, enda kemur þetta
(Framhald á blaðsíðu 7).
Bújörðin Dagverðar-
eyri er ekki til sölu
GUNNAR Kristjánsson bóndi
og oddviti á Dagverðareyri hef-
ur beðið blaðið að geta þess, að
gefnu tilefni, að jörðin Dagverð-
areyri sé ekki til sölu, og að sala
á jörðinni hafi ekki verið rædd.
Frásagnir blaða, þar sem að
þessu er vikið, eru því úr lausu
lofti gripnar, sagði Gunnar. □
Rúða sú er brotin var, var
elsta myndarúða kirkjunnar.
Hún er forn og úr kirkju í Eng-
landi, sem eyðilagðist í loftárás
í síðustu heimsstyi-jöld — eina
heila rúðan, sem í rústunum
fannst —. Hún var með brennd-
um helgimyndum um ævi frels-
ai’ans, og allar þær myndarúð-
ur, sem nú skreyta Akureyrar-
kirkju og síðar voru settar upp,
eru skreyttar táknmyndum í stíl
við hina fornu helg'imyndarúðu.
Lík stóð uppi í kirkjunni, þeg-
ar þetta vildi til og hrundu gler-
brotin yfir kistuna og köstuðust
þó sum miklu lengra.
Kirkjuvörður hafði síðar tal
af mörgum þeix-ra, sem hittust á
kirkjulóðinni umrætt kvöld, en
afhenti síðan málið í hendur
lögreglunnar.
KNATTSPYRNAN á enn vax-
andi vinsældum að fagna meðal
almennings. Sennilega þó óvíða
meiri en á Akureyri. Það sýnir
hin feiknamikla aðsókn, sem á
síðustu tímum er jafnan að
íþróttavellinum, þegar knatt-
spyrnuleikir fara fram.
En það er oft svo, að þegar
leikir eru ákveðnir og þær
þrautir yfirstígnar, sem oft eru
undanfari flokkakeppninnar, þá
vantar dómarann. Akureyringar
Að sjálfsögðu var hér um ó-
viljaverk að ræða, sem enginn
vildi gjört hafa. En engum dylst
að hér sannast áþreifanlega hve
fátt mönnum er heilagt, að virð-
ingarleysið fyrir öllum og öllu
er um of. Síðustu daga hefur
eru fremur fátækir í þessu efni,
verða að fá menn að, bjargast
við hvern sem er og eru víst
aldrei aflögufærir. (Frh. á 7)
FÁ MEIRA í NETIN
Dalvík 14. febrúar. Tveir af
þeim bátum, sem róið hafa, eru
búnir að taka netin. Björgvin
kom af togveiðum í morgun
með 35 tonn. Björgúlfur er á
veiðum. □
mátt sjá fjölda manns leggja
leið sína að Akureyrarkirkju og
virða fyrir sér vegsummerkin.
Steinninn, sem braut helgan
dóm hitti mörg hjörtu safnaðar-
ins, og hann vitnar um leið um
skort á uppeldi hinna mörgu
unglinga, sem gleymdu prúð-
mannlegri hegðun á heilagri
jörð.
Sjálfsagt er nú runninn víga-
móðurinn af unglingum þeim,
sem hér eiga hlut að máli. Á
margan hátt er æskufólk á Ak-
ureyri til fyrirmyndar, einnig
þeir, sem gættu þess ekki hvað
þeir gjörðu sl. mánudag. Sumir
unnu fermingarheit sitt í kirkj-
unni í fyrra, aðrir gera það í
vor. Þeir sem skilja hvað gerst
hefur — hafa líka tekið út refs-
inguna. Q
FRAMIN Á KÍRKJUNNI