Dagur - 22.02.1964, Page 2
2
S i
:ap
Þjóðviljinn, sem út kom 1G.
febrúar hrigslar Framsóknar-
flokknum um stefnuleysi, og
tekur þar undir við Mbl. Komm
únistablaðið telur það bera vott
um „stefnuleysi“, að í Fram-
sóknarflokknum skuli geta átt
sér stað samstarf milii raanna,
sem ekki hafa sömu skoðun í
öllum málum. Hér er misskiln-
ingur á ferð. Það er póliiísk ó-
menning að gera öll mál að
flokksmálum. Félagsskapur
Framsóknarmanna byggist á
samstöðu um ýmsa meginþætti
íslenzkra þjóðmála, og sú sam-
staða lielst, þólt öðru hverju
kunni að koma upp ný tíma-
bundin viðfangsefni, sem ekki
varða flokksmál. Það er ekkert
óeðlilegt við það, þó að menn
taki afstöðu til slíkra mála og
nái um þau samstöðu, án tillits
til hins hefðbundna flokkakerf-
is. Hér þarf jafnvel ekki að
vera um ný mál að ræða. Al-
kunna er t. d. að afstaða til á-
fengismála fer ekki eftir lands-
málaflokkum, og er þar þó um
að ræða eitt stærsta félagslegt
vandamál vorra tíma.
VANDAMAL HVEIíS
FLOKKS
Hinu er svo ekki að neita, að
svo mögnuð getur óánægjan eða
sundrungin orðið í landsmála-
flokki, að til upplausnar horfi,
og er það að sjálfsögðu fyrst og
fremst vandamál flokksins
sjálís en ekki annarra. í þeim
efnum stæði Þjóðviljanum næst
að skyggnast um sína sveit, eins
og ■ Þorsteinn Erlingsson komst
að orði í kvæðinu Huldufólkið.
Á bls. 131 í „Rauðu bókinni“,
sem út kom sl. sumar, og ungir
„sósíalistar“ hafa krnfizt sér til-
dæmdan höfundarrétt að, segir
einn af höfundum frá viðtali,
sem hann átti við E. O. sér til
uppbyggingar. Þarna lýsir E. O.
innanflokkserjum og klíkuskap,
sem varla mun eiga sinn líka
í öðrum landsmálaflökkum hér
á landi. E. t. v. er hér að finna
ástæðuna fyrjr því, að Þjóðvjlj-
inn er að reyna að Rugé:a' sig við;
erfiðleika í Framsóknarflokkn-
um.
Á bls. 131 í „Rauðu bókinni“
segir ungi maðurinn frá viðtali
sínu i við E. O. „. .. . Gat liann
(Einar) um 5 grúppur, sem
myndazt hefðu iiman Alþýðu-
handalagsins síðustu árin. Liti
sú skipting, gróft íekið, þannig
út: 1. Málfundafélagsmenn. 2.
Lúðvík. Jósefsson og Stór-Guð-
mundur. 3. Centristar (þ, e.
Einar Olgeirsson, Magnús Kjart
ansson, Eðvarð Sigurðsson,
Snorri Jónsson. 4. Brynjólfur
Bjarnason og aðrir í stjóm
Jónas Halldórsson
skákm. Norðurlands
Á SKÁKÞINGI Norðlendinga
á Blönduósi, sem er nýlokið,
varð Jónas Halldórsson frá
Leysingjastöðum sigurvegari og
hlaut hann 10 vinninga og titil-
inn skákmeistari Norðurlands.
Sósíalistafélags Reykjavíkur. 5.
Hjaltaklíkan, þar sem saman
væru komnir einangrunarsinn-
ar flokksins. . . . “
I athugasemdum segir svo til
skýringar, að málfundarmenn
séu einkum Hannibal Valdi-
marsson, Finnbogi Rútur Valdi-
marsson, Alfreð Gíslason, Sól-
veig Ólafsdóttir o. fl. Ennfrem-
ur, að „Stór-Guðmundar“ séu
þrír, Hjaríarson, Vigfússon og
Guðmundsson, og að í „Hjalta-
klíkunni“ séu Hjalti Árnason,
Runólfur Björnsson, Ragnar
Gunnarssoh, Sigfús Brynjólfs-
son, Hendrik Ottóson, Sigríður
Friðriksdóttir o. fl.“ Þess má
geta, að nefndur Ragnar í téðri
„grúppu“ varð síðar umræddur
maður í sambandi við meintar
njósnir austræns ríkis hér á
landi, og var honum þá afneitað
í: Þjóðviljanum.-
Þannig er þá lýsing, sem ung-
ur „sósíalisti“ hefur efitr sjálf-
um Einari Olgeirssyni, á sam-
stöðunni innan „Alþýðubanda-
lagsins“ og „Sameiningarflokks
alþýðu.“ Einar telur sig hafa
verið mjög einangraðan í þing-
flokknum í , seinni tíð „einkum
í tíð vinstri stjórnarinnar og
hafissá tími í heikl verið sá erf-
iðasti á sínum stjórnmálaferli.“
Eftir þessúm orðum hans að
dæma, er víst skiljanlegt, að
hann vildi vinstri stjórnina
feiga 1958. Þarf þá víst ekki
framar um það að deila með
hverjum hætti. fall hennar hafi
að borið.
UM STÓRVIRKJUN
Eins og skýrt var frá í Degi,
hefur Eysteinn Jónsson, Gísli
Guðmundsson, Helgi Bérgs og
Hermann Jónasson, f. h. Fram-
sóknarflokksins, nú lagt fram á
Alþingi tillögu til þingsályktun-
ar um stórvirkjana- og stór-
iðjumál, þar sem gert er ráð
fyrir, að Alþingi kjósi 7 manna
nefnd til að kynna sér niður-
stöður af rannsóknum • á vegum
rikisstjórnarinnar í þessum mól
um. og gera um þau- skýrslu og
tillþgur- tp þingsins. Tillagan
varðandi Jökulsárvjrkjun var á
sínum tíma flutt af þingmönn-
um alll-a flokka liér í kjördæm-
inu, en ríkisstjórnin hefur síð-
an unnið að þessum málum án
samráðs við Alþingi, kvatt þar
til „sína menn“ og enga sam-
vinnu viljað um það hafa á
breiðum grundvelli. Er raunar
furða, að stjórnarþingmenn héð
an úr kjördæminu, skuli hafa
látið sér þessi vinnubrögð lynda.
Að hinu leytinu eru vinnubrögð
sumra Alþýðubandalagsmanna
dálítið hláleg í þessu máli.
Björn Jónsson flutti árið 1961,
með'öðrum þingmönnum héðan,
tillöguna um „virkjun Jökulsár
á Fjöllum ■ til • stóriðju" og stóð
með þeim að Akureyrarfundin-
um 1982 svo og fleiri aðgerðum
í þessu máli. Nú fylla sumir
flokksmenn hans Verkamann-
inn með ritsmíðum, sem ekki
eru þessu máli til framdráttar
og að sumu leyti byggðar á
helzt til frjálsri meðferð vísinda-
legra staðreynda. Ef þessir
rnenn vilja styðja norðlenzkan
málstað, en undir engum kring-
umstæðum ljá máls á samstarfi
við útlent fjármagn, þótt á tak-
mörkuðu sviði sé, ættu þeir að
ræða af skynsemi um mögu-
leika á öflun fjármagns innan-
lands eða lána erlendis handa
íslenzkum aðilum til fram-
kvæmda. Má vera, að bjartsýni
í þeim efnum hafi aukizt þegar
í ljós kemur, að eitt íslenzkt
hlutafélag getur fengið 400
millj. kr. lánaðar erlendis til
flugvélakaupa, án ríkisábyrgð-
ar. Ekki er enn vitað hver af
hinum „5 grúppum“ Alþýðu-
bandalagsins þar er, sem að
skrifum Verkamannsins stend-
ur, en sennilega er B. J. ekki í
þeirri „grúppu .□
BRJOTA RÚÐUR
LQGREGLAN kvartar um, að
undanfarið hafi mikið á því bor-
ið, að rúður væru brotnar. Bæj-
arbúar, sem varir verða við
óvita að slíkri iðju, ættu að
gera lögreglunni aðvart. □
AÐALFUNDUR Einingar var
haldinn fyrra sunnudag í Al-
þýðuhúsinu. Samkvæmt skýrslu
stjórnarinnar er skuldlaus eign
félagsins um s.l. áramót krónur
338.336,87, Vinnudeilusjóðs kr.
76.671,28, Styrktarsjóðs krónur
43.790,87 og Sjúkrasjcðs krónur
181.138,97.
Félagsgjald var ákveðið kr.
500,00 fyrir karla og kr. 300,00
fyrir konur.
Félagar eru 678, en það eru
8 fleiri en 1963. 36 félagar
gengu inn á aðalfundi, 6 úr-
sagnir voru tilkynntar og 23
voru strikaðir af félagsskrá
vegna brottflutnings eða van-
skila.
Stjórn Einingar skipa nú:
Björn Jónsson, alþingismað-
ur, formaður.
Þórir Daníelsson, skrifstofu-
maður, varaformaður.
Þórhallur Einarsson, verka-
maður, ritari.
Vilborg Guðjónsdóttir, frú,
gjaldkeri.
Það nýmæli var borið fram á
aðalfundinum, að athugaðir
væru möguleikar á rekstri sum
ardvalarheimilis fyrir börn fé-
lagsmanna. Var kosin nefnd í
málið. □
Frá Rauðkrossdeild
Akureyrar
MERKJASALA deildarinnar á
öskudaginn á Akureyri og í ná-
grenni nam, aiis kr. 18.110,00,
Þá voru deildinni gefnar góð-
ar peningagjafir: Frá Oskudags
liði Sigrúnar Baldursdóttur og
Ásdísar Ásmundsdóttur kr. 320.
Frá Öskudagsliði Steinunnar
Rögnvaldsdóttur og Lovísu Er-
léndsdóttur kr. 180. Frá Ösku-
dagsliði Önnu Pálu Pálsdóttur
kr. 75. Frá Elíasi Þorsteinssyni,
Sigurði Þorsteinssyni, Friðriki
Adólfssyni og Árna Jónssyni kr.
200. Frá Öskudagsflokki Ingi-
bjargar Bjarnadóttur kr. 200.
Frá Ólöfu Benjamínsdóttur óg
Heiðdísi Þorvaldsdóttur kr. 110.
Frá ýmsum aðlium kr. 100. Þá
gaf Borgarbíó merkjasölubörn-
um deildarinnar aðgöngumiða á
eina sýningu. Öllum þeim, sem
aðstoðuðu við merkja söluna,
.sem og þeim, sem merkin
keyptu og hinum sem gjafir
gáfu þakkar deildin hjartan-
lega. — Stjórn Rauðakrossdeild
ar Akureyrar.
r
Ðrengjameistaramót Islands í fr. íþróttnm
DRENGJAmeistaramót íslands
í frjálsum íþróttum innan húss,
fór fram í Keflavík s.l. sunnu-
dag. Keppendur voru um 25 frá
6 félögum og bandalögum. Ár-
angur varð góður t. d. í hástökki
með atrennu. Ungur piltur frá
Akureyri, Guðmundur Péturs-
Hástökk með atrennu. m
Erlendur Valdimarsson ÍR 1,77
Ólafur Guðmundsson KR 1,77
Ásbjörn Karlsson ÍR 1,67
Þrístökk án atrennu. m
Erlendur Valdimarsson ÍR 8,94
Guðmundur Pétursson ÍBA 8,92
Ragnar Guðmundsson Árm. 8,61
Jón Þ. Ólafsson ÍR kepþti
sem gestur í hástökki með at-
rennu og stökk 2,06 m og var
mjög nærri að fara yfir 2,10.
Hann er talinn í góðri þjálfun.
íþróttabandalag Keflavíkur sá
um mótið. □
Innanhússmót í frjálsum íþróttum á Akureyri
Guðmundur Pétursson ÍBA
son, keppti á mótinu, og kom
mjög á óvart, því hann hefur
lítið látið kveða að sér áður.
— Guðmundur er þreklegur
stökkvari og má búast við miklu
af honum á íþróttasviðinu eftir
þessari byrjun að dæma. Úrslit
urðu þessi:
Hástökk án atrennu. m
Einar Gíslason KR 1,32
Qlafur Guðmundsson KR 1,32
Bergþór Halldórss. Skarph. 1,32
Langstökk án atrennu. m
Guðmundur. Pétursson ÍBA 3,03
Erlendur Valdimarsson ÍR 2,99
Bergþór Halldórss. Skarphi 2,97
FRJÁLSÍÞRÓTTARÁÐ- Akur-
eyrar hefur gengist fyrir æfing-
um í íþróttahúsinu að undan-
förnu og hefur haft ágætan
kennara, Hermann Sigtryggs-
son æskulýðsfulltrúa, til leið-
beininga. Þátttaka erGsæn’hlég'
og áhugi mikill. S.l. míðvikudag
var komið á keppni í langstökki
án atrennu í tveim aldursflokk-
um. Úrslit urðu þessi:
Eldri flokkur. m
Guðmundur Pétursson KA 3,10
Reynir Unnsteinsson ÍMA 3,08
Bárður Guðmundsson ÍMA 3,01
Ellert Ólafsson ÍMA 2,98
Þóroddur Guðm.s. UMSE 2,89
Körfukmittleiksmóti
NorðuiTands lýkur
um helgina
AÐEINS tveir leikir eru nú eft-
ir á mótinu, annar milli KA og
A-liðs Þórs, en. þau eru efst,
hafa ruinið tvo leiki hvort. Hinn
leikurinn er á milli ÍMA og
B-liðs Þórs, sem hafa tapað báð
um sínum leikjum. Ráðgert er
að mótinu Ijúki íi. k. sunnudag
og mætast þá liðin, sem jöfn-
ust virðast ið styrkleika. □
Haukur Ingibergsson HSÞ 2,85
Keppendur voru 10.
Yngri flokkur
(16 ára og yngri). m
Gunnar Rafn Þór 2,65
Jóhann Guðmundsson KA ÁÓ8
Konráð Erlendsson KA 2,53
Karl Erlendsson KA 2,39
Keppendur voru 6.
Hugmyndin var að keppa í há
stökki, en því var frestað vegna
tímaleysis. □
SKAUTAIÞRÖTTIR
Á AKUREYRI
SKAUTAÍÞRÓTTIR hafa átt
erfitt uppdráttar hér áilandi í
vetur, vegna frostleysis. Hér á
Akureyri hefur ekki verið
skautasvell. frá því um.áramót,
en skautaíþróttin er mjög vin-
sæl hjá bæjarbúum. Á Ólafs-
fjarðarvatni í Ólafsfirði hefur
verið ágætt skautasvell að und-
anförnu og hefur verið vel not-
að einkum af yngra fólkinu.
íþróttafélagið Leiftur gekkst fyr
ir keppni í skautahlaupi og ís-
hokkí s.l. sunnudag. Þátttaka
var ágæt og þótti þetta mót góð
nýbreytni í Ólafsfirði. □
I