Dagur - 22.02.1964, Blaðsíða 8
8
Yeröld hinna mildu möguleika
HEIMURINN okkar er fullur a£
möguleikum, sem ekki hafa ver
ið nýttir. Þetta er stefið í bók,
sem Sameinuðu þjóðirnar hafa
nýlega sent á markaðinn. Bók-
■ in er yfirlit yfir þær tillögur og
hugmyndir sem fram komu á
■ hinni miklu ráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna í Genf í febrúar
1963 um það, hvernig nota beri
nútímavísindi og tækni þróunar
löndunum í hag.
1665 sérfræðingar hvaðanseva
úr heiminum komu saman á
þessari ráðstefnu til að ræða
nálega 2000 vísindalegar skýrsl
ur. Árangurinn varð 10 milljón
' orð, sem Sameinuðu þjóðirnar
munu nú draga saman í átta
bindi, sem verða um 800.000
orð og bera heitið „Science and
Technology for Development.”
Einstök bindi fjalla um hin ein-
stöku viðfangsefni ráðstefnunn-
ar, svo sem náttúruauðlindir,
landbúnað, iðnað o. s. frv.
En fyrsta bindið, „World of
Opportunity,” er sem sé alls
herjaryfirlit yfir það, hvernig
sérfræðingarnir á ráðstefnunni
hugsuðu sér, að vísindamenn
nútímans gætu leyst vandamál
þróunarlandanna. Þar er gerð
grein fyrir ástandinu eins og
það er nú, reynslu síðustu ára,
vandamálum sem upp kunna að
koma, hvaða aðferðum sé hægt
að beita og hvaða athafnasvið
verði að ganga fyrir.
Það kemur m. a. fram, að það
sem hvert land eða landssvæði
verður fyrst og fremst að gera
er að ganga úr skugga um,
hvaða náttúruauðlindir séu fyr-
ir hendi og hvers kyns þær séu:
vatn, jörð, málmar, orkulindir,
loftslag og mannafli. Grundvall
arþörf allrar þróunarstarfsemi
er menntun og þjálfun hæfra
innlendra manna — manna sem
geta tekizt á hendur fram-
kvæmd hinna ýmsu áætlana.
Onnur atriði, sem rík áherzla
er lögð á, eru rannsóknir og
vandlega undirbúnar áætlan-
ir. □
Hættu allir að reykja
í HÓLASKÓLA reyktu bæði
nemendur og kennarar mikið,
einn nemandinn t. d. 2 pk. á
dag. Eri hinn fyrsta febrúar
fóru allir í reyktóbaksbindindi
og hafa haldið það vel, bæði
nemendur og kennai'ar. S. Þ.
Þróunarlöndin flytja út mikið
map af fimbri og pappír
EF neyzlan á timbri, pappír og
pappa heldur áfram að aukast
í heiminum með sama hraða og
áætlað er, er enginn vafi á því,
að hitabeltislöndin munu gegna
æ mikilvægara hlutverki í út-
flutningi trjáviðar og pappírs-
kvoðu. Verðlagið mun verða
með þeim hætti, að það mundi
ekki framar borga sig fyrir Ev-
rópulönd að halda áfram að
leggja fé í innlenda skógrækt.
Það er hinn nýi forstjóri skóg-
ræktardeildar Matvæla- og land
búnaðarstofnunar S. Þ. (FAO),
Finninn Nils A. Osara, sem
kemst að þessari niðurstöðu í
grein sem hann skrifar í skóg-
ræktarrit FAO. „Unasylva.“
Dr. Osara fjallar um vöxt
Starfsfræðslan vaxandi í landinu
NÚ stendur fyrir dyrum annar
starfsfræðsludagurinn, sem hald
inn er á Siglufirði. Hinn fyrri
var haldinn þar fyrir tveim ár-
um. Rotaryfélag staðarins hef-
ur gengizt fyrir starfsfræðsl-
unni. Ráðgert er að Ólafsfirðing
ar vei-ði þátttakendur ef veður
leyfir og auðvelt rynist að kom-
ast milli þessara nágrannastaða.
Þá má geta þess, að hinn 8.
marz verður starfsfræðsludagur
á Akranesi og 15. marz í
Reykjavík. Þá verður fyrsti
starfsfræðsludagui'inn haldinn á
ísafirði 22. marz. Á Akureyri
verður starfsfræðsludagur 12.
marz. í haust er fyrirhugað að
halda fyrsta starfsfræðsludag-
inn á Austurlandi og Vest-
mannaeyingar hafa áhuga á að
koma á slíkum degi hjá sér.
Ólafur Gunnarsson er hinn
leiðandi maður starfsfræðslu-
daganna og stjórnar þeim með
heimamönnum á hverjum stað.
Sézt á þessu yfirliti, að á mál
þessi er kominn nokkur skrið-
ur, vegna vaxandi skilnings á
þýðingu starfsfræðslu. Hér er
þó aðeins um byrjun að ræða,
því eins og háttað er í landi
okkar um fjölda starfsgreina,
og að starfs- og stöðuval er
vissulega vandameira nú en áð-
ur, er fræðsla á þessu sviði, í
miklu ríkai’a mæli, hin nauð-
synlegasta.
Það er Æskulýðsráð templara
sem annast starfsfræðsludag-
ana á Akureyri. Sá, sem nú er
framundan er sá fjórði í röð-
inni. Ráðgert er að koma upp
sýningum á næsta starfsfræðslu
degi á Akureyri. □
skógræktar og trjáiðnaðar í
þróunarlöndunum. Hann er
sannfærður um, að í hitabeltis-
löndunum og nálægum svæðum
verði hægt að framleiða pappírs
kvoðu fyrir aðeins brot af því
verði sem hún er framleidd á
í Evrópu. Löngu áður en allar
þær auðlindir, sem tæknilega
væri hægt að nýta í Evrópu,
hafa verið nýttar, verður farið
að flytja inn pappírskvoðu frá
hitabeltinu.
En í þessu sambandi er ekki
nóg að hugsa um möguleika
hitabeltislandanna, segir dr.
Osara. Enn eru víðáttumikil
ósnortin skógflæmi annars stað-
ar í heiminum, og enginn getur
spáð um það með nokkurri
vissu, hvaða þýðingu vísindaleg
ar og tæknilegar framfarir síð-
ustu ára hafa í framtíðinni.
Viðskiptastefna þróunarland-
anna mun sennilega að verulegu
leyti hafa áhrif á magn trjá-
framleiðslunnar í framtíðinni.
Marga erfiðleika verður að yf-
irstíga og mikil fjárfesting er
nauðsynleg, áður en þessi lönd
geti í ríkara mæli framleitt og
flutt út tré og trjákvoðu. Skyndi
legra breytinga er ekki að
vænta, segir dr. Osara, en bætir
því við, að FAO muni á næstu
árum einbeita sér að þessu verk
efni. □
Bör Börson á Dalvík
Dalvík 21. febrúar. Björgvin
kom í morgun með 35 tonn.
Hann og Björgúlfur hafa verið
á togveiðum: Björgúlfur kom
með 32 tonn fyrr í vikunni. Afl-
inn á línu er ennþá fremur treg
ur.
Um helgina verður Bör Börs
son frumsýndur á Dalvík. Leik-
stjóri er Kristján Jónsson frá
Reykjavík. S. H.
; NYLEGA hrepptu tvær konur á Akureyri DAS-bíla. — Hér er !
; önnur þeirra, frú Aðalheiður Oddgeirsdóttir, Fjólugötu 12,!
! lijá hinum nýja bíl sínum. En liin konan, frú Ragnheiður Dav- ;
! íðsdóttir, Stórholti 2, hlaut einnig fólksbifreið, en eftir eigin ;
! vah- (Ljósmynd: E. D.)
SMÁTT OG STÓRT
FISKIÞING
f Reykjavík hafa staðið yfir
stéttarfélagsþing hinna ýmsu at-
vinnuvega. Fiskiþingi er nýlok-
ið. Fulltrúar úr Norðurlands-
kjördæmi eystra vqru þar:
Hólmsteinn Helgason útgerðar-
maður á Raufarhöfn, Magnús
Gamalíelsson útgerðarmaður í
Olafsfirði, Viltýr Þorsteinsson
útgerðarmaður á Akureyri og
Helgi Pálsson á Akureyri.
BÚNAÐARÞING
Búnaðarþing hófst nokkru síð
ar og situr enn. Fulltrúar héðan
úr kjördæminu eru þar: Þórar-
inn Kristjánsson bóndi í Holti,
Teitur Bjömsson bóndi á Brún,
Ketinn Guðjónsson bóndi á
Finnastöðum og Helgi Símonar-
son bóndi á Þverá.
Búnaðarþing starfar nú í
fyrsta sinn í Bændahöllinni, og
var fjölmennt við setningu þess.
Þorsteinn bóndi á Vatnsleysu
setti þingið með skörulegri
ræðu. Landbúnaðarráðherra gáf
í ávarpi sínu þá yfirlýsingu, að
ríkisstjórnin myndi ekki verða
við ósk Stéttarsambands bænda
um að flytja á Alþingi frumvarp
það á afurðasölulöggjöfinni, sem
bændasamtökin höfðu undirbú-
ið og sent henni.
ATIIYGLISVERÐAR
GREINAR
Timinn er nú að birta mjög
athyglisverðar greinar um land-
búnaðar- og landsbyggðarmál.
Ein er eftir Jónas Jónsson land-
HELDUR OF MIKIÐ
Frá starfsfræðsludegi á Akureyri veturinn 1962.
PÓSTSTJÓRN Sameinuðu þjqð
anna í New York barst fýrir
nokkru pöntun um tvo minja-
bæklinga sem samtals kostuðu
2 dollara og 90 cent. Sá sem
pantaði var kona í New Orleans
og hafði hún lagt með pöntun-
inni ávísun sem hljóðaði upp á
$1.100.002,90 — sennilega vegna
mistaka bankans. „Að vísu er
þetta gjafatími ársins,, en yið
teljum samt, að einhver tak-
mörk verði að vera fyrir gjaf-
mildinni,“ skrifaði forstjóri
póstþjónustunnar, þegar hann
sendi ávísunina aftur til bank-
ans. Hún hafði verið gefin út 13.
desember. □
búnaðarkandidat frá Ysta-Felli
og nefnist „Fræði Gunnars og
Gylfa.“ Fyrirsögnin skýrir sig
sjálf. Önnur er eftir Magnús
Gíslason bónda í Eyhildarholti
og nefnist „Gróður og gæfa.“ í
þriðja lagi er að liefjast greina-
flokkur um landbúnað íslend-
inga og landbúnaðarlöggjöf á
20. öld eftir Ágúst Þorvaldsson
alþingismann og bónda á Brúna
stöðum. Öll landsbyggðin þarf
að fylgjast með skrifum þessara
mætu manna, enda eru umræðu
efni þeirra nú ofarlega á dag-
skrá um land allt.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur miðstjómar Fram
sóknarflokksins verður settur
í Reykjavík 6. marz n. k. Þar
eiga sæti 56 fulltrúar kjörnir á
kjördæmaþingum Framsóknar-
manna, ennfremur fulltrúar,
kjörnir á flokksþingi 1963 og
alþingismenn flokksins. Ungir
F ramsóknarmenn eða samtök
þeirra eiga þarna rnarga
sérfulltrúa. Alls munu um 90
kjörnir fulltrúar eiga sæti á að-
alfundinum, samkvæmt nýju
flokkslögunum frá síðasta flokks
þingi. Aðalfundirnir eru raunar
árleg flokksþing, mun fámenn-
ari en þau, sem haldin eru á allt
að fjögurra ára fresti. Aðalfund
urinn kýs framkvæmdastjórn
flokksins og markar stefnu hans
og störf í samræmi við lög hans.
Miðstjórnarmenn „FFNE“ í
Norðurlandskjördæmi eystra
eru: Hjörtur Eldjám Þórarins-
son á Tjörn, Jakob Frímanns-
son Akureyri, Ketill Guðjóns-
son Finnastöðum, Valtýr Kristj-
ánsson í Nesi, Þórhallur Bjöms
son Kópaskeri, Sigurður Jó-
hannesson Akureyri og Björn
Teitsson á Brún. Varamenn
Arnþór Þorsteinsson Akureyri,
Jóhann Helgason Leirhöfn, Ás-
kell Einarsson Húsavík, Einar
Sigfússon Staðartungu, Bjöm
Guðmundsson Akureyri, Gísli
Pétursson Þórsliöfn og Ágúst
Sigurðsson Möðruvöllum,