Dagur


Dagur - 11.03.1964, Qupperneq 4

Dagur - 11.03.1964, Qupperneq 4
4 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Simar 1166 og 1167 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. „Skáldið mitf' BISKUP ÍSLANDS, herra Sigur- björn Einarsson, sagði meðal annars í ræðu sinni í Akureyrarkirkju hinn 7. marz: Nú er skáldið mitt farið. Þessi orð voru sögð við mig um leið og geng- ið var hjá mér á götu, daginn, sem andlátsfregn Davíðs Stefánssonar barst um landið. Þau komu sem ósjálfrátt viðbragð ástar og trega. En á eftir, þegar ég gekk leiðar minnar áfram, þá fór ég að hugsa um, hvort ég hefði heldur heyrt þetta, eða sagt það sjálfur. Það var a. m. k. mín hugsun, hvort sem heldur var. Og var þetta ekki raunar hugsun vor allra, kynslóðar vorrar, íslenzkrar þjóðar í heild? Skáldið rnitt. Eru það ekki margir, sem hafa hugsað svo þessa daga? Skáldið mitt. Er það ekki þannig, sem þjóðin, ísland, mælir eftir söngsvaninn frá Fagra- skógi, sem nú er svifinn í hvarf. Hvað er mitt og hvað er þitt? Vér eigum það sem við elskum, það er hluti af oss sjálfum. Það er líf af voru lífi. Og um það verður ekki deilt, að þjóðin hefur unnað því skáldi, sem er hnigið. Þannig eign- aðist hún Davíð Stefánsson þegar við fyrstu kynni, að hún elskaði hann og sú ást varð aldrei fölskvuð. Hann flaug á hvítum fjöðrum beint inn í barm hennar. Hún þekkti hann strax sem óskasvein og gaf sig töfr- um hans á vald, fullkomlega. Hann þurfti ekki að berjast til ríkis. Hann var borinn til þess, og auk heklur erfinginn um leið og hann birtist. Þjóðin gaf honum hjarta sitt á sömu stundu og hann snerti það með sprota sínum. Hann þurfti ekki að venja hana við tungutak sitt, því hún kannaðist þegar við það. Rödd- in var hennar þó önnur slík hefði aldrei heyrzt fyrri. Henni fannst samt, að hún hefði átt þessi ljóð alla tíð, þó að þau væru ósungin, þangað til dagur þessa meistara rann. Þar var hreimur þjóðvísunnar, þar var dul draums og þagnar, og þar var þrá og gleði hins íslenzka máls, eins og það var og er, og samt var það allt nýtt. Davíð var skáld nýrrar ald- ar, sem markaði tímamót í sögu Ijóð- listar á Islandi. En það eru einmitt slíkir menn, og þeir einir, sem spor- in marka á ferli listanna og verða ódauðlegir í þeirra heimi. Þeir, sem ná að slá einhverja þá grunntóna, sem mynda stef í kenndum og við- horfi samtíðar, en sækja jafnframt dýpt og fylling í dulið ómdjúp þjóð- arsálár, mannsins eilífu sálar. , Davíð var einn af þeim fáu, sem sigrar samtíð sína umsvifalaust, án andspymu. Var sá sigur of auðveld- ur? Sigldi hann of hraðan byr? (Framhald á blaðsíðu 2). Davíá Stef ánsson ÞÓRARINN BJÖRNSSON skólameistari flutti eftirfarandi ávarp í Menntaskólanum á Akureyri laugardaginn 7. marz: í DAG kveður Akureyri heið- ursborgara sinn, þjóðskáldið Davíð Stefánsson. Um rúma fjóra áratugi hefir Davíð Stefánsson brugðið stór- um svip yfir bæ og hérað. Á meðan hans naut við, var Norð- urland veitandi í andlegu búi þjóðarinnar. Eftir hann genginn er allt fátækara og auðara. En norðlenzk menning þakkar Dav- íð þá andlegu reisn, sem var á lífi hans og starfi og lyfti fjórð- ungnum öllum. Eftir kirkjuathöfn í dag verð- ur Davíð fluttur heim, heim í Fagraskóg, þar sem vaggan stóð og ræturnar lágu, hinar djúpu og sterku rætur, sem skópu honum þá festu, að hann stóð af sér öll gerningaveður aldar- innar og gengur frá leiknum að leiðarlokum jafn heill og sann- ur og hann gekk til hans í upp- hafi. Á mánudaginn verður Davíð borinn til moldar að Möðruvöll- um, þar sem hvíla faðir hans og móðir og bróðir og fleiri ættmenni. Þar verður hann meðal þeirra, sem hann unni heitast, og í þeirri mold, sem hann ungur batt við aevitryggð. Moldin er þín. Moldin er trygg við börnin sín, sefar allan söknuð og harm og svæfir þig við sinn móður- [barm. Grasið hvíslar sitt Ijúfasta lag á leiðinu þínu, Moldin er hljóð og hvíldin góð. Svo kvað Davíð sjálfur. Davíð var fæddur 21. janúar 1895 að Fagraskógi við Eyja- fjörð. Bæjarnafnið Fagriskógur er eitt hið fegursta á landinu. Þegar hinn ungi og glæsti skáld- sveinn, Davíð Stefánsson, hóf sig til flugs á sínum „Svörtu fjöðrum“ fyrir fjörutíu og fimm árum, brá það þegar bliki um nafn hans, að hann var frá Fagraskógi, líkt og hann kæmi svífandi úr hinum dularfulla skógi fegurðarinnar, þar sem ævintýrin búa. Og alltaf hefir mér fundizt síðan, að nafn Fagraskógar kdæddi Davíð eins og purpuraskikkja glæstan jöf- ur. Nú er þó hlutverkum að nokkru skipt. Nú hefir Davíð goldið svo fósturlaunin, að það er hann, sem Ijær Fagraskógi af ljóma sínum. Listamönnum er það gefið, að þeir helga þá staði, er þeir stíga fótum á. Maður og staður, Davíð og Fagriskógur eru tengdir órofa- böndum. Þeir hafa vaxið hvor af öðrum og auðgazt hvor af öðrum og þjóðin öll notið góðs af. Annars er Fagriskógur meira en nafnið tómt, þó að þar sé raunar enginn skógur, En staðui'inn er unaðsfagur. Óvíða, og ef til vill hvergi, hefi ég komið, þar sem mér hef- ir fundizt, „að himinn jörð og flæði“ lifðu í jafn einlægri sam- búð, þar sem himinninn spegl- ast í firðinum og fjörðurinn fær lit af himninum og brosandi hlíðin hlustar á „blævakið bylgjuhjal“, eins og Davíð orð- ar það. Aldrei mun ég gleyma síðsumarkvöldi, er ég átti þar eitt sinn. Það var eins og nátt- úran, dul og djúp, væri á ein- tali við sjálfa sig. Það er ekki undarlegt, þó að gáfaður og næmgeðja drengur, sem hér stígur sín fyrstu spor og hér dreymir sína fyrstu drauma, hafi eignazt hér þann æviauð, sem aldrei brást og aldrei þraut: ást á landinu og tryggð við móðurskaut náttúrunnar og við moldir horfinna feðra. Davíð Stefánsson var af dýru bergi. Faðir hans, Stefán Stef- ánsson í Fagraskógi, var merk- ur bóndi og framfaramaður, um tuttugu ára bil fulltrúi Eyfirðinga á Alþingi fslendinga. Móðirin, kona Stefáns, var Ragnheiður Davíðsdóttir, dóttir séra Davíðs Guðmundssonar á Hofi, sem var merkur prestur á sinni tíð, og er Davíð skáld heitinn í höfuðið á þessum afa sínum. En móðurbróðir séra Davíðs var þjóðsagnasafnarinn alkunni, Jón Árnason, og er hann því langömmudróðir Dav- íðs skálds. En móðurbróðir Dav- íðs Stefánssonar vai' Ólafur Davíðsson, fræðaþulur og nátt- úrúfræðingur, sem dó fyrir ör- lög fram og Matthías kvað um eitt af sínuni fögru erfiljóðum, þar sem segir: „Sál vors lands var sálin hans,“ en engan ís- lending hefi ég þekkt fyrr né síðar, sem ég myndi fremur segja slíkt um en einmitt Davíð Stefánsson. Davíð átti því ekki langt að sækja sína íslenzku sál, ást sína á landi og þjóð, á íslenzkri tungu og íslenzkum erfðum. Og skáldgáfan var heldur ekki ný í ættinni. Valdimar Briem, eitt merkasta sálmaskáld sinnar tíðar, er ömmubróðir Davíðs, og þeir eru að þriðja og fjórða að frændsemi, Davíð og Hannes Hafstein, báðir komnir af Gunnlaugi Briem, sýslumanni á Grund, sem ung- ur nam höggmyndasmíð í Kaup- mannahöfn og var skáldmæltur, og hið sama Ólafur sonur hans, langafi Davíðs, en öll er þessi ætt af stofni Eggerts Ólafsson- ar. Skáldskapurinn virðist því lengi hafa búið um sig í ættinni, unz skáldlaukur hennar verður fullþroska með Davíð Stefáns- syni. Mun ekki óalgengt, að ættir séu þannig lengi að bera sinn fegursta blóma. Hér hefi ég með örfáum orð- um lýst því náttúru-umhverfi, sem Davíð er vaxinn upp í, og þeirri ætt, sem hann er runninn af, ef það mætti verða til ein- hverrar glöggvunar á sumum ríkustu og dýrustu eðliskostum skáldsins og mannsins Davíðs Stefánssonar. Davíð verður stúdent 1919, og sama ár sendir hann. frá sér fyrstu Ijóðabók sína, Svartar fjaðrir. í einni svipan er hann orðinn frægur, dáður og elskað- ur af allri þjóðinni. Kom sér vel að vera enginn hégómamað- ur, enda held ég,- að slíkt verði seint sagt um Davíð Stefánsson. í Svörtum fjöðrum kveður við nýjan tón. Ný öld er að renna. Úti í heimi er lokið hinum ægi- legásta hildárleik, íslenzka þjóð- til lífsins eftir váleg veikindi, þar sem hann hafði fundið kuldagust dauðans. Honum svellur lífsmóður. Hann losar um ljóðformið, og funi heitra tilfinninga, sem minnir á suð- ræna glóð, fær frjálslegri og hispurslausari túlkun en menn áttu að venjast. Ljóðið verður skynrænt, þrungið lífsþorsta og lífsnautn, gagntekið fögnuði þess að vera til og njóta, svo að sumum kann að hafa þótt nóg um. En annar strengur óm- aði með, strengur gamalla stefja og viðlaga, oft með tregabiöndn- um seim. Þrá aldanna vakti ekki síður í ljóði skáldsins en lífsþorsti stundarinnai'. Hér vann Davíð það afrek að sam- eina gamalt og nýtt, bæði í formi og anda, og varðveita þannig það órofasamhengi, sem verið hefir líftaug íslenzkrar menningai'. Davíð hefir sagt um íslenzku þjóðina: „Hennar líf er eilíft kraftaverk.“ Hér var það hann, sem óf einn þáttinn í hinu eilífa kraftaverki. Davíð hefii' alls gefið út níu Ijóðabækur: Svartar fjaðrir 1919, Kvæði 1922, Kveðjur 1924, Ný kvæði 1929, í byggðum 1933, Að norðan 1936 (heildarútgáfu Helgafells 1952 nefnir Davíð einnig Að norðan, og sýnir það hug hans), Ný kvæðabók 1947, Ljóð frá liðnu sumri 1956 og í dögun 1960. Auk þess liggja eftir hann fjögur leikrit: Munk- arnir á Möðruvöllum 1925, Gullna hliðið 1941, Vopn guð- anna 1944 og Landið gleymda 1956, skáldsaga í tveimur bind- um, Sólon íslandus 1940, og síð- ast í haust Mælt mál, safn af ræðuni ýmiss konar. Af þessari upptalningu má sjá, að Davíð hefir ekki setið auðum höndum. Hann kastaði þó aldrei höndum til neins, en eljusamur var hann og árrisull. Ég ætla méi’ auðvitað ekki þá dul að gera skáldskap Davíðs skil á .stuttri stund. Slíkt reyni ég ekki einu sinni. En eitt lang- aði mig til að benda á og leggja áherzlu á. Síðasta mannsaldur hefir Davíð öllum öðrum frem- ur stuðlað að því að varðveita samband íslenzkrar Ijóðlistar við fólkið í landinu. íslenzk Ijóð- list hefir um aldir verið snar þáttur í þjóðarsálinni, og ef sá þáttur brestur, verður þjóðin aldrei söm eftir. „Þjóðin deyr, ef hverfa Ijóð af tungu,“ segir Matthías í erfiljóði eftir Jón Árnason, frænda Davíðs. Hér hefir Davíð unnið sitt mesta verk. Hann hefir langa ævi lagt ljóð á tungu íslenzkrar þjóðar. Ljóð hans hafa verið lesin og lærð meira en nokkurs annars. Þess vegna er hann þjóðskáld- ið, sem þjóðin öll kveður með þökk og trega. Og hér er það, sem verðui' erfiðast að reisa hið fallna merki, því að mest hætta ungu skáldanna er sú að verða viðskila við þjóðina. Ef .svo fer, er hætt við, að íslenzk ljóð verði í hæsta lagi litfögur stofublóm, en ekki það kjarn- gresi íslenzkrar nioldar, sem þjóðinni er mest næring í. Þó 'að Davíð hafi verið höfð- og fyrirmaður, eða ef til vill . einmitt af því að in fagnar nýferignu frelsi og ingi Davíð sjálfur hefir aftur horfið Blóm og liransar við kistu Davíðs í Akureyrarkirkju. (Ljósmynd: Niels Ilansen) kveiki á kertuni mínum” hann var sannur höfðingi og fyrirmaður, stóð hann, að ég ætla, í nánari tengsl- um við alþjóð og ekki sízt alþýðu þessa lands en önnur samtíðarskáld. Sönn fyrir- mennska og óspillt alþýða eiga gjarna samleið og skilja hvor aðra. Báðar eiga sama skyn hins einfalda og sanna, ríka réttlætiskennd og drengskap í raun. Davíð var vinur hins óbreytta alþýðumanns, sem vann verk sitt af ást og trúnaði, en hann þoldi að sama skapi illa alla sviksemi og sýndar- mennsku. Hann unni móður náttúru og þeim börnum henn- ar, sem næst henni stóðu. Hin- ir, sem héldu sig yfir hana hafna og köfnuðu í alls kyns mannasetningum, áttu sízt virð- ingu hans eða samúð. Sjálfur gekk hann aldrei undir ok neinnar kenningar, en tilfinning hans var þeim mun ósviknari. Ríkust var samúð hans með þeim, sem voru misskildir eða áttu séi' þrá, sem aldrei varð svalað. Til þeirra, sem gengu með leyndan harm í brjósti og áttu engan að tala við, kom skáldið eins og skilningsríkur vinur, sem létti þeim einmana- leikann. Þó að Davíð sé um fram allt ljóðrænt skáld, söngsvanur, sem skynjar hið upprunalega, sól og jörð, í innileik þess og eilífleik, má finna margvíslegan boðskap í ljóðum hans, sem nútímanum gæti verið hollt að hlusta á: boðskap karlmennsku á öld þæginda, boðskap tryggðar á öld rótleysis, boðskap heilinda á öld blekkinga. Það er naumast hending, að síðasta Ijóðlínan í síðustu kvæðabók hans er þessi: Að bera eitthvað þungt — það er að vera. En nú miðast allt við að létta byrðarnar. Annars eru það tvær Ijóðlín- ur úr næstsíðustu bók hans, sem orðið hafa mér sérstaklega hug- stæðar: í gegnum alla heimsins harma hillir undir hvítan bjarma. Það er þessi „hvíti bjarmi,“ sem leikur um tvær síðustu bækur hans, bjarmi hinnar tæru fegurðar og himinþrár. Og á öðrum stað segir: Hvert lítið orð’i sem lífinu [fagnar, er ljóð við sönginn, sem aldrei [þagnar. Það er þessi söngur, sem Dav- íð var sá gæfumaður að nema. Á meðan hann var ungur, var söngurinn oft dynur í ólgandi æskublóði, með aldrinum varð hann fjarrænni og enn fegurri, ómur „frá ókunnu landi.“ Það er þessi ómur hins eilífa lífs, sem skapar ljóðum Davíðs hina dulrænu fegurð. Og það eru tengslin við upprunann, við guð og náttúruna, sem gerðu Davíð sannan og sterkan til hinztu stundar. t t t Davíð Stefánsson var tengdur þessum skóla á ýmsan hátt. Hann var gamall nemandi skól- ans, gagnfræðingur 1911, Eitt ár (1922—23) kenndi hann sögu í skólanum, og um langt árabil var hann prófdómari í íslenzku við gagnfræðapróf. Og fyrr á árum, meðan hann var heill heilsu, kom hann oft á sam- komur í skólanum og flutti stundum erindi. Varð hver mannfagnaður svipmeiri við ná- vist hans. Og glæsilegri mann í ræðustól gat ekki að líta. Fór þar saman fyrirmannleg fram- koma og frábærlega fagur róm- ur, djúpur og hljómmikill. Hlaut það að verða hverjum manni ógleymanlegt, sem átti því láni að fagna að sjá og heyra Davíð í ræðustól. Á veglegustu hátíð, sem skólinn hefir haldið, á fimmtíu ára afmæli sínu 1930, orti Davíð hátíðarljóð. Þá varð skólasöngurinn til, Undir skól- ans menntamerki.... Menntaskólinn á Akureyri þakkar Davíð Stefánssyni vin- áttu og þær andans gjafir, er hann færði skólanum. í virðing- ar og þakkarskyni við líf hans og starf eru nemendur beðnir að mæta við kirkjuna kl. 4 í dag og standa þar heiðursvörð, á meðan kista skáldsins er flutt burt — áleiðis í Fagraskóg. □ í MINNING ARRÆÐU, sem séra Pétur Sigurgeirsson sókn- arprestur á Akureyri flutti í Akureyrarkirkju við kistu Dav- íðs Stefánssonar skálds frá Fagraskógi 7. marz, sagði hann m. a. svo: DAVÍÐ STEFÁNSSON var með stórt verkefni, sem tók hug hans föstum tökum, 350 ára minning séra Hallgríms Péturs- sonar. — Og ljóðaflokkurinn um séra Hallgrím var að mestu fullmótaður. Hann hafði séð fyrir endann á verkinu, og átti aðeins eftir að leggja á það sein- ustu hönd. — En hér var hann að yrkja sín seinustu Ijóð. Að kvöldi sunnu- dags 23. fébrúar, viku áður en hann dó, — var hann fluttur á sjúkrahúsið, — og svo á drott- ins degi hinn 1. þ. m. var hann kallaður inn í vorið eilífa. t t f Eitt sinn var Davíð spurður að því, hvað þyrfti til þess að verða skáld. Hann svaraði: Náð og nám. Svo bætti hann við: „Það hefur alltaf verið sjald- gæft að akrar grói ósánir. — Fyrst þarf að plægja landið, auðga það frjóefnum og sá í það. Þá fyrst má vænta uppskerunn- Skáldskaparuppskerunni er líkt farið.i — Þar þurfa bæði hugur og hjarta að vera að starfi, — þrotlausu starfi. Oft fylgja því andvökur og örvænt- ing. — En svo keraur stundin. Stund gleðinnar, stund sköpun- arinnar. Þá er hvorki tími né rúm og skáldið gleymir sjálfu sér. — Ég hugsa um þetta, þegar ég fletti blöðum og vel bækur, sem Davíðs orð geyma. — Ég geng þar um algróin lönd, finn ilm- inn, og horfi á hinn fegursta gróður. — Ég sé fylkingar aðdá- enda, kynslóðir, sem koma og fara heim í Fagraskóg, — nema staðar í Bjarkarstíg. — t t t Og ég opna sálmabókina við sálminn hans. — Vér eigum sálmasafn sem ber vott um andagift og gefið hefir þjóðinni trúarstyrk, — og nú er það einn sálmur sérstaklega sem ég hef í huga: „Ég kveiki á kertum mínum við krossins helga tré.“ Þó að Davíð hefði ekkert ann- að ort en þennan eina sálm væri það fullkomið tilefni til að segja: Og andi Drottins kom yfir Davíð. Því að svo sterkur er þessi sálmur af trú og auðmýkt frammi fyrir guðshetjunni á Golgata. — Einu sinni bað ég Davíð. að segja mér, hvernig sálmurinn hefði orðið til. — Þá sagðist hann hafa verið í Noregi og gist á litlu hóteli skammt frá Osló, — það var um páskaleytið. Á föstudaginn langa voru gestir hótelsins sam- (Framhald á blaðsíðu 2). r Astsælasta skáld þjóðarinnar látið Nú drjúpa fjöll og dalir í djúpri, hljóðri sorg, því harpan dýrsta er hljóðnuð og liennar töfraborg. En fyrir handan fljótið hún fegurst hljómar, þar sem vinir biðu í varpa með vorsins hugarfar. Nú fölnar Fagriskógur því farinn er á braut lians fnegi, fríði drengur sem friðinn djúpa hlaut. Frá leiði hans slær Ijóma á ljóðsins tigna mál. Og Island, það varð auðugt af anda hans og sál. Vér þökkum góðum guði, sem gaf oss þennan mann, því enginn hefur elskað Island meira en hann. Hann varð þess stóra stjarna, þess styrkur, Ijós og von. Og alltaf mun það rnuna sinn mikla góða son. SIGURÐUR SVEINBJÖRNSSON. frá Syðri-Bakka. Ættingjar bera kistuna út í Fagraskógi. (Ljósniynd: E. D.)

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.