Dagur - 25.04.1964, Blaðsíða 1

Dagur - 25.04.1964, Blaðsíða 1
Karlakórinn Heimir syngur í dag KARLAKÓRINN HEIMIR í Skagafirði syngur í Samkomu- húsinu á Akureyri í dag, laug- ardag, kl. 5 e. h. og í kvöld kl. 9,30 á Dalvík. Heimir er skipaður á fjórða tug söngelskra Skagfirðinga. — Söngstjóri er Jón Björnsson, en einsöngvarar eru Sigurbjörn Jónsson á Hafsteinssstöðum, Pétur Sigfússon í Álftagerði og Stefán Haraldsson í Víðidal. Kórinn hefur áður farið í söngferðir í vor,.en þá véstur á bóginn. . □ Utilokum sóðaskapinn 1 SJÖTTUBEKKINGAR Menntaskólans á Akureyri eru hér í hópferð um bæinn, syngjandi og hrópandi. Þeir heimsækja kennara § I sína í ferðinni. Sumir fóru á stórum dráttarvögnum, aðrir á mótorhjólum eða hestum. (Ljósmynd: E. D.) | .................................................... •iiiminimninniiiiiiiiiimiMiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiMHiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiiimiiiiiiiiiiiiuiiniiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiniiií í miðbænum ÓHEMJULEGT ryk í umferð- inni í miðbænum spillir ánægj- unni af útiveru þar. Bréfarusl og hvers kyns óþverri angrar augað. Enn verður að takast á við rykið, sem er hrein plága og sezt auk þess á öll matvæli, sem óvai'in standa. Burt með rykið. Það á að fara aðra leið en í lungu borgaranna. Q Kaupið hækkaði um 84% á sama tíma En „kauphækkunarbraskararnir“ setja allt efnahagslífið úr skorðum, segja stjórnarblöðin ÁBURÐUR VERÐIÐ á áburði hefur nú hækkað um 13—17%, og staf ar það af því, að ríkisstjóm- in liefur hætt niðurgreiðsl- um á honum, ásamt ýmsu Öðru. Kjarninn kostaði í fyrra 2.760 kr. tonnið, en kostar nú 3.240 kr. Hækkunin nemur því 17,4%. Þrífósfat og fósfat kostaði í fyrra 2.620 kr. tonn- HÆKKAR ið, en kostar nú 2.930 kr. Hækkunin nemur 12,98%. Kalí-klórsúrt og kalí-brenni- steinssúrt kostaði í fyrra 1.800 kr. tonnið, en kostar nú 2.040 kr. Hækkunin þar nem ur því 13,30%. Blandaður garðáburður kostaði í fyrra 2.920 kr. tonnið, en kastar nú 3.300 kr. Hækkunin 13,01%. (Tíminn). ÞÓTT stjórnarblöðin fyrir sunn an haldi því stöðugt fram, að dýrtíðarvöxturinn sé launastétt unum að kenna og þetta berg- máli í málgögnum stjórnarinn- ar hér fyrir norðan, er hér um falsrök ein að ræða, eða hald- lausar fullyrðingar, sem hver tekur eftir öðrum í nauðvörn. Nokkrar staðreyndir í þessu efni hefur Alþýðusamband fs- lands rifjað upp í opinberri ályktun til ríkisstjórnarinnar nú fyrir skömmu, um leið og óskað er viðræðna við hana um kaupgjaldsmálin. Nær ördeyða á norðlenzku miSunum En fyrir sunnan er landburður af fiski daglega VERTÍÐIN sunnanlands hefur skilað meiri afla en nokkurn tíma áður á sama tíma. Margir bátar eru þó bundnir við hafn- arbakkann og eru ekki gerðir út vegna mannfæðar. En nýju bátarnir eru líka margir og eiga góðan hlut í hinni miklu aflasæld vetrarvertíðarinnar. Svo virðist, að hringnótaveið- in beri af, síðustu vikur a. m. k. En þessi nýja þorskveiðiaðferð var tekin upp af nokkrum bát- um í fyrra og gafst vel, en marg ir' eru með hringnót nú og slá hvert aflametið öðru glæsilegra. Því miðui' nýtist ekki allur aflinn, sem skyldi, vegna vönt- unar á fólki í landi til að vinna aflann, og nú vegna saltleysis. Hin mikla veiði syðra er auð- vitað öllum landsmönnum gleði efni. Hins vegar hafa þeir Norð- lendingar, sem veiðar stunda frá heimahöfnum aðra sögu að segja um aflabrögðin. Þrátt fyr- ir góðar gæftir og dugnað við sjósókn, bæði með línu og net, eru hlutir smáir. Á sama tíma og fréttir útvarpsins segja frá* ótrúlega mikilli veiði syðra, fá norðlenzkir bátar stundum færri fiska en Sunnlendingar tonn. Svo misjafnt er „gæðun- um skipt“ að þessu sinni. í gær var sama ördeyða fyrir Norðurlandi, nema gi'ásleppu- veiði er víða góð. „Síðustu daga er aflinn enn minni ef hægt væri,“ sagði hreppstjórinn í Hrísey í gær. „Það er steindauður sjór. Sjó- menn fara að missa móðinn ef ekki breytist.“ Fréttaritari Dags á Raufar- höfn sagði í gær: „Enn er sama fiskleysið. Hér er aflinn talinn í fiskum, en ekki í skippundum eða tonnum.“ Fréttaritarinn í Ólafsfirði sagði: „Aflinn glæddist aðeins á færi um daginn en datt svq niður aftur. Sumir eru að hætta, því aflinn er svo sáralítill.“ Q 55% en vöruverð um f grein Alþýðusambandsins segir um þetta efni: „Óhrekjanlegar staðreyndir sýna, að fyrst var kaupið lækk- að með lagaboði um 5,4%, sam- kvæmt opinberum útreikningi. Síðan var skellt á stórfelldri gengislækkun, vaxtahækkun og hækkun söluskatts, sem orsak- aði verulega verðhækkun, og verðlagsbætur voru afnumdar. í nærri 21/-* ár var engin kaup hækkun gerð, en kaupmáttur launa rýrnaði jafnt og þétt á þessu tímabili vegna síhækk- andi verðlags. Síðan hafa kauphækkanir verkafólks verið gerðar aðeins til þess að vega nokkuð upp á móti dýrtíð, sem áður var á skollin. Kauphækkanir hafa alltaf orð ið minni en verðhækkanir og komið á eftir. Það er því alger fjarstæða að telja orsakir dýr- tíðarinnar liggja í of miklum kauphækkunum verkafólks. Verkalýðssamtökin hafa ver- ið í varnarbaráttu síðustu árin og reynt að verja meðlimi sína fyrir áföllum dýrtíðarstefnunn- ar. Um þessar mundir standa málin þannig, að dagkaup verka manna hefur hækkað frá febr- úar 1960 að telja um 55%, en á sama tíma hefur vöruverð og þjónusta hækkað um 84%.“ Þannig hljóðar þessi kafli í ályktun stjórnar Alþýðusam- bandsins. Þær tölur, að vísitala vöru og þjónustu hefur hækkað um 84% meðan dagkaup verka- manns hefur hækkað um 55%, sýna bezt, að það er ekki kaup- gjaldið, sem hefur sprengt upp dýrtíðina á þessum tíma, heldur öfugt. Þar hefur verið að verki sú óheillastefna ríkisstjórnarinn ar, að kaupgetan væri of mikil og því yrði að hækka verðlagið meira en kaupgjaldið. Það er þessi stefna, sem hefur orsakað ófarnaðinn í efnahagsmálum og valdið hefur þessari einstæðu öfugþróun, að kaupmáttur venjulegra daglauna hefur rýrn að stórlega á tímum mesta góð- æris í sögu þjóðarinnar. Q BLÓM jj TIL ÚTFLUTNINGS ii BLÓMAFRAMLEIÐENDUR ;! hér á landi hafa fengið til- ; boð í 30 þús. nellikur tvisv- 1; ar í viku, sem yrðu sendar til Bandaríkjanna ef samn- ;; ingar takast. !; Einnig er í athugun að ;! selja fleiri blómategundir !; vestur. Þetta mun fyrsta til- ;! boðið um niikinn útflutning !; blórna frá íslandi, en skil- !; yrði hér á landi til blóma- ;! ræktar gefa garðyrkjumönn !; um algera sérstöðu til ódýrr ;! ar framleiðslu í stórum stíl, !; sem sjálfsaft er að nota eins !; vel og unnt er. O Kristján í Fremstafelli ÚTFÖR Kristjáns Jónssonar frá Fremstafelli verður gerð í dag. Jarðsett verður á Ljósavatni. Kristján var 83 ára er hann lézt. Hans verður nánar minnst hér í blaðinu síðar. Q é é •(* & Qle&ilegt sumarí Pökk fyrir ueturinnJ t í . I

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.