Dagur - 06.05.1964, Page 2

Dagur - 06.05.1964, Page 2
2 LaugaskóSa I Reykjada! slitlð Meira en amiar hver unglingur fær synjun uin skólavist í héraðsskólanura sökum þrengsla Laugaskóla 2. maí. Prófum í tveim bekkjum Laugaskóla, eldri og yngri deild, lauk 29. apríl. Daginn eftir voru nem- end.ur kvaddir. Skóíastiórinn, Sigurður Kristjánsson, flutti ÖLVAÐUR OG ÖKU- LEYFISLAUS NÝLEGA var bíl ekið út af vegi í Svarfaðardal. Okumaður var ökuleyfislaus og ölvaður einnig, að því er álitið er. Mál hans er nú í rannsókn hjá lögreglunni á Akureyri. □ BERKLAR eru nú eins hættu- legir í Evrópu eins og þeir haf nokkurn tíma verið, segir dr. J. J. van de Calseyde, forstjóri Ev- rópudeildar Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinar (WHO), sem hefur aðsetur í Kaupmannahöfn Forstjórinn lét þessi orð falla í tilefni af hinum alþjóðlega heil- brigðisdegi 7. apríl, en í ár var hann helgaður baráttunni gegn berklum. Hinar miklu framfarir sem komu í kjölfar hinna nýju lyfja, er tekin voru í notkun strax upp úr seinni heimsstyrjöld, komu mörgum til að halda, að berkl- ar væru ekki lengur veruleg ógnun við mannkynið. En bjart sýnismennirnir neyddust til að skipta um skoðun. Því enda þótt tala dauðsfalla af völdum 4 berkla væri mjog lág, þá var tala sjúkdómstilfella eftir sem áður alltof há. Á hverju ári komu í ljós þúsundir nýrra berklatilfella, jafnvel í háþró- uðustu löndum Evrópu. Hinn mikli fjöldi sjúklinga, sem slær niður aftur, leiðir auk þess í ljós, að beygurinn sem menn eitt sinn höfðu af þessum ótta- lega sjúkdómi, hefur horfið í svo ríkum mæli, að sjúklingarn ir fara ekki lengur eftir fyrir- mælum lækna sinna og van- rækja nauðsynlegar varúðarráð stafanir. Með þessu móti tor- velda þeir fullkomna lækningu og stofna sínum nánustu og öllu umhverfi sínu í alvarlega hættu. Dr. van de Calseyde bendir á, að tala þeirra sem ,fái berkla t eftir fimmtugsaldur fari hækk- Mjólkursamíag K.E.A. (Frámhald af blaðsíðu 1). 44.160.028,00 kr., en voru í árs- lok 1962 19.234.000,00 kr. Lokaverð til bænda á lítra varð 565,05 aurar og er það að- eins meira en verðlagsgrundvöll urinn er. Frá þessu verði dregst svo flutningskostnaður og fram lög til Stofnlánasjóðs, Búnaðar- sjóðs og SNE. □ skólaslitaræðuna og afhenti próf skírteini. í yngri deild skólans hlaut hæstu einkunn Sveinfríður Sig- urpálsdóttir, Hauganesi á Ár- skógsströnd, 9,01, annar varð Gunnlaugur Steingrímsson, Brimnesi í Skagafirði, 8,35, og þriðji Magnús Friðriksson, Brag hoiti, Arnarneshreppi, 8,31. í eldri deild hlaut hæsta ein- kunn Helga Karlsdóttir frá Narfastöðum í Reykjadal, 8,68, þá Þorbjörg Jónasdóttir, Þórð- arstöðum í Fnjóskadal, 8,58 og í þriðja og fjórða sæti voru Þórey Ketilsdóttir, Halldórsstöð um, Bárðardal og Hjalti Pálsson Akureyri, 8,42. andi, einkum meðal karlmanna. Ráðstefna, sem nýlega var haldin á vegum Evrópudeildar WHO með þátttakendum frá 22 löndum, komst að þeirri niður- stöðu, að berklar séu enn sem fyrr hættulegur sjúkdómur og veigamikil dánarorsök um alla Evrópu, þrátt fyrir þær merki- legu framfarir sem átt hafa sér stað eftir seinni heimsstyrjöld. Það er því kominn tími til rót tækra aðgerða. Ráðstefnan samdi áætlanir um baráttu gegn berklum í öllum löndum Ev- rópu, án tillits til þróunarstigs- ins sem hvert einstakt þeirra hefur náð í heilbrigðismálum. Baráttan verður byggð á neti berklavarnastöðva. Hún veltur að verulegu leyti á stuðningi al- mennings, sem verður að fá við- varanir um.hættuna,.sem.berklr ar hafa- í för með sér, og upplýs- ingar um helztu leiðir til að berjast gegn þeim. Fari ríki og þjóðir Evrópu eftir þessari áætlun, getum við náð því markmiði sem stefnt hefur ver- ið að síðustu árin: útrýmingu berkla sem almenns sjúkdóms, segir forstjórinn að lokum. KVIKMYNDAVIKA Á KVIKMYNDAVIKU MÍR í Alþýðuhúsinu, sem nú stendur yfir, hafa verið sýndar mynd- irnar Rómeó og Júlía, ballt- mynd, Engispretturnar eftir samnefndri sögu A. Tjekhof og Heiður himinn, sem er nútíma- verk. í kvöld, miðvikudag, verður flutt ópera eftir Tsjokovski, sem heitir Evgeni og Omegin (svið- sett í Bolshoi í Moskvu). — Á fimmtudaginn verður sýnt Leyndarmál tveggja úthafa, sem er leynilögreglumynd og að nokkru leyti tekin neðansjávar. Á fösíudaginn Friður fæddur og gerist sú mynd síðustu daga stríðsins í Þýzkalandi. Kl. 3 á fimmtudag er barnamynd. Myndlistarsýning er alla dag- ana í Alþýðuhúsinu. □ Nýlunda er það við skólann, að þar tóku nú vorpróf yngri deildar bóknáms npkkrir ung- lingar úr Suður-Þingeyjarsýslu, sem notið höfðu unglinga- fræðslu í skólahverfum sínum að loknu barnaskólaprófi. Er þetta gert til að tryggja þeim inngöngu í skólann, þar sem að- sókn hefur verið mjög mikil. Hæsta einkunn af þessum ný- ísak J. Guðmann. liðum hlaut Ævar Kjartansson frá Grímstungu á Hólsfjöllum, 9,08. Heilsufar í skólanum var gott í vetur og herjaði engin farsótt að þessu sinni. Daginn, sem nemendur voru kvaddir, var sýning á smíðis- gripum pilta. Var þar að venju margt góðra muna. SÍÐARI hluti ársþings ÍBA fór fram 4. maí s.l. Fyrir fundinum lágu álit nefnda um hin marg- víslegu mál íþróttasamtakanna í bænum. Stærsta málið á dag- skrá má eflaust telja íþrótta- hússbyggingamálið, en Akureyr ingar eru mjög á eftir tímanum í þeim efnum. ÍBA verður 20 ára á þessu ári og ráðgert er að halda upp á afmælið síðar í sumar. Sam- þykkt var uppkast af mótaskrá ÍBA þetta ár. Ákveðið að leita til héraðssambanda og banda- laga á Norðurlandi um skipan ráðs eða nefndar, er sæi um niðurröðun Norðurlandsmóta. Þá var samþykkt fjárhagsáætl- un ÍBA fyrir árið 1964 og eru niðurstöðutölur hennar kr. 160 þús. Fleiri mál voru á dagskrá, sem rakin verða síðar. Fæðiskostnaður pilta reyndist kr. 49,72 á dag, en fæði stúlkna kr. 41,45. Aðsókn að skólanum er svo mikil, að komnar eru nú. 150 umsóknir fyrir næsta vetur og eru þá ótaldar umsóknir núver- andi nemenda skólans, sem að sjálfsögðu. sitja fyrir. f skólan- um munu alls hafa verið fast að 120 nemendur í vetur. G. G. Ármann Dalmannsson, sem verið hefur formaður ÍBA frá stofnun þess, lét nú af störfum og við tók ísak J. Guðmann. f hófi er haldið var að Hótel KEA í fundarlok var Ármanni þakk- að mikið starf í þágu ÍBA og íþróttasamtakanna í heild. Ár- mann flutti skörulega ræðu, þakkaði íþróttamönnum sam- starfið og óskaði hinum nýja formanni og stjórn hans alls góðs. Að lokum tók til máls ísag J. Guðmann, flutti Ár- manni þakkir fyrir störf hans og sagðist vænta góðs samstarfs við félög og sérráð ÍBA. í stjórn ÍBA eru nú auk ísaks, Jónas Jónsson, Halldór Helgason, Leifur Tómasson, Björn Baldursson, Gísli Lórenz- son, Oli Jóhannsson og Birgir Guðmundsson. Q Sveit Menntaskólans á Akureyri. (Ljósmynd: K. Hjaitason) M. A. YANN MAI-BOÐHLAUPIÐ A AKUREYRI MAÍ-BOÐHLAUPIÐ, hið 18. í glæsibrag. — Tími sveitanna röðinni, fór fram á íþróttavell- var þess: inum á Akureyri s.l. sunnudag. 1. MA . . ..,..3:20,0 mín. Þetta hleup, sem er 1600 metra 2. KA ....... 3:27,8 mín. langt og 10 menn skiptast á utn 3. UMSE ..3:28,9 mín. að hlaupa misjafnlega langa Hlaupabrautin var ekki góð spretti, fór fyrst fram 1947 og og náðist þv ekki eins góður hefur aldrei fallið niður. Oftast tími af þeim sökum. — í sveit hefur MA unnið hlaupið, eða 13 MA voru: Þormóður Svarvars- sinnum, KA hefur unnið það son, Reynir Unnsteinsson, Bárð- fjórum sinnum og Þór í eitt ur Guðmundsson, Leifur Ragn- skipti. arsson, Steinar Þorsteinsson, Að þessu sinni tóku þrjár Haukur Ingibergsson, Kjartan sveitir þátt í hlaupinu. Ekki Guðjónsson, Birgir Ásgeirsson, var um tvísýna keppni að ræða Gestur Þorsteinsson og Hösk- að þesu sinni, MA hafði forystu uldur Þráinsson. í hlaupinu frá upphafi og smá Leitt var að jafn sterkt félag jók bilið til enda og sigraði með og Þór skyldi eki vera með að þessu sinni. Knattspyrnumenn félagsins hefðu áreiðanlega sómt sér Vel í hlaupiriu, eins sprettharðir og þeir virðast vera. Leikstjóri var Hermann Stef- ánsson menntaskólakennari og afhenti sigurvegurunum verð- laun að hlaupi loknu. Q Fyrsta íþróttamótið MA efndi til frjálsiþróttamóts á íþróttavellinum hér í bænum á sumardaginn fyrsta og mun það fyrsta sinnar tegundar á árinu. Keppt var aðeins í stökkum. Beztur varð árangurinn í há- stökki. — Urslit urðu þessi: Langstökk. Kjartan Guðjónsson 5,91 m Höskuldur Þráinsson 5,89 m Bárður Guðmundsson 5,87 m Þrístökk. Þormóður Svavarsson 12,52 m Höskuldur Þráinsson 12,37 m Gestur Þorsteinsson 12,22 m Hástökk. Kjartan Guðjónsson 1,85 m Bárður Guðmundsson 1,70 m Haukur Ingibergsson 1,60 m Keppendur voru allir úr Menntaskólanum. Q Berklar ógna Evrópu eun Ársþiiigi Í.B.A. lokið r r Isak J. Guðmann formaður í stað Armanns Ðal- r mannssonar, er starfað hefur frá stofnun LB.A.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.