Dagur - 10.06.1964, Side 7
T
JÓRUNN LJÓSMÓÐIR HÆTTIR STÖRFUM
JÓRUNN BJARNADÓTTIR,
Ijósmóðir Akureyrarbæjar, hef-
ur nú sagt starfi sínu lausu frá
15. nóv. í haust.
Alls hefur hún gegnt ljósmóð-
urstörfum í 39 ár, fyrst um 5
ára skeið syðra, en óslitið síðan
1930 hér í bæ. Munu þeir því
ófáir hér á Akureyri, og raunar
víðar að, sem minnast ljósu
sinnar með þakklæti og góðum
óskum, nú er hún lætur af störf-
um.
Launakjör ljósmæðra hafá"
alltaf verið bág, og hefur annað
og æðra löngum orðið þeim
hvatning til starfsins, en öryggi
um afkomu og opinber laun, Og
kunnugt er, að eftirlaun eru
ekki há, og sízt ef þau eru ekki
greidd full, enda þótt svo lang-
ur starfsdagur sé að baki sem
hér. Væri því vart til of mikils
mælzt, að bæjarstjórnin á Ak-
ureyri heiðraði þessa merku
ágætiskonu með sérstökum
heiðurslaunum, nú að æfistarfi
loknu, eða að minnsta kosti, að
hún héldi ljósmóðurlaunum
sínum áfram. (Aðsent).
- Frá aðalfundi Stétt-
arsambands bænda
(Framhald af blaðsíðu 1).
kaupgjaldsmál bænda séu hald-
laus í reynd. Leiðrétta verður
útreikning framleiðslukostnað-
arins. í þessu skyni verður afl-
að sérstakra upplýsinga frá
bændum til að styðjast við í
sumar. Ennfremur er unnið að,
að fá bændur til að færa rekst-
ursreikninga.
Stjórnin hefur unnið að mörg
um málum á árinu, og m. a. lagt
mikla vinnu í að útvega land-
búnaðinum aukið rekstrarfé, en
árangurinn hefur orðið of lítill.
Bændur verða að láta veruleg-
an hluta tekna sinna sem rekst-
ursfé til þeirra aðila, sem vinna
og selja vexti af því fé. Þetta
verður að breytast á þessu ári.
Afkoma bænda var með lak-
asta móti s.l. ár, eftir þeim upp-
lýsingum, sem þegar eru komn-
ar fram, en skattaskýrslur eru
ekki endanlega uppgerðar.
Skuldasöfnun er talsvert mikil.
Heildarskuldir bænda í Stofn-
lánadeildum Búnaðarbankans
voru við áramót um 605 millj.
kr., en lausaskuldasöfnunin í
kaupfélögunum jókst um 50 til
60 millj. og er nú um 250 millj.
Stafar þetta af mjög ört hækk-
andi verðlagi og óvenjumiklum
vélakaupum.
Misræmi eykst á milli bænda,
eftir því hvort þeir voru búnir
að rækta og byggja áður en
verðlagið rauk upp, eða hafa
staðið í byggingunni nú á verð-
bólgutímunum síðustu. Þetta
misræmi er nú farið að ógna
sveitabyggð í sumum landshlut-
um, sérstaklega á Austur- og
Norðurlandi." □
- VAXANDI ÖLVUN
Á AKUREYRI
(Framhald af blaðsíðu 1)
jókst mjög. Þegar út úr bænum
kom, jók hinn drukkni ökumað-
ur enn hraðann og töldu lög-
reglumenn að hann hefði kom-
izt upp í um 120 km hraða á
klst. Leikurinn barst út Kræk-
lingahlíð, Arnarneshrepp og
skammt norðan við Rauðuvík
á Árskógsströnd var ökumaður-
inn loks handsamaður. í baka-
leiðinni til Akureyrar, komu
lögreglumennirnir að bifreið,
sem ekið hafði verið út af veg-
inum nálægt Hofi í Arnarnes-
hreppi. Stóð ökumaður ölvaður
við bíl sinn og taldi allt í bezta
lagi!
S.l. mánudag hljóp 6 ára barn
fyrir bifreið, sem ekið var fram
an við Mjólkursamlagið. Bifreið
in snerti barnið og kastaðist það
i götuna. Hlaut það meiðsli, sem
þó eru ekki talin vera mjög
stórvægileg. □
MESSAÐ í Akureyrarkirkju n.
k. sunnudag kl. 10,30 árdegis.
(í sambandi við þing Stór-
stúku íslands). Sálmar nr.:
326, 304, 289, 318 og 681. B. S.
MESSAÐ í Lögmannshlíðar-
kirkju á sunnudaginn kemur,
kl. 2 e. h. Sálmar nr.: 511, 678,
314, 207 og 675. — Bílferð úr
Glerárhverfi. — P. S.
MÖÐRU V ALL AKL AU STURS-
PRESTAKALL. Guðsþjónusta
á Bakka sunnud. 14. júní kl.
2 e. h. Síra Birgir Snæbjörns-
son þjónar fyrir altari. Ágúst
Sigurðsson stud. theol. pred-
ikar. Hátíðarguðsþjónusta á
Möðruvöllum 17. júní kl. 11
árdegis. Síra Stefán Snævarr
messar.
MINJASAFNH), Akureyri. Op-
ið alla daga frá kl. 13,30—16.
Alveg lokað mánudaga. —
Ferðamannahópar geta skoð-
að safnið aðra tíma eftir sam-
komulagi við safnvörð. Símar
1162 og 1272.
NONNAHÚSIÐ opið kl. 2—4
síðdegis, daglega.
MATTHÍASARSAFNH) opið
kl. 2—4 e. h. alla daga, nema
laugardaga.
MIÐVIKUDAGSÞÁTTURINN
hans Dúa Björnssonar kirkju-
garðsvarðar fellur niður að
þessu sinni, vegna anna, segir
hann.
HRINGFERÐ! Lönd og Leiðir
efna til kvöldferðar um Eyja-
fjörð n. k. fimmtudag. Sjáið
nánar í augl. í blaðinu í dag.
LESSTOFA ísl.-ameríska fé-
lagsins. — Þeir, sem búnir
eru að hafa bækur, blöð eða
hljómplötur umfram tilskilinn
lánstíma, eru beðnir að skila
sem fyrst og í síðasta lagi á
laugardag.
GJAFIR til Fjórðungssjúkra-
hússins: Frá Kvenfélaginu
Freyju í Arnarneshreppi kr.
1500,00, til kaupa á kertastjök-
um og frá Hvöt kr. 1000,00, til
Barnadeildarinnar. Innilegar
þakkir. Ingibjörg. R. Magnús-
dóttir.
SÝNING AÐ BJARGI
SAMBAND norðl. kvenna er
50 ára um þessar mundir og
stendur nú yfir ársþing þess í
Skíðahótelinu í Hlíðarfjalli. —
í sambandi við afmælið hefur
verið komið upp handavinnu-
sýningu í félagsheimilinu Bjargi
og verður hún opin í dag kl. 14
til 22 og er það síðasti sýningar-
dagur. □
Frá Fegrunarfélaginu
STJÓRN Fegrunarfélags Akur-
eyrar skorar á bæjai'búa til sam
starfs við hreinsun lóða og
óbyggðra svæða, sem ekki hafa
þegar verið hreinsuð. Sérstak-
lega eru menn beðnir að losa og
setja í hrúgur grastægjur sem
vaxa með lóðagirðingum götu
megin. Bifreiðar á vegum fé-
lagsins munu aka á brott rusli,
föstudag og mánudag n. k. —
Nánari upplýsingar gefur Jón
Kristjánsson, sími 1374.
Onnur bæjarblöð eru beðin
að birta ofanskráð. • □
HJÓNAEFNI. Nýlega opinber-
uðu trúlofun sína ungfrú Mar
grét Hallsdóttir bókbands-
nemi, Akureyri og Reynir
Hjartarson prentnemi, Akur-
eyri. Einnig ungfrú Þórhalla
Þórhallsdóttir starfsstúlka á
Elliheimili Akureyrar og
Hjörtur Hjartarson sjómaður,
Akureyri.
HEILSUVERNDARSTÖÐ AK-
UREYRAR: Eftirlit með þung-
uðum konum fimmtudaga kl.
4—5 e. h. — Ungbamaeftirlit
miðvikudaga og annan hvern
mánudag kl. 1—2 e. h. Þarf
að pantast í síma 1977 og
1773. — Hvorttveggja þetta
fer fram í Hafnarstræti 81,
neðsta hæð. — Berklavarnir:
Þriðjudaga og föstudaga kl.
2—3,30 e. h. og bólusetningar
fyrsta mánudag hvers mánað-
ar kl. 1—2 e. h. — Hvort-
tveggja í húsnæði Berklavarn
arstöðvarinnar við Spítala-
stíg.
ÖRN SMÁRI ARNALDSSON
læknir, gegnir störfum mín-
um til 15. júlí n. k. Heimilis-
fang hans er Þingvallastræti
22. Sími 1542. — Jóhann Þor-
kelsson.
MINJASAFNIÐ! Opið frá 1,30
til 4 e. h., alla daga, nema
mánudaga. Á öðrum tímum
fyrir ferðafólk eftir samkomu
lagi við safnvörð. Símar 1162
og 1272.
I.O.G.T. Stúkan Isafold-Fjall-
konan nr. 1. Fundur fimmtu-
daginn 11. þ. m. kl. 8,30 e. h.
Fundarefni: Vígsla nýliða,
önnur mál. — Kaffi og kvik-
mynd eftir fund. — Æ. t.
FJÁRMARK
Fjármark mitt er sem hér
segir: Hálftaf aftan biti
framan hægra. Sneitt
frarnan biti aftan vinstra.
Gunnlaugur Kárason,
Litla-Árskógssandi,
Árskógshreppi.
TAKIÐ EFTIR!
Hefi loftpressu og jarð-
ýtu til leigu.
Gísli Eiríksson,
sími 1641.
TRILLA TIL SÖLU
22 feta löng, 15 ha. mótor
Uppl. í síma 2709.
MÚGAVÉL
Wicon-múgavél, sem ný,
til sölu.
Sími 1166.
SKÍÐAHÓTELIÐ HLÍÐAR-
FJALLÍ. Opið daglega fyrir
gistingu og greiðasölu. Borð
og matpantanir í síma um 02.
— Hótelstjóri.
í'jSS' vlc'V vjcS' Q'þ- vcS' ýrý-
& |
| Innilegar þakkir til barna, tengdabarna og vinafyr- |
* ir slieyti og gjafir á <90 ára afmœli mínu. |
£ Guð blessi ykkur öll. i
V V
| KRISTBJÖRG JÓNSDÓTTIR, Brekku,
X Glerárliverfi. X
% f
<£>
| Þalika innilega heimsóknir, gjafir og heillaskeyti á
sextugsafmceli mínu. — Lifið heil! f
4 PÁLL SIGURÐSSON, Klajyparstig 3, Akureyri. í-
Jarðarför
JÓHANNS JÚLÍUSSONAR,
sem andaðist í Elliheimilinu í Skjaldarvík 3. júní sl.,
fer fram fra Lögmannshlíðarkirkju fimmtudaginn 11.
júní kl. 2 e. h.
Vandamenn.
Móðir okkar,
KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Stóra-Eyrarlandi,
lézt í Fjórðungssjúkralnisinu á Akureyri 6. júní síðastl.
Útförin verður gerð frá Akureyrarkirkju föstudaginn
12. júní kl. 1.30 e. h. Blóin eru vinsamlegast afþökkuð.
Bömin.
DAVÍÐ JÓNSSON frá Sjávarbakka
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri föstu-
daginn 5. júní. — Jarðarförin fer fram frá Möðruvöll-
um í Hörgárdal laugardaginn 13. þ. m. kl. 2 e. h.
Vandamenn.
STEFÁN STEFÁNSSON,
fyrrverandi bóndi á Svalbarði,
er andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 4. þ.
m., verður jarðsungin að Svalbarði laugardaginn 13.
júní kl. 2.
Elín Stefánsdóttir, Kjartan Guðmundsson.
Innilegt þakklæti til allra, nær og fjær, sem auð-
sýndu okkur samúð og vináttu við fráfall og jarðarför
STEFÁNS STEFÁNSSONAR, jámsmiðs,
Glerárgötu 2.
Sigurlaug Stefánsdóttir, Steinunn Stefánsdóttir.
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Sveinn Stefánsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við
andlát og jarðarför
SALÓME SIGURÐARDÓTTUR.
Einnig þökkum við læknum og hjúkrunarkonum
við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, einstaka um-
önnun og alúð.
Kjartan Kristjánsson, böm og tengdaböm.