Dagur - 17.06.1964, Síða 1
Dagur
XLVII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 17. júní 1984 — 49. tbl.
1F* ?
Dagur
Símar:
1166 (ritstjóri)
1167 (afgreiðsla)
^ ----------------
17.
JÚNÍ
íslenzka lýðveldið
20 ára í dag
í DAG, 17. júní, heldur
þjóðin hátíð, sem að þessu
sinni er bœði helguð
freísishetju ísletidinga,
Jóni Sigurðssyni, og 20
ára afmœli lýðveldisins.
Hin hefðbundna 17. júni
hátíð verður hér á Akur-
eyri, og sennilega um
land allt, með liku fyrir-
komulagi og áður. En að
sjálfsögðu mun 20 ára af-
mœli lýðveldisins setja
sinn sviþ á hátiðahöldin,
svo sem verðugt er.
Hin harða, langa bar-
átta íslendinga fyrir fullu
frelsi og sjálfstceði. má
aldrei fyrnast, eða á hana
falla móða gleymskunnar,
því þá er hinu þráða
marki, fullu þjóðfrelsi,
heett.
Með auknu sjálfstæði
jukust framfarir h'cr á
landi, svo að segja má, að
frelsi og framfarir héld-
ttst i hendur. Saga síðustu
20 ára undirstrikar þetta
þó betur en nokkuð ann-
að, svo mjög hefur þjáð-
inni skilað fram á veg
þann tirna, i áþreifanlegri
og örri þróun. Að sjálf-
sögðu týnist eitthvað af
J>vi á örum breytihgatim-
um, sem vanmetið er um
stund á hinni efnahags-
legit sigurgöngu siðustu
áratugina. Og sennilegt
er einnig, að við liöfum
oft litið of björtum aug-
um á erlendar ,,fyrir-
myndir“. En á meðan
nógu margir þekkja sögu
þjóðar sinnar nœgilega
vcl og virða dýran arf
feðranna, er ástœða til að
horfa fagnandi fram á
veginn.
Á SUNNUDAGINN liaíði Snæíeli iandað á rnunda þusund máium og lunnum, efdr hálfs mánaðar veiðitíma, og liásetahluturinn
var farinn að nálgast 50 þúsund krónur. Ilér er skipið við lönd unarkrana í Krossanesi. (Ljósmynd: E. D.)
Stórkostlegt brunat jón
er eldur varð laus í nýbyggingu K.E.A. við
Glerárgötu síðastliðinn föstudag
ÞÚSUNDIR manna horfðu á
/ 0
eldsvoðann mikla við Glerár-
göíu s.l. föstudag, þegar nýbygg
ing KEA brann. Eldsins varð
vart klukkan rúmlega sex síð-
degis og slökkviliðið kom fljótt
á staðinn og gat bjargað að
mestu tvílyftum suðurhluta
KOSNIR FORSETAR
BÆJARSTJÓRNAR
OG BÆJARRÁÐ
Á FUNDI bæjarstjcrnar Akur-
eyrar í gærdag fór fram kosn-
ing bæjarráðs og forseta bæjar-
stjórnar.
í bæjarráð voru kosnir: Jak-
ob Frímannsson, Stefán Reykja-
lín, Jón G. Sólnes, Árni Jónsson
og Ingólfur Árnason.
Jón G. Sólnes var endurkjör-
inn forseti bæjarstjórnarinnar
með 11 samhljóða atkvæðum.
Stefán Reykjalín var kjörinn
fyrsti varafórseti með 6 atkv., í
stað Braga Sigurjónssonar, og
Ingólfur Árnason annar vara-
forseti. Q
bygg'ngarinnar. Norðurendinn
brann alveg og strengjasteypu-
bitarnir standa þar einir eftir.
Sá hlutinn, sem brann var einn-
ar hæðar. Öll var bygging þessi
um 1000 m-.
Eldhafið var gífurlegt.
Mikið af vörum var geymt í
þeim hluta hússins er brann og
eyðilögðust þær með öllu. Hins
vegar skemmdust vörur ekki
teljandi í suðurendanum tví-
lyfta, en þar er Byggingarvöru-
deild og Búvörudeild. — Þar
komst þó eldur í þak og er það
ónýtt.
Miklir timburhlaðar stóðu úti
fyrir byggingunni norðan við
og í þá komst eldur, sem strax
var yfirunninn. Veður var kyrrt.
Eir.s og Dagur hafði fyrir
skömmu eftir slökkviliðsstjóran
um á Akureyri, vantar tilfinn-
anlegá öfluga vatnsleiðslu í
Glerárgötuna á þessu svæði, og
enginn brunahani er nær en á
Þórshamri, um 150 metra frá.
í gær var ekki lokið við rann
sóknir á brunatjóninu, en víst
er, að um milljónatjón er að
ræða. (Vörutjón um 700 þús.).
Um eldsupptök, sagði slökkvi
liðsstjóri, að þau hefðu stafað
af gaslofti frá eldfimu lími, er
byggingaiðnaðarmenn voru að
vinna með í byggingunni. Byggt
Svarfdælingar á ferð
Á SUNNUDAGINN heimsótti
myndarlegur hópur svarf-
dælskra bænda stéttarbræður
sína í Saurbæjarhreppi. Eyfirð-
ingarnir tóku á móti gest-
um sínum hjá Hólshúsum og
fylgdu þeim um Djúpadal, Vill-
ingadal, síðan til fremstu bæja
í Eyjafirði og einnig að Þormóðs
stöðum í Sölvadal og kvöddu þá
við hreppamörk hjá Öxnafelli
á hreppamörkum Öngulsstaða-
og Saurbæjarhrepps.. — Þoka
hamlaði ferð upp á Hólafjall.
Naumast þarf fram að taka,
að veitingar voru góðar og ræð-
ur voru fluttar, bæði af gestum
og heimamönnum og Benedikt
Ingimarsson flutti kvæði til
Svarfdælinga. Ferð þessi þótti
hin bezta.
Formaður Býnaðarfélags Svarf
dæla er Gunnar mmmmmmson,
en formaður búnaðarfélagsins í
Saurbæjarhreppi Jón Hjálmars-
son í Villingadal. En kynnis-
ferðin var á vegum þessara
félaga. □
Frá brunanum mikla á föstudagskvöldið.
(Ljósmynd: E. D.)
verður að nýju á hinum 700 m2
brunarústum. □
BÆNDAFÖR
BÚNAÐARSAMBAND Eyja-
fjarðar undirbýr bændaferð til
Austurlands. Lagt verður af
stað á laugardaginn og komið
heim annan sunnudag. Farið
verður allt til Vopnafjarðar. Far
arstjóri verður Ragnar Ásgeirs-
son. Búist er við að um 70
manns, karlar og konur, taki
þátt í förinni. □
AKRANESKAUP-
STAÐUR 100 ÁRA
f GÆR varð Akraneskaup-
staður 100 ára, þ. e. 100 ár
liðin síðan Kristján konung-
ur IX. gjörði kunnugt, að
við Lanibhúsasund skyldi
löggiltur verzlunarstaður
vera.
Akranes er nú orðinn
blómlegur útgeröar- og verzl
unarbær, með mikla fram-
tíðarmöguleika. □
SKIPIN BVRJIIÐ AÐ
VEIÐA Á NÝ
SÍÐDEGIS í gær var komið
gott veður á síldarmiðunum
nyrðra og síldarskipin byrjuð
að kasta 60—70 mílur út af
Sléttu.
Talið er, að 250 skip stundi
síldveiðar fyrir Norður- og
Austurlandi í sumar og eru 225
þeirra þegar byrjuð.
Síldaraflinn s.l. laugardags-
kvöld var 154 þúsund mál og
tunnur, en var á sama tíma í
fyrra aðeins 57 þúsund mál og
tunnur. □