Dagur - 17.06.1964, Page 8
8
101 HRINGIIENDA
SVO nefnist vísnakver, sem
liefur að geyma margar góð-
ar stöknr, en alls eru í kver-
inu 101 hringhenda eftir
Rósberg G. Snædal rithöf-
und á Akureyri.
Visnakver þetta er prentað
í litlu broti, á góðan pappír,
lætur Htið yfir sér, en mun
gleðja marga þá, er vísum
unna. □
SMATT OG STORT
Bræðslusíldarverðið
182 kr. fyrir málið
VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegs-
ins hefur ákveðið bræðslusíldar-
verðið í ár kr. 182,00 fyrir mál-
ið, í stað kr. 150,00 í fyrra.
Auk þess mun skipum, sem
flytja síldarfarm sinn um lengri
vegalengdir (milli landshluta),
verða greiddar ákveðnar upp-
bætur á málið.
Síldarlýsi hefur hækkað tals-
vert í verði frá því í fyrra,
sömuleiðis hefur síldarmjöl
hækkað nokkuð. □
Brætt af fullum krafti
á Vopnafirði
Vopnafirði 16. júní. Hér er
brætt af fullum krafti. Um 24
þúsund mál hafa borizt síldar-
verksmiðjunni. En okkur vant-
ar fleiri menn til starfa. Hér
var margt skipa inni yfir helg-
ina, en þau eru farin út og eru
að fá síld grynnra en áður. K.V.
UM ERLENDU SKTJLDIRN AR
Hver man ekki endurteknar
fullyrðingar Morgunblaðsins og
sendimanna íhaldsins um, að er-
lendú skuldirnar á vinstristjórn-
arárunum, fram til ársloka 1958,
væru að „sökkva þjóðinni í
skuldafen“. Hinar miklu skuldir
voru taldar svo geigvænlegar í
herbúðum núverandi stjórnar-
flokka, að þeirra vegna m. a.
væri hægt að afsaka hið nýja
efnahagskerfi, sem kennt var
við „viðreisn".
Um þetta er tölulega fjallað í
leiðara þlaðsins í dag, og sýnt
fram á með óyggjandi rökum,
að þótt inneignir bankanna hafi
aukizt síðustu árin vegna met-
afla ár eftir ár og hátt verð á
sjávarafurðum, hafa á sama
tíma verið tekin erlend lán til
langs tíma og einnig mikil lán
til skamms tíma (vörukaupalán-
in). Samtals nemur skuldasöfn-
unin, samkvæmt opinberum
skýrslum, mun hærri upphæð
en hækkanir á inneign bank-
anna. Þannig eru staðreynd-
irnar.
ÍSLANDSMET GUÐMUNDAR
í. GUÐMUNDSSONAR
Sænska stórblaðið Sydsvenska
Dagbladet birti nýlega grein um
íslenzka sjónvarpsmálið, sem
vakið liefur undrun frændþjóð-
anna og mjög að vonum. Með
greininni, sem heitir „Amerísk
sjónvaypsógnun við fsland“,
birtir blaðið mynd af Guðmundi
f. utanríkisráðherra og telur
liann hafa sett íslandsmet með
því að veita leyfi til stækkunar
á siónvarpsstöð varnarliðsins. í
grein þessari er enn fremur get-
ið um áskorun þeirra 60 fslend-
inga, sem allir muna, en undir
þá áskorun riíuðu margir hinir
merkustu menn nöfn sín svo
sem biskup fslands, Nobelsverð-
launaskáldið, Gunnar Gunnars-
son, Sigurður Nordal og ýmsir
aðrir þekktir leiðtogar mennta-
og menningarmála.
Og enn er getið hinnar skel-
eggu greinar Þórhalls Vilmund-
arsonar prófessors, sem útvrarp-
ið setti í bann, en var síðar gef-
in út sérprentuð hjá Helgafelli.
Frændþjóðir okkar á Norður-
löndum hafa hneykslazt mjög á
mólsmeðferð íslenzkra stjórnar-
valda í sjónvarpsmáli því, sem
við erlenda hermenn er kennt
og á því yfirleitt, að íslendingar
skuli taka það í mál að leyfa
hermannasjónvarp á íslandi,
sem nói út fyrir bækistöðvar
varnarliðsins.
VART SIÐMENNTAÐIR
Brezkur þingmaður sagði ný-
legaj að þær þjóðir, sem ekki
gerðu sitt bezta til að reisa rönd
við umferðar-öngþveytinu, gætu
vart talizt siðmenntaðar. Hann
lagði áherzlu á, að sem víðast
yrði herför gerð gegn ógnunum,
sem borgurum eru búnar af
hinni miklu umferð. Og slíkt
er einmitt gert í mörgum lönd-
um.
Hér á landi, og alveg sérstak-
lega í Reykjavík, eru slysin
(Framhald á blaðsíðu 7).
Á SUNNUDAGINN Iauk
reiðskóla þeim, sem Æsku-
Iýðsráð Akureyrarkaupstað-
ar og Léttir efndu til fyrir
börn og hófst 25. maí. Börn-
in voru 38 og kennari Ingólf-
ur Ármannsson. Bæjarbúar
lánuðu hesta. Þegar blaðið
spurði íngólf um reiðskólann
sagði hann m. a.: Ég kveið
fyrir að börnin yrðu óhlíðin
og e. t. v. líka áhugalítil. En
þetta fór á annan veg. Börn-
in voru svo elskuleg, að un-
un var með þeim að vera. Og
áhugi þeirra var slíkur, að
tæpast féll úr nokkur dagur
hjá þeim. En svo reyndust
hestarnir líka framúrskar-
andi vel, eins og þeir gera
oftast, þegar þeim er treyst,
og um þetta ætla ég að nefna
tvö dæmi. Hross eitt var
okkur lánað, sem var svo
óþaégt, að eigandinn komst
naumlega ó bak. En það rót-
aði sér aldrei í óþekktarátt
gagnvert börnunum, sem
voru á aldrinum 8—14 óra
og mörg voru algerlega van-
kunnandi í umgengni við
hrossin. Þegar börnin voru
farin að venjast dáiítið, fór
ég með þau yfir kvísl eina
og var þar snarbrattur bakki.
Það var unun að sjá, hvern-
ig hestarnir létu sig síga
fram af bakkanum, í stað
þess að fara óhikað. Ekkert
slys af neinu tagi henti okk-
ur í námskeiðinu og sjálfur
hafði ég mikla ánægju af
þessum þriggja vikna félags-
skap barna og hesta, sagði
forstöðumaðurinn að lokum.
Myndirnar eru af Ingólfi
Ármannssyni ,t. v„ og þátt-
takendum í námskeiðinu. —
(Ljósmyndir: E. D.)
Vörusala KVA nam 9.5 millj. kr.
og hafði aukizt yfir 30 af hundraði frá fyrra ári
Á AÐALFUNDI Kaupfélags
verkamanna á Akureyri, sem
haldinn var s.l. föstudag, sagði
kaupfélagsstjórinn, Haraldur
Helgascn, m. a., að vörusala fé-
lagsins hefði aukizt um 32% á
s.l. ári og nam vörusala sam-
tals 9,5 millj. króna. Á árinu
var lokið breytingu á vefnaðar-
vörudeild félagsins og keypt var
hús það við Helgamagrastræti,
sem verzl. Kjöt og fiskur og síð-
ar Kjörver, rak um skeið verzl-
un í. Þar hefur félagið rekið
matvöruverzlun. Framkvæmda-
stjórinn taldi rekstursafkomuna
fremur þrönga, m. a. vegna mik-
ils kostnaðar við framkvæmdir,
en með nýju ári hefði heldur
létzt fyrir fæti.
Albert Sölvason og Þorsteinn
Svanlaugsson áttu báðir að
ganga úr stjórn, en voru endur-
kjörnir, ennfremur var endur-
kjörinn Stefán Þórarinsson end-
urskoðandi.
Að loknum aðalfundi var
fundarmönnum boðið að sjá
nýtt útibú í Glerárhverfi, sem
opna átti morguninn eftir. □
DAGUR
KEMUR NÆST ÚT á laugar-
daginn. Auglýsingar þurfa að
berast tímanlega. Q