Dagur - 01.08.1964, Qupperneq 1
Dagur
kemur út tvisvar í viku
og kostar 20 krónur á
mánuði.
XLVII. árg. — Akureyri, laugardaginn 1. ágúst 1984 — 61. tbl.
Dagur
Símar:
1166 (ritstjóri)
1167 (afgreiðsla)
FerðamaiinasSraumur á Héraði
Gæsirnar Jiúsundum saman á Lagarfljóii í sárum
Egilsstöðum 31. júlí. Veðráttan
í júlímánuði hefur verið óvenju
hagstæð. Hefur því' gengið vel
að heyja, enda flestir bændur
búnir að hirða fyrri sláttinn og
háarsprettan cr mikil. Allt hey,
sem komið er í hlöður, er vel
verkað. Byggakrarnir eru nú
svo fagrir að unun er á að líta.
Vel lítur út með þroska korris-
ins og líklegt að hægt verði að
uppskera seinnipartinn í ágúst.
Fyrir nokkrum dögum átti ég
leið upp með Lagarfljóti að vest
an. Þar voru heilir flotar af
gæsum. En þær leita á vatnið á
meðan þær eru í sárum. Síðan
koma þær svo og skrafa við'
bændur. Gæsirnar verpa mikið
á Austurlandi, bæði í hólmum í
fljótinu og upp til heiða. Bænd-
ur gera grín að gæsatalningu
þeirra Bretanna, sem komust
að þeii-ri niðurstöðu, að hér á
landi væru um 25 þúsund villt-
ar gæsir. Þessi tala væri senni-
legri fyrir Austurland eitt.
Ferðamannastraumurinn hef-
ur verið meiri en nokkru sinni
áður og óslitinn í þessum mán-
uði. Margir búa í tjöldum og
lifa spart.
Berin eru að þroskast og ætl-
ar víst að verða mjög gott berja-
ár. Börnin fara í berjamó og
eru blá upp að augum, er þau
koma til baka.
Engin félagasamtök þora að
efna til mannfagnaðar um verzl-
unarmannahelgina, vegna fyrri
reynzlu þar af. V. S.
Ileitur lækurinn rennur lítinn spöl ofanjarðar en hverfur svo niður í hraunið. (Ljósmynd: E. D.)
FUNDINN FJÁRSJÖÐUR I AÐALDAL
Heitt vatn, sem nægir til að liita sveitaþorp
Auralausir úllendingar lil ama
Seyðisfirði 31. júlí. Hér bar um
tíma mikið á skozkum mönnum,
er hingað komu óráðnir og al-
gerlega peningalausir og ætluðu
þeir að sökkva upp í stóru aus-
unni, fá vinnu og græða fé á
VERÐUR GOTT
BERJASUMAR?
Ólafsfirði 28. júlí. Nú lítur út
fyrir, að verði gott berja-
sumar því krækiber eru full-
þroskuð og bláber og aðalbláber
að þroskast, en það er óvenju
snemmt.
Ufsaveiði er' treg, einnig er
þorskur tregur og engin síld
hefur komið til Olafsfjarðar
marga síðustu daga.
Heyskapur bænda gengur þol-
anlega. En skúrir valda töfum.
f gær rigndi síðast en sólskin er
í dag. B. S.
Mikil er sú umferð
Laugum 28. júlí. Fyrri slætti er
langt komið í Reykjadal eða
jafnvel lokið á sumum bæjum,
enda hin ákjósanlegasta hey-
skapartíð undanfarnar vikur.
Umferð um þjóðveginn hefur
verið gífurleg og straumurinn
legið til norðurs og austurs. í
gær brá til norðanáttar með
kulda og úrkomu. Veðurbreyt-
ingin hafði þau áhrif, að fleiri
bílar fóru nú suður og vestur
og var umferðin sízt minni en
áður. G. G.
skömmum tíma. En það gerðu
nokkrir landar þeirra í fyrra-
sumar. Að þessum mönnum
urðu hálfgerð vandræði.
Hér liggja inni tugir norskra
skipa. í gær urðu nokkur slags-
mál meðal Norðmanna í landi.
Áfengisbúðin er lokuð og eru
þá drukknir ýmis konar „drop-
ar“, sumir óhollir.
Saltað er á þrem söltunar-
stöðvum í dag og skip eru á leið-
inni með síld. I*. J.
AÐALDALSHREPPUR og
fræðslumálastjórn létu fara
fram jarðhitarannsóknir í Aðal-
dal og síðan borun eftir tilvísun
Jarðborunardeildar.
í landi Hafralækjar var jarð-
ylur, sem fyrrum var talinn
kaldavermsl. Þar nærri þótti
líklegt til árangurs að bora og
var það gert,
Árangurinn varð stórkostleg-
ur. Á 50 m dýpi tók 75 gráðu
heitt vatn að streyma upp úr
holunní og jókst vatnsmagnið
að mun á 70 m dýpi. Á næstu
25—30 m jókst vatnið ekki og
var boruninni þá hætt.
Vatnsmagnið er allt að 9 ltr.
á sek. og nægir það til að hita
upp fjölda húsa. Til samanburð-
ar má geta þess, að það er 25
gráðum heitara en laug sú, sem
Laugaskóli er hitaður með, og
fjórum sinnum meira. Er því
augljóst hvers virði heita vatnið
á Hafralæk getur verið með
hagkvæmri notkun.
í Aðaldal er þörf á nýjum
barnaskóla og einnig samkomu-
húsi. Hafralækur, með sína
nýju og dýrmætu uppsprettu, er
nálægt miðju hreppsins og auð-
veldar það notkun hins heita
vatns til almenningsþarfa og
e. t. v. í þágu fleiri hreppsfélaga.
Verkstjóri við borun var Jón
Ogmundsson.
■ Á Hafralæk búa tvenn hjón,
Þórhallur Andrésson og Jó-
hanna Eiríksdóttir og Ásgrím-
ur.sonur þeirra og Elma Stein-
grímsdóttir kona hans. □
Minkum fækkar í landinu
Þrátt fyrir Jiað nema þeir árlega ný landsvæði
ÞRJÚ SKIP Á LEIÐINNI TIL ESKIFJARÐAR
Eskifirði 31. júlí. Hér snýst allt
um síld, hvort sem það er nú
að öllu leyti skynsamlegt eða
ekki. í bræðslu munu komin
um 80 þúsund mál og hátt á ní-
unda þúsund tunnur í salt.
Fimm söltunarstöðvar eru hér
og geta þær tekið á móti mikilli
síld til söltunar. Þrjár stöðvar
voru hér í fyrrasumar, en tvær
nýjar bætust við.
í kvöld kemur Mánatindur
með 1100 tunnur og Vattarnes
og Seley með 1000 tunnur hvort
skip. Verður það góð viðbót við
söltunina. S. H.
ÍSLENDINGAR hafa skapað
sér þá sérstöðu, að banna með
lögum minkaeldi í landinu á
meðan Danir og Norðmenn selja
loðskinn frá minkabúum fyrir
hundruð milljóna króna árlega.
Þetta er sannarlega athyglis-
vert þegar fyrir liggur, að óvíða
í heiminum fellst hlutfallslega
meira til af minnkafóðri en hér
á landi, samanber fiskvinnslu-
stöðvarnar óg sláturhúsin. Enn
fremur verða minkaskinnin feg-
urri þar sem loftslag er fremur
svalt, eins og hér. Og hér er
villiminkyr fyrir og útbreiddur
um meginhluta landsins. Aðeins
BRÚIN í LAXÁRDAL, skammt frá Birnmgss töðum, sem sett var upp s.l. ár. (Ljósrn.: E. D.)
á svæðinu milli Þistilfjarðar og
Skeiðarársands er ennþá mink-
laust land.
En þótt íslendingar banni
sjálfum sér með lögum, að hafa
hagnað af minkaeldi, þurfa þeir
að berjast við viflimink og
veiddu árið 1963 um 2000 minka
með ærnum kostnaði. Er það
raunar minni veiði en t. d. árið
1958, því þá veiddust 3500 dýr,
þrátt fyrir minni útbreiðslu þá.
Að sjálfsögðu þarf að drepa
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Ilarður bifreiðaárekst-
ur við Engihlíð á Ár-
skógsströnd
SÍDDEGIS í fyrradag varð bif-
reiðaslys á þjóðveginum við
Engihlíð á Árskógsströnd. Bíll
frá Akureyri og annar frá Dal-
vík mættust þar og skullu
harkalega saman. í Dalvíkur-
bílnum voru tveir menn og var
annar þeirra fluttur í sjúkrahús
vegna meiðsla og bílstjórinn
skarst af rúðubrotum. í Akur-
eyrarbílnum var ökumaðurinn
einn og hlaut hann smámeiðsli.
Bifreiðirnar stórskemmdust báð
I ar. — Framúrakstur þriðja bíls,
_ orsakaði slys þetta. Q