Dagur - 26.08.1964, Síða 1
Dagur
Remur út tvisvar í viku
og kostar 20 krónux á
mánuði.
Dagur
XLVII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 26. ágúst 1964 — 67. tbl.
Dagur
Símar:
1166 (ritstjóri)
1167 (afgreiðsla)
Hagfræðistofiiiui
landsbyggðarinnar
ALLIR VITA, að íslendingar
eiga fsland vegna þess að þeir
byggðu það allt í öndverðu og
með búsetunni er þessi dýr-
mætasti réttur þjóðarinnar helg
aður enn í dag.
En þróun búsetunnar hefur
orðið á þann veg á síðustu ára-
tugum, að Reykjavík og ná-
grenni hefur dregið til sín fólk
og fjármagn úr öllum lands-
hlutum, svo og vald. En í ýms-
um héruðum fækkar fólki ört,
svo við landauðn liggur.
Með framhaldi á þessari þi-ó-
un er skammt til borgríkis við
Faxaflóa. En gegn þessari þró-
un mælir það, að nýting lands-
ins og náttúruauðæfa þess, svo
og fiskimiðanna, byggist á bú-
setunni í sveit og við sjó um
allt hið byggilega ísland.
FRAMSÓKNARMENN!
M U NI Ð kjördæmisþingið á
Laugum 29. og 30. ágúst. Þingið
hefst kl. 2 e. h. á laugardag. □
Hinni miklu spurningu um
það, hvort núverandi þróun,, þ.
e. enn ört vaxandi þéttbýli á
suðvesturhorni landsins, á kostn
að „eðlilegrar" fólksfjölgunar í
öðrum landshlutum sé rétt eða
röng, veÆur að svara með meiri
rökum en hingað til hefur ver-
ið unnt.
Setja þarf á fót einhvers
konar hagfræðistofnun, er skor-
ið gæti úr því svo óyggjandi
væri, hver hlutur Reykjavíkur
svæðisins er gagnvart lands-
byggðinni eða öfugt, t. d. í gjald-
eyrisöflun þjóðarinnar, mat-
vælaframleiðslu og í gjaldeyris-
sparandi iðnaði. Einnig þarf að
fá svör við því, hvaðan þeir
fjármunir koma og hvert þeir
renna, sem um ríkiskassann
fara.
Á grunni hinna nýju upplýs-
inga, bæði um nefnd atriði og
önnur, verður að byggja upp
framtíðarstefnuna í búsetumál-
unum, nýtingu landsins gæða og
skiptingu auðs og arðs og hafa
hana að leiðarljósi. □
Á LAUGARDAGINN opnar frú
Helga Weisshappel málverka-
sýningu í Landsbankasalnum og
stendur sýningin í 5 daga, frá
kl. 3—11 dag hvern. Á laugar.
dag er þó boðsgestum ætlaður
tími frá kl. 3—5.
Á sýningunni verða 34 mynd-
ir, vatnslitamyndir, olíukrítar-
myndir og teikningar og eru
allar myndirnar til sölu.
Listakonan hefur áður haldið
5 sýningar hér á landi, en auk
þess tvær í Vínarborð og tvær
í Noregi.
Helga Weissapphel hefur feng
ið mjög góða dóma fyrir sér-
stæða list sína, ekki síður utan-
lands en innan. □
MENN BRENNA SIG
Á FÓTUM
BLAÐINU hefur verið tjáð að
öðru hverju brenni fex-ðafólk
sig á fótum á leii'hverasvæðinu
í Námaskai-ði. En einmitt þar,
sem hinir dulai-fullu leirhverir
sjóða og kraumá í mörgum lit-
um, er forvitnilegt um að litast,
en ekki jafn öruggt um að
ganga, svo sem reynslan sýnir.
Tími mun til þess kominn, að
setja einhverjar skorður við
ótakmai'kaðri umferð á hvera-
svæðinu eða glögg merki til við-
vörunar, þar sem hættulegast
er að ganga. Líklegust til úr-
lausnar er samvinna ferðaskrif-
stofa og gistihúsa austur þar. □
BÓKHLAÐAN nýja á Akureyri verður væntaalega foklield í haust.
(Ljósmynd: E. D.)
LAXÁRVIRKJUN OG BÚRFELL
LIELGA WEISSHAPPEL.
MEÐ vísun til símtals leyfi ég
mér að upplýsa eftirtalið sam-
kv. áætlun S. Thoroddsen má
fá alls 400 milljón kilowatta-
stundir úr gljúfrunum við Brú-
ar eða 305 milljón kilovatta-
stundir þegar frá er di'egin sú
orka, sem nú verandi stöðvar
geta unnið sem gi'unnstöðvar.
Kostnaðui'inn við að ná þessum
305 milljón kilovattstundum í
gi'unnstöð er samkvæmt laus-
legri áætlun Sigui'ðar 410 millj-
ón krónur og er þá miðað við
oi'kuna beint frá vélum og nú-
verandi verðlag og aðflutnings-
gjöld. Það eru engin líkindi á
að árlegur í'ekstrarkostnaður
nýrra vatnsaflsstöðva geti orð-
ið laegri en 10% af stofnkostn-
aði og er þá ekki í'eiknað með
neinum opinberum gjöldum eða
greiðslum fyrir vatns- og lands-
réttindi og ekki heldur afgangi
til fi'ekari öflunar rafoi'ku. Sé
10% af 410 milljón krónum deilt
$ &
<« X
I Skelegg álfkSun H.-ÞinpyÍRp |
FUNDUR sambands áfengisvarnarnefnda í Norður-Þingeyj-
ai-sýslu var haldinn á Kópaskeri 20. ágúst. Á þessum fundi
voru m. a. samþykkt mótmæli gegn því, að aldurstakmörk
ungmenna, sem mega kaupa áfengi, verði lækkuð. Fundur-
inn taldi nauðsynlegt að í'annsakað sé undanbragðalaust,
hvei'jir selji unglingum áfengi og þeir látnir sæta þyngstu
refsingu.
Ennfremur samþykkti fundui'inn ályktun, sem er svohljóð-
andi:
„Fundurinn vill vekja athygli á, að félagsheimilin, sem
í'isið hafa upp víðsvegar um landið, eru sérstaklega ætluð
til að vera lyftistöng heilbrigðs félags- og samkomulífs, hvert
í sinni byggð. Samband áfengisvarnai'ráðs telur því brýna
nauðsyn að allir leggist á eitt, um að áfengir dx-ykkir séu þar
með öllu útilokaðir og skox-ar á yfirvöldin, löggæzlu- og
forstöðumenn viðkomandi stofnana, að stuðla að því, að svo
megi verða.“ Q
með 305 milljón kilowattstund-
um er útkoma 13 V2 eyrir á
kilowattstund. Sambærileg tala
fyrir fullvirkjað Búrfell er 10,8
aurar á kilowattstund, sem þýð-
ir að orkan úr gljúfrunum við
Brúar sé 25% dýrari en frá
Búrfelli. Hér er þá ekki tekið
tillit til rekstraröryggis sem
fyrst í stað yrði meira í virkjun-
inni við Brúar, en á móti kem-
ur, að í Búrfellsáætluninni mun
reiknað með miklu hærri ein-
ingarverðum á byggingarvinnu,
þótt um stærri virkjun sé að
ræða og hygg ég að nánari
reikningar muni sýna að fram-
angreindur munur sé allmiklu
meiri. Eiríkur Briem.
STJORN Laxárvirkjunar átti
þess kost að sjá ofangreinda at-
hugasemd við áætlun um full-
virkjun Laxár við Brúar í Suð-
ur-Þingeyj arsýslu og vill hér
með koma eftirfarandi á fram-
færi:
„Ef Laxá verður virkjuð sam
kvæmt tilhögun 4 (grunnaflstöð
50 þús. kw.), samkvæmt áætlun
Sigurðar Thoroddsen, og núver-
andi virkjanir lagðar niður, þá
er eðlilegt þegar hin nýja virkj-
un tekur til starfa, að hún taki
þá að sér greiðslu á þeim skuld-
um, sem þá kunna að hvíla á
núverandi virkjunum.
Skuldir Laxárvirkjunar í dag
eru þessar:
Skuld Laxá I ca. 0,4 millj.kr.
Skuld LaxáH ca. 49,8 millj.kr.
Alls ca. 50,2 millj.kr.
Flest lán Laxárvirkjunar eru
annuitetslán, þ. e. með jöfnum
árlegum greiðslum, og gera má
ráð fyrir því, að skuldir virkjun-
arinnar lækki á næstu 4 árúm
um a. m. k. 20 millj. kr., þannig
að þær verða þá komnar niður
í um 30 millj kr.
Hinsvegar má gera ráð fyrir
því ef núverandi virkjanir verða
lagðar niður, að söluverðmæti
véla, rafbúnaðar og annarra
tækja mæti að verulegu leyti
skuldunum.
Kostnaour ofangreindrar virkj
unar skv. Sig. Thoroddsen, og
verð rafmagns frá henni er því
óbreytt frá því sem áður hefir
verið getið nema hvað fallast
má á að hinn árlegi rekstrar-
kostnaður sé réttari 10% en
8%, en það þýðir að verð á
hverja kwst. við stöðvarvegg er
um 10,2 aurar og á Akureyri
um 15,5 aurar.“
SNJÓR í
BYGGÐUM
ÓVENJULEGUR kuldi gekk
yfir landið í síðustu viku. Þá
urðu heiðavegir þungfærir
sökum snjóa, allt frá Norð-
Austurlandi suður á Holta-
vörðuheiði, og Siglufjarðar-
skarð lokaðist. Við Eyjafjörð
gránaði niður í sjó. Á Vaðla-
heiði var skafrenningur og
talið haglaust. Stór áætlun-
arbíll frá Húsavík komst
ekki keðjulaus um Dalsminn
isveg. Öxnadalsheiði var þó
auð en í Blönduhlíð og
Langadal var snjóföl Á
Möðrudal varð ófært nema
stærstu bílum. Sunnanlands
féll kartöflugras, einkum
austanfjalls. Úrhellisrigning
olli vegaskemmdum. □