Dagur - 03.10.1964, Blaðsíða 4

Dagur - 03.10.1964, Blaðsíða 4
4 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Simar 1166 og 1167 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.L Gulldúkafarnir NÆR þrjú þúsund nemendur setjast nú á skólabekk hér á Akurevri. Síð- ustu daga hefur unga fólkið, margt af því komið úr öðrum landsfjórð- ungum, sett þann svip á bæinn, sem er bæjarprýði. Hinn norðlenzki skóla bær nýtur þessa á margan hátt og samfagnar hinu unga fólki, bæði pilt um og stúlkum, sem nú hefja nám. Margir hinna eldri minnast þess nú, er skólarnir fyllast af vonglöðu og vel gerðu fólki, live erfitt var fyrrum að komast í skóla og fjöldanum ó- kleift. Enda vill svo til þessi árin í landi voru, að samhliða lifa tvær kyn- slóðir, önnur, sem hlaut enga skóla- menntun og hin, sem nú þyrpist í skólana. En báðum er það sameigin- legt.að vilja duga. Þeirri eldri tókst það og skilar miklum arfi í hendur þeirra, sem nú njóta skólamáls. Og nú er það talin bezta fjárfesting þjóð arinnar, að mennta fólk. Það sama inun gilda hér, í okkar stóra landi. Því ber að fagna hinni auknu mennt un — samfagna menntunar — að- stöðu hinnar ungu kynslóðar. í skólasetningarræðu Sverris Páls- sonar, gagnfræðaskólastjóra á Akur- eyri í gær komst liann m.a. svo að orði: „Þegar ég og yfirkennarinn vor um að skrifa alla nafnalistana, bekkjarskrárnar fyrir nokkrum dög- um, nafn eftir nafn, í langa dálka, hundruð nafna, fannst mér ég sjá tvö spurul augu full eftirvæntingar og barnslegrar forvitni, bak við hvert nafn — tvo gulldúkata, eins og þá, sem Jón bóndi Hreggviðsson á Rein, sagðist eiga lieima þegar hann sat í þjófakistunni á Bessastöðum. — Þeir gulldúkatar voru honum helgir dóm ar. Nú er þessum skóla trúað fyrir hundruðum slíkra gulldúkata, helg- ustu dómum og dýrmætustu eign ó- tal foreldra, til að svala fróðleiks- þorsta þeirra og spum að einhverju. Með því er skólanunt mikill trúnað- ur sýndur. Hann vill leitast við að glæða hið góða í hverri barnssál, sem honum er falin, gefa holl ráð, benda á það, sem til heilla liorfir, svala þekkingarþorsta og glæða liann í senn. Hann ávaxtar gulldúkatana, en skólinn er háður mannlegum tak- mörkunum og getur ekki lofað öðru en viðleitninni. Nú blasa gulldúkat- arnir hér við mér, ótal spurul augu speglar ótal viðkvæmra sálna og ég segi við ykkur: Megi ykkur líða vel í skólanum. Um það getið þið sjálf ráðið miklu með viðhorfi ykkar til skólastarfsins. Skólinn á að vera í senn, vinnustofa ykkar og annað heimili, sem ykkur Jtykir vænt um. Guð gefi að dvölin verði ykkur til blessunar og gæfu“. arn Ræða flutt af Karli Kristjáns- sj'ni yfir kaffiborðum á aðal- fundi Garðræktarfélags Reyk- hverfinga 20. ágúst 1964. ÉG HEFI hitt menn, sem segj- ast vera hreyknir af því að vera fæddir 17. júní, eins og Jón Sig- urðsson forseti. „Afmæli okkar er almennur hátíðisdagur ár- lega“, segja þeir, — og líta á þetta sem skemmtilega tilviljun. Og hvað er á móti því, að þeir geri það? En er það þá ekki líka skemmtilegt fyrir Garðræktar- félag Reykhverfinga, að það skyldi vera stofnað 17. júní, — á þjóðhátíðardaginn, sem nú er orðinn? Var það hrein og bein tilvilj- un? Sennilega. Og þó? Það var stofnað 17. júní 1904. Ekki var þá farið að halda upp á afmæli Jóns Sigurðssonar. En ég sagði samt: Og þó? Hver veit, hvað þeir hugsjónamenn, sem beittu sér fyrir stofnun Garðræktarfé- lagsins, kunna að hafa í þessu sambandi haft í huga? Ekki þori ég samt að halda því fram, að stofnfundur Garð- ræktarfélagsins hafi verið boð- aður 17. júní, af því að dagurinn er afmælisdagur Jóns forseta. En 1904 var andi Jóns mjög ríkj andi í hugarfari manna. Þetta var einmitt á árinu, sem fyrsti íslenzki ráðherrann tók til starfa. Þá var vor í lofti. Stofn- un Garðræktarfélagsins var eitt af vormerkjunum í þjóðlífinu — og í anda Jóns Sigurðssonar. Við skulum minnast þess að félagið er aldamótabarn, — barn aldamótahugarfarsins. Á þeim árum töluðu menn al- mennt um hugsjónir og hug- sjónamál með hrifningu. Nú er ’þetta þannig breytt, að ýmsir snúa sér undan, þegar minnzt er á hugsjónir. „Við viljum virkileikann, sem hægt er að festa hendur á, en enga draum- óra,“ segja þeir. „Aldamótamenn, ó, verið ekki alltaf að tala um aldamóta- menn,“ bæta þeir við. „Æi, alda mótamennirnir gátu ekkert, nema talað um hugsjónir og lát- ið sig dreyma fjólubláa drauma.“ Auðvitað er góður virkileiki það, sem allir vilja. En í fram- kvæmd mann verður góður virkileiki því aðeins til, að fyrst hafi hugsjón um hann orðið til. Og „Þegar hugsjónir fæðast, fer hitans ogn um önd“. Hugsjónalaust fólk er furðu snautt, þó að það búi við góðan virkileika, sem því hefir gefizt. Það er snautt, af því að það vant ar hitamagn hugsjónanna í sálu sína. Aldamótafólkið átti þetta hita magn sálarinnar. Þeir, sem stofn uðu samvinnufélögin áttu það. Þeir, sem stofnuðu ungmenna- félögin áttu það. Og stofnend- ur Garðræktarfélagsins áttu það. Baldvin Friðlaugsson, sem var driffjöðrin í stofnun Garð- ræktarfélagsins og fram- kvæmdastjóri þess frá byrjun í 33 ár samfleytt, eða þriðjung aldar, og ól upp son sinn til þess að taka við af sér, — vann verk sín með hita hugsjónanna í sál sinni. Ég tel viðeigandi, að minnast Baldvins Friðlaugssonar nú við sextíu ára hvörfin með því að flytja hluta af kvæði eftir hann. Það kvæði nefndi hann „Á Hveravöllum“, — kenndi það við heimili félagsins. Fyrst getur hann þess í kvæð inu, að hann sé fæddur í Aðal- dal, og sér hafi orðið tíðlitið þaðan í austurátt, — sólarupp- komuáttina. Þar yfir brúnir heiða og fjalla reis brosandi Baldvin á Hveravöllum morgunsólin. Hann segir því- næst: Þar austurfrá byggði ég borgir um bernskunnar draumalöndin víð. En hæst gnæfði ein af þeim öllum í Uxahvers blómskrýddu hlíð. Nú hefir röðullinn reikað um rósfagurt árdegisbil, horft yfir hádegisstaðinn og hallað sér vetursins til. Nú er hér bólstaður byggður, þó býlið sé smávaxið enn. Árin í aldirnar raðast, í ættirnar konur og menn. Vellirnir víkka og stækka. Það vorar um gjósandi hver. Reynirunnar og bjarkir raðast í skrúðfylking hér. Við geisla frá allífsins eldi og undramátt jörðinni frá, er gróðurmagnið svo mikið, sem mannshöndin orkar að sá. Það hillir í vonanna veldi af vaxtar og gi'óðursins þrá, og lýsir af áhugans eldi frá afdal að blikandi sjá. Þannig kvað Baldvin fram- kvæmdastjóri. Kvæðið gefur glögga hugmynd um, hvernig hann hugsaði í sambandi við viðfangsefni félagsins og heim- ili þess. Það var hugsjónahitinn í sálu hans og draumurinn, sem gerðu það að verkum, að hann vann með gleði fyrir málefni félags- ins og lengst af fyrir svo lítil laun að skröksögu er líkt. Með Baldvin stóðu allmargir aldamótamenn utan um þetta að vísu smávaxna en kynborna aldamótabarn. Má þar fyrstan nefna Árna bónda Jónsson á Þverá, föður Hrólfs núverandi formanns félagsins. Sá atorku- sami framámaður almennra fé- lagsmála verður alltaf í mínum huga meðal mætustu manna, sem ég hefi starfað með, en við unnum alllengi saman að sveit- arstjórnarmálum og kaupfélags málum, þegar ég var ungur, en hann aldraður að árum, en eigi að síður kappsfullur áhugamað- ur sem ungur væri. Steingrímur Jónsson sýslu- maður var fyrsti formaður Garðræktarfélagsins og ótti góð an þátt í að setja svip á fundi þess. Hann var jafnan í stjórn þess þar til hann fluttist úr hér aðinu til Akureyrar, og félags- maður var hann til dauðadags. Allir bændur í Reykjahverfi, nema einn, voru í hópi stofn- enda þess. Nú eru nokkrir bændur byggðarlagsins ekki í félaginu og þykir mér það ein- kennilegt. Einn úr hópi stofnendanna er hér í dag. Hann er enn fleygur og fær, 86 ára gamall, og var fyrir nokkrum árum gerður að heiðursfélaga. Þetta er vinur okkar Árni Sigurpálsson í Skóg um. Heill sé honum og heiður. Eins og kunnugt er, voru það kartöflurækt og grasrækt, sem Garðræktarfélag Reykhverf- inga hafði fyrst að verkefnum. Kartöflurækt var þá sama sem engin hjá fólki hér um slóðir. Það var hald manna, að við jarð ylinn í hveralandinu væri hægt að fá uppskeru jarðepla, þó ekki áraði fyrir þá plöntu í köldum jarðvegi. En reynslan varð sú, að þegar kartöfluplant- an býr við slík skilyrði, er hún afar viðkvæm bæði fyrir frosti og sjúkdómum, og jarðvegui'- inn reyndist líka leirborinn og þungur. Aðstæðurnar því ekki HRÓLFUR ARNASON, núv. form. Garðræktarfélagsins. eins góðar og í fljótu bragði var álitið. Sum ár brást uppskeran alveg að heita mátti. Reyndar var mikið hagræði að því fyrir umhverfið að hafa þarna kartöflurækt, þegar sæmi lega gekk. Munu, þegar bezt lét, hafa fengizt upp úr görðum fé- lagsins 800 vættir. Það var árið 1910. Þetta er ekki mikið magn miðað við uppskeru hjá ýmsum garðbændum nú, þegar vel ár- ar. En þá þótti þetta ágætt og vera mikil frétt. Þá voru kartöflur svo fágæt- ar við máltíðir, að til hátíða- brigðis mátti telja víðast hvar að hafa þær á borðum. Mikils virði þótti á haustin að geta skroppið í vinnu til Garðræktarfélagsins og unnið fyrir kartöflum. Það gerðu menn frá ýmsum heimilum í grenndinni, og jafnvel komu menn lengra að úr héraðinu þessara erinda. Ileyfengur félagsins varð oft að mjög góðu liði. Hann var stundum beint og óbeint sem forðabúr í harðindum. Þá var heyöflun manna seinteknari en nú, og vetrarharðindi meiri en verið hafa um skeið. Svo var breytt um og farið í gróðurhúsaræktina, sem telja má að gefizt hafi vel og sé í samræmi við neyzlukröfur tím- ans. Fyrsta gróðurhús félagsins var byggt 1933. Grunnflötur þess var 50 fermetrar. Nú er grunnflötur gróðurhúsa félags- ins um 2700 fermetrar. Auk þessa eru kálgarðar utan húsa. Hinn nýi rekstur hefir gengið ófallalaust og vel. Ekki verið sérstaklega gróðastór en óbrigð ult arðgæfur. Fjármál félagsins eru í góðu jafnvægi og með sígandi lukku, — einmitt eins og æskilegt væri, að fjármál lands og þjóð- ar hefðu öll verið á sama tíma. Á framkvæmdastjórinn, Atli Baldvinsson, fyrir þetta virð- ingu og beztu þakkir skyldar. —o— Hvað er svo framundan? Það er auðvitað ekki auðvelt, í þess um efnum frekar en öðrum, að sjá í gegnum tjaldið, sem skilur nútíð og framtíð. Segja má samt að áreiðanlegt sé, að þeir sem stofnuðu Garð- ræktarfélagið, hafi ekki veðjað á skakkan hest. Jarðhitinn er hér vafalaust framtíðarverðmæti mikið, — hvað, sem hann bíður lengi þeirrar virkjunar, sem sýni full komlega, hve hann getur verið mikils verður. Tækni, margvísleg, sem ekki var til um aldamótin og verður undursamlegri með hverju ári sem líður, eykur verðmætin. Hún mun, fyrr eða síðar, stofna hér á jörð Garðræktarfélagsins til stærri viðburða en verið hafa. „Það hillir í vonanna veldi“, eins og Baldvin Frið- laugsson sagði í kvæði sínu. Alþingi samþykkti áskorun s. 1. vetur til ríkisstjórnarinnar um að hún láti fara fram athug- un á því, að koma upp fóðuriðn aðarverksmiðju hér í Reykja- hverfi. Litið er svo á, að aðstaða hér fyrir slíka verksmiðju sé miklu betri vegna hverahitans. Talið er að vinna megi mann- eldisvörur í slíkri verksmiðju úr jarðhitagróðri. Aðstaða til að koma upp víð- lendum töðuvöllum er hér mik- il. Landnámsstjóri taldi sig geta látið í té á jörðum ríkisins hér 500—600 hektara handa verk- smiðjunni og aðrir landeigend- ur hér í kring geta vafalaust bætt þar miklu við frá sér. Á Húsavík er auðvelt að fá sjávarafla handa verksmiðjunni til fóðurblöndunar. Góð skilyrði fyrir fóðurverksmiðju liggja hér í augum uppi, ef slíkur iðn aður grasfpðurs þrífst á annað borð í landinu. Nú er beðið með eftirvænt- ingu að vita hvaða raun slík verksmiðja (heykögglaverk- smiðja) gefur, sem sett var á laggir í Gunnarsholti syðra í fyrrahaust. Gangi hún sæmi- lega, má telja víst, að það gefi verksmiðjumálinu hér byr und- ir vængi, af því að skilyrðin hér fyrir slíka verksmiðju eru fjöl- breyttari og fullkomnari, að því er virðist, a. m. k. fyrir leik- mannssjónum. Geta má þess, að við rann- sóknir hefir þótt koma í ljós, að íslenzkt grasmjöl sé betra fóð- ur en erlent, af því að grösin á íslandi eru grænumeiri en ger- ist og gengur, vegna þess að íbúðarhúsið á Hveravöllum. — Ystihver gýs. — Hann er nú e.t.v. mesti goshver á landinu Mældar liafa verið 25 m háar vatnssúlur frá honum í gosum hans. Stór gos frá lionum eru óregluleg, suma daga engin, aðra daga fleiri en eitt. Sé Iátin í liann sápa, t.d. 10 kg. eyinga hafa tekið í hönd Garð- ræktarfélagsins og leiða það á milli sín, ef svo má að orði kom ast, enda er það þeim náskylt, eins og ég færði rök að í upp- hafi máls míns. En samvinnufélögin hafa ekk ert erfiði þurft á sig að leggja fyrir þennan ættingja sinn. Hann hefir alls ekki verið þeim til nokkurra þyngsla. Og engar líkur benda til þess að hann verði það. Hann er svo ríkur af hitamagni og lífsskilyrðum, og framtíðaráform þjóðarinnar horfa honum svo vel í vil. Fólk þessarar sveitar hlýtur að vilja efla gengi félagsins, því jörð félagsins er mikill skraut- staður og aflstöð fyrir byggðina, enda valdi sveitin á sínum tíma gjósandi hver sem táknmynd á byggðafána sinn, og hefir valið sér stað fyrir félagsheimili í landi Hveravalla. Samvinnufélögunum ber vit- anlega að halda þannig í hönd með Garðræktarfélaginu að það missi ekki af tækifærum til vaxtar og viðgangs. Ég efast ekki um að þau geri það. Ég veit ekki heldur hverjum ætti að vera betur trúandi til þess, — eða ljúfara að gera það, — en samvinnumönnum. Að lokum máls míns vil ég svo bera fram þá ósk, að hinu sextíu ára gamla félagi, Garð- ræktarfélagi Reykhverfinga, — þessu kynborna aldamótabarni — megi vel farnast, og það megi lifa og þróast giftusamlega með- an hverir gjósa og jarðhit.i hefir þýðingu til hagsbóta á íslandi. □ - EKKIEINHUGA ... (Framhald af blaðsíðu 1). ekki til þess liklegir að skífta um skoðun, eru danskir vísinda menn harðir í horn að taka og eru áhrifa miklir. Líklegast er að þeir krefjist þess að málið verði lagt fyrir dómstól, því þeir halda því ákveðið fram, að sam þykkt laga um afhendingu ís- lenzku handritanna, brjóti í bága við sjálfa stjórnarskrána. Eins og nú er komið er ljóst, að handritamálið verður mikið hitamál í Danmörku. Endursam þykkt þjóðþingsins urn afhend- ingu myndi færa málið ó svið dómsmála, allt frá Landsrétti til hæstarétfar. !Z1 gýs hann eftir örfáar mínútur. þau eru sprottin í náttleysu. Hér nyrðra eru grösin talin enn þá grænni en sunnanlands, vegna enn meira langdegis hér fyrir norðan. Gæti því svo farið, þegar stundir liðu, að Norðurlands- kögglar yrðu eftirsóttir sem fóður, eins og Norðurlandssíld- in til manneldis. Að sjálfsögðu á ekki aðeins Atli Baldvinsson framkv.stjórL að framleiða í fóðuriðnaðar- verksmiðju vörur til innanlands nota, heldur einnig til útflutn- ings. Á aðalfundi félagsins í fyrra var rætt um fiskaeldi sem hugs anlega framkvæmd á vegum fé- lagsins. Um næstu, mánaðamót er veiðimálastjóri væntanlegur hingað, til þess að athuga skil- yrðin til þeirrar starfsemi. Allar líkur virðast til að á næsta ári eða árum verði byggð ur mjög fullkominn akvegur um þessa sveit vegna kísilgúr- verksmiðju, sem í ráði er að reisa við Mývatn og flytja þarf framleiðslu sína stytztu leið til Húsavíkur. Verður þeim vegi haldið akfærum allan veturinn. Skiptir þessi vegagerð að sjálf- sögðu miklu máli fyrir íbúa þessara sveitar og þar með fyr- irtæki eins og Garðræktarfélag- ið. Hér eru í fáum orðum sagt miklar horfur á framförum og bættri aðstöðu til framfara. Þetta sextíu ára félag er á- reiðanlega ekki búið að taka út vöxt sinn. Samvinnufélögin: Kaupfélag Eyfirðinga og Kaupfélag Þing- í dag er Hóladagur. Á héraðsfundi Skagafjarðar- prófastsdæmis, hinum síðasta, var samþykkt að vinna að stofn un félags, er hefði að markmiði andlega endurreisn Hólastaðar, og þá að sjálfsögðu m. a. og ekki hvað sízt endurreisn bisk- upsstóls á Hólum. Nefnd var kjörin til að undirbúa og hrinda fram félagsstefnu. Sú nefnd hef ur nú lokið störfum. Hólafélag verður væntanlega stofnað inn an stundar hér í kirkjunni. Og í dag er Hóladagur, hinn fyrsti af eins mörgum og árin verða, sem líða, sú er a. m. k. von okk ar, sem að stofnun þessa félags stöndum. Það er mikill siður orðinn, að stéttir og samtök ýmiss konar hafi sína „daga“, sem svo er kallað. Til þessara „daga“, flestra, og þeirra hátíðahalda, er þá fara fram, er stofnað í tvenn um tilgangi fyrst og fremst. Sá er annar, að afla fjár til ýmiss konar starfsemi,' er samtökin hafa með höndum. Hinn er sá, að glæða samhug og treysta þau bönd, er tengja saman einstak linga innan þeirrar stéttar eða samtaka, er að hátíðahöldunum standa, og hefja við hún merki þeirra hugsjóna, sem barist er fyrir. Við Norðlendingar erum að sjálfsögðu ekki ein stéttarheild. En við eigum eigi að síður og hljótum allir að eiga mjög sam eiginleg áhugamál. Við eigum sameiginlegar minningar úr for tíð og sameiginlegar hugsjónir í framtíð. Þessar minningar úr hugsjónir eru, meðal annars, tengdar við Hóla í Hjaltadal. Því ber okkur að halda Hóla- hátíð, Hóladag, ár hvert, til þess að minna sjólfa okkur og aðra á þá fortíðarnauðsyn, sem um leið er framtíðarskylda, að vinna að því af öllum mætti, að Hólar í Hjaltadal megi aftur verða það, sem áður voru: Bisk upssetur, andlegt höfuðsetur, miðstöð norðlenzkrar kirkju og kristni — að því ógleymdu, að hlúð verði sem allra bezt að þeirri gagnmerku menntastofn- un, sem hér á staðnum hefur starfað í meir en 80 ár og á, m. a., ríkastan þátt í því, ásamt með dómkirkjunni, að.Hólastað ur féll aldrei í þvílíka niðurlæg ingu sem Skálholt, að aldrei var hætt að hugsa og segja „heim að Hólum.“ Skálholtsstaður var í önd- verðu gefinn til ævinlegs bisk- upsseturs. Svo mun og hafa ver ið um Hóla. Um léið og þjóðin tók við þessum gjöfum, gekkst hún að sjálfsögðu undir þá skyldu, að varðveita gjafirnar og nota þær svo sem til var ætlast og áskilið var af gefend um. Erlendir drottnar hjuggu á þau heit, sem þjóðin raunveru lega hefði gefið sjálfri sér og kirkju sinni, en var ekki fær um að efna, er fram í sótti, fyrir sakir örbirgðar og umkomuleys ir og algers vináttar gagnvart erlendu drottinvaldi. Nú er sköpum skipt. Nú er íslenzk þjóð frjáls og sjálfstæð, óháð er lendu valdi — og vellauðug að veraldargæðum auk heldur, mið að við það, sem áður var. Hins vegar hefur þjóðinni ekki endur vaxið svo andlegur metnaður, að henni hafi, enn sem komið er auðnazt að bæta fyrir þau helgi spjöll og menningar, sem á henni voru unnin á ofanverðri 18. öld. Er biskupsdómur á íslandi hafði staðið í hálfa öld, undu Norðlendingar því ekki lengur að þurfa að sækja alla biskups þjónustu og andlegar menntir í annan landsfjórðung. Þeir vildu fá - og fengu - sinn eiginn biskupsstól og skóla að Hólum í Hjaltadal, með fullu samþykki og vilja liins vitra og mæta manns og mikla höfðingja, Giss urar biskups ísleifssonar í Skál holti. Nú hafá Norðlendingar unað því í hálfra aðra öld og lengur þó, að hafá engan bisk- upsstól á Hólum. Svo miklu minni er andlegur metnaður okkar, norðlezkra manna á 20 öld, heldur en forfeðra okkar um aldamótin 1100. í 700 ár voru Hólár í Hjalta- dal einn af þremur höfuðstöð- um, helgum stöðum, þessa lands Hingað lágu allra leiðir, leiðir fyrirmanna og höfðingja, leiðir ölmusumanna og aumingja. AIl ir áttu erindi heim að Hólum. Og flestir fengu fyrirgreiðslu, hvort heldur var í andlegum efnum eða öðrum. En svo hverfðist hamingju- hj ólið. Hólastaður var rúinn og svipt ur öllu — öllu nema dómkirkj- unni. Og jafnvel hún, þetta heil aga hús, fékk eigi heldur að vera í friði og halda sínu. Bisk- upsstóll var lagður niður og skóli. Hinni andlegu miðstöð Norðlendinga várpað fyrir róða. Höfuðstaður Norðurlands með vissum hætti jafnaður við jörðu. En í sögu þjóða, sÖgu staða, skiptast á skúrir og skin. Þrátt fyrir margvíslegar og nærri ótrúlegar hörmungar af erlendum toga og innlendum, sem yfir höfðu gengið íslenzka þjóð, kom þar að lokum, að hún reis upp við olnboga og horfði opnum sjónum mót nýjum degi. 19. öldin var vakningar- öld. Uppi voru kröfur um aukið frelsi og sjálfstæði, kröfur um auðugra og fegurra líf, betri og bjartari framtíð. Þessum kröf- um var fylgt fram með óhaggan legri festu af beztu mönnum þjóðarinnar og bændum ekki sízt, með Jón forseta í farar- broddi. Og eftir því sem sjálf- stæðismálum þjóðarinnar þok- aði fram, fór það að renna upp fyrir mönnum smátt og smátt, að nútíð og framtíð áttu skyld um að gegna við fortíð, — skyld um, sem ekki varð undan vikizt ef þjóðin átti að reynast sjálfri sér trú, ef henni átti að auðn- ast að verða langlíf í landi sínu — sem íslenzk þjóð. Og víst var hafizt handa á ýmsum sviðum af furðulegum stórhug, djörf- ung og bjartsýni, miðað við alla aðstöðu. Einn þátturinn var endurreisn hófst fyrir 82 árum, er sýslu- nefnd Skagafjarðarsýslu gekkst fyrir því, að Skagfirðingar stofn uðu búnaðarskóla á Hólum. Þetta var þrekvirki, hreint af- rek — og þeim mun meira þeg- ar þess er gætt, að einmitt um þessar mundir var harðæri eitt hið mesta, sem yfir landið hefur gengið, og íslendingar flúðu til annarrar heimsálfu hundruðum og þúsundum saman. Endur- reisn Hólastaðar hefur síðan haldið áfram, óslitið að kalla, til þessa dags. Og þó er enn langur vegur að lokamarki. Því verður ekki í móti mælt, að framfarir með þessari fá- mennu þjóð, efnislegar framfar ir, hafa á síðustu áratugum orð ið með eindæmum miklar. En jafnvíst er hitt, að samtímis hef ur hugarfar mikils fjölda manna mótazt langt um of af andvana efnishyggju. Þjóðinni er það lífs nauðsyn, að þarna komi til and legt mótvægi. Endurreisn Skál- holtsstaðar og Hóla til þess horfs, að þar megi rísa andleg höfuðsetur og kirkjulegar mið- stöðvar, er — og á að vera einn þátturinn, og ekki sá óveruleg asti, í því mótvægi geng efnis- hyggju, sem íslenzk þjóð þarfn ast hvað mest — nú, á þessum tímum hins æðisgengna kapp- hlaups um tímanleg verðmæti, kapphlaups, sem háð er og hlýt ur jafnan að verða háð að meira eða minna leyti á kostnað hins sanna manngildis. Hólar í Hjaltadal voru um ald ir höfuðsetur. Staðurinn hefur alla stund að kalla komið meir og minna við sögu þjóðarinnar. Hér hafa verið ýmsir þeir menn sem einna mikilhæfastir voru og umsvifamestir sinna samtíðar manr.a fyrr og síðar. Hér hafa setið heilagir menn og höfðingj ar á veraldarvísu. Jón Ögmunds son, Guðmundur góði, Jón Ara son, Guðbrandur Þorláksson — þarf að nefna fleiri nöfn?. Öld fram af öld hafa allar götur legið heim að Hólum. Hér koma liðnar aldir móti manni. Hér mæla allir hlutir máli minning anna. Þess vegna eru Hólar í Hjaltadal heilagur staður. En það er ekki helgi minning anna ein, sem varpar ljóma á þenna stað. Hér er dómkirkjan, sem í öllum sínum einfaldleika er fegursta og virðulegasta guðs hús landsins. Hér er veglegast- ur varði, sem íslenzkum manni hefur reistur verið. Hér er bændaskólinn, þessi gagnmerka stofnun, sem í áratugi hefur reynzt íslendingum, og ekki sízt okkur Norðlendingum, æði giftudrjúg. Og hér má sjá þess fegurri merki og glöggvari en annars staðar víðazt, hversu gjöf ul er gróandi mold — íslenzk afdalamold. Fyrir sakir alls þessa — og að vísu margs annars — eiga all ar götur, enn sem fyrr, að liggja hehn að Hólum. Gísli MagnússdH i

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.