Dagur - 03.10.1964, Blaðsíða 8

Dagur - 03.10.1964, Blaðsíða 8
8 Á tungunni milli Álku og Vatnsdalsár, fengu hrossin góðan haga og hvíld eftir ferðina á lieiðum uppi (Ljósm. E. D.) Stóáiá var eins og flóábylgj a Á miðvikudaginn var skroppið vestur í Vatnsdal, en þar var von fleiri hrossa samankomin á einn stað en annarsstaðar á Norðurlandi á þessu hausti. Heiðar og afréttarlönd Vatns dælinga og raunar annarra Hún vetninga eru firnamiklar og víð lendar — og þar eru langar göngur bæði hrossa- og fjárgöng ur. Þegar ekið er fram Vatnsdal dylst engum, að þar er vel bú- ið. Og þar eru, að sögn, sann- kallaðir stórbændur, sem- eink- um eru fjár- og hrossmargir. Sauðféð var í stórum breiðum á flötum og grösugum engjum, sem í dalnum eru bæði miklar og fagrar en á lygnri Vatnsdalsá syntu svanir svo þúsundum skifti ennfremur endur. Gæsir í nokkrum stórum hópum nutu gróðursins með sauðfénu. Ekið var allt að Grímstungu, fornu og nýju höfuðbóli, hvers hróður, síðasti bóndinn, Lárus Björrísson, Eysteinssonar hefur enn aukið. En nú var Lárus í hestagöngum uppi á heiði og gangnastjóri að vanda þótt hálf- áttræður sé orðinn. Hinsvegar hittum við stórbóndann Ágúst á Hofi, sem beið gangnamanna við brúna á Álku ásamt allmörgum utansveitarmönnum og útlend- ingum. Mönnum varð tíðlitið upp eft ir heiðarsporðinum, sem blasir við. Þar er ruddur vegur við Álkugljúfur. Og loks sást hross á brúninni, fyrst eitt, svo mörg, og innar lítillar stundar steypt- ist allur skarinn — þúsund hross eða fleiri — fram af brúninni, eftir hinum rudda vegi og utan hans, ásamt hópi rekstrarmanna þar sem hver hafði tvo til reið- Um 2ÖÖ neircendi IÐNSKÓLI Akureyrar var sett ur 1. okt. af skólastjóranum, Jóni Sigurgeirssyni. Aðalgeir Pálsson rafm.verkfræðingur hef AKUREYR4RT0GAR- ARNIR VEIÐA FYRIR ERLENDAN MARKAÐ ENGIN vinnsla er nú í Hrað- frystihúsi U.A. Aðalvinnuaflið, ungt fólk, er flest farið í skól- ana, og er því ekki unnt að veita afla togaranna móttöku. Munu togararnir því, að minnsta kosti fram yfir áramót, veiða fyrir erlendan markað og sigla með aflann. Svalbakur er á leið til Þýzka lands, með um 115 tonn og sel- ur væntanlega þar á þriðjudag. Slétthakur og Harðbakur eru báðir á veiðum. í athugun er að fá smábáta til að leggja upp afla sinn í Hraðfrystihúsið, en óvíst er hvort af verður. ar. Þetta var eins og flóðbylgja. Hnegg,- hófatak og hundgá. Jörð in nötraði. Heita gufu lagði af svéittum hrossunum sem fóru hratt framhjá og niður á tung- una, áningarstaðinn, milli Álku og Vatnsdalsár. Móts við bæinn Grímstungu stigu flestir af baki, én aðrir fylgdu stóðinu eftir. Meðal þeirra er staðar námu var fjall kóngurinn Lárus, með tvo rauða, Nasa og Gáska. Hann hefur engar fréttir á hraðbergi, segir förina verið hafa slysa- lausa en veður rysjótt. Grámi var á Stórasandi en autt er lengra dró til fjalla. Lárus, stjórnaði fimmtán manna hópi og þar var í för ung og myndar leg stúlka, Björg Bjarnadóttir (Framhald á blaðsíðu 7). ur verið skipaður fastur kenn- ari skólans. Af störfum láta Ingvi Hjörleifsson, Guð'mundur Gunharsson og Árni Árnason, allir í iðnteikningu, en við taka Svanbjörn Sigurðsson, Jens Sumarliðason og Viðar Rós- mundsson. Til viðbótar hefur Friðgeir Axfjörð verið ráðinn teiknikennari og Sigurður Óli Brynjólfss., verður á ný stunda kennari við skólann. Enskunámsflokkar starfa sem áður á vegum Iðnskólans og einn námsflokkur í stærð- fræði.. Nemendur eru um 200 tals ins í Iðnskóla Akureyrar. Undh-búningsdeild tækniskól ans var einnig sett 1. okt. og eru þar 10 nemendur, en nokkr ir nemendur eru að búa sig und ir skólavist með því að ljúka tilskyldu verknámi. Iðnskólinn er í leiguhúsnæði einkum í Húsmæðraskólanum en undirbúningsdeild tækni- skólans stai-far í Geislagötu 5. Þar er kennaralið að mestu ó- breytt frá því í fyrravetur. Lárus í Grímstungu. (Ljósm. E. D.) IÞROTTAHUS VIÐ ÞÓRUNNARSTRÆTI Á SÍÐASTA fundi bæjarstjórn- ar Akureyrar var samþykkt eftirfarandi tillaga frá Gísla Jónssyni, Braga Sigurjónssyni, Sigurði Óla Brynjólfssyni og Jóni Ingimarssyni: „Með hliðsjón af bókun skipulagsnefndar frá 24. þ. m. ákveður bæjarstjórn að reist skuli íþrótta- og æskulýðshús á óráðstafaðri lóð vestan Þórunn- arstrætis, sunnan Byggðavegar, gegnt lögreglustöðinni, svo fljótt sem tæknilegur undirbúningur og fjárhagsástæður leyfa.“ TVEIR LISTAR HJÁ BÍLSTjÓRAFÉL. í DAG og á morgun, laugardag og sunnudag, fer fram kosning í Bílstjórafélagi Akureyrar á einum fulltrúa til Alþýðusam- bandsþings og einum til vara. Tveir listar hafa komið fram, A listi, listi vinstri manna borinn fram af stjórn og trúnaðarráði félagsins en hann skipa Baldur Svanlaugsson og Friðrik Blön- dal og B-listi borinn fram af nokkrum félagsmönnum en hann skipa Magnús Snæbjöms- son og Jóhann Böðvarsson. Kosið verður í Verkalýðshús inu við Strandgötu kl. 2 til 101 e.h. báða dagana. Síðast þegar kosið vgr til Al- þýðusambandsþings kom aðeins fram einn listi í Bílstjórafélagi Akureyrar, listi vinstri manna, og var hann því sjálfkjörinn, en þar næst áður komu fram tveir listar og fór þá fram kosning og sigruðu vinstri menn með mikl- um veðraham. r/3 Snarpur stormsveipur MISVINDASAMT hefur verið að undanförnu á Akureyri og nágrenni. Sl. fimmtudag, um klukan 12.30, fór snarpur storm- sveipur frá suðvestri yfir ytri hluta bæjarins. Fólk sem var úti við réði sér varla, þvottur fauk af snúrum, lauslegt rusl þeyttist langt í loft upp og járn- plötur fuku af húsi við Bvggða- veg. Einnig brotnaði rúða í húsi við Helgamagrastræti. Ekki er vitað um slys á mönnum í þess- um veðurham. □ FYRIR skömmu var frá því sagt í blöðum Lundúnaborgar, að ítalski læknirinn dr. Daniele Petucci, hefði frjófgað 27 egg kvenna í tilraunaglösum með árangri síðustu 5 árin. Eftir frjófgunina voru eggin sett í leg viðkomandi mæðra þar sem þau síðan þroskast eðlilega. Og samkvæmt frásögn ekki ómerk- ari blaða en Daily Mail og Daily Express hafa ekki færri en 27 fullburða börn, sem „kviknuðu" í tilraunaglösúm doktorsins, fæðst á eðlilegan hátt. En þessi börn eru á aldrinum frá 5 mán- aða til 5 ára. Doktor Petucci notaði aðeins egg giftra kvenna, sem ekki urðu barnshafandi, og sæði eiginmanna þeirra. Dokt- orinn telur þá aðgerð hættu- lausa og auðvelda, að flytja hið frjófgaða egg í leg konunnar. En sú aðgerð á sér stað 8 dögum eft ir frjófgun. Þessi „bamafram- leiðsla" hefur vakið gífurlega athygli. Hún gefur barnlausum hjónum vonir, en trúarleg og siðx-æn atriði hafa sitt að segja. Á nýlega haldinni vísindaráð- stefnu i Glasgow fékk doktorinn ekki að skýra frá árangri til- rauna sinna. Hins vegar mun hann, að sögn, ætla að gefa út ' í lilrautiaglasi sérstaka bók um þær innan skamms. Sagt er, að kaþólska kirkjan fordæmi ekki tæknifrjófgun þeg ar um hjón er að ræða. Kappakstur i bænum LÖGREGLAN á Akureyri gaf blaðinu þær upplýsingar, að nokkuð bæri á kappakstri á bif reiðum í bænum. Eru það yfir leitt ungir piltar sem eiga þar hlut að og hafa sumir þeirra náðst og sætt sektum, enda :er kappakstur hættulegur, í þétt- býli og á annarsstaðar heima. %

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.