Dagur - 03.10.1964, Blaðsíða 1

Dagur - 03.10.1964, Blaðsíða 1
f Dagur lcemur út tvisvar í viku og kostar 20 krónur á mánuði. Dagur Símar: 1166 (ritstjóri) 1167 (afgreiðsla) XLVII. árg — Akureyri, laugardaginn 3. október 1964 — 73 tölublað Islenzkur iðnað- ur í New York INNAN skamms verður opnuð í New York myndarleg verzlun, sem eingöngu selur . íslenzkar vörur, einkum iðnvörur. Eig- endur 26 íslenzkra fyrirtækja mynduðu félag til að hrinda málinu fram og fengu Kristján Friðriksson til að veita hinu nýja fyrirtæki forstöðu. Þær vörur, sem mesta áherzlu á að leggja á fyrst í stað eru: Hús- gögn, einkum bólstruð, peysur, treflar, vetlingar, teppi, gærur, gluggatjöld, gólfteppi, áklæði, leirmunir o.fl. Þegar er búið að senda vörur vestur, að verð- mæti um 2 milljón krónur. Eflaust verður fylgst með því af áhuga, hversu gengur um sölu hinna íslenzku vara vestra enda getur fyrirtækið, ef vel tekst til, valdið kapitulaskiptum í útflutningi iðnvara. Hugmyndina að þessu máli átti Kristján Friðriksson og ber að fagna því, að hún komst í framkvæmd, því lærdómsrík verður hún hvað sem hagnaði líður. yj 0K A BRUSAPALL S.l. sunnudagsmorgun ók fólks- bifreið norðan Dalvíkurveg á- leiðis til Akureyrar. Þegar bif- reiðin kom úr beygjunni við Dvergastein, missti ökumaður- inn stjórn á henni, þannig að hún lenti harkalega á brúsa- pall við austurbrún vegarins. Við höggið br'otnaði framrúða bílsins og þeyttust glerbrotin yfir ökumanninn og skappaðist hann í auga og andliti, en ekki alvarlega. (Ljósm. E. D.) Stóðið rann niður lieiðarsporðinn eins og lifandi flóðbylgja. Menntaskólinn á Akureyri var settur í gær r I honum verða 440 nemendur í vetur, þar af verða 177 í heimavist skólans MENNTASKÓLINN á Akur- eyri var settur 1. október kl. 2 síðdegis á Sal. Þórarinn B’örns son skólameistari minntist í upp hafi skólasetningarræðu sinn- ar, Sigurðar L. Pálssonar sem var um langt skeið enskukenn ari, en lézt sl. sumar. Risu við- staddir úr sætum í virðingar- skyni. Þær breytingar verða á kenn- araliði skólans, að Friðrik Sigfús son, er sl. vetur kenndi í stað Sigurðar L. Pálssonar, og Helgi Jónsson lata af störfum og auk þess stundakennararnir Jón Margeirsson og Bryndís Þor- valdsdcttir. í þeirra stað mun Ragnar Stefánsson kenna ensku, Margrét Hjaltadóttir, leikfimi, Haraldur Sveinbjörnsson, stærð fræði og Hjördís Daníelsdóttir dönsku. Kennarar verða þá 21 talsins, þar af 15 fastráðnir. Nemendur í vetur verða 440, 90 í 6. bekk, um 100 í 5. bekk, rúmlega 100 í 4. bekk og um 140 í 3. bekk, en sl. ár voru nem endur samtals 420, þar af um 30 í landsprófsdeild, sem engin verður í ár. í heimavistum verða 177 og auk þess borða þar milli 80 og 90 manns, en nú sem áður var ekki hægt að taka alla í heimavistina, er þess óskuðu. í menntaskólum landsins verða nær 1500 nemendur í vet ur, 950 í Reykjavík, 115 á Laug arvatni og 440 á Akureyri. Síð- asta ár brautskráðuzt 330 nem- endur úr menntaskólum lands- ins, eða 10% af árganginum. En það er svipað hlutfall og er i Danmörku. koma af því, að ykkur finnst liér gaman. Það er rétt, að hér er gaman og á að vera það, en það verður að vera eitthvað meira. í skólanum er auðvitað ágætur félagsskapur, því liér er ákaflega margt af vel gefnu og elskulegu fólki. En alvaran má aldrei gleymast fyrir gamninu. Og þið, sem veljið þetta hlut- skipti, verðið að muna það, að þið hafið einmitt Valið það, að gangast undir byrði þekkingar- innar, sem stöðugt er að verða þyngri. Áður hvíldi erfiðið á líkamanum. Nú er allt erfiðið að flytjast yfir á hugsunina. Og þið haíið valið ykkur það, að skipa ykkur undir það merki, að tileinka ykkur þekkinguna (Framhald á blaðsíðu 7). Ekki einhuga í handritairálinu Danskir menn safna fé í málareksturskostnað HANDRITAMÁLIÐ er nú mjög Sverrir Pálsson, nvr skólastjóri, setti skólann á dagskrá í Danmörku, saman- ber skrif danskra blaða. Blöðin telja, að mál þetta verði meðal þeirra fyrstu er þjóðþing Dana eftir nýafstaðnar kosningar, taki til meðferðar. Andstæðingar þess, að Danir skili íslenzku handritunum hafa nú hafið mikla fjársöfnun, sem mæta á til þess að greiða kostn- að áf málarekstri, sem verða kann út af afhendingu handrit- anna. En samþykkt þá er þing Daná gerði árið 1961 um að af- henda íslendingum handritin, verður nú að endurtaka, til að lögn komst á framkvæmdastig. Samkvæmt samþykkt danska þingsins 1961, nær afhendingin bæði til Ámasafns og þeirra handrita, sem geymd eru í Kon' unglegu bókhlöðunni. En þótt danskir stjórnmálamenn séu (Framhald á blaðsíðu 5). í ávarpi sínu til nemendanna mælti skólameistari m. a. á þessa leið: Þið, sem hafið valið þann kost inn að koma hingað og glíma við fræðin, þurfið að gera ykk- ur grein fyrir því, að þið eruð ekki að velja auðveldustu Ieið- ina. Mér finnst þið stundum GAGNFRÆÐASKÓLINN á Ak urevri var settur síðdegis í gær. Við þann skóla eru nú nokkur tímamót. Þar setti nýr skólastj. Sverrir Pálsson, skólann og þar er nú helmingi meira húsrými en áður, mikið af því fullbúið til notkunar. Nemendur skólans eru að þessu sinni um 680 talsins og fleiri en nokkru sinni fyrr. Þeim er skift í 24 deildir, 18 bóklegar og 6 verknámsdeildir. Kennara skifti urðu nokkur. Sú breyting er þó mest, að skólinn nýtur nú ekki lengur Jóhanns Frímanns, sem skólastjóra, en hann verður stundakennari. Eins og kunnugt er lét Jóhann af skólastjórastarf inu vegna heilsubrests, eftir að hafa gengt því frá árinu 1955. En hann hefur frá upphafi skól ans eða frá 1930 verið kennari við Gagnfræðaskólann og eini fasti kennarinn framan af. Hann á mestan heiðurinn af því, að (Framhald á blaðsíðu 2).

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.