Dagur - 10.10.1964, Blaðsíða 1
Dagur
Símar:
1166 (ritstjórl)
1167 afgreiðsla)
Dagur
kemur út tvisvar í viku
og kostar 20 krónur á
mánuði
Skemirdarverk á Golfskálanum
f GÆRMORGUN var tilkynnt
til lögreglunnar á Akureyri um
tvö skemmdarverk Brotist var
inn í skála Golfklúbbs Akureyr-
ar á Golfvellinum. Var dyraum
búnaður brotinn úr, farið inn í
skálann, sprengdir upp skápar,
og golfáhöld brotin, brotunum
var dreift um skálagólfið. Einn
ig voru brotnar rúður. Eldci var
sjáanlegt, að um þjófnað hefði
verið að ræða, lieldur skemmd
arfýsn. Lögreglan sagði að
einna likast væri, að þama
hefið vitlaus maður verið á ferð.
Á föstudagsnóttina var brot-
ið upp hesthús neðan við Mið-
húsaklappir. Flestar ráður í hús
inu voru brotnar.
Bæði málin eru í rannsókn,
en ekki hefir tekist að hafa upp
á þeim sem stóðu að þessum
verknaði.
í gærmorgun myndaðist hálka
á götum bæjarins, vegna snjó-
komu. Tveir bifreiðaárekstrar
urðu þá, en ekki meiðsli á mönn
um, og litlar skemmdir á öku-
tækjunum.
Noröurianasbonnn settur upp á Laugalandi a i>eiainörk, nálægt lauginni, sem þar er nú. Tum
borsins verður 30 m hár og við liann vinna 10 manns á tvehn vöktum, allan sólarhringinn.
Verkinu stjómar Dagbiartur Sigursteinsson. Menn þeir sem við borinn vinna búa á Dagverð-
areyri. — Ljósmyndin var tekin í fyrradag. (Ljósm.: E. D.)
Þá leituðu menn að heitu vatni
Árangurinn sparaði bænum milljónir króna
Ólafsfjarðarbáfctr byrjaðir róðra
Ólafsfirði, 9. október. — í nótt
snjóaði niður að sjó og er föl
á jörðu. í gær var farið yfir
Lágheiði, en þar mun þungfært
orðið bifreiðum. Stærri bátarn
ir eru byrjaðir róðra. Stígandi
og Þorleifur Rögnvaldsson,
fengu 3—4 tonn og Guðbjörg
ætlar að fara í sinn fyrsta róð-
ur í nótt. Anna er búin að róa
á aðra viku og hefur fengið allt
að 5 tonnum mest í róðri.
Barnaskólinn, með 112 nem-
endur, var settur 1. október.
Skólastjóri er Björn Stefánsson.
Miðskólinn var settur 2. októ-
ber. Nemendur eru 71. Og þar
er fjórði bekkur tekinn til starfa
sem ekki hefur áður verið.
Níu daga á hrakningi
Hinn 6. þ.m. sáu skipsmenn á
Drankajökli ljósmerki báts 100
sjómílur út af S. John í Kanada.
Þar var aðframkominn maður
á 8 tonna velbát ög búinn að
velkjast 9 daga, vegna vélabil-
unar. Maðurinn var tekinn um
borð og báturinn dreginn til
land.
LÖGREGLAN
skorar á þá, sem kynnu að gefa
upplýsingar um skemmdarverk
þau, sem framin voru í fyrri-
nótt og sagt er frá á öðrum stað
að hafa samband við lögreglu-
stöðina.
í honum er.u 11 nemendur og
17 í Landsprófsdeild. Skólastjóri
miðskólans er Kristinn Jóhanns-
son.
Bændur hér í sveit fjölga fé
sínu og setja fleira á vetur en
áður. B. S.
NORÐUIWbANDSBORINN er
þessa dagana að rísa á steyptum
grunni nálægt heitri laúg á bökk
um Hörgár í túnfæti Laugalands
á Þelamörk. Þar á að leita að
meira vatni með bornum, allt að
1500 metrum í jörðu niður eða
jafnvel enn dýpra ef þörf kref
ur. Með jarðborunum hefur
víða ótrúlegur árangur náðst,
eftir forsögn vísindamanna um
borunarstaði. Og hér um slóðir
er árangurs beðið með óþreyju.
En í sambandi við nýtízkuleg
vinnubrögð við jarðhitaleit, vís
indalega forsögn og stórvirk
tæki, er jafnframt gaman að
minnast þess, er nokkrir ungir
áhugasamir ungmennafélagar á
Akureyri leituðu að heitu vatni
með berum höndunum fram í
Glerárgljúfri og grófu eftir því
með handverkfærum. En árang
ur af því er milljónasparnaður
fyrir Akureyrarkaupstað í upp
hitunarkostnaði sundlaugarinn-
ar meira en þrjá- síðustu ára-
tugi.
Glerárdalur, með 50 metra
háum gljúfrum, fossum, skýld-
um hvömmum og fjölbreyttri
náttúrufegurð, er í se'nn hrika-
legur og fagur, enda leggja
margir málarar og ljósmyndarar
leið sína þangað á síðustu tím-
um. Og síðan akvegur vár byggð
ur fram með Gleránni, hefur
bæjarbúum orðið tíðförullt þang
að til að eiga þar hvíldarstund
ir í faðmi náttúrunnar.
Frammi við mestu gljúfrin er
Smalalaug og þar var líka ofur
lítill smalakofi. í snarbröttum
leirflögum og klettum má sjá
rör og leiðslur hér og hvar.
Fyrir 37 árum fór ofurlítill
hópur ungmennafélaga á Akur
eyri upp í Glerárdal með haka
og járnkalla til að leita að heitu
vatni. f þeirri för voru meðal
(Framhald á bls. 2).
Það var mjög erfitt að leiða
tóksí.
vatnið niður Glerárgil. En það
(Ljisniynd: E. D.)
Verða íslenzku síldveiðiskipin að hætta
veiðum vegna ágengni rússneskra skipa?
SAMKVÆMT fréttum, sem
blaðið hefur fengið frá síld
armiðunum fyrir austan,
gerast nú rússnesk skip, sem
veiða þar með reknetum, svo
ágeng, að helst lítur út fyr-
ir að íslenzku síldveiðiskip-
in verði að hætta veiðum
þar.
Svæðið, sem síldin heldur
sig á, fer minkandi og hrúg-
ast því rússnesku skipin í
hundraða tali á þetta svæði,
sve þétt, að næstum er ó-
mögulegt að kasta þar nót.
Tvær síðustu nætur, sem
íslenzku skipin voru úti eyði ■
Iögðu eða stórskemmdu fjög
ur skip nætur sínar. Varð
það «neð þeim hætti að þeg-
ar isleuzku skipin voru búin
að kasta, komu rússnesk
skip og keyrðu í næturnar.
í tveim tilfellum voru rek-
netin lögð yfir nætumar.
Samkvæmt sögn sjómanna
virðist það engu hafa breitt
þótt næturnar væm lýstar
upp með kastljósum og verð
ur ekki annað séð en Rúss-
amir geri þetta af ásettu
ráði. Þarna gilda að sjálf-
sögðu alþjóðalög um veiðar
á útliafinu, en Rússamir
virðast lítið fara eftir þeim.
Það verður sennilega erf-
itt fyrir íslenzka sjómenn og
útvegsmenn að sækja þessa
menn til saka, þó þeir af
ásettu ráði valdi hundmðum
þúsunda króna tjóni á veiðar
færum þeirra.
BANASLYS Á RAUFARHÖFH
ÞAU sorglegu tíðindi bárust frá
Raufarhöfn í gær, að þar hefði
banaslys orðið í umferðinni
kvöldið áður. Fréttaritari blaðs
ins á staðnum Hreinn Helgason,
segir svo frá:
Níu ára drengur, Kristján
Pálsson, lést af slysförum í gær
kveldi. Tildrög voru þessi. Krist
ján heitinn stcð utanlega á veg
inum, skammt frá Pósthúsinu
ásamt öðrum dreng, 12 ára. Þar
eru gatnamót. Bifreið héðan úr
kauptúninu kom norðan aðal-
götuna og ók á þá báða. Kristj
án lést skömmu síðar en
skaddaðist á fæti. Mál
verður rannsakað nánar þegar
sýslumaðurinn kemur hingað
síðar í dag (föstudag). Myrkur
var á er slys þetta varð og
kraparigning. Talið er að bíl-
stjóri sá, sem hér á hlut að,
hafi blindast af ljósi annars bíls,
er hann mætti í sama mund.
Foreldrar drengsins er lézt,
heita Páll Árnason, verkamaður
og formaður verkalýðsfélagsins
hér á staðnum og Una Kristj-
ánsdóttir kona hans. Þau eiga
annan son, 14 ára gamlan.