Dagur - 02.12.1964, Blaðsíða 1

Dagur - 02.12.1964, Blaðsíða 1
Dagur Símar: 1166 (ritstjóri) 1167 afgreiðsla) V..."■ ................ Dagur , kemur út tvisvar í viku og kostar 20 krónur á mánuði I v J XLVII. árg. — Akureyri,- miðvikudaginn 2. desember 1964 — 87. tbl. Fjórir meiddust í bifrei UM kl. hálf tólf á sunnudags- kvöldið varð bifreiðaslys í mið- F ræðslukvikmynd ICVENNASAMBAND Akur- eyrar sýnir fræðslumynd fyrir konur á morgun, fimmtudag, í Borgarbíó kl. 5. Ef flugferð fell- ur niður verður myndin sýnd næsta dag. Fræðslukvikmynd þessi fjall- ar um krabbamein í brjósti og legi — og er liður í baráttunni gegn þessum sjúkdómi. Framkvæmdastjóri krabba- meinsfélagsins, Jón Oddgeir Jónsson, sýnir fræðslumyndina. bænum á Akureyri. Sex-manna fólksbifreið kom sunnan Hafn- arstræti og rakst á steyptar útitröppur við verzl. Dyngju, Hafnarstræti 92. Bifreiðin hafði þá farið eftir gangstéttinni nokkurn spöl. Sex manns voru í bifreið þess ari og slösuðust fjórir. Tveir eru enn í sjúkrahúsi, sá þriðji er með skurð og skrámur og hinn fjórði er handleggsbrotinn og með skurð á fæti. Bifreiðin var á keðjum og var umbúnaður hennar í góðu lagi, en hún stórskemmdist er hún steytti á húströppunum. □ Fólki fækkar nú ört á Siglufirði Siglufirði 1. desember. Héðan hafa róið fjórir dekkbátar með línu og lagt upp í Hraðfrystihús SR. Hitt frystihúsið, ísafold, er ekki starfrækt. Afli hefir verið sæmilegur, 3—5 tonn í róðri. Áætlanir við byggingu Tunnu verksmiðjunnar hafa staðizt, og mun verksmiðjan verða tilbúin SIR WINSTON CHURCIIILL varð níræður á mánudaginn. um áramót og geta hafið fram- leiðslu þá. Niðurlagningarverksmiðjan er aftur tekin til starfa og er unn- ið fyrir innanlandsmarkað. :— Samningar standa yfir um fram leiðslu og sölu til Rússlands, en óvíst hver árangur verður. Heita má að vinna hafi ver- ið næg í haust og vetur. Fólki fækkar hér stöðugt, og á síðustu 10 árum hefur fækk- unin numið 800—900 manns. Snjór er lítill en svellað. Var Siglufjarðarskarð opið fram yf- ir miðjan nóvember. Lokarannsókn fór fram á s.l. sumri í sambandi við fyrirhug- uð jarðgöng gegnum Stráka. Kom í Ijós að unnt er að fara styttri leið í gegn en áður hafði verið ætlað. Verkið verður boð- ið út í vetur og framkvæmdir hafnar næsta vor og byrjað á jarðgöngunum Siglufjarðarmeg in. Bókasafn Siglufjarðar var fyrir stuttu flutt í neðstu hæð- ina á fyrirhuguðu ráðhúsi bæj- arins. J. U. Á LAUGALANDI á Þelamörk streymir nú heitt vatn úr fyrstu borholu Norðurlandsborsins, sem þar er að verki. Á Laugalandi er íbúðarhúsið hitað með laugarvatni, sem þar var áður, ennfremur nýr barnaskóli. En nú eru nýir möguleikar fyrir hendi með tilkomu hins mikla heita vatns, sem þar er nú fundið og eykst vonandi ennþá. (Ljósmynd: E. D.) Áskorun fil bæjarstjórnar um DavíSshús var hafnað á bæjarstjórnarfundi í gærdag EFTIRFARANDI ávarp eða á- skorun, ritað af Þórami Bjöms syni skólameistara, undirritað af 1325 bæjarbúum var sent bæj arstjórn Akureyrarkaupstaðar í gær: „Hverjum manni og hverjum stað er það ef til vi!l mest nauð syn að finna, hvað hann á bezt, og leggja rækt við það. Tvennt mun það, sem Akureyri liefur bezt hlotnazt: þjóðskáld og un- aður náttúrunnait Akureyring ar liafa sýnt, að þeir kunna hvort tveggja að meta. Þeir hafa lagzt á eitt með náttúrunni að fegra bæinn sinn og þeir hafa hafizt handa um að varð- veita minningu þjóðskálda sinna. Matthíasarsafn er þegar risið. Næst er það Davíðssafn. Þar sem kunnugt er, að Akur r Olíkí hafasl menn ai í Iciskinnaframleiðslunni FYRIR nokkrum dögum var sagt frá 250 minkum ,sem þá voru staddir á Reykjavíkurflug velli, ferðalangar á leið til Græn lands. Minkarnir eru danskir, AÐVORUN VEGNA allmargra meiðsla sem átt háfa sér stað á skautasvellinu á íþróttavell- inum undanfarið, vill íþrótta ráð Akureyrar eindregið hvetja þá sem sækja svellið til að gæta þar fyllstu var- úðar. Forðist hraðhlaup og árekstra, þegar margt er á svellinu, og hafið í huga, að mörg böm, sem þama koma til leiks, eru óvön hinum hála ís. □ sex mánaða gamlir, hinir ágæt ustu gripir sagðir og eiga að auðga framleiðslu á Grænlandi, þar sem þeir verða hafðir í minkabúri undir gæslu reynds minkaeldimanns, sem með þeim var. Hinir lágfættu og loðnu farþegar með hinn gljáandi belg, sem síðar mun skreyta ein hverjar hefðarfrúr í Evrópu eða Ameríku, létu ófriðlega eins og þeirra er vandi, og það sagði til um sæmilega líðan þeirra í búrunum. íslenzkir lesendur fyllast við bjóði þegar minnst er á þessi litlu dýr, enda hafa þeir algera sérstöðu í málinu. Nágranna- þjóðir okkar leggja stund á minkaeldi með ágætum hagn- aði. Danir selja t.d. loðskinn fyr ir hundruð milljónir, mést minkaskinn, á heimsfrægum uppboðum. Hér á íslandi er minkaeldi bannað með lögum. Þó er hvergi fáanlegt eins gott minkafóður og hér við sjávar- (Framhald á blaðsíðu 5). eyrarbæ stendur til boða að eignast hús Davíðs Stefánsson- ar, Bjarkarstíg 6, með bókasafni og öllum munurn, nákvæmlega eins og skáldið skildi við það, leyfum vér oss, undirrita'ðir Ak ureyringar, að skora á háttvirta bæjarstjórn að s;á til þess, að allt, hús, bókasafn og munir, komist í eigu bæjarins og verði ekki sundrað. Á þann veg ein- an varðveitist gildi þess til hlít ar. Og þá mun Akureyri ekki síður hafa veg af menningar- legri ræktarsemi við andleg verðmæti en af blómgróðri og fögrum trjágörðum.“ Síðdegis í gær var bæjar- stjórnarfundur haldinn í Lands bankasalnum. Meðal annars var tekið fyrir hið leynilega samningsuppkast, sem bæjar- ráð hafði áður á lokuðum fundi samþykkt að ganga að. En það samningsuppkast var um kaup á bókasafni þjóðskáldsins, en hafnað var kaupum á húsinu, Bjarkarstíg 6. Seljandi var erfingjar skáldsins. Kaupverð safnsins er rúmlega 2,8 millj. kr. Erfingjamir gefa Akureyr- arbæ húsmuni Davíðs heitins, að nokkrum undanskildum. — Húsið Bjarkarstígur 6 var met- ið á 1,3 millj. kr. Bæjarstjóm samþykkti á þessum fundi endanlega hina umtöluðu samninga. Nöfn hinna 1300—1400 bæjarbúa, er óskað höfðu annarrar afgreiðslu voru ekki tekin til greina. Einn bæjarfulltrúinn taldi þó, að til- lit bæri að taka til hinna fram- komnu óska og sat hann hjá við atkvæðagreiðsluna. Það var Bragi Sigurjónsson. Þessi samþykkt bæjarstjóm- ar var gerð á grundvelli þess að komið verði upp minningar- sal um Davíð skáld Stefánsson, eins og það er orðað, í nýja Amtsbókasafninu. Öll vinnubrögð bæjarstjómar í þessu máli eru furðuleg, og verst er, að bæjarstjómin lét sér það happ úr hendi sleppa, að verða bæ sínum til sóma á þann hátt, sem borgararnir ósk- uðu og hið einstæða tækifæri gaf tilefni til. □ Sanðf jársæðingar eru að hefjast á Norðurlandi dragi ærnar sem mest saman, HIN nýja sauðfjársæðingastöð á Akureyri er að hefja starf þessa dagana. Sætt verður hjá stöð þesari í Norðlendingafjórð ungi og hefur hvert búnaðar- félag ,sem að sæðingastöðinni stendur, fimm daga til úthlutun ar. Búnaðarsamband Eyjafjarð ar dagana 2. 3. og 4. þ.m. og svo aftur dagana 14. og 15. desem- ber. Áríðandi er talið, að bændur til að fá sæðið sem nýjast, því þá er árangur mun öruggari. Ekki er ráðlegt að sæða ær nema á fyrsta beiðsludegi. Gjald fyrir hverja á er 50 krón ur og greiðist um leið og sætt er. Hrútar þeir, sem notaðir ver'ða, eru allir ættaðir austan Jökulsár á Fjöllum og eru vald ir kynbótagripir. (Fréttatilk.) Bændaklúbbsfiindur verður að Hótel KEA mánu- daginn 7. þ. m. og hefst hann kl. 9 að kveldi. Sýnd verður hin nýja kvik mynd Búnaðarfélags íslands „Bú er landstólpi“. — Ólaf- ur Jónsson ráðunautur gefur upplýsingar um væntanlega rannsóknarstofu á Akureyri. Einnig mætir á fundinum Jó hannes Sigvaldason, sem ráð inn hefur verið forstöðumað ur rannsóknarstofunnar. — Þess er vænst, að konur sem karlar noti tækifærið að sjá þessa nýju kvikmynd. Nokkur þáttur hennar var tekin af landbúnaði í Eyja- firði.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.