Dagur - 02.12.1964, Blaðsíða 8

Dagur - 02.12.1964, Blaðsíða 8
8 Þessa mynd tók Eðvarð Sigurgeirsson af einu atriði í sjónleiknum „Tangarsókn Tengaamöminu.“ Tangarsókn teng Leikstjóri er GuSmundur Gunnarsson LEIKFÉLAG Akureyrar hóf. vetrarstarfið að þessu sinni með æfingum á léttum gamanleik, Tangarsókn tengdamömmu, og hafði frumsýninguna í síðustu viku, en síðan tvær sýningar nú um helgina. Skammt er orð- ið til jóla og því útilokað fyrir leikfélagið að fást við fleiri verkefni fyrir áramót. Leikhús- unnendum mun sennilega þykja heldur seint vaknað á þeim bæ, en ættu að sækja leikhúsið þeim mun betur, meðan sýningar standa. í leikskránni er þess getið, að LA muni næst taka Munk- ana á Möðruvöllum, eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi, til meðferðar eftir áramótin. Er vel til fallið að sýna leikrit eft- ir þann höfund. Þá er það ekki síður mikilvægt að fá góðan leikstjóra og hefur það tekizt, því Ágúst Kvaran hefur tekið að sér leikstjórnina. En Ágúst Kvaran, hinn kunni leikari og leikstjóri, var í sumar -gerður að heiðursfélaga hjá LA, sem er mikill heiður og verðskuld- aður. Þá hefur LA góða von um, að siðar í vetur muni Þjóðleikhús- ið verða LA hjálplegt með leik- Góð sala hjá Svalbak SVALBAKUR seldur í Grims- by í fyrradag 95 torm fyrir 9.555 pund. Er þetta mjög gcð sala, eða yfir kr. 12.00 á kílóið. SLF.TTBAKUR og HARÐ- BAKUR eru báðir á veiðum og hafa fengið um 100 tonn hver. Selja þeir væntanlega í Eng- landi eftir helgina. Hraðfrystihús Ú.A. hefir fryst nokkurt magn af smásíld sem veiðst hefir hér á Pollih- um, að öðru leiti hefir engin vinnsla farið þar fram. Andrés Pétursson framkv.stj. Ú. A. tjáði blaðinu, að togarar félagsins myndu sennilega veiða fyrir erlendan markað nokkuð fram yfir áramót, enda væri nú hátt verð á fiski, bæði í Bret- landi og Þýzkalandi. ara eins og síðasta vetur, sem bæjarbúar minnast, er leikinn var Galdra-Loftur og Gunnar Eyjólfsson lék hér sem gestur, við mikla hrifningu. Tangarsókn tengdamömmu eftir Philip King og Falkland Cary er þýdd af Ragnari Jó- hannessyni, en Sveinbjörn Jóns son hefur bókmenntaumboðið. Leikstjóri er Guðmundur Gunnarsson og leikur hann jafn framt tengdapabba í þessum gamanleik, yfirbugaðan eigin- mann af þeirri hógværu gaman (Framhald á blaðsíðu 4). Þrjú þús. heimsótlu Nonnahúsið TUTTUGU konur í Zontaklúbb Akureyrar komu upp Nonna- húsi Það hefur verið opið á sumrin og fyrir skólafólk eftir samkomulagi á vetrum, síðast- liðin 7 ár. Á þessu ári hafa um þrjú þús. gestir skrifað nöfn sín í gesta- bókina, þar af um 250 útlend- ingar, sem margir hverjir hafa átt það erindi eitt til íslands, að sjá staði er Nonnabækur segjá .frá og safn það, sem nafni hans er tengt. Safn’gesiirnir komu flestir á tímabilimi ýiiní til ágúst. En þá þrja manuði úar safnið opið aila ' áágá lú. á—4 og stundum oftar v6f "tlftl 'þáð var beðið sérstak- .iegf-ljps p’ y IjSnPrSý'örðkw ídr frú Stefanía i, ■* f Armannsdóttir og gafst frétta- mönnum kostur á að skoða 'NönnaþÚsið ,'J'fyrradag og fá þaðan fréttir safnvarðar. Um- bætur á staðnum eru þær helzt- iáf.'að nú er húsið rafhitað og raflýst. Þar er því bæði bjart og hlýtt. Og enn bætast safninu munir, sem þar eiga heima. Aðsókn að safninu fer vax- ándi’með hverju ári. Bær, ríki og Menningarsjcður KEA hafa ,-s(utt Zohtaltbhur í starfi, fjár- hagslega. Flestir munu nú sammála um, að varðveizla Nonnahúss hafi vex-ið hin ágætasta hug- mynd, er vel hafi tekizt í fi-am- kvæmd. Sú nýbreytni var upp tekin, að bjóða efstu bekkjum barna- skólanna í Nonnahúsið. Safn- vörður sýnir þeim húsið og þau hlýða á fræðandi erindi um Nonna. Síðan skrifa þau i-itgex-ð ir um heimsóknina og verðlaun ei-u veitt í hverjum bekk, fyrir beztu ritgei-ðina, Nonnabók. — Síðasta ár annaðist Ingibjörg Magnúsdóttir fræðsluna í sam- bandi við heimsóknir barnanna, en nú Ragnheiður Ámadóttir. Safnvörðurinn, frú Stefanía Ár- ínannsd. og að neðan Nonnahús. TAUGAAFALL ÞUSUNDA HEIMILA Það hlýtur að vekja nokkra undrun, eftir öll skrif Alþýðu- þlaðsins um þessi mál, þar sem skattaráninu er harðlega mót- mælt, að síðar snerist því hug- ur. Þó gefur eftirfarandi að líta í ' liugleiðingum Hannesar á horninu í því blaði, nú fyrir fá- um dögum: „Ekkert, sem gerzt hefur s.l. tíu ár, hefur haft eins mikil áhrif á almenning og útkoma skatta- og útsvarsskrárinnar síð ast. Tíðindin, sem hún flutti mönnum, ollu allt að því tauga- áfalli fyrir þúsundir heimila. Ástæðan var sú, að hækkunin varð svo mikil og kom alger- lega að óvaörum. Menn urðu „sjokkeraðir.“ Menn skulu ekki halda, að heimilin hafi læknazt af þessu taugaáfalli. Það á eftir að lxafa sín áhrif á stjórnmálin langt fram í framtíðina.“ En foringjar Alþýðuflokksins eru á öðru máli, enda eru þeir fastráðnir hjá íhaldinu. ENN FJÖLGAR FERÐA- MÖNNUM AÐ MUN Fréttir herma, að nær 30% aukning hafi orðið á erlendum ferðamönnum liingað til lands á þessu ári, miðað við sama árs- tíma í fyrra. fslendingar færa sig einnig upp á skaftið í þessu efni. í bókum útlendingaeftir- litsins eru skráðir 13.700 ferða- menn á tímabilinu júní til sept- ember. KAPPAKSURINN Þvi miður verða bæjarbúar stundum vitni að villtum kapp- akstri unglinga á götum bæjar- ins, eins og oft hefur verið rætt um hér í blaðinu. Of slælega er tekið á þeinx málum, og enn hef ur slíkt framferði leitt til slysa. Ifér er enn einu sinni varað við vettlingatökum í umferða- málunum .Eða hve lengi eiga bæjarbúar t.d. að horfa á á- byrgðarlaus strákaflón stunda kappakstur á fjölförnustu göt- um Akureyrarkaupstaðar? '1 RÍKISSTJÓRNIN HEFUR ÞVERNEITAÐ LÆKKUNUM Formaður Dagsbrúnar skýrði nýlega frá því á Alþingi, að ríkisstjómin hefði algerlega neitað hvers konar leiðrétting- um í lækkunum 4 sköttunv og útsvörum, sem lögð voru á í sumar og fólk á mjög erfitt með að greiða á tilskildum tíma. Hann skýrði einnig frá því, að ríkisstjórnin virtist heldur ekki hafa áhuga fyrir svokölluðum kreppulánum, sem hún þó virt- ist einna helst hallast að, eftir að í óefni var komið. En eins og menn muna, skipaði ríkis- stjórnin nefnd manna í sumar til að gera tillögur um úrbætur vegna liinna háu skatta, sem hún sjálf viðurkenndi, að væru miklu hærri, cn búizt hafði ver- ið við. Svo fór um sjóferð þá. HÚSBYGGINCÍARKOSTN- AÐURINN Hagtíðindin segja, að 375 rúm metra íbúð, sem er nálægt með- alíbúðastærð, hafi hækkað und- ir „viðreisnarstjóminni“ um hvorki meira né minna en 332 þúsundir króna, eða frá júní 1958 til júní 1964. Þetta verða menn að játa hvort sem þeim líkar betur eða verr. „Viðreisn- arstjórnin“ taldi það þó til sinna höfuð-verkefna að stöðva verðbólguna í landinu. En þessi dýrtíð í húsbygging- um og verði íbúða veldur því óhiákvæniilega að æ fleira fólk getur e!xki byggt yfir sig eða eignast húsnæði. Þetta er mikil öfugþróun. KAUPID HEFUR LÍKA HÆKKAÐ, EN . . . . Sumir svara þessu auðvitað serp svo, að þetta sé aðeins önn- ur hliðin á málinu, en hin sé sú, að kaupið hafi einnig hækk- að. Sannleikurinn í því máli er (Fi-amhald á blaðsíðu 4). SMÁTT OG STÓRT •i-5ÍÍ-í-©-)-5S:-.í-©->-5|S>-©->-5;-r*©->-5rr-^©-^5SH-©->-*-í-®-H;:--i-©-H*^->--<'r*&- RAFMAGNSMÁLAFUNDUR FRAMSÓKNARFÉLÖGIN á Akureyri halda fund á skrifstofu Framsóknarflokksins í Hafnar- stræti kl. 8,30 e. h. á morgun (fimmtudaginn 3. desember). Frummælandi er Knútur Otterstedt rafveitfcstjóri og ræðir rafmagnsmál með sérstöku tilliti til Norðurlands. — Allir velkomnir ’fr' 'r- ®^ ®^-íxW* ^ ■íiW' ■iuS'' •ú' ^ SiW* ®Qr>t' SfcS* í?> ^ {$'7' íjSí*'

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.