Dagur - 05.12.1964, Blaðsíða 1
FRÁ BÆJARSTJORN
Næst verður borað í Glerárgili
En síðan væntanlega aftur vestur á Laugalandi
BÆJARSTJÓRN Akureyrar
kom saman á fund 1. desember.
M. a. voru þessi mól afgreidd:
Áskorun um tunnusmíði. —
Samþykkt var einróma að skora
á stjórn Tunnuverksmiðja rík-
isins að láta hefja smíði á tunn
um í verksmiðjunni á Akureyri
hið allra fyrsta.
Tillaga um sérleyfi til stræt-
isvagnaferði. — Samþykkt var
svohljóðandi tillaga bæjarráðs:
„Bæjarráð leggur til, að bæj-
arstjórn Akureyrar sæki um
sérleyfi til strætisvagnaferða í
lögsagnarumdæmi Akureyrar
og framselji síðan SVA sérleyfi
til ferða í bænum og feli íþrótta
ráði að semja um fastar ferðir
í Skíðahótelið.
Jafnframt er gert ráð fyrir
að SVA afturkalli núverandi
sérleyfi sitt.“
Rætt um sjómannafrádrátt
við álagningu útsvara. — Fyrir
nokkru barst bæjarstjóminni
erindi frá Sjómannafélagi Ak-
ureyrar og Vélstjórafélagi Ak-
ureyrar varðandi aukinn frá-
drátt sjómanna við álagningu
útsvara, þannig að fylgt verði
JÓLAMARKAÐURINN
%
JÓLAMARKAÐUR sá, sem áð
ur var um getið hér í blaðinu,
verður á Hótel KEA á morgun,
sunnudag og hefst kl. 1,30. Það
eru félagskonur kvenfélagsins
Framtíðar, sem jólamarkað
þennan halda og verja þær öll
um ágóðanum til styrktar Elli-
heimilinu á Akureyri. Munirn
ir, sem seldir verða, eru hand
unir og heimagerðir af konun-
um sjálfum, og þeir munu kosta
frá 30—500 krónur. í sambandi
við jólamarkaðinn verðué kaffi-
sala og böm skemmta. □
sömu reglum um sjómannafrá-
drátt við álagningu útsvars og
tekjuskatts.
Erindi þetta ver sent framtals
nefnd til umsagnar og gat nefnd
in ekki fallist á uppástungu áð-
urnefndra félaga, um aukin sjó
mannafrádrátt á þessu ári. —
Hins vegar ákvað framtals-
nefndin að taka reglur sínar til
endurskoðunar varðandi þetta
atriði, við ólagningu á næsta
ári, án þess þó að gefa fyrirheit
um fullan frádrátt samkvæmt
tekjuskattslögunum. Fram kom
í umræðunum að sjómannafrá-
drátturinn hefði sízt verið lægri
en hjá flestum öðrum bæjarfé-
lögum, og að hann hefði ekki
verið skertur á þessu ári eins
og sumir virtust álíta. Meiri-
hluti bæjarstjórnar var sam-
þykkur áliti framtalsnefndar.
Magnús Guðmundsson ráð-
inn skíðakennari. — Eftir til-
lögu íþróttaráðs var samþykkt
að ráða Magnús Guðmundsson
skíðakennara til skíðakennslu
við skólana og Skíðahótelið frá
15. nóvember til 1 maí, og fari
kennslan fram í Hlíðarfjalli. —
Ráðgert er að kennslugjald
skólanema gangi upp í káup
Magnúsar.
Á ÞRIÐJUDAGINN verður
Herradeild KEA opnuð á nýj-
um stað; þar sem áður var Véla
og Búsáhaldadeild, Hafnar-
stræti 93, á fyrstu hæð. Þar er
mjög rúmgott. Deildarstjóri er
Björn Baldursson. En þessari
deild var skipt frá Vefnaðar-
vörudeild KEA fyrr á þessu
ári.
Gólfteppa- og dreglasala Vefn
aðarvörudeildarinnar verður
EINS og áður hefur verið frá
sagt í fréttum, varð mikilvæg-
ur árangur af jarðborun á
Laugalandi á Þelamörk, þar
sem renna tóku 12—14 lítrar af
83—85 stiga heitu vatni á sek.
Og þessi árangur varð fyrr en
jarðfræðingar væntu.
Blaðið sneri sér til Jóns Jóns-
sonar jarðfræðings í fyrradag
og spurðist fyrir um álit hans á
hitaleitinni hér nyrðra. Hann
taldi hana lofa góðu eins og nú
stæðu sakir. Berggang þann,
sem við fundum með segúmæl-
ingum á Laugalandi, sagði
hann, ætluðum við að skera
með fyrstu borholunni á 800 m
dýpi. Borinn skar hann nokkru
fyrr og tók þá heita vatnið að
streyma. En hugsanlegt er einn
ig, að um fleiri ganga sé að
ræða, sem borinn eigi eftir að
skera, og þá mun væntanlega
eitthvað ske.
En hvað um hverahrúðrið of-
eftirleiðis í kjallaranum.
Eins og sagt var frá fyrir
nokkru var ákveðið að setja
upp hverfistiga í Vefnaðarvöru-
deildinni, sem er á annari hæð,
til þess að auðvelda viðskipta-
vinunum leiðina. Þessi hverfi-
stigi er nú tilbúinn, til notkunar
og sparar manni sporin.
Deildarstjóri Vefnaðarvöru-
deildar er Kári Johansen. □
an við veginn hjá Laugalandi?
Þar hefur heitt vatn runnið,
það leynir sér ekki. Ég hef haft
spurnir af, að svo hafi verið
fram yfir miðja 18. öld. Mér
þykir líklegt, að næsta hola,
sem þarna yrði boruð, verði
rétt ofan við veginn, aðeins
norðar en þar sem nú er verið
að bora. En allar áætlanir um
borun geta auðvitað tekið breyt
ingum ef veruleg tíðindi, sem
Þeir koma á morgun
LION SKLÚBB ARNIR um
heim allan hafa á margvíslegan
hátt lagt lið ýmiskonar líknar-
og hjálparstarfsemi í sínu bæj-
arfélagi. Til þessa hafa þeir
safnað fé með skemmtanahaldi,
eigin vinnu og á annan hátt.
,'Félagar í Honsklúbbnum
Huginn hér í bæ munu í næstu
viku hefjast handa um fjársöfn
un, sem ætlað er að renna til
ýmsra mannúðarmála í bænum
nú fyrir jólin. Á sunnudaginn
munu þeir hefja sölu á raf-
magnsperum og ganga þá í hús
og bjóða til kaups perupakka,
en fyrir jólin er hverju heimili
nauðsyn að vera vel birgt af
þessari nauðsynjavöru. Þeir
vænta því góðrar viðtöku bæjar
búa — jafnvel þótt þeir verði
snemma á ferðinni á sunnudags
morgun.
Laugardaginn, 12. desember
n.k. efnir sami Lionsklúbbur til
dansleiks í Sjálfstæðishúsinu á
Akureyri, sem nánar mun aug-
lýst síðar.
ekki er fyrirfram reiknað með,
taka að gerast. En slíkt kemur
stundum fyrir.
Ég hef lagt til, að næsta bor-
un verði gerð eins nálægt
gömlu laugunum í Glerárgili
og unnt er. Þar er gangakerfi,
sem þarf að prófa með einni
holu a. m. k. Mér þykir frekar
sennilegt að þar fáist vatn. Þótt
það yrði lítið er ■ hægt að nota
það strax. Líkurnar eru svo
miklar þar, að sjálfsagt er að
gera tilraun. Já, mér lízt vel á
þetta eins og er, sagði Jón Jóns-
son jarðfræðingur.
Stefán Stefánsson bæjarverk-
fræðingur stjórnar nú yegalagn-
ingu upp með Glerá að austan.
Við Laugarhólinn verður steypt
undirstaða undir Norðurlands-
borinn þegar vegurinn er til-
búinn, ef tíð leyfir. □
NÝ SÍMANÚMER
í NÓTT, aðfaranótt sunnudags-
ins, verður unnið að breytingu
símakerfisins hér í bæ. Aug-
lýsing um það er annarsstaðar
í þessu blaði. Á morgun ber
símnotendum að hafa í huga,
að þá verða öll símanúmerin
fimm stafa tölur, þannig að tölu
stafurinn 1 bætist framan við
símanúmerin. Símanúmer Dags
eru 1166 og 1167, en á morgun
verða þau 11166 og 11167, og
er þetta tekið sem dæmi.
Breytingar þessar eru í sam
bandi við hið sjálfvirka kerfi,
sem væntanlega kemur til notk
unar snemma á næsta ári.
t)
FRÉTTIR liermdu í gær, úð
mikið ljós hefði séðst samtímis
í fyrrakvöld frá Sauðárkróki,
Mývatnssveit, úr flugvél, er
var á leið milli Færeyja og fs-
lands og Hornafirði. Klukkan
var þá rumlega 11.
Blaðið náði tali af manni ein-
um, sem var á leið frá Mývatns
sveit, austur á land. Hann heit-
ir Arnkell Jónas Einarsson og
vinnur í Áhaldahúsi vegagerð-
arinnar í Reykjavík. í fyrra-
kvöld var hann staddur við
Nýjahraun, skammt austan við
vörðuna, móts við sæluhúsið
eða Péturskirkju. Klukkan var
11,05. Þá sáum við, sagði hann,
mikið gulleitt ljós í suðri, eða
aðeins austan við suður, þó
vestan Herðubreiðar. Ljós þetta
var nokkuð hátt á lofti, ívið
hærra en toppur Herðubreiðar.
Við Jón Egilsson frá Reyðar-
firði, sem með mér .var, horfð-
um á þetta í
var mikil
stórt svið við sjóndeildarhring-
inn. Ég hafði þegar í stað sam-
band við Gufunes til að segja
frá þessu, og hélt svo áfram för
minni.
Loftleiðaflugvél, stödd 170
km vestur af Færeyjum, sá fyr-
irbæri þetta á sama tíma. Bjart
varð í stjórnklefa. Flugmenn
sáu ljósið „springa."
í Hornafirði varð lesbjart á
sama tíma og það birti í fjöll-
um. Mun hér stór loftsteinn
hafa verið á ferð eða e. t. v.
hluti úr gerfitungli? □