Dagur - 13.02.1965, Qupperneq 1
Dagur
SIMAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
XLVIII. árg. — Akureyri, laugardaginn 13. febrúar 1965 — 12. tbl.
Dagur
kemur tit tvisvar í viku
og kostar kr. 25,00 á
mán. í lausasölu kr. 4,00
Loftleiðir gera 700
millj. króna samning
Kaupa tvær Canadaier flugvélar í viðbót
f FYRRADAG voru undirritað-
ir samningar í Reykjavík, milli
Loftleiða og Canadair-flugvéla-
verksmiðjanna. Með samning-
um þessum kaupa Loftleiðir 2
stórar farþegaflugvélar af sömu
gerð og þær, sem félagið keypti
í fyrra — og eru þetta liæstu
viðskiptasamningar, er um get-
'ur hér á landi, eða 700 millj. kr.
Seljandi krafðist ekki trygging-
ar banka eða ríkis. Vélarnar
verða greiddar á 7 árum.
Hinar nýju vélar rúma 160
farþega, en verða lengdar um
5 metra og taka þá 189 farþega.
Canadair-vélarnar frá í fyrra
verða stækkaðar á sama hátt.
Hávaðastyrkleiki
bítlanna mældur
FULLTRÚI borgarlæknis mun
hafa mælt hávaðastyrkleika á
bítlahljómleikum 9. febrúar í
Reykjavík. Mælar sýndu að
jafnaði styrkleikann 100—110
decibel. Ef hávaði á vinnustað
fer yfir 95 decibel þykir ástæða
til að gera ráðstafanir vegna
hættu á heilsutjóni. □
FRAMSOKNARVIST-
INNI FRESTAÐ
SÍÐASTA spilakvöldi Fram-
sóknarfélaganna, sem vera átti
í gærkvöld, var frestað vegna
illviðris, til sunnudagskvölds n.
k. og verður þá að Hótel KEA
kl. 8,30 e. h. Q
Stjórnarformaður Loftleiða h.f.
er Kristján Guðlaugsson.
Fyrri flugvélin, sem nú hef-
ur verið keypt, verður tilbúin
um miðjan apríl en hin síðari í
maí.
Vélakostur Loftleiða verður,
að kaupum þessum gerðum, 4
Canadair-vélar og 5 „sexur.“ □
------i-v
BANKASTARFS-
MENN SÝKNAÐIR
HINN 9. febrúar var upp
kveðinn dómur í máli ákæru
valdsins gegn starfsmönnum
Útvegsbanka íslands. Verk-
fall starfsfólks bankans, hinn
2. nóvember s. 1. haust, sem
hér lá til grundvallar máls-
höfðuninni, var til að mót-
mæla ráðningu Braga Sigur-
jónssonar í útibússtjórastöðu
bankans á Akureyri. Hin 5
ákærðu voru í stjóm starfs-
mannafélags bankans. Voru
þau öll sýknuð — fjórir
karlar og ein kona. □
Akureyrartogararnir hafa verið athafnalífinu lyftistöng, — þótt útgerðin hafi gengið misjafnlega.
Sexlán ara flokkunarviðgerð á Kaldbak
ILLFÆRT I BJORTU
ÓFÆRT í MYRKRI
ÍS er nú milli Horns og Straum
ness og íshroði víða við Vest-
firði. Esjan sneri við á ísafirði
í gær, en hún var á norðurleið.
Hekla tafðist í ís á suðurleið á
sömu slóðum. í tilkynningu frá
Landhelgisgæzlunni segir, að
siglingaleiðin þarna sé illfær í
björtu og ófær í myrkri. Bátar
frá ísafirði misstu eitthvað af
línu undir ís í fyrradag. □
sú fyrsta, sem gerð
HINUM aldna og ágæta Akur-
eyrartogara, Kaldbak, var lagt
12. febrúar 1964 og beið hann
16 ára flokkunarviðgerðar. —
Hinn 24. október s. 1. haust
hófst flokkunarviðgerðin hér á
Akureyri, og er Kaldbakur
fyrsti togarinn, sem slík við-
gerð er framkvæmd á hér fyrir
norðan.
í 16 ára flokkunarviðgerð
felst m. a. úttekt og viðgerðir á
ljósavélum, aðalvél, dælum,
katli, tönkum, dekkviðgerð og
viðgerð á skipsdælunum sjálf-
um.
Það voru vélsmiðjurnar Oddi
og Atli, sem þetta verk tóku að
sér og hafa nú lokið því, þ. e.
að þeim hluta, sem unnt er að
framkvæma án þess að skipið
sé tekið í slipp. Botnviðgerð fer
er á togara hér í bæ
hins vegar fram í Bretlandi, og
heppilegra þótti einnig að
skipta einnig um stykki í vél
þar um leið.
Verður nú væntanlega brátt
siglt á Kaldbak til fullnaðarvið
gerðar og bætist hann vonandi
að því loknu í veiðiflotnnn, sem
hann hefur nú árlangt orðið
viðskila.
Hin gagngerða viðgerð, sem
að þessu sinni fór fram að
vetri til, þyrfti ekki að taka
nærri svo langan tíma að sumr-
inu, þegar vinnuskilyrði eru
hagstæðari.
Forstjóri á Odda er Pétur
Valdimarsson og forstjcxi á
Atla er Alfreð Möller. — Vél-
smiðjur þessar eru taldar hafa
margt mjög hæfra járniðnaðar-
manna í sinni þjónustu. □
HÖRKUSTðRHRtÐ A OLLU
NORÐURLANDIIGÆR
Árnar í Húnavatnssýslum leigð-
ar fyrir á fimmtu milljón króna
Blönduósi 12. febrúar. Snögg-
lega skipti um veður í gær, úr
sunnan blíðskaparveðri í verztu
norðan hríð, svo vart sér milli
húsa. Er þetta með sneggri um-
skiptum veðurs.
Nú er verið að semja um
leigu á þeim laxám, sem eru
áður í fastri leigu.
TilboS í Víðidalsá upp á aðra
milljón króna.
Tilboð er komið í Víðidalsá,
er hljóðar upp á aðra milljón.
Verður væntanlega samið um
veiðiréttinn í þeirri á. Laxá á
Ásum var líka boðin út og verð
ur eflaust há leigan á henni. —
Hér eru veiðileyfin seld dýru
verði, og landeigendur fá góðan
hlut. — Laxárnar í Húnavatns-
sýslunum báðum munu í ár
verða leigðar fyrir á fimmtu
milljón króna, enda er um fiski-
sælar ár að ræða.
Bændur byggja veiðihús.
Við Vatnsdalsá hafa bændur
byggt mjög vandað veiðihús,
samkvæmt samningi við leigu-
taka, erlendan, og er nú verið
að velja í það húsgögnin. Vatns-
dalsá var í fyrra leigð til 10 ára,
sem þá varð frægt í fréttum.
Víst er um það, að árnar færa
eigendum sínum margar kringl-
óttar og yfir þessum veiðiskap
er ævintýraljómi. Ó. S.
í GÆR geysaði norðan hörku-
stórhríð um norðanvert landið
og víðar.
Um tvö leytið í gær, þegar
blaðið grennslaðist um ástandið
á vegum í nágrenni Akureyrar,
fékk það þær upplýsingar, að
mjólkurflutningar til bæjarins
hefðu gengið illa og frá sumum
deildum samlagssvæðisins kom
engin mjólk. Áætlunarbíllinn
frá Dalvík var þá búinn að vera
um 5 klst. þaðan í Fagraskóg á
leið til Akureyrar.
Snjór mun ekki hafa verið
mikill á vegunum, erfiðleikarn-
ir voru mest vegna þess hve
blindað var af hríðarkófi. — í
bænum sást vart milli húsa og
skólum bæjarins var lokað. □
Álvinnulífið er dauft á Siglufirði
Siglufirði 12. febrúar. Hér hafa
þrjú skip verið að gukta við
róðra, en lítið fiskað. En nú fer
Orri og verður gerður úr frá
Rifi og Æskan suður í Faxaflóa
og er því Hringur einn eftir. —
Nýi togarinn, Siglfirðingur, ligg
ur á Akureyri, í lestarviðgerð,
sem mun vera að ljúka, og fer
hann sennilega á síld innan
skamms.
Það er dauft yfir atvinnulífi
á Siglufirði. Niðurlagningar-
verksmiðjan starfar ekki, en
hins vegar er Tunnuverksmiðj-
an komin í gang og vinna þar
um 40 manns.
Ekki er búið að ganga frá
fjárhagáætlun bæjarins ennþá.
Nú er hér verzta veður —
norðan kolvitlaus stórhríð. B. J.
„FARA NOKKUÐ
MEÐ LÖNDUM“!
SUNNANBLAÐ sagði ný-
lega, að nú væri búið að
vekja upp „draug“ þann, er
örðugt myndi að kveða nið-
ur, og átti þar við „skattalög
regluna“ nýju, undir stjóm
Guðmundar Skaftasonar.
Morgunblaðið hrökk við
og sagði í leiðara sínum á
fimmtudaginn um þessi mál,
þ. e. rannsókn skatta- og
framtalssvika, að betra væri
að „seilast ekki mjög til
fanga í fortíðinni“ og „fara
nokkuð með löndum“! svona
á byrjunarstigi.
Auðséð er, hvað fyrir Mbl.
vakir! □