Dagur - 13.02.1965, Page 2
2
® r
>iisíiorasosiir
í ÞETTA sinn hittum vi5 að
máli Sigurgeir Jónsson stöðvar-
stjóra á Bifröst á Akureyri. Á
fjórða áratug fór hann naumast
undan stýri, þar til fyrir tveim
árum að hann tók við núver-
andi starfi. Fyrst ók hann
réyndar hestakerru, síðan fjór-
hjóla hestvagni þar til aldur
leyfði bifréiðaakstur árið 1930.
Við sátum stundarkorn á skrif-
'stofu háns í Skipagötu og hahn
sagði frá.
Eg hef alltaf verið að aka vör
um, stundum fólki í boddibíl, en
hef verið hérna ó Bifröst síðan
1933, fékk fyrst 259 krónur á
mánuði og þótti gott. Það var
töluvert um eftírvirínu en hins- '
vegar lítið um eftirvinnukaup.
Ódýrustu túrarnir kostuðu eina
krónu.
Á fyrri árum mínum á Bifröst
sendi Helgi Tryggvásorí stöðvar
stjcri mig oft í Fnjóskadal ogi
Bárðardal. Þar var maður orð-
inn kunnugur á hverjum bæ og
það var eins og fólkið ætti í
manni hvert bein. Slíku fólki
var ekki liægt að bregðast. Eg
á margar góðar minningar frá
þeim ferðum. Þær voru stund-
um erfiðar en það var alltaf gam
an að yfirvinna erfiðleikana og
komast á ákvörðunarstað með
vörur og fólk, sem maður var
að flytja.
Einu sinni man ég eftir að ég
fór austur í Mýri í Bárðardal.
Það var gott að koma til þeirra
Jóns og Aðalbjargar, sem þá
bjuggu þar. í þetta skipti var
ég alla nóttina að komast fram
Bárðardalinn. Flvað eftir annað
þurfti að taka allt af bílnum og
lyfta honum svo upp úr gjótun-
um. Þegar við komum að Mýri
um morguninn í dásamlegu
veðri og að loknum sigri yfir
vegaleysum, fengum við grasaöl
að drekka þegar í stað. Það
þótti mér vondur drykkur. En
það réyndist fleirá vera til á
bænum þeim, sem mér geðjað-
ist betur.
Öðru sinni var ég á ferð um
Bárðardal að vori til og á heim-
leið. Þá stóð til vígsla Kvíslar-
brúarinnar á Skjálfandafljóti,
en brú þá byggði Karl Friðriks-
son. Þá lá vegurinn ofan við
Sigríðarstaði í Ljósavatnsskarði
og gékk allt vel þangað. Og þar
kom ég síðla kvölds. En þar
sökk bíllinn og kom ég honum
hvorki fram né aftur fyrr en
fólkið kom á fætur um morgun
inn. En þessi bjarta vornótt var
dýrleg. Heitt var í veðri og mikl
ir vatnavextir. Danaprins átti
að koma frá Akureyri og vera
við brúarvígsluna. En ferða-
áætlun hans var breytt vegna
vatnavaxtanna og fór hann með
skipi til Húsavíkur og kom svo
þaðan. Og sem ég var þá búinn
að fá bílinn minn upp úr vilp-
unni kom Snæbjörn Þorleifsson
á bíl sínum (A-lll) frá Akur-
eyri og fcr mikinn. Hann var á
leiðinni til Húsavíkur til að
sækja prinsinn og flytja um
sveitir. Hér segir ekki frá brú-
arvígslu eða tignarfólki, en þess
ari vornótt við Sigríðarstaði í
gróandanum gleymi ég ekki.
Einu sinni fór ég ferð fyrir
Sigurð á Fosshóli þangað aust-
ur og ók þá eftir Ljósavatni.
Annars staðar var ekki fært.
Og mér fannst nú heldur ekki
fært á Ljósavatni, en Sigurður
sagði að það væri „slarkfært"
og hann hefði farið það. Ég var
á boddíbíl og með mér var séra
Þormóður Sigurðsson á Vatns-
enda. Hann hafði opna hurðina
sín megin, viðbúinn að kasta
sér út ef illa færi. Hann þekkti
ísinn á Ljósavatni cg ekki sýnd-
ist mér hann vera neitt óróleg-
ur. En ég var hræddur, skít-
hræddur -um -það á hverju
augnabliki, að bíllinn færi nið-
ur. Það brast og brakaði alveg
ógurlega því að ísinn var veik-
ur. Ég fór nasrri landi og ég ók
greitt. Mér fannst timinn lengi
að líða og leiðin löng þennan
spöl, enda fannst mér undirspil-
Fðr eins. ög dauðasöngur. E.n allt
gekk vel. -
Einhverju sinni að vetrarlagi
fór ég sem oftar austur yfir
Vaðlaheiði með vörur. Vestan í
Vaðlaheiðinni var snjór og varð
.é*g .að mbka töluvert, er upp
undir brúnina kom. Stóð þá svo
tæpt um -skeið, að ég var hvað
eftir annað að því kominn að
ganga frá bílnum. Eitt hjólið
var komið utan í kantinn og
náttúrulega ekkert vit í öðru
en reyna að fá hjálp. Einhvern
veginn tckst mér þó, mest fyrir
heppni,-að koma bílnum upp og
brjótast í gegn um skaflana og
yfir heiðina. í Skógum fékk ég
auðvitað hinar höfðinglegustu
Bridgemót Akureyrar
Urslit fjórðu umferðar:
Sveit Halldórs Helgas. vann
sveit Soffíu Guðmundsdótt-
ur 6:0, sveit Baldvins Ólafsson-
ar vann sveit Ólafs Þorbsrgs-
soríar 6:0, sveit Knúts Otter-
stedt vann sveit Óðins Árna-
sonar 5:1 og sveit Ragnars Stein
bergssonar vann sveit Mikaels
Jónssonar 5:1.
Staðan er þá þessi: Sveit
Knúts 21 stig, sveit Mikaels 19,
sveit Ragnars 18, sveit Óðins
13, sveit Halldórs 13, sveit
Baldvins 11, sveit Soffíu 1 og
sveit Ólafs ekkert stig. Q
Engar sampnpr - ekkert kvartað
SIGURGEIR JONSSON.
viðtökur, eins og æfinlega fyrr
og síðar hjá Steinunni hús-
freyju.
Svo hélt ég heim og allt gekk
vel. Mætti ég þá Georg Jóns-
syni frá Akureyri sem kom með
nokkra menn og var á austur-
leið. Þeir félagar spurðu um
veginn og ég sagði þeim að
hánn væri ófær. Þeir trúðu mér
ekki, enda vissu þeir hvaðan
ég kom og ég man enn tor-
tryggnina í svip þeirra, þegar
þeir horfðu á mig, og mér
(Framhald á blaðsíðu 6).
Klausturseli 4. febrúar. Hér um
slóðir gerist fátt sem telja má
markvert. Veður eru fremur
góð, það sem af er þorra, en
jarðlítið fyrir sauðfé svo það er
aðallega látið út til að fá ferskt
loft í lungun, — -en í nótt hefur
töluverð jörð komið upp undan
snjónum.
Hér í sveit varð ófært fyrir
bíla 26. desember og var þann-
ig ástatt til 26. janúar. En þar
sem enginn varð veikur í sveit-
inni á þessu tímabili heyrðist
ekkert kvartað — þó kvisaðist,
að sumir mundu vera tóbaks-
litlir og á einstaka stað að verða
daufar rafhlöður í útvarpi.
Skólafólk varð að leggja land
undir fót og fara gangandi úr
jólafríi og bar það sig ágætlega
og allir náðu sínum áfangastað.
Hér er hægt að komast af,
þótt ófært verði einhvern tíma
vetrarins. Hér þarf enginn að
koma mjólk á markað, og allir
byrgja sig upp strax á haustin
af öllum nauðsynjavörum, sem
endast fram á vor. Læknir hef-
ur geymd nauðsynlegustu lyf á
mörgum bæjum í sveitinni og
ef ófært er, þá er hægt að nota
þau eftir upplýsingum, sem
læknirinn lætur í té í símtali,
þegar veikindi ber að, en fóllc
er aldrei eins hraust eins og
þegar umferð er lítil og slysa-
hætta aldrei eins lítil og
þá. * G. A.
Enn er sama aflaleysið
hjá Ólafsfjarðarbátum
Ólafsfirði 12. febrúar. Síðan kl.
fjögur í gær er hér stórhríð og
vitluast veður og komnir eru
dálitlir skaflar. Á þriðjudaginn
var hér rok af suðri og fuku þá
járnplötur af hálfu þaki húss
eins hér í kaupstaðnum. —
Sama aflaleysið er hér alltaf.
Nú munu stóru bátarnir vera
að hætta og fara þeir sennilega
suður. Ég man aldrei eftir öðru
eins aflaleysi. B. S-
AFREKASKRÁ ÍSLENDINCA 1964 (frarahald)
Kúluvarp. m
Ragnheiður Pálsd. HSK 10,18
Helga Hallgrímsd. HSÞ 9,55
Fríður Guðmundsdóttir ÍR 9,29
Kristín Guðmundsd. HSK 9,20
Þórdís Kristjánsd. HSK 9,04
Svala Lárusdóttir HSH 8,90
Berghildur Reynisd. HSK 8,77
ólöf Hallgrímsdóttir HSK 8,73
Gunnvör Björnsd. UMSE 8,72
Valg. Guðmundsdóttir HVÍ 8,64
Elísabet Sveinbj.d. HSH 8,64
Hanna Stefánsdóttir HSÞ 8,58
Sóley Kristjánsd. UMSE 8,52
Sigrún Einarsdóttir KR 8,49
Ingibjörg Aradóttir USAH 8,46
Erríilía Baldursd. UMSE 8,45
Halla Sigurðard. UMSE 8,34
Hólmfr. Friðbjörnsd. HSÞ 8,30
Sigríður Sigurðardóttir ÍR 8,25
Kringlukast. m
Dröfn Guðmundsd. UBK 34,77
Ragnheiður Pálsd. HSK 34,76
Fríður Guðmundsd. ÍR 34,26
Ása Jacobsen HSK 31,54
Svala Lárusdóttir HSH 31,25
Guðbjörg Gestsd. HSK 30,84
Sigrún Einarsdóttir KR 23,16
Kristjana Jónsdóttir HSÞ 27,76
Hlín Torfadóttir ÍR 27,46
Ingibjörg Ai-ad. USAH 27,35
Sigríður Snæland HSK 27,03
Bergljót Jónsdóttir UMSE 27,00
Þórdís Kristjánsd. HSK 26,75
Hanna Stefánsdóttir HSÞ 26,70
Lilja Friðriksdóttir UMSE 26,64
Helga Hallgrímsd. HSÞ 26,21
Anna Guðmundsdóttir ÍR 25,78
Súsanna Möller KA 25,64
Ragnh. Guðm.d. USAH 25,04
Lilja Sigurðardóttir HSÞ 25,04
Spjótkast. m
Elisabet Brand ÍR 33,95
Sigríður Sigurðardóttir ÍR 32,68
Valg. Guðmundsd. HVÍ 31,12
Birna Ágústsdóttir UBK 25,95
Guðbjörg Sveinsd. UBK 21,70
Dóra Ingólfsdóttir UBK 21,60
Dröfn Guðmundsd. UBK 21,45
Kristín Guðmundsd. HSK 20,34
Ragnheiður Pálsd. HSK 18,88
Fríður Guðmundsd. ÍR 18,78
Sólveig Hannam ÍR 16,48
Fimmtarþraut. stig
Sigríður Sigurðardóttir ÍR 3532
(8,25 — 1,45 — 28,11 — 12,9
4,86).
Lilja Sigurðardóttir HSÞ 3135-
Linda Ríkharðsdóttir ÍR 3050
Skídakennsla í Lai’pskóSa
Mikii sipríör M.Á.-n8menda
Kjartan Guðjónsson stökk 1.94 m í hástökki
UM s. 1. helgi léttu körfuknatt-
leiksmenn úr Msnntaskólanum
á Akureyri heimadraganum og
héldu suður í Borgarnes og
Stykkishólm, til keppni við
heimamenn þar. Varð sú för
næsta sigursæl, því liðið sneri
heim aftur ósigrað. í Bofgar-
nesi lauk leik með 62 stigum
MA gegn 60. Var sá leikur afar
jafn og harður frá upphafi til
enda. Þar var einnig leikið
gegn Gagnfræðaskólanum og
lyktaði þeirri viðureign með
sigri MA 41:32. Daginn eftir var
haldið í Stykkishólm og lauk
leiknum þar með sigri MA
61:40. Bæði þsssi fyrrnefndu lio
eru meðal keppenda í 2. deild
ís’andsmótsins riú í ár. Á hsim-
leiðinni var sialdrað við að
Reyk'um í Hrútafirði og s’.egið
upp hraðmóti með þátttöku
H Sraðsskólans þar, auk A- og
B-Iiðs MA. Bar A-Iiðið sigur af
hólmi. Að loknum leik var efnt
til keppni í hástökki með at-
rennu. Vann Kjartan Guðjóns-
son MA þar það ágæta efrek að
stökkva yfir 1,94 m, sem mun
vera hæsta stökk íslendings á
þessum vetri. □
Laugum 9. febrúar. Haraldur
Pálsson skíðamaður úr Reykja-
vík hefur s. 1. tvær vikur starf-
að að skíðakennslu meðal nem-
enda Laugaskóla og barnaskóla
sveitarinnar. Snjór var nægur
lengst af tímans og eru nokkur
ár um liðin síðan skíðaíþrótt
hefur hér um slóðir verið jafn
kappsamlega iðkuð og þennan
tíma.
Nú um helgina kepptu svo
allmargir þátttakendur í skíða-
námskeiðinu í göngu og svigi.
Gengnir voru 8 km og voru
þátttakendur úr Laugaskóla, að
einum undanteknum.
Úrslit í göagunni. mín.
Páll Dagbjartsson 20:27,0
Geir Garðarsson 22:02,0
(keppti sem gestur)
Héðinn Sverrisson 22:12,0
Sigurður Jónsson 22:28,0
Sigurður er 15 ára, sonur Jóns
Kristjánssonar, Arnarvatni, —
hins landskunna göngumanns.
í svigi kepptu bæði nemend-
ur Laugaskóla og barnaskólans-
í stúlknaflokki bar sigur úr
býtum Auður Ármannsdóttir,
Laugaskóla.
í flokki 11 ára og yngri, Þór-
arinn Illugason, Barnaskóla.
I flokki 12 ára og eldri, Vign-
ir Valtýsson, Laugaskóla.
Heðan hélt Haraldur Pálsson
til kennslu í Húsavík og mun
e. t. v. að henni lokinni kenna í
Mývatnssveit. G. G.
SKÍDAMÓT U.M.S.E.
Á DALVÍK
SKÍDAMÓT Ungmennasamb.
Eyjafjarðar hefst laugardaginn
20. þ. m. kl. 1,30 e. h. og fer
fram á Dalvík. Keppt verður
í svigi karla og kvenna og 4x5
km boðgöngu karla. □