Dagur


Dagur - 13.02.1965, Qupperneq 8

Dagur - 13.02.1965, Qupperneq 8
8 SMÁTT OG STÓRT Enginn árangnr eitu baráttunni BARÁTTAN gegn ólöglegri eiturlyfjasölu, einkum með til- liti til ópíumlyfjanna morfíns og heróíns, hefur borið næsta fátæklegan árangur síðustu 25 árin, segir í skýrslu ópíum- nefndar Sameinuðu þjóðanna í Genf. Nefndin er þeirrar skoð- unar, að ástandið muni ekki breytast meðan leyni-framleið- endur ópíum-lyfja ná í nægilegt magn af ópíum. Þeir ná í ópíum eftir tveim leiðum, bæði frá þeim sem rækta svefngrös raeð löglegum hætti og þeim sem rækta þau ólöglega. Nefndin gerir sér von- ir um, að hægt verði að draga mjög úr öflun ópíum eftir fyrri leiðinni. Hér er um að ræða 180—200 tonn, og hin löglega ræktun fer fram í löndum, þar sem yfirleitt er heldur auðvelt að herða á eftirlitinu. Vandkvæðin eru fyrst og fremst tengd hinni ólöglegu svefngrasa-ræktun. Nefndin gerir ráð fyrir, að samanlagt ár- legt magn ópíums af þessum uppruna, sem kemur á innlend- an og alþjóðlegan markað, sé mun meira en magnið sem fram leitt er til löglegra þarfa. Á svæðinu Suður-Kína, Burma, Laos og Thailandi er magnið kringum 1000 tonn árlega, og Ellefu ára börn sendu 1500 kr. til Davíðshúss ELLEFU ÁRA böm í Lang- holtsskólanum í Reykjavík hlýddu á upplestur Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi af hljómplötu á 70. afmælisdegi hans. Þau skutu síðan saman í 1500 króna gjöf til Davíðshúss á Akureyri, sem afhent var hér á skrifstofu blaðsins. Kennari þessara barna er Eiríkur Stef- ánsson. — Þetta var falleg gjöf og þess verð, að eftir henni sé tekið. □ af því koma 3—400 tonn ein- gÖngu frá Burma. Yfirleitt er híri' ólöglégajræktun helzt stund Uð í löndum þár sem yfirvöldin hafa ekki fulla stjórn á öllum héruðum sínum. Nefndin leggur áherzlu á, að ekki sé hægt að ráða bót á ástandinu með góðum vilja ein- um saman. Máttleysi yfirvald- anna í hlutaðeigandi löndum á m. a. rætur sínar í efnahagsleg- um og félagslegum aðstæðum. Stórtæk alþjóðleg hjálp er nauð synleg, ef árangur á að nást af baráttunni við ólöglega ópíum- sölu. Svo virðist sem ólögleg sala og misnotkun kókaíns hafi færzt í vöxt síðustu árin, eftir að dregið hafði úr henni um skeið, segir nefndin. Það er einkum í Bolivíu og Perú sem' víðtæk ræktun þessa eiturlyfs er stunduð með leynd. Opíum- nefnd SÞ sendi 1964 hóp sér- fræðinga til Bólivíu samkvæmt beiðni stjórnarvaldanna. Við það tækifæri var gerður sátt- máli um baráttu-aðferðir sem ætlunin er að beita um lengri tíma. Nefndin álítur, að við og við komi fram tilhneiging til að vanmeta alvöru eiturlyfjavanda málsins, og það hafi áhrif á op- inbera fjárveitingu til eftirlits með éiturlyfjaverzlun. □ Fréllir úr Reykjadal Laugum 9. febrúar. Frá því um 25. janúar hefur stöðugt þíð- viðri vérið hé'r um slóðir og að miklu leyti tekið upp snjó þann sem sett hafði niður frá því um hátíðar. Samgöngur hafa færzt í eðli- legt horf og jafnframt lifnað yfir félagslífi. Ungmennafélagið Efling gekkst fyrir' félagsvist í samkomuhúsi sveitarinnar að Breiðumýri sunnudagskvöldið 24. janúar. Samkoma þessi kom eiginlega í stað mannfagnaðar um jólaleytið, sem ekki reynd- ist unnt að koma á þá, sökum illviðra og ófærðar. Ekki þótti fært, svo sem áformað var, að hefja þriggja kvölda keppni, því að fólk komst ekki frá öll- um bæjum sveitarinnar vegna ófærðar. Bridgerrienn byggðarlagsins leiddu saman hesta sína s. 1. fimmtudagskvöld og háðu tví- menningskeppni. Ætlunin er, að koma á slíkri keppni fram- vegis, þannig, áð spilað verði alls þrjú .kvöld. Laugardagskvöldið 6. febrúar komu hreppsbúar saman til þorrablóts að Breiðumýri. Svo sem venja er við slík tækifæri, var íslenzkur matur snæddur úr trogum. Nokkur skemmti- atriði fóru fram undir borðum, m. a. fluttu tveir hagyrðingar ljóð sín, alvarlegs eðlis, og í léttari tón. Að lokum var dans að af fjöri miklu fram undir morgun. — Tíðindum mundi þykja sæta á slíkri samkomu, að vart sá vín á nokkrum sam- komugesta. G. G. ÆVISAGA JÓNS Á AKRI Lesbók Morgunblaðsins er nú byrjuð að birta sjálfsævisögu Jóns Pálmasonar fyrrum al- þingismanns á Akri. Einn af ritstjórum blaðsins aðstoðar Jón við að setja söguna saman, og er þetta framhaldssaga með myndum af höfundi. Það, sem út er komið af sögunni er að verulegu leyti helgað Fram- sóknarflokknum, og ber að meta þá hugkvæmni til bjarg- ræðis, sem í því felst hjá þeim Morgunblaðsmönnum. Stíls- mátinn er sums staðar eins og höfundur væri að munnhöggv- ast við nágranna sína á fram- boðsfundi. Trúlega gæti hann gert betur, ef hann fengi sér annan skrifara. VIÐREISNIN, ÞAÐ ERUM VIÐ Ríkið, það er ég, sagði Loðvík Frakkakonungur. Viðreisnin, það erum við, hugsa þeir Bjami Ben. og Gunnar Thor. Þess vegna segir Morgunblaðið, að viðreisnin haldi áfram meðan þessir herrar sitji í ráðherra- stólunum — þó efnahagskerfið gangi meira og meira úr skorð- um! „VAKRI SKJÓNI HANN SKAL HEITA .... “ Fyrir fimm árum var sagt, að viðreisnin væri í því fólgin að afnema uppbótarkerfið og festa verðlagið. Nú vilja menn kalla það viðreisn, að taka upp verð- uppbætur á útflutningsfram- leiðsluna, auka niðurgreiðslur og gefa dýrtíðinni lausan taum- inn. Hér á við það, sem kveðið var fyrrum: „Vakri Skjóni hann skal heita, honum mun ég nafnið veita, þó að meri það sé brún.“ SKRYKKJÓTT TILHUGA- LÍF Hið pólitíska tilhugalíf Bjarna Benediktssonar og kommún- ista er skrykkjótt um þessar mundir. í desember fengu kommúnistar myndarlega jóla- gjöf frá Sjálfstæðismönnum, m. a. fjögur sæti í bankaráðum ríkisbankanna, en hið fimmta misfórst við afhendingu. Jóla- gjöfin var að vísu illa fengin, en gefin og þegin með gleði, að því er virtist. Nú neitar Bjami Ben. kommúnistum um að fá Mörg blól í Þingeyjarsýslu Húsavík 9. febrúar. Þorri er blótaður víða í Þingeyjarsýslu um þessar mundir. Tjörnesing- ar höfðu sitt blót á fimmtudags kvöld 4. febrúar. Reykhverf- ingar og Aðaldælir blótuðu saman að Hólmavaði á föstu- dagskvöld, og Reykdælir efndu til blóts á laugardagskvöldið að Breiðumýri. Húsvíkingar ættaðir af Tjör- nesi, sýndu sveitungum sínum rausn mikla. Þeir buðu þeim að sitja veizlu í samkomuhús- inu á Húsavík, með svo marga gesti sem þeir vildu með sér hafa. — Sú veizla var ger á laugardagsaftni hins síðasta og stóð lengi á nótt fram. Áður höfðu Húsvíkingar setið marg- ar og góðar veizlur hjá Tjör- nesingum að Sólvangi, þ. e. fé- lagsheimili Tjörnesinga. Húsvíkingar sækja sjó, sem jafnan áður, þegar gefur. Þorsk afli er tregur, rauðmaga hefur lítillega orðið vart. Þ. J. menn í raforku- og stóriðju- nefnd á eðlilegan liátt, og bera þeir sig illa, sem von er og virð- ist þeim þetta viðkvæmt mál. SKRÍTINN ER ÞJÓÐVILJINN Einkennilegt er það, að Þjóð- viljinn skuli ónotast í garð Framsóknarmanna fyrir að taka sæti í nefndinni, þegar þeim var boðið það. Heldur Einar Olgeirsson & Co. að hon- um sé stætt á því að ámæla öðrum fyrir að taka þátt í nefndarstarfi, sem hann og menn hans krefjast sjálfir að fá að taka þátt í? Framsóknar- menn hafa átalið þá leynd, sem ríkt hefur í þessum málum og töldu þá auðvitað ekki rétt að neita aðstöðu, sem boðin var til að afla upplýsinga og gera grein fyrir sjónarmiðum sínum. Þeir telja sig ekki hafa ástæðu til að hefja samúðarverkfall út af sambúðarerfiðleikum Bjama Benediktssonar og kommúnista. VILDU ÞINGENFND í MÁLIÐ Hitt er svo annað mál, að Fram sóknarflokkurinn lagði það til fyrir löngu, að samstarfi í þess- um málum væri liagað á þann veg, að Alþingi kysi sjö manna nefnd til að fjalla um stórvirkj- unar- og stóriðjumálin og lá í hlutarins eðli að allir þingflokk ar ættu þar sæti. Á þetta vildu stjórnarflokkarnir ekki fallast. NEITUNIN EKKI SKYN- SAMLEG Það er á ýmsan hátt ósann- gjarnt að neita Einari Olgeirs- syni og hans mönnum um að- gang að nefnd, sem á að fjalla um stórvirkjun og stóriðju hér á landi. Kunnugt er, að Einar (Framhald á blaðsíðu 7). SAFNA í DAVÍÐSHÚS Á SKAGA Skagaströnd 12. febrúar. Hér eru haldin þorrablót og árshá- tíðir og fólk gerir sér glaðan dag, þótt fremur sé dauft yfir atvinnulífinu. — Húni og Helga Björg fóru sinn síðasta' róður í gær, en svo fara þessir bátar suður á net. Húni hefur reynd- ar fengið sæmilegan afla siðasta hálfan mánuð. — Lionsklúbbur- inn hér á Skagaströnd hefur nú hafið söfnun til Davíðshúss á Akureyri. n_ ELDUR f BÍL SLÖKKVILIÐ Akureyrar var kvatt tvívegis út s. 1. fimmtu- dag. í fyrra skiptið vegna íkviknunar i rusli í skúr við Iðunn. Skemmdir urðu engar. Hitt útkallið var að bíl, sem kviknað hafði í þar sem hann stóð mannlaus á bílastæðinu norðan við POB. Kviknað hafði í rafmagnsleiðslum í mælaborði bílsins, en fljótt tókst að kæfa eldinn. Skemmdir urðu þó all- miklar á bílnum. ,Q

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.