Dagur - 20.03.1965, Side 1
Dagur
SÍMAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
XLVIII. árg. — Akureyri, laugardaginn 20. marz 1965 — 22. tbl.
Kvenfélag Húsavíkur sjötíu ára
KVENFÉLAG HUSAVÍKUR
minntist 70 ára afmælis síns 13.
íebrúar s.l. með veglegu hófi í
samkomuhúsinu á Húsavík.
í hófinu voru flutt möng dag-
skráratriði til fróðleiks og
skemmtunar. Formaður félags-
ins, frú Arnheiður Karlsdóttir,
hafði tekið saman stutt ágrip
að sögu félagsins og var sögu-
ágripið flutt í hófinu. Varafor-
maður félagsins, frú Þuríður
Hermannsdóttir, stýrði hófinu,
en að því loknu var stiginn dans
langt á nótt fram.
Kvenfélag Húsavíkur var í
iyrstu stofnað sem deild í
„Hinu íslenzka kvenfélagi“ og
nefndist þá því langa nafni,
ARNHEIÐUR KARLSDOTTIR
„Sambandsdeild hins íslenzka
kvenfélags á Húsavík.“ Stofn-
endur voru 12 konur, sem
héldu stofnfundinn í lítilli stofu
í gömlu skólahúsi, 13. febrúar,
1895. Aðalhvatamaður að stofn-
un félagsins og fyrsti formaður
þess var prófastsfrú Elísabet
Jónsdóttir frá Grenjaðarstað.
Þær áttu við mikla hleypi-
dóma að stríða, konurnar, á
fyrstu árum félags síns, því að
á þeim árum þótti það hin
mesta fyrra ef konur létu fé-
lagsmál til sín taka.
í apríl árið 1902 varð félagið
sjálfstætt félag, leggur þá niður
langa nafnið og heitir upp frá
því „Kvenfélag Húsavíkur.“ ís-
lendingar, sem gátu lesið í forn
um bókum, að áar þeirra létu
sér sæma að bera virðingu fyrir
konum sínum, urðu mörgum
annarra þjóða mönnum fljótari
að læra að meta að verðleikum
félagsmálastörf kvenna. Kven-
félag Húsavíkur ávann sér á
nokkrum árum þá virðingu
Húsvíkinga, sem það nýtur
ávallt síðan. Kvenfélags-konur
hafa látið sér fátt mannlegt
óviðkomandi, en líknarmál eru
þeim jafnan ofarlega í huga.
Snemma beittu þær sér fyrir
því, að hjúkrunarkona var ráð-
in til Húsavíkur. Þær stofnuðu
ekknasjóð árið 1897 til styrktar
ekkjum á Húsavík. Ymsir aðrir
sjóðir hafa, vegna áhrifa kven-
félagsins, verið stofnaðir á
Húsavík til hjálpar sjúkum og
fátækum. Margs konar félags-
og menningarmál önnur láta
konurnar til sín taka. Strax á
(Framhald á blaðsíðu 2).
Akureyringar kaupa
soðninguna syðra
Algerður aflabrestur undanfarið. En í gær
var útlitið betra hér norðanlands
UNDANFARNA daga hefur
verið fisklaust á miðunum fyr-
ir norðan land, að heita má. Á
Akureyri eru trillurnar, sem
oft hafa aflað drjúgt, frosnar
jnni.
Helzt hefur verið fisk að fá
frá Húsavík, en síðustu daga
ekkert nema rauðmaga.
Akureyringar þurJa því að
fá soðningu að sunnan og munu
nokkur tonn vera á leiðinni frá
Akranesi, og mun slíkt eins-
dæmi.
Svalbakur, sem kom af veið-
um í gær, bætti úr brýnni þörf.
En þær fréttir bárust í gær, að
vænlegar horfði með aflabrögð-
in því bátur frá Ólafsfirði mun
Ármann Dahnannsson afhendir Þórarni Björnssyni skólameistara gjöf Akureyrardeildarinnar til
Davíðshúss. Ljósmynd: E. D.)
Akureyrardeild K.E.A. gaf 12
þúsuiid kr. til Davíðshúss
þá hafa fengið ágætan afla í
net, og er það fyrsti góði afl-
inn, sem um getur á nálægum
bátamiðum hér í vetur. □
AÐALFUNDUR Akureyrar-
deihlar Kaupfélags Eyfirðinga
var haldinn að Hótel KEA í
fyrrakvöld. — Deildarsíjórinn,
Ármann Ðalmannsson, setti
fundinn og stjórnaði Iionum,
Torfi Guðlaugsson skráði gerð-
ir fundarins og Guðmundur
Blöndal, Haraldur Þorvaldsson
og Tryggvi Helgason önnuðust
kjörnefndarstörf.
Ármann skýrði' frá störfum
og hag deildarinnar á síðasta
ári. Félagar í Akureyrardeild
eru nú 2467. Fjórtán bændur
lögðu 763 þús. lítra mjólkur í
Mjólkursamlag KEA og er það
rúmlega 50 þús. lítra aukning.
Fitumagn var 3,9%. Samlagið
greiddi í reikninga kr. 4,65 fyr-
ir hve:n lítra.
Félagsmenn lögðu inn 1100
fjár og var meðalfallþungi dilka
11,77 kg.
Deildin styrkti Minjasafnið á
Akureyri með 12 þús. kr. Og á
fundi þessum afhenti deildar-
stjórinn Þórarni Björnssyni
skólameistara 12 þús. kr. gjöf
deildarinnar til Davíðshúss, en
Þórarinn þakkaði gjöf og hlý-
hug.
Að ræðu deildarstjórans lok-
inni flutti Jakob Frímannsson
framkvæmdastjóri KEA yfirlit
um rekstur og hag kaupfélags-
ins á síðasta ári, og síðan hóf-
ust fyrirspurnir, sem fram-
kvæmdastjórinn svaraði.
Þar sem áður hefur verið
greint í stórum dráttum frá
rekstri KEA í fréttum af félags
ráðsfundi, virðist ekki ástæða
til að endurtaka þær.
í stjórn Akureyrardeildar
KEA voru kosnir þeir Brynjólf
ur Sveinsson og Sigurður Jó-
hannesson og í félagsráð Erling
ur Davíðsson. □
ÞjóðræknisféEðg sfofneð á Ák.
Stór hópur Vestur-íslendinga væntanlegur
VINNUDEILUR LEYSTAR
VINNUDEILUM þeim á
' Ákureyri, sem frá- var sajrt í
síðasta blaði, er lokið bg iðn-
íyrirtæki þau, er stöðvuð
voru, hafa aftur tekið til
starfa.
Þá er lokið verkfalli yfir-
manna á kaupskipafiotanum
með samningsgerð, eftir 52
klst samningafund.
Þótt fagna beri lausn vinnu
deilna, hvílir skuggi yfir
iðnframleiðslunni svo sem
víða' hcfur fram komið og
nær einnig hingað. 1 sum-
um greinum er samdráttur,
og fyrirsjáanlegur r öðrum,
svo sem uppsagnir iðnverka
íólks bera með sér Iiér á Ak-
ureyri. □
NÝLEGA var hér í bæ stofnað
Þjóðræknisfélag Akureyrar —
vinafélag Vestur-íslendinga.
Tilgangur þess er sá, að
vinna að auknum kynr.um við
frændur okkar í Vesturheimi
og standa fyrir móttöku þeirra,
er þeir leggja leið sína hingað.
Jafnframt hefur félagið þegar í
athugun, að gangast fyrir hóp-
ferð vestur.
Hinn 28. maí í vor kemur 90
til 100 manna hópur frá Winni-
peg. Mun hið nýja félag, í sam-
starfi við aðra góða borgara,
greiða götu þeirra eftir föng-
um. Fararstjóri Véstur-lslend-
inganna verður Jakob F. Kristj-
ánsson, sem margir Akureyring
ar kannast við.
Fargjöld í slíkum hópferðum
fram og til baka, munu ekki
fara yfir 10 þús. ísl. kr. á mann,
ef þátttaka er nægileg. Með það
í huga er líklegt, að grundvöll-
ur sé fyrir hópferð vestur um
haf ef ötullega er að því unnið.
í stjórn Þjóðræknisfélagsins
eru: Séra Benjamín Kristjáns-
son, Gísli Olafsson, Árni Bjarn-
arson, Jónas Thordarson, séra
Pétur Sigurgeirsson, Jón Rögn-
valdsson og Bjarni Jónsson. □
STEIG ÚT f GEIMINN
RÚSSNESKUR geimfari vann
það afrek í fyrradag, er hann,
ásamt félaga sínum var í einni
ferð sinni umhverfis jörðina, að
hann steig út úr geimfarinu og
dvaldist utan þess í 10 mínút-
ur. Heitir sá Leonow, er þetta
gerði og varð ekki meint af. Far
artækið fór 8 km. á sek er mað
urinn tók sér þessa heilsubótar
göngu í háloftunum.
Geimferð þeirra félaga er
sagður undirbúningur að ferð
til tunglsins, sem sovéskir vís-
indamenn telja skammt undan.
Kapphlaup stórveldanna í
austri og vestri í geimferðum
hefur þegar leitt til hinna ólík-
legustu afreka, sem fyrir
skemmstu voru talin óhugsandi.