Dagur


Dagur - 20.03.1965, Qupperneq 8

Dagur - 20.03.1965, Qupperneq 8
8 ins og ungmennafélaganna við Eyjafjörð. Stjóm sambandsins var öil einróma endurkjörin, en hana skipa: Sveinn Jónsson formað- ur, Haukur Steindórsson, ritari, Birgir Marinósson gjáldkeri, séra Bolli Gústavsson meðstjórn andi og Eggert Jónsson vorafor- maður. Þingið naut ágætrar fyrirgr. að Húsabakka og í þinglok buðu Umf. Atli og umf. Þorsteinn Svörfuður fulltrúum til rausnar legrar veislu. (Framhald á blaðsíðu 2). 'í' 1 FRÁ ÁRSÞINGI U.M.S.E. ÁRSÞING Ungmennasambands Eyjafjarðar hið 44. í röðinni var haldið í bamaskólanum að Húsa bakka í Svarfaðardal sl. laugar dag og sunnudag. Sveinn Jóns- son formaður sambandsins setti þingið, en forsetar þess voru kjörnir Jón Stefánsson og Egg- ert Jónsson, og ritarar Haukur Steindórsson, Sigurður Jósefs- son og Hreinn Ketilsson. Þóroddur Jóhannsson fram- kvæmdastjóri UMSE flutti starfsskýrslu sambandsins fyrir sl. ár. Kom greinilega fram í skýrslunni að starfsemin hefði aukist mikið á árinu og verið fjölþætt. Má þar nefna að bind indisfræðsla var aukin, t.d. var efnt til heimsókna í barna- og unglingaskóla héraðsins svo og húsmæðraskólans. Einnig var komið á fræðslukvöldi fyrir al- menning. Þá átti sambandið að- ild að Bindindismótinu í Vagla skógi um Verzlunarmannafélags helgina og stóð að fimm ungl- ingadansleikjum í héraðinu þar sem áfengi var úthýst. Sambandið starfrækti sumar Píanósnillingurinn Jörg Demus kemur til Akureyrar HANN mun leika í Borgarbíói á hinn ágæta konsertflygil Tónlistarfélags Akureyrar í dag, 20. marz, kl. 5 e. h., fyr- ir styrktarfélaga og gesti félags- ins. Þar sem þetta var ákveðið með svo stuttum fyrirvara, verða aðgöngumiðar að þessu sinni ekki bomir heim til styrkt arfélaganna og eru þeir minnt- ir á að vitja þeirra í Bókabúð- ina HULD nú þegar eða í ■síðasta lagi fyrir hádegi í dag. Geta þeir um leið feng- ið afgreidda miða þar fyrií nokkra gesti umfram það venju lega. Einnig geta nýir félagar látið innrita sig þar í félagið. Á efnisskránni verða: Til- brigði K. 265 eftir Mozart, Son- ata í B-dúr Op. 22 eftir Beethov en, Forleikur eftir Frank, Þrjár Impromty — Impromtus Op. Posth eftir Schubert og Sinfon- iskar etýður í cic-moll Op. 13 eftir Schumann. búðir að Laugalandi í Öngul- staðahreppi þar.sem um 60 ung- lingar nutu tilsagnar í ýmsum íþróttum dansi o.fl. Unnið var að söfnun og skráningu örnefna í héraðinu og er það verk kom- ið vel á framkvæmdastig. — Komið var á námskeiði í starfs íþróttum, unnið að skógrækt, sambandið stóð fyrir Bænda- hátíð Eyfirðinga í samvinnu við Búnaðarsamband Eyjafjarðar og beitti sér fyrir ýmsum öðrum samkomum í héraðinu. Á íþróttasviðinu var mikið starf. Þrjá íþróttakennara hafði sambandið í þjónustu sinni, sem leiðbeinendu víðsvegar um hér aðið. Var mikil þátttaka í þeim æfingum. Sambandið stóð fyrir mörgum íþróttamótum á árinu og verður þeirra getið síðar. Einnig var andleg íþróttamennt iðkuð, svo sem skák og bridge. Birgir Marinósson gjaldkeri UMSE skýrði reikninga sam- bandsins. Mjög mikill kostnaður varð við reksturinn, en þrátt fyrir hann varð reksturshagnað ur 34 þúsund krónur. Samband ið naut fjárstyrks frá sveitar- sjóðum sýslunnar, sýslusjóði, Menningarsjóði KEA, ÍSÍ UMFÍ og fleiri aðilum. Mörg mál voru til umræðu á þinginu og samþykktir gerðar í flestum þeirra. Eru sumar þeirra annarsstaðar í blaðinu, en aðrar verða birtar síðar. Um 60 fulltrúar sátu þetta þing, og voru unjræður fjörugar með koflum, og mikill áhugi ríkjandi fyrir störfum sambands •Ul'llf 'lJI'.ti! ' - RÁÐSTEFNA A.S.Í. ALÞÝÐUSAMBAND íslands hefur boðið til ráðstefnu í Reykjavík seint í þessum mán- uði til að ræða kaup og kjara- mál og kröfur þær, sem verka- lýðsfélögin gera til breyttra samninga. Til ráðstefnu þessarar eru boðaðir fulltrúar margra félaga og félagasamtaka og búist við að hana sitji um 70 manns. MIKIÐ EFNI bíður enn næsta blaðs og eru greinarhöfundar beðnir velvirð ingar á því, hve birting dregst lengi. jafnvel seldur meðan liann er cnn í sjó. Hvað myndi bá hafa orðið ef afli hefði verið tregur, eins og komið getur fyrir? STÓRU FYRIRSAGNIRNAR Þess er skemmst að minnast hve risavaxnar fyrirsagnir prýddu fréttagreinar stjórnblað- anna um hina auknu hagsæld og feiknarmiklu framfarir á öll um sviðum, og óspart var þá vitnað í fjárlögin, sem kváðu á um framlög til hinna og þess- ara nauðsynlegra framkvæmda í landinu. Jú, viðreisnin hafði svo sem tekist, og áfram skyldi hald ið á sömu braut! Þær eru ekki eins rismiklar fyrirsagnirnar núna, um niðurskurð verklegra framkvæmda, enda kallaðar allt öðrum nöfnum, svo sem sjá má SÁ FYRSTI STEKKUR FYRIR BORÐ Það er ekkerí leyndármál, að sterk öfl innan S'álfstæðisflokks ins hafa um alllangt skeið kraf- ist þess, að Gunnari Thoroddsen yrði vikið úr ráðherraembætti vegna þess hve flest hefur geng ið öfugt við það, sem Iofað var og efnaliagsmálin fyrir löngu sýnilega komin í hið mesta ó- efni, svo sem hver maður getur þreifað á og engum fær dulist. En Gunnar er maður málsnjall og því góður liðsmaður á hinum opinbera vettvangi, og því var mikils um vert, að Sjálfstæðis- flokkurinn nyti þeirra hæfileika En með brotthlaupi Gunnars úr ríkisstjóminni ér valdaklíka stjórnarinnar brostin. Fyrirsjá- anleg er upplausn á ýmsum sviðum og vaxandi óánægja, ekki síst á vettvangi þess ráð- herrans, sem nú liefur kosið að yfirgefa fósturjörðina og við- reisnarsæluna. Þeir ráðherrar, sem eftir sitjá, munu þVö hend ur sínar í Velktum klæðum Gunnars, og efiaust þurfa þeir að grípa til rnargra annarra ör þrifaráða, áður en þeir gefast upp að fullu. „EF ÞIÐ OPNIÐ FYRIR VÍN- IÐ ER ÉG FARINN“ Haugasund í Noregi er útgerð- arbær. Þar er engin vínbúð og er um deilt eins og víðar. Lífs- reyndur og mikils virtur maður þar í bæ, sem auk þess er um svifamikill útgerðarmaður, hef ur ekki legið á skoðun sinni í þessu umdeilda brennivínsmáli þar í Haugasundi. Hann hefur sagt á þá leið, að ef opnuð verði áfengisútsala sé hann jafnskjótt farinn með alla sína útgerð. ÞÉTTUR ÍS LOKAR SKIPALEIÐUM í GÆR var þéttur ís á siglinga leið fyrir Horn og engu skipi fær. ísinn Iá frá Horni og allt inn á Hrútafjörð. En yfirleitt var íslítið á grunnslóðum fyrir Norðurlandi. Við Langanes var þó ísinn orðinn nærgöngull í gær. Á Húnaflóa var komið tölu vert mikið af borgarís. Sveinn Jónsson formaður Ungmennasambands Eyjafjarðar setur ársþingið. (Ljósmynd: (Þ. J.) NIÐURSKURÐURINN Á mánudag lýsti ríkisstjórnin því yfir, að hún myndi minnka framlög ríkisins við verklegar framkvæmdir um fimmta liluta frá því sem nýlega hafði verið samþykkt í fjárlögum. Á þann veg segist stjómin „spara“ 120 milljónir króna er hún þurfi að greiða með uppbót á fiski, 25 aura á kg handfæra og línufisks og svo til frystiliúsanna. Ríkis- stjórnin segir ástand efnahags- málanna þann veg farið, að eng in önnur ráð séu tiltæk, nema þá álagning nýrra skatta. Rikis stjóm, sem grípur til einhliða niðurskurðar verklegra fram- kvæmda á þennan veg, er vissu lega illa á vegi stödd. ER SJÁVARÚTVEGURINN Á HELJARÞRÖIH Fyrir ári síðan var söluskattur- inn hækkaður til að bjarga úí- gerðinni. Sú söluskattshækkun var auðvitað framlengd en er nú ekki nóg, heldur verður að grípa til þess neyðarúrræðis, að skera niður verklegar fram- kvæmdir í landinu, jafnt fram- Iög til sjúkrahúsa, sem skóla, hafna, vega o.s.frv. Svona illa er þessi undirstöðuútflutnings- atvinnuvegur á vegi staddur eftir hvert aflametárið öðru meira og er þó hver einasti uggi seldur hærra verði en áður og FJÁRMÁLARÁÐHERRA MINNESOTA- RÍKIS FLYTUR ERINDI Á AKUREYRI ÞRIÐJUDAGINN 23. þ. m. koma góðir gestir til Ak- ureyrar í boði íslenzk amer- íska félagsins, en það eru Valdimar Björnsson fjár- málaráðherra í ríkinu Minne sota í Bandaríkjunum og kona hans frú Ingibjörg Jónsdóttir frá ísafirði. Á þriðjudagskvöldið verð- ur efnt til kaffikvölds að Hótel KEA, eii þar mun Valdimar flytja erindi, en hann er ræðumaður með ágætum, rökvís og harð- skeyttur, ef þess þarf með, en gamansamur og glettinn þar sem það á við. Er þess í; að vænta að fjölmargir Ak- ureyringar og nærsveita- menn vilji notfæra sér þetta einstæða tækifæri til þess að hlusta á Valdimar og hitta þau hjón að máli. ;i Að lokinni í-æðu Valdi- ;i mars mun Karlakórinn Geys íí ir syngja nokkur lög undii' <; stjórn Árha Ingimundarson- ;; ar. ;; Kaffikvöldið hefst klukk- i an 20,30 og kostar aðgangur i krónur 25,00. Ollum er heim- ill aðgangur meðan húsrúm leyfir. □ í SMÁTT OG STÓRT

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.