Dagur - 07.04.1965, Síða 4

Dagur - 07.04.1965, Síða 4
4 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-1166 og 1-1167 Bitstjóri og ábyrgSarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. Erfiðleikar útvegsins í FYRRAVOR fór nefnd norðan- manna suður til Reykjavíkur til að ræða ýmsa erfiðleika sjávarplássanna hér nyrðra við þingmenn og róða- menn í ríkisstjóm og bönkum. Ein- hvern árangur mun það hafa borið, en ekki mikinn. Nú nýlega hefur blaðið frétt, að bæjarstjórinn á Húsavík og sveitarstjórinn á Dalvík hafi mætt á þingmannafundi söinu erinda. Mikil aflatregða er nú búin að vera í tvö ár á bátamiðum hér norðanlands. Nú hefur hafísinn víða bannað alla róðra um skeið, og von- ir, sem menn höfðu gert sér um að geta selt grásleppuhrogn á því liáa verði, sem nú býðst, hafa brugðizt. Um það er nú kvartað, að afla- tryggingarsjóður sjávarútvegsins komi að minna gagni en vænst hafði verið fyrir báta hér á Norðurlandi. Lögin, sem sjóðurinn starfar eftir, eða grundvallarákvæði þeirra, eru um 15 ára gömul, en nokkrar breyt- ingar voru á þeim gerðar fyrir þrem árum, í því skyni að veita togara- flotanum aðgang að aflatrygging- unni. En tekjur sínar fær sjóðurinn að verulegu leyti af útflutnings- sjóðsgjaldi en að nokkru tir ríkis- sjóði. Allvíða, ekki sí/.t á Norðurlandi, hafa verið uppi raddir tiin ítarlega endurskoðun aflatryggingarsjóðslag- anna. I fyrra fluttu nokkrir þing- rnenn Framsóknarflokksins tillögu um að láta endurskoðun fara frain. Sú tillaga mætti þá andstöðu valda- manna og náði ekki fram að ganga. 1 haust var svo tillagan llutt á ný og nú er loks búið að samþykkja hana á Alþingi. Fyrir skömmu fluttu þeir Gísli Guðmundsson, Sigurvin Einarsson, Halldór Ásgrímsson og Eysteinn Jónsson trllögu þess efnis, að tekin yrði upp á ný sú aðferð að greiða vinnslustöðvum, sem hafa erfiða að- stöðu, vinnslubætur út á fisk, sem er sérstaklega dýr í vinnslu (smáfisk). Þetta reyndist á sínum tíma mjög gagnleg ráðstöfun. Viðreisnarstjórn- in ætlaði að afnema uppbótarkerfið, en staðreyndin er þessi: Togaramir fá ákveðna greiðslu pr. úthaldsdag. Greiddar eru almennar verðbætur á allan frystan fisk og auk þess sérbæt- ur á línu- og liandfærafisk. Það væri þá ekki nenia eðlilegt og réttlátt, að taka upp smáfiskuppbætur á ný, en ekki vildi ríkisstjórnin á það fallast að svo stöddu. n U- nú fyrir augað í senn bæði fróð- legt og fallegt. En ekki er síð- ur um það vert, að Náttúru- gripasafnið á Akureyri á hvorki meira né minna en um það bil 20 þúsund eintök íslenzkra plantna. Þar er Steindórssafn mest. Þrjú þúsund sveppir. Sérstætt safn Helga Hallgríms sonar safnvarðar telur 3 þúsund sveppi, sem gaman er að sjá og hvergi er annars staðar til hér á landi. Þá á Hörður Kristins- son mikið og fullkomið fléttu- safn geymt í Náttúrugripasafn- inu. Grasasafn Náttúrugripasafns- ins er allt hið merkasta, enda hefur grasafræðin verið mörg- um Eyfirðingum í blóð borin, og á sviði grasafræðinnar hafa verið unnin merk verk hér um slóðir. Grasasafnið er svo vand- að, að þar á að vera unnt að vinna að vísindalegum grasa- fræðirannsóknum. Utgáfa tíma- ritsins Flóru hér í bæ er einnig í FYRRADAG skrapp ég í Nátt úrugripasafnið á Akureyri, hafði ekki komið þar lengi, e. t. v. vegna þess hve nálægt það er og auðvelt þangað að koma. Vera má, að þar sé einn- ig að finna skýringuna á því, að safnið er ekki eins vel sótt af bæjarbúum og ástæða er til. Náttúrugripasafnið er á 4. hæð í Hafnarstræti 81, undir sama þaki og Amtsbókasafnið, og inngangur hinn sami. Það fyrsta, sem safngestum heilsar, er glottandi jagúar og gibbonapi, sinn til hvorrar handar, ennfremur suðræn og litfögur fiðrildi. Safnvörðurinn, Helgi Hallgrímsson, grasafræð- ingur, hávaxinn maður og skeggjaður, leysir úr hveríi spurningu og hefur brennandi áhuga á vexti og viðgangi þess- arar stofnunar. Á litlu borði í herbergi safn- varðar stendur ný smásjá, sem safnið er nýbúið að kaupa með 35 þús. kr. styrk úr Vísinda- sjóði. Tæki þetta gjörbreytir allri aðstöðu til rannsókna, er undir vísindi heyra. Hvað er nú hendi næst til að lofa mér að sjá í þessu nýja tæki, spurði ég. Helgi færir gler eitt undir smá- sjána og segir, að þarna geti ég séð tungu úr snigli. Þá veit mað ur það, að sniglar hafa tungu. Tunguskömmin var ekkert ó merkileg og orðin töluvert stór að sjá í þessu verkfæri og alsett göddum, sem beygjast á aðra hlið. Þegar dýrið slær tungunni á kálblað eða annað lostæti, rífa gaddarnir fæðuna með sér inn í munninn. Hver gaddur er ekki ósvipaður agnhaldi á öngli eða heynálarroddi. Snigillinn getur, eins og þeir, sem stærri eru, rekið út úr sér tunguna. Náttúrugripasafnið var stofn- að 1951 og var undanfari þess sá, að Dýraverndunarfélag Ak- ureyrar fékk að sýna uppstopp- að fuglasafn Jakobs Karlssonar í Barnaskólanum o. fl. úr ríki náttúrunnar, og var sýninð þessi gífurlega fjölsótt. Jakob gaf bænum síðan fuglasafnið. Það var upphaf safn þess, sem nú má sjá og hér um ræðir, og .er bænum mikils virði að eiga. Fyrst var náttúrugripasaf.nið á hrakhólum, síðan var það sett upp í Slökkvistöðinni, þá á neðstu hæð Amtsbókasafnsins og nú á fjórðu hæð þess húss, eins og fyrr segir. Fyrsti safnvörður var Kristj- án Geirmundsson og stoppaði hann upp alla fuglana og mörg önnur dýr, af sínum fágæta smekk og listamannshæfileik- um, svo sem sjá má. Núverandi safnvörður, Helgi Hallgrímsson, hefur starfað þar í hálft annað ár. Náttúrugripasafnið er eigin- lega þrískipt í sýningarsalnum, auk dýranna í fordyri, sem áð- ur er frá sagt og allmargra ís- lenzkra dýra í stórum glerskáp. Safn uppstoppaðra fugla. F uglasafnið í sýningarsaln- um er hið fullkomnasta hér á landi og gefur þar að líta 200 eintök, 140 tegunda fugla. Eins og kunnugt er, skipta margir fuglar litum og eru allmargir þeirra bæði í vetrar- og sumar- búningi. Hjá öðrum tegundum er allmikill litarmunur kynj- anna. Af slíkum eru jafnan til eintök af báðum kynjum, en auk þess ungar nokkurra teg- unda. Gefur þetta fug'.asafninu sérstakt gildi, jafnframt hinu óvenjulega handbragði við upp- stoppunina. Þarna vantar þó örn. Þá eru á þessum stað egg allra íslenzkra varpfugla og mörg önnur, svo sem strútsegg og kólibrífuglsegg, svo og egg svokallaðra flækinga og um- ferðafugla. — Það fer vel um fuglasafnið þótt húsrými sé auð vitað takmarkað, og fáir munu þeir, sem ekki hafa gaman að sjá fuglana og fræðast um þá. Mikið plöntusafn. Byrjað er á því að setja ís- lenzkar plöntur undir gler og eru þær hreinasta skraut. Raun ar eru þær ekki nema 75 teg- undirnar, sem undir glerið eru komnar. En þar gefur að líta, u.ndir gleri, allar íslenzkar burkna-, eltingar- og jafnateg- undir, sem á landinu vaxa, svo og íslenzka rósaættin, sem raun ar er ekki fjölskrúðug. Þetta er Fermingarbörn í Ak. STÚLKUR: Anna Eiríksdóttir, Reynivöllum 4. Anna Jónasdóttir, Engimýri 3. Anna Árdís Rósantsdóttir, Litlu-Hlíð. Anna Dóra Steingrímsdóttir, Lækjargötu 13. Birna Kristín Aspar, Löngumýri 11. Bryndís Baldursdóttir, Víðivöllum 20. Brynhildur Bára Ingjaldsdóttir, Engimýri 6. Elinborg Vilheimína Jónsdóttir, Skipagötu 1. Ei'la Vilhjálmsdóttir, Hlíðargötu 6. Erna Magnúsdóttir, Lækjargötu 7. Gisl. Þorbjörg Benediktsdóttir, Strandgötu 43. Guðrún Svala Guðmundsdóttir, Hlíðargötu 6. Guðrún Margrét Njálsdóttir, Ránargötu 26. Hrefna Gunnhildur Torfadóttir, Austurbyggð 11. Jenny Ásgeirsdóttir, Hlíðargötu 7. Kristín Gunnarsdóttir, Aðalstræti 24. Magnea Steingrimsdóttir, Löngumýri 18. Islenzkar plöntur undir gleri. (Ljósmynd: E. D.) 5 athyglisverð. En það grasafræði tímarit var stofnað í minningu Stefáns Stefánssonar skólameist ara á aldarafmæli hans. Unnið er að því að koma upp safni fræðirita í grasafræði með rita- skiptum. Þá má í þessu sam- bandi minna á grasagarðinn í Lystigarði Akureyrar, sem hef- ur að geyma hina lifandi Flóru íslands, næstum alla. 1 RONALD FANGEN 1 IEIRÍKUR HAMAR I Skáldsaga | <B><H><H><J<H><H><H><H> 27 ><H><H><H><H><H><H><H> Auk þess, sem að framan get- ur, eru í sýningarsal Náttúru- gripasafnsins fiskar, spendýr, skordýr, steinar, steingerfingar og margt fleira, sem hér verður ekki upp talið. Margt af skólafólki kemur í safn þetta, sumt langt að komið, svo sem úr Skagafirði og Axar- firði. Meginverkefni slíks safns er að brúa bilið milli skólanna sjálfra og náttúrunnar, sem fræðslusafn. Og til þess mun líka væntanlega ætlazt af Ak- ureyrarbæ, sem á safnið og rek- ur það, með lítilsháttar styrk frá ríkinu. E. D. irkju 11. apríl 1965 Margrét Vala Grétarsdóttir, Aðalstræti 18. Margrét Kristín Hreinsdóttir, Ásvegi 26. Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir, Strandgötu 29. DRENGIR: Alwin Vigfús Guttormsson, Hafnarstræti 18B. Ari Axel Jónsson, Hrafnagilsstræti 21. Ásgeir Ásgeirsson, Oddeyrargötu 32. Bjarni Jóhann Sverrisson, Hafnarstræti 95. Bjarni Torfason, Eyrarlandsvegi 8. Eggert Heiðar Jónsson, Ránargötu 19. Gunnlaugur Sölvason, Eiðsvallagötu 26. Hrafnkell Guðmundsson, Aðalstræti 13. Jóhannes Haukur Jóhannesson, Eyrarvegi 33. Kristinn Sigurðsson, Goðabyggð 9. Magnús Örn Garðarsson, Eyrarlandsvegi 27. Ólafur Sverrisson, Ránargötu 16. Óskar Sveinn Jónsson, Grenivöllum 20. Páll Arnar Árnason, Ægisgötu 29. Pétur Þorsteinn Stefánsson, Eyrarvegi 5A. Sigurður Björgvin Björnsson, Ránargötu 13. Sigurður Kristinsson, Lögmannshlíð 23. Sævar Örn Sigurðsson, Vanabyggð 8D. Þorsteinn Pétur Pálsson, Byggðavegi 124. □ Sæluvika Skagfirðinga (Framhald af blaðsíðu 1). kom jakahröngl alla leið inn á sand og þétt á köflum. Varla er hægt að segja að far ið hafi verið á sjó. Rauðmaga- veiði hefir þó verið nokkur, en ónæðissöm vegna íssins. Inflúensan gengur hér, en meira er gert úr útbreiðslu hennar en efni standa til t.d. eru ekki mikil vanhöld í skól- um. Starfsfræðsludeginum hér hef ir verið frestað þar til annan í páskum. G.I. samræmi í þessari óhófs glæsimennsku sem umlykur yður hér og bér teljið yður eiga, — og yðar sjálfs? — Ég verð að hafa það! — Afsakið, en þetta kalla ég b.ull og vitleysu. Og auk þess: hversvegna ættuð J>ér að Jrurfa að lifa eins og stór- eignamaður? Þér, 25 ára að aldri. Nú hafið þér fé og getið þá fjandinn sjálfur farið að vinna eins og maður. — Það getið þér sagt, Hatnar, sem eruð flugfær og dug- legur náungi. Mitt leyndarmál er það, að ég dugi ekki. — Þetta er kyndug fullyrðing. Það er þá fyrst: Hvað vit- ið þér um það? Þér hafið svallað og drabbað, en ekki unn- ið, og afsakið yður svo með Jjeirri trú, að þér getið ekki unnið. Og í öðru lagi: væri þetta satt, hversvegna eruð Jrér Jrá sárhryggur eða hissa á Jjví að Jrér verðið að víkja frá og afsala yður risafyrirtækjum yðar? Það hlyti þó einmitt að vera léttir og velkomin hvíld að losna úr J>eirri risa-ábyrgð? — Já, jæja. En þótt Jséi' hefðuð nú rétt í þessu, Jrá er Jrað einmitt ný sönnum fyrir mig að ég dugi ekki. — — Svo er að heyra sem J>ér blátt áfram gælið við Jressa hugmynd um dugleysi yðar. Bjartur stóð upp og horfði sárreiður á Eirík: — Gæli við J>að! Ég hata Jrað. Ég hefi hatað Jrað alla ævi! — Hefir yður alftaf fundist Jretta svona? — Já, nærri Jrví alltaf. Alveg frá J>ví ég var drengur. Ekki fundið til þess, heldur reynt það Jrannig. (Hann brosti allt í einu og blandaði sér í glasið á ný). — Ég get Jró að minnsta kosti komið fyrir mig orði í kvöld. Er ekki svo? var Jretta ekki haglega orðað? — Jú, það er rétt, Jxí er það fyllilega greinilegt. — Ég hefi alltaf verið klaufabárður og orðið mér til minnkunar á alla vegu, svo Jretta er víst alveg rétt. Það hefir alltaf farið illa fyrir mér á einn eða annan hátt, af hinum og þessum ástæðum. (Hann leit á Eirík með svipbrigðum sem væri hann að trúa honum fyrir miklu leyndarmáli.) Ég er svo hræðilega óverklaginn og klaufi í höndunum. — í höndunum? — Bræður mínir hæddust alltaf að mér. Ég gat ekki teikn- að, ég gat ekki tekið J>átt í skólasmíðum. Og ég var líka klaufi í leikfimi. — Er þetta svo saknæmt? — Nei, en bræður mínir hæddust alltaf að mér fyrir þetta og höfðu alltaf undirtökin. — \:oru þeir ekki góðir við yður, bræður yðar? — Þér vitið að ég var yngstur okkar bræðra, og móðir mín dekraði víst allmikið við mig. — En faðir yðar J)á? — Hann var réttlátur. Hann gat ekki fylgst með því að ég var svo heimskur. Ég skal segja yður: ég var ekki bein- línis heimskur, t. d. í reikningi og stærðfræði, en Jregar á Jrurfti að herða, var eins og heilinn í mér ofhitnaði, ég gat ekki séð, ekki hugsað, svo að nærri allt varð vitlaust. Það var ætíð rétt aðeins að ég spjaraði mig fremur óvirðulega á yztu nöf. Og oft gerði ég blátt áfram endemis vitleysu. Ég átti t. d. einu sinni að halda ræðu á menntaskólafundi og hafði hugsað allt svo prýðilega fyrirfram. En Jiegar ég var kominn í stólinn, var mér öllum lokið, allt saman varð eintóm kolbrjáluð vitleysa! Hneyksli, skömm! Miðbróðir minn sem er aðeins tveimur árum eldri en és:, s;ekk af fundi. Og þegar ég kom lieim skellti hann á mig heljarmiklum löðrungi og sagði að ég væri fjölskyldunni til stórskammar. Bjartur sat hugsi. Allt í einu skellihló hann. — Og nú hefir hann sannarlega rétt fyrir sér. Nú er ég þó orðinn fjölskyldunni til skammar! Er ekki svo, Hamar? Það getur enginn frá mér tekið! — Hve gamlir eru bræður yðar? spurði Eiríkur. Sá eldri er fimm árum eldri en ég, og hinn aðeins tveim árum. Þeir eru sáttir og sammála, siðsamir og dualeoir menn og framgjarnir. — Hvað er starf Jreirra? — Móðir mín varð auðvitað að skipta á milli okkar, þeg- ar pabbi dó, svo að við fengum ríflegan peningaslatta hver okkar. Sá eldri á herragarð í Danmörku, hinn er í sendi- ráðinu í Rómaborg. En nú liafa Jreir báðir verið heima á fjölskyldufundi. — Þér vitið }>á um þetta? — Já, ég held nú J>að. Ég vissi Jætta daginn sem ég talaði við yður á skrifstofunni. Þá hafði ég fengið opinbert fjöl- skyldubréf, Þér vitið víst hvað í Jpví stóð. Hann, Jjorparinn Sanne, var á fundinum. Þér vitið auðvitað ekki að faðir minn kostaði alla menntun hans? — Var faðir yðar svo gamall? — Sei-sei, já. Hann var háaldraður J>egar hann dó. Hafði Jiá látið frá sér rekstur fyrirtækisins og allt saman. Rvænt- ist seint, skiljið ]>ér. Svo er nú }>að. En ég hafði nú, guði sé lof, sama rétt til þeninganna og bræður mínir. — Hvað eigið ]>ér við með ]>ví? — Ég á við að þáð sneri nú ekki þannig, að þeir gætu tekið allt frá mér. — Þar sögðuð þér nokkuð. — Hefir yður fundizt að þeir vildu taka eitthvað frá ýður? — Nja. — Það er víst ekki rétta orðið. Ég er ekki jafn- leikinn í að komá réttum orðum að málinu og áður. Ég verð að hressa upp á tálandann! (Hann tók nokkra teyga úr glasinu.) — Nei, það er ’ekki þeim að kenna að heili minn hljóp í hita. Ef til vill fengu þeir — og aðrir — mig til að skynja, hve fátæklegt ástand mitt væri. En ég var að minnsta kosti ekki fátækur á fé. — En svo urðuð þér fullorðinn, Bjartur. — — Já, alltof snemma, greip Bjartur framí. Ég tók furðu snemma að fá skilning á því, hvílíks ríkidæmis ég gæti aflað mér með peningunum.: Kaupgetan, sjáið þér! — Ég á ekki við }>að, sagði Eiríkur. Ég á við að svo tók- uð ]>ér til starfa sem fullorðinn sjálfstæður maður í yðar eigin fyrirtæki. Og það gekk vel. — Það voru allglæsilegir tímar, sagði Bjartur og hló allt í einu aftur. Kannist þér við að þetta eru orðatiltæki þeirra Gemle og Friðriksens? Ég umgekkst svo sem skipsreiðara hérna í borginni! Og mér þótti J>að afar skemmtilegt. Ég var umkringdur trausti og vináttu og var jafnoki hinna. Og J>á gerði ég blátt áfram góð rekstursviðskipti. — Já, vissulega. Og því hefðuð þér auðveldlega getað haldið áfram — hefðuð þér bara nennt því og gefið yður að }>ví! Þér talið eins og vitið leyfir, Hamar. Ég nennti sannar- lega og beitti öllum kröftum. Ég var blátt áfram frá mér numinn. Ég græddi líka of fjár. Ég svallaði að vísu, — en ég vissi að ég gat það og mátti. Já, það var dásamleg kennd! En, — en, — já, svo veit ég ekki, svo hvarf það. Öryggið mitt. Það er að segja: Þá fór allt að verða svo flókið að ég gat ekki fyllilega áttað mig á hvernig það var. Hann blandaði sér í glasið á ný. — Ég geri mig nú víst annars að mesta sakleysingja. En lofið mér nú að ljúka spjallinu um rekstur og viðskipti mín, ég get sem sé ekki um annað hugsað, hvort sem er. — Ég komst brátt að }>ví að eldri reiðarar og trúnaðarmenn á skrifstofunni, — að J>eir, já, treystu mér samt ekki, töldu mig aðeins ríkan, nautnasjúkan, dálítið hégómlegan ungan munaðarpeyja, bjuggust við að ég rnyndi þá og }>egar gera einhverja stórvitleysuna og heimskulegar ráðstafanir. Og þá fór aftur að ruglast í kollinum á mér, og öðru hverju skildi ég ekki allra einföldustu hluti sem höfðu verið mér eins og að drekka kalt vatn, }>egar ég var á shipping-skrifstofunni í Lundúnum. — Svo ]>ér hafið }>á líka verið }>ar? — Já, og ]>ar skildi ég allt, en ég var ekki duglegur þar heldur, gerði oft endemis vitleysur. — Nei, ég dugi ekki, Hamar. Og samt veit ég að ég er snillingur, séní. — Snillingur! Það er ekkert smáræði. Bjartur s.tóð upp og gekk alvarlegur yfir gólfið. — Já, ég er séní. Ég get eiginlega allt. Gerði ég kannski ekki glæsileg viðskipti? Það var hreint ekki auðvelt, skal ég segja yður, }>að var djarft og áhættusamt fyrirtæki, ég tókst á hendur geysimikla áhættu, en ég skildi ]>að prýði- lega að — já, allt saman! — Slík og slík eins og Níelsen segir. Sagði hann }>að ekki á fundinum? — Jú, sei-sei, jú. Bjartur hló: __ — Slík og slík! — Bannsettur grasasninn! Ég er miklu meira v.irði en allur }>orparalíðurinn samanlagt. Ég finn J>að á mér. Ég skil. Ég veit! Hann fleygði sér aftur niður í stólinn. — Æ, fjandinn sjálfur! Að J>eir skyldu bola mér út úr öllu saman núna! Hefði ég bara fengið að vera ríkur enn um hríð! — — „Vera ríkur"! — Já, vera ríkur. Ríkidæmið — ]>að er tryggingin á verð- mæti rnínu. Ætti ég ekki að vera ríkur, fyrst ég dugi ekki til neins! Hvað eiga bræður mínir að gera með peninga, }>eir eru dugandi, }>eir }>ykjast vera hainingjusamir, — og }>eir sem eru dugandi, þeir geta elskað starf sitt. En ég get bara elskað lífið, nautnir, fólkið umhverfis mig, og allt fallegt og skemmtilegt sem það segir, og alla ástina sem ég get fengið sökum ]>ess, að ég get borgað ]>að allt saman. Þannig hefir J>að alltaf verið. Haldið þér að félagar mínir hafi verið andstyggilegir og drembnir gagnvart mér, — J>ví fór fjarri, — J>ví ég hafði peninga. Ella hefðu }>eir víst fengið annað Framhald.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.