Dagur - 22.05.1965, Qupperneq 1
Dagur
SÍMAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
<r, ...... .....
Dagur
kemur út tvisvar í viku
og Ícostar kr. 25,00 á
mán. í IausáSóí.1 kr. -1,00
y
Sinubrennsla á varptíma er
norðlenzk ómenning
UM síðustu helgi mátti sjá
reykjarstróka af brennandi
sinu á mörgum stöðum í Eyja-
íjarðarsýslu. Þegar haft er í
huga, að varp farfuglanna er
þegar hafið, er furðulegt að sjá
L DEILDAR KEPPNIN
HEFST Á MORGUN
Á MORGTJN mætast Fram og
ÍBA til knattspyrnukeppni í I.
deild. — Leikurinn verður á
íþróttavellinum og hefst kl. 4
síðdegis. □
slíkt í svo miklu framfara- og
menningarhéraði.
Hér skal ekki farið út í gagn-
semi sinubrennslunnar, heldur
á það bent, að ekkj er þörf á
að draga slíkt til varptímans.
Það eru engin lög í landinu,
sem banna sinubrennslu á þess-
um árstíma, en Stéttarsamband
bænda og Búnaðarfélag íslands
hafa beint þeim eindregnu
áskorunum til landeigenda, að
brenna ekkj sinu eftir 1 maí á
vorin.
Þetta atriði verður væntan-
(Framhald á blaðsíðu 7).
Fjögur tilboð gerð í jarðgöngin
UNNIÐ hefur verið að undir-
búningi nýrrar dráttarbrautar
á Akureyri. Er það mál aðkail-
andi, bæði vegna viðgerða fiski-
skipanna og einnig veitir það
hinni upprennandi stálskipa-
smíðastöð betri aðstöðu.
Vonir standa til, samkvæmt
framkvæmdaáætlun ríkisstjórn-
arinnar um byggingu dráttar-
brauta, að hér á Akureyri verði
hafizt handa á næsta ári. Fyrst
er ráðgert að byggja dráttar-
brautir í Neskaupstað og Njarð
víkum samtímis en síðan á Ak-
ureyri og í Hafnarfirði. Með
Á ÞRIÐJUDAG voru opnuð á
skrifstofu Vegamálastjóra til-
boð um að gera jarðgöngin
vegna Strákavegar. Fjögur til-
boð bárust frá þessum aðilum:
Efrafalli Reykjavík, Helga Valdi
„Litlu mæðrablómin44
Á MORGUN, sunnudag, er
fjáröflunardagur Mæðrastyrks-
nefndar og mun því verða geng-
ið í hús og „Litlu mæðrablóm-
in“ boðin til sölu.
Áður en góðborgarar, sem
margir eru orðnir leiðir á hvers
konar merkjasölu, skella hurð
að stöfum við nef sölumanna,
ættu þeir að athuga, að þrátt
fyrir velmegun, eru margar
mæður í þessum bæ hjálpar
þurfj og njóta þær fjársöfnunar
Mæðrastyrksnefndar, svo sem
verið hefur undanfarin ár. Til
þeirra renna þeir fjármunir, er
bæjarbúar láta af hendi rakna
á morgun. □
marssyni Garðahreppi, Magnúsi
Jenssyni hf. Reykjavík og Möl
og sandi hf. Akureyri.
Boðin voru út tvö tilboð. f
öðru þeirra er gert ráð fyrir
einni akrein og hljóðaði þar
lægsta tilboð upp á 18,2 milljón
ir. kr. og hæsta á 25,9 milljónir
kr. í hinni útboðslýsingunni er
gert ráð fyrir tveim akreinum.
Þar hljóðaði lægsta tilboð upp
á 20,4 miilj. kr. og það hæsta
33,8 millj. kr.
Verið er að vinna úr þessum
tilboðum og verður ákveðið inn
an hálfs mánaðar hverju þeirra
verður tekið. Byrjað verður að
vinna við jarðgöngin um mán-
aðarmótin júní—júlí. Þegar er
hafin vinna við veginn í vor og
er nú unnið að gerð hans Skaga
fjarðarmegin í svokallaðri Helj
artröð.
í tilboðunum er gert ráð fyr-
ir að vegurinn verði orðinn ak
fær 1. sept 1966 og fullgerður
1. okt. sama ár.
Þjóðþíngið samþykkti afhendingu hand-
rifanna me$ 104:58 afkvæðum
En margir þingmenn krefjast þjóðaratkvæðis
HINN 19. maí samþykkti danska
þjóðþingið endanlega með 104
atkvæðum gegn 58, að afhenda
íslenzku handritin. Samþykkt
þessi er íslendingum fagnaðar-
efni. Hinsvegar hefur málið vak
ið miklar deilur í Danmörku
og er þeim deilum því miður
ekki lokið. Og afhending hand-
ritanna er tafin með málshöfð-
un Árna Magnússonar-nefndar-
innar gegn danska menntamála
ráðuneytinu, til að fá lögin ó-
gilt.
í annan stað safna andstæð-
ingar afhendingarinnar á þjóð-
þinginu undirskriftum þing-
manna um þá kröfu, að þjóðar-
atkvæðagreiðsla fari fram um
handritamálið.
Ef næg þátttaka, eða undir-
skriftir 60 þingmanna, fæst, fer
þjóðaratkvæðagreiðslan fram.
Mundi sú atkvæðagreiðsla auka
deilurnar að miklum mun.
Á öðrum stað í blaðinu eru
þessi mál rædd sérstaklega, eins
og þau lágu fyrir áður en þjóð
þingið samþykkti afhendinguna.
Olíulðusf og höfnin full af ís
Raufarhöfn 21. maí. Olía kom
hér síðast 11. marz og vorum
við orðnir olíulausir í fyrradag,
þann 19. maí og búið að hella
síðustu dropunum á rafstöðina
þegar hjálpin barst. Bíll kom
með olíu frá Húsavík, því vegir
eru mjög batnandi. Og svo kom
Óðinn með 60 tonn af olíu frá
Siglufirði. En þegar hann var
á leiðinni slitnaði vír sá, sem
Framhald á blaðsíðu 2.
Fyrsfi sáffafundurinn hófst í gær
í GÆR átti fyrsti sáttafundur
að hefjast í Reykjavík, hjá sátta
semjara rikisins í deilu milli
flestra verkalýðsfélaga norðan-
lands og austan og atvinnurek-
enda. En deilu þessari hafðj ver
ið skotið til sáttasemjara. Kröfur
verkalýðsfélaganna eru í aðal-
atriðum þær, sem fram voru
settar á ráðstefnu Alþýðusam-
bands NorSurlands og Austur-
lands í apríl sl. þ.e. stytting
vinnuvikunnar um 4 klst. og allt
að 16% kauphækkun fyrir al-
manna vinnu. í samninganefnd
verkalýðsfélaganna eru: Björn
Jónsson, Sveinn Júlíusson, Páll
Árnason, Alfreð Guðnason, Sig
urfinnur Karlsson, Óskar Gari-
baldason og Guðrún Albertsd.
Ný drálfarbraul á Akureyri á næsta ári
Aðkallandi vegna viðgerða fiskiskipaflotans
og hagkvæmt fyrir stáí skipasmíðina
hliðsjón af útboðum slíkra
framkvæmda þykir hentugt að
bjóða út tvö hliðstæð mannvirki
í senn.
Hingað til Akureyrar var á
sínum tíma keypt gömul drátt-
arbraut frá Reykjavík. Hún get-
ur tekið 500 tonna skip en er
án hliðarfærslu. Munu hér hafa
verið misheppnuð kaup, enda
þarf mikla framsýni og vandað-
an undirbúning slíkra mann-
virkjakaupa.
Bæjarstjórn Akureyrar hefur
enn ekki samþykkt að byggja
dráttarbraut, enda liggja ekki
fyrir áætlanir þær frá Vita-
málaskrifstofunni, sem til þurfa
áður en ákvörðun er tekin. —
Reiknað er þó með að fyrirhug-
uð dráttarbraut henti fyrir allt
að 400 tonna skip og verði að
sjálfsögðu með hliðarfærslum,
svo fleiri en eitt skip sé hægt
að taka upp í einu.
í þessu sambandi og hliðstæð
um tilvikum er vert að athuga
hvort ekki sýnist hagkvæmt að
setja upp á Norðurlandi eins
konar útibú Vitamálaskrifstof-
unnar, svo sem gert er t. d. í
vegamálum með óumdeilanleg-
um árangri.
Hafnarmálin á Akureyri eru
enn óráðin, en í þeim efnum
þurfa stórátök áður en langt
líður. Aðstaðan á Torfunefi var
miðuð við mannvirkjaþörf fyrir
mörgum áratugum og algerlega
ófullnægjandi nú. Komið hefur
til mála, að byggja hafskipahöfn
á öðrum stað og er slíkt allt á
athugunarstigi og verður að
leysast í sambandi við framtíð-
arskipulag bæjarins að nokkru
leyti. □
HJÁLPARBEIÐNI
EINS og kunnugt er af fréttum
útvarps og blaða hafa um 12000
manns farizt, og 7 millj. misst
heimili sín við náttúruhamfarir
í Austur-Pakistan. Alþjóða
Rauði Krossinn hefur beðið
Rauða Kross íslands að veita
systurfélagi sínu í Pakistan að-
stoð við kaup á matvælum og
vatni.
(Framhald á bls. 7).
Sandkassarnir eru ódýrustu og eftirsóttustu leikstaðir borgarbarnanna.
- (Ljósm.: E. D.)