Dagur - 22.05.1965, Síða 2
2
Brauiskrátfir 24 búfræðingar
PRÓFUM lauk í Hólaskóla um
mánaðarmótin apríl — maí og
skólanum var slitið 2. maí með
ræðu Hauks Jörundssonar skó!a
stjóra og einnig talaði við það
tækifæri H. J. Hólmjan kennari.
í skólanum dvöldu við nám
í vetur sl. 31 nemandi, þar af
2 stúlkur, sem báðar luku burt-
fararprófi eftir eins vetrar nám.
Burtfaraprófi luku 24 nemend
ur (þ. a. 15 eftir einsvetrarnám,
en þeir höfðu flestir áður lokið
gagnfræða eða landsprófi.)
í eldri-deild hlaut hæstu eink
unn Jónatan Hermannsson frá
Galtalæk í Biskupstungum 9,38
í aðaleinkunn, annar varð Magn
ús Ólafsson frá Sveinsstöðum í
Þingi með 9,09 og þriðji varð
Tryggvi Eiríksson frá Búrfelli
í Miðfirði með 9,00. Þess má geta
að Jónatan hlaut 9,92 í bókleg-
um fögum. En þessir þrír eru
allir með ágætiseinkunn.
í yngri-deild varð með hæstu
einkunn Sigurjón Tobíasson frá
Geldingarholti, Skag. 9,0.1
Ymsar verðlaunaafhendingar
fóru þar fram að venju, og voru
þessar helztar. Verðlaun Búnað
arfél. ísl. fyrir hæstu einkunn
hlaut Jónatan Hermannsson. —
Fóðurfræðiverðlaun SÍS hlaut
Magnús Ólaísson.
Fimleikaverðlaun úr Minning
arsj. T.J. hlaut Gunnar Ástvalds
son úr Reykjavík. Morgunblaðs
skeifuna, fyrir hestatamningar
hlaut Jón Sigurðsson Hnúki í
Vatnsdal. Önnur verðlaun Morg
unblaðsins fyrir hirðingu og um
gengni Þorvaldur Ágústsson
Reykjavík. Vélfræðiverðlaun
GLERARSKOLANUM
SLHIÐ
GLERÁRSKÓLANUM var slit-
ið þann 15. þessa mánaðar.
Skólastjórinn Hjörtur L. Jóns-
son skýrði frá störfum skólans
á árinu. í skólanum voru 100
börn í 6 deildum. Barnaprófi
luku 8 börn. — Hæstu aðaleink
unn á barnaprófi hlaut Þor-
steinn Reynisson 8,66, en hæstu
aðaleinkunn i skólanum hlaut
Ásdís ívarsdóttir 5. bekk 9,22, og
fengu þau bæði bókaverðlaun
fyrir góðan námsárangur.
Sparifjársöfnun bamanna
nam um kr 3,400. Eru það aðal-
lega yngri börn sem safna.
Bömin héldu skemmtun fyrir
ferðasjóð sinn og varð ágóðinn
6900 kr. Er því varið til að
greiða hluta af kostnaði við 2
daga skíðanám, sem börn í 6.
bekk fengu í Hlíðarfjalli. En af
gangnum er varið til ferðalags
um Skagafjörð og Húnavatns-
sýs’.ur um næstu mánaðamót.
Zontaklúbbur Akureyrar
bauð bömunum í 6 bekk að
skoða Nonnasafnið, og skrifuðu
börnin í'itgerðir um heimsókn-
ina. í vor hefur orðið að vísa all
mörgum börnum frá skólanum
vegna þrengsla, og sækja þau
Oddeyrarskólann. — Er því ný
skólabygging í Glerárhverfi að
kallandi nauðsyn.
hlaut Jóhannes Árnason frá
Höskuldsstöðum á Sléttu. Fyrir
snyrtilega umgengni í vistar-
verum fengu tvennir herberg-
isfél. verðl. 1. Aðalsteinn Arnórs
son Árbót í Aðaldal og Stein-
grímur Eiríksson frá Hóli. 2.
Guðjón Bjarnason Seljabr. Mos
fellssveit og Tryggvi Eiríksson
Búrfelli. Þá veitti H. J. Hólm-
járn verðlaun í Arfgengisfræði
Jónatan Hermannssyni og Jónu
Gísladóttur úr Kirkjubóli í Ket
ildölum verðl. fyrir bezta stíl-
list í hans kennslufögum.
Smíðaðir voru að venju marg
ir mjög eigulegir gripir, undir
handleiðslu Jóns Friðbjarnar-
ar. Má það teljast mjög ánægju
legt að sjá nemendur fara heim
með húsgögn með sér sem virtar
eru á þúsundir kr.
Þá luku þeir sem vildu prófi
í bifreiðaakstri. — Allur skóla-
kostnaður (auk námsbóka)
varð á skólaárinu kr. 72,00 á
dag. Hólaskóli er nú þegar nær
fullskipaður fyrir næsta vetur.
Undanfarið hafa staðið yfir
lagfæringar í skólahúsinu, t.d.
verið mikið málað.
Hótelrekstur verður í sumar
að Hólum, en ekki búið að á-
kveða hvenær verður opnað.
Skólastjóri á Hólum er Hauk
ur Jörundsson fyrrum kennari
á Hvanneyri.
P.t. Hólum 15. maí 1965.
G. St.
BARNASKOLA AKUREYRAR SLITIÐ
BARNASKÓLA Akureyrar var
slitið í 94 sinn laugardaginn 15.
maí. — í skólaslitaræðu Tryggva
Þorsteinssonar kom meðal ann
ars þetta fram.
í Skólanum voru 780 börn í
‘\28 bekkjadeildum.
Sýning á skólavinnu fór fram
2. maí. og kom þar í ljós að
starfræn vinnubrögð fara stöð-
ugt vaxndi.
Börn úr skólanum nutu
kennslu í fiðluleik og lúðrasveit
drengja er starfandi í bænum.
Fyrir tilmæli skólastjóranna
við barnaskóla bæjarins var dr.
Matthías Jónasson fenginn til
þess að athuga börn, sem ástæða
þótti til að sálfræðingur rann-
sakaði. Eru það eindregin til-
mæli skólanna á Norðurlandi
að hér verði sem fyrst komið
upp sálfræðiþjónustu.
Að þessu sinni útskrifuðust
117 börn úr Barnaskóla Akur-
eyrar. Tíu þeirra hlutu ágætis-
einkunn.
Á síðastliðnum vetri gáfu Li-
on-klúbbarnir á Akureyri barna
- TÓNLEIKAR
(Framhald af blaðsíðu 8).
inen, en hún er ekkja eftir tón-
skáldið Yrjö Kilpinen, einn
mesta sönglagasmið Finna, sem
stundum er nefndur „Hugo
Wolf norðursins.“ Þær flytja
nokkur af sönglögum hans á-
samt verkum Sibelíusar.
Tónlistarfélagið og Norræna
félagið hvetja félagsmenn sína
eindregið til að sækja vel þessa
tónleika en langt er nú um liðið
siðan við höfum fengið hingað
fulltrúa þessarar listelsku vina-
þjóðar.
Meðlimir ofangreindra félaga
vitji aðgöngumiða sinna í Bóka
verzluninni Huld á fimmtudag
og föstudag. Fyrir aðra verður
miðasala í bókaverzluninni á
laugardag og við innganginn.
skólanum sjónprófunartæki og
voru nú öll börnin sjónprófuð
með því, og þau, sem sjóngall-
ar fundust hjá send til sérfræð
ings.
Zontaklúbbur Akureyrar
kynnti 12 ára börnum „Nonna-
safnið“ og rithöfundinn Jón
Sveinsson.
í vetur fóru 12 ára börn í
fyrsta sinn í skíðaútilegu í Hlíð
arfjall ásamt kennurum. Þessi
útilega tókst prýðilega og mik
il ánægja var innan skólans með
þesa nýbreyttni. Utilegan kem-
ur að nokkru í stað skólaferða-
lags, sem 12 ára börn hafa far-
ið að undanfömu.
Við skólaslitin færði Skíðaráð
Akureyrar skólanum verðlauna
grip að gjöf vegna þátttöku skól
ans í Norrænu skíðagöngunni,
en 99% af nemendum skólans
luku göngunni.
F réttatilkynning.
- OLÍULAUST
(Framhald af blaðsíðu 1).
strengdur hafði verið fyrir hafn
armynnið og höfnin fylltist á
samri stundu af ís, svo hvergi
var vök að heita mátti. Óðinn
sigldi svo inn í ísinn hér utan
við, sem nær eina mílu út, en
varð fastur því ísinn er mjög
þéttur þótt ekki sé hann sam-
frosinn. Skipsmenn gengu þá út
á ísinn með olíuslöngur en aðr
ir menn mættu þeim með slöng
ur úr landi. Það voru um 500
metrar milli lands og skips. En
olían komst í land og það var
aðalatriðið og nú er olíuáhyggj
um aflétt í bráð. En okkur finnst
að fyrirhyggju hafi skort um
oliuflutninga í vetur, a. m. k. var
okkar öryggi í þeim efnum ekki
hátt skrifað. Margvísleg vandr-
æði stafa af þessum samgöngu
erfiðleikum, því hér þarf margt
að lagíæra fyrir síldarvertíðina.
H.H.
STÚLKUR
Okkur vantar 2—3 stúlkur til vinnu við Garnastöð
SIS á Oddeyrartanga. Vinna svo til allt árið.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
SLÁTURHÚS K.E.A.
STÝRLMANN og 1. VÉLSTJÓRA
vantar á mjög góðan síldveiðibát frá Kefla\ ík. IJpp-
lýsingar gefur Jón Hjartarson, Akureyri, sími 1-12-29.
Alit á sarna stað
Húsgöffn við allra hæfi í alla íbúðina
D D
NÝKOMIÐ:
KOMMÓÐUR í úrvali
Tvísettu KOMMÓÐURNAR vinsælu komnar aftur
Ýmislegt í VEGGHÚSGÖGNUM
Nýjar gerðir af HJÓNARÚMUM, SÓFASETTUM
og BORÐSTOFUSTÓLU M
Enn fremur BARNAKOJUR, BARNAKÖRFUR
og BRÚÐUKÖRFUR o. m. fl.
Kynnið yður verð og skilmála.
ÚTIBÚ Á NORÐFIRÐI hjá Höskuldi Stefánssyni
og á HÚSAVÍK í verzluninni Garðarshólma.
CÓÐ AUGLÝSINC, GEFUR GÓÐAN ARÐ
Garðsláttuvélar
VANDAÐAR - LÉTTAR - ÓDÝRAR
NÝKOMNAR, 4 tegundir.