Dagur - 02.06.1965, Blaðsíða 2

Dagur - 02.06.1965, Blaðsíða 2
Valur sigrai AKUREYRARLIÐIÐ lieimsótti Reykjavík sl. sunnudag eins og frá hefir verið sagt hér í blað- inu áður, og lék nú á móti Val, en alment mun vera talið þar syðra að Valur hafi einna sterk asta liðinu á að skipa af Rvíkur- félögunum. — En Akureyring- arnir komu til baka á sunnu- dagskvöld með Blikfaxa, náði ég tali af nokkrum þeirra: TRYGGVI GEORGSSON, ■ fararstjóri: Voru þetta sanngjöm úrslit? Nei hreint ekki að vísu byrj- uðu Valsmenn vel og gerðu 2 mörk á fyrstu 10 mínútunum, en eftir það voru okkar menn í látlausri sókn allan fyrri hálf- leikinn og uppskáru 2 mörk, á- gæt mörk sem Skúli gerði. Kapp leiknum lauk með sigri Vals 4:2. Áttu „okkar menn“ eins og þú segir mörg tækifæri umfram þessi tvö sem nýttust? Já það áttu þeir, þeir skutu mikið á markið, markvörður Vals er góður á háum boltum og bjargaði oft, en svo fór oft líka utan við stöng, eins og gengur. VöIIurinn? Hann var rennblautur og þungur. Og liðið? Það var létt og leikaridi, Jóri Magnús og Skúli voru beztir að mínum dómi, en það dugði ekki til í þetta sinn. Við kvittum von andí við þá á heimavelli síðar í sumar. EINAR HELGASON, þjálfari: Er Valsliðið sterkt? Það er miklu betra en Fram- liðið er hér lék á dögunum. „Bilaði nokkur bíll“ hjá ykk ur í liðinu? Ekki er hægt að segja það, ég var óánægður með að vinna ekki fyrri-hálfleikinn eftir gangi hans, en seinni hálfleikinn léku strákamir ekki eins vel. Valur átti ekki nema 4—5 marktæki- færi í leiknum og þau notuðust vel, að vísu gerðu strákamir þriðja markið, en dómari og línu VORMÓT U.M.S.E. HIÐ árlega vormót Ungmenna- sambands Eyjafjarðar í frjáls- run íþróttum verður haldið á íþróttavellinum á Laugalandi í Öngulsstaðahreppi n. k. laugar- dag, 5. júní og hefst kl. 3 e. h. Keppt verður í eftirtöldum greinum: Karlar: 100, 400, 1500 metra hlaupi, kúluvarpi, kringlukasti, spjótkasti, langstökki, hástökki, þrístökki. Konur: 100 metra hlaupi, langstökki, hástökki, kúluvarpi, kringlukasti. □ i I.B.A. 4:2 vörður voru illa staðsettir og sáu það ekki, annars dæmdi Magnús Pétursson ágætlega. PÁLL JÓNSSON, Þú lékst á hægri kanti eins og venjulega og hefir því verið í aðstöðu til að sjá hvemig var méð þ'etta'mark sem þið gerðuð éri fekkst ekki viðurkennt? Já ég sá það greinilega. Stein grímur skaut í stöng, það var snúningur á knettinum og hann fór allur vel innfyrir marklínu VORMÓT í knattspyrnu, yngri flokkar, fór fram fyrir skömmu, og urðu úrslit þessi: V. fl. KA—Þór 0:0. IV. fl. KA—Þór 5:1. III. fl. Þór—KA 6:0. Sennilega leika V. fl. dreng- imir aftur síðar, vegna þess að jafntefli var í leik þeirra. Ólokið er keppni í meistara- flokki og II. flokki og fer sú keppni fram innan skamms og þá sennilega á grasvellinum. — Mjög æskilegt væri að leikir ungu knattspyrnumannanna væru auglýstir, því margir hafa gaman af að horfa á þá leika. Einnig kæmi til mála að láta yngri flokkana leika á undan fyrstu deildar leikjunum, með- an fólk er að streyma á völlinn og mundu strákamir eflaust hafa mjög gaman af að leika á grasinu.- en Valsmenn voru fljótir að koma honum út fyrir aftur og viðurkenndu að mark hefði ver ið skorað (Þorst. Friðþjófsson) en tóku samt fram að það væri dómarinn sem dæmdi. SKIJLI ÁGÚSTSSON: Þú varst sá lukkunár panfíll er barðir boltann tvisvar í netið hjá Val. Hvað viltu segja um að dragandann að því? Ja það er ekki vandi að gera mörk þegar knötturinn er lagð ur vel fyrir mann af samherjun um. En mörkin voru hrein og ó tvíræð er komu eftir góðan sam leikskafla hjá okkur. S.B. F ermingarbarnamót F ERMIN G ARB ARN AMÓT Eyjafjarðarprófastsdæmis verð ur haldið að Freyvangi og Murikaþverá annan hvítasunnu dag 7. júní. Lagt verður af stað frá Akureyrarkirkju kl. 9 f.h. og komið þangað aftur kl. 11 um kvöldið. Dvalið verður við helgistundir, leiki og kvöldvöku Mótgjald verður ki-. 40 (innifal in mjólk) og fargjald ca 35,00 kr báðar leiðir, þátttakendur hafi með sér Nýja-Testamenti, skrif færi og nesti til dagsins nema mjólk. Æskilegt er að ferming arbörnin séu klædd þannig, að þau geti tekið þátt í útileikjum og íþróttum. Einnig verður hægt að fara í sund. Þátttaka er heim il öllum fermingarbörnum frá sl. vori úr Eyjafjarðarprófasís- dæmi. Undirbúningsnefnd. LyfhisérfræSingur við af huganir i Hléðarfjalli ÍÞRÓTTARÁD Akureyrar fékk svissneskan lyftusérfræðing, Gerhard Muller, hingað til Ak- ureyrar. Var hann hér um helg- Halldór skákmeistari Akureyrar SKÁKÞINGI Akureyrar er ný- lega lokið. Keppendur í meist- araflokki voru 11 og urðu heltu úrslit sem hér segir: l—2 Halldór Jónsson .—2 Jón Björgvnsson m 3 Gunnl. Guðmundss. 7 4 Júlíus Bogason 6% 5 Haraldur Ólafsson 6 6 Jón Ingimarsson 5 í unglingaflokki varð Svein- björn Björnsson efstur. Halldór og Jón kepptu síðan til úrslita 4 skákir og vann Halldór með 2Vz gegn IV2 og hlaut því titil- inn skákmeistari Akureyrar 1965. Vormót í knattspyrnu stendur yfir ina og rannsakaði lyftustæðið í Hlíðarfjalli, ásamt Hermanni Sigtryggssyni æskulýðsfulltrúa, Magnúsi Guðmundssyni skíða- kennara, Aðalsteini Jónssyni verkfræðingi og Einari Pálssyni verkfræðingi, fulltrúa íþrótta- fulltrúa ríkisins um þessi mál- efni. Blaðið leitaði fregna af þessu hjá æskulýðsfulltrúa og sagði hann, að hinn svissneski sér- fræðingur hefði áður sent tilboð frá sínu fyrirtæki um smiði skíðalyftu fyrir Hlíðarfjall, en kom nú, sem ráðgjafi og til þess að kynnast staðháttum nánar. Landslagi og aðstöðu hrósaði hann mjög og taldi stólalyftu koma að mjög miklu gagni þarna efra bæði sumar og vet- ur. Hann mun síðar gera íþrótta ráðinu grein fyrir athugunum sínum og tillögum. íþróttaráð hefur auk þessa haft samband við fleiri fyrir- tæki erlendis, og hafa sum sent tilboð í smíðj skíðalyftu. Verð- ur þetta allt tekið til nánari at- hugunar síðar, sagði æskulýðs- fulltrúi. □ Smárakvartettinn hefur sungið í þrjátíu ár Á ÞESSU ÁRI er Smárakvart- ettinn á Akureyri þrjátíu ára og er enn án ellimarka. Stofnend- ur voru Jón Guðjónsson bakari, Sverrir Magnússon blikksmið- ur, Gústaf Jónasson rafvirki og Magnús Sigurjónsson bólstrari. Tveir þeir síðarnefndu hafa sungið í Smárakvartettinum all- an tímann og með þeim um fjöida ára þeir bræður Jóhann og Jósteinn Konráðssynir, og þannig skipaður hefur þessi litli hópur getið sér góðs söng- orðstýrs víða um land. Undir- leikari og leiðbeinandi er Jakob Tryggvason, en fyrsti leiðbein- andi var Jón Þórarinsson. Smárakvartettinn hefur sung ið 10 lög inn á plötur og eru þær mjög vinsælar og lögin mjög oft flutt, t. d. í óskalaga- þáttum. Miklir vatnavextir OFSALEGUR vöxtur hljóp í árnar um helgina, enda var þá yfir 20 stiga hiti. Eyjafjarðará flæddi yfir alla bakka og þjóð- veginn um Eyjafjarðarárhólma á löngum köflum og þverár henn ar ultu fram kolmórauðar. Brú- in á Torfufellsá laskaðist við það að árstraumurinn gróf und an brúarstöpli. Svarfaðardalsá flæddi yfir veginn hjá Hrísum. Eyjafjörður var flagmórauð- ur að sjá út fyrir Svalbarðseyri í gær og hafði þá lítið lækkað í ánum. — Ekki er vitað um tjón á skepnum í vatnavöxtum þessum. □ TAPAÐ FRAKKI, merktur „Hörður", var tekinn í misgripum í Menntaskólanum nýlega. Viðkomandi er heðin að skila honum þangað og taka sinn. IBUÐ ÓSKAST Ibúð óskast til leigu nú þegar eða á næstunni. Uppl. í síma 1-27-22 og 1-12-37. TIL LEIGU herbergi fyrir reglusama stúlku eða pilt. Uppl. í síma 1-10-84. í sumar ætlar Smárakvartett- inn að „loka hringnum“, þ. e. fara í söngför um Vestfirði og austanvert Suðurland, þar sem hann hefur ekki áður sungið. En áður, strax á morgun, gefst bæjarbúum kostur á að heyra söng þeirra í Samkomuhúsinu og verður hann væntanlega vel sóttur. Þrítugur söngkvartett á ís- landi mun sjaldgæft fyrirbrigði, og það er líka athyglisvert, að slíkur kvartett skuli ekki fyrir löngu hafa sungið sig dauðan, a. m. k. í heimbæ sínum, Akur- eyri. En svo er ekki og það er staðfesting á því, að söngurinn er góður. Meðfylgjandi mynd tók Matt- hías Ó. Gestsson. □ mmm Vel með farin fasttengd HJÓLAMÚGAVÉL óskast til kaups. Jón Bjarmann, Laufási. DOOOO«<>WWMW8CWWW«W8 mmmmm TIL SÖLU: Fordson sendiferðabifreið, ógangfær, mjög ódýr. UppL .í síma 1-26-39 fimmtudagskvöld eftir kl. 8. Vil kaupa góðan, vel meðfarinn VOLKSW agenbíl. Upplýsingar hjá Evþóri H. Tómassyni, sími 1-14-90. SENDLABÍLL til sölu. Ódýr. Uppl. í síma 1-23-36. TIL SÖLU: RENAULT BIFREIÐ árgerð 1947. Selst ódýrt. Uppl. í síma 1-15-44. BÍLL TIL SÖLU Opel Capitan ,,L“ tegund árgerð 1962. Keyrðúr 31 þús. km. Bíllinn hefur alltaf verið í einkaeign, mjög vel með farinn, og lítur út sem nýr. Uppl. í síma 1-12-64.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.