Dagur - 02.06.1965, Síða 4

Dagur - 02.06.1965, Síða 4
4 Skrifstofnr, Hafnarstræti 90, Akureyri Súuar 1-1160 og 1-1167 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Björnssonar h.f. Samvinnu- stefnan í DAG og í gær halda eyfirskir sam- vinnumenn aðalfund samtaka sinna, Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri, sem er þróttmesta kaúpfélag landsins ‘ og þykir á margan hátt til fyrirmynd ar. Hundruð fulltrúa og gestir hafa hlýtt á skýrslu framkvæmdastjórans, Jakobs Frímannssonar, yfir störf á síðasta reikningsári og um fyrirhug- aðar framkvæmdir, ástand og horfur í samvinnumálum. Fram hafa verið lagðir endurskoðaðir reikningar til samþykktar eða synjunar og reksturs ágóðariúm verður væntanlega ráðstaf að í dag. Þessi fjölmennustu félagssamtök í okkar landsfjórðungi eru öllum frjáls og þau eru opin fyrir allri gagn rvni vegna þess, að reikningar eru birtir opinberlega og eru ekkert leyndarplagg. í þessu kaupfélagi, eins og öllum öðrum, hefur fátæki mað- úrinn jafnan atkvæðisrétt hinum ríka, tekjuafgangi er skilt og skilað í viðkomandi reikninga félagsmanna og stofnsjóð þeirra eftir því sem sam þykkt er hverju sinni, en rennur ekki í vasa kaupsýslustéttarinnar. Bygg- ingar félagsins ganga ekki kaupum og sölum cins og eignir einstaklinga og sjóðir þess eru ekki burtu fluttir eins og algengt er hjá öðrum. Sumar starfsgreinar Kaupfélags Eyfirðinga eru hrein þjónustufyrir- tæki, sem cinkaframtakið hefur ekki áhuga á, en cru engu síður nauðsyn- legar. Styrkur félagsins er samtaka- máttur fólksins, sem vill vinna að vissum hagsmuna- og menningarmál- um á grundvelli samvinnustefnunn- ar, nær þar markverðum áföngum, sem einum og einum er ókleift. Sem heild hefur samvinnustefnan þokað einstaklingunum þrepi hærra í þroskabraut en köld og hrifsandi gróðahyggjan megnar. Samvinnu- stefnan setur réttindi mannsins ofan valdi fjármagnsins, vinnur að því að gera sem flesta fjárliagslega sjálf- bjarga með úrræðum samvinnunn- ar í verzlun og margháttuðum sam- skiptum öðrum. Margt orkar eflaust tvímælis í stjórn samvinnufélaga og mistök eiga sér stað. Og félögin eiga í höggi við stérka andstæðinga, sem stundum villa um fyrir mönnum með misjafn lega góðgjörnum upplýsingum. Fræðslustarf er því eitt af hinu nauð synlegasta í starfi slíkra félaga, einn- ig til að mæta réttmætum spurning- um og gagnrýni félagsmanna sjálfra. Ef til vill er sá þátturinn mikilsverð astur í náinni framtíð. SlIdarverksmÍSjurnar Ráðstefna um atvinnumálin á Norðurlandi geta brætt yfir 80 þúsund mál á sólarhring og tekið 433 þúsund mál í þrær SAMKVÆMT þeim upplýsing- um, sem blaðið aflaði sér í gær, eru afköst síldarverksmiðjanna á Norður- og Austurlandi á þessu sumri sem hér segir, ef með eru taldar þær viðbótar- framkvæmdir sumra verksmiðj anna, sem yfir standa, en vænt- anlega koma til nota á yfirstand andi vertíð: Höfðakaupstaður 6000 mál, Siglufjörður 28500 mál, Húsavík 1200 mál, Raufarhöfn 5000 mál, Seyðisfjörður 5000 mál, og vænt anleg viðbót 2500 mál og enn- fremur ný verksmiðja 2500 mál, Vopnafjörður 4000 mál, Reyðar fjörður 2500 mál, Bakkafjörður 600 mál, Borgarfjörður 600 mál, Neskaupstaður 4000 mál, Eski- fjörður 2500 mál, Fáskrúðsfjörð ur 1700 mál, Breiðdalsvík 600 mál, Ólafsfjörður 600 mál, Hjalt eyri 7500 mál, Krossanes 3000, og Djúpavík 1000 mál. Síldar- verksmiðjan á Sauðárkróki var talin 1200 máia verksmiðja en hefur ekki verið notuð um ára- bil. Þá eru litlar síldarbræðsl- ur í Hrísey, Dalvík og Þórshöfn, en ekki er blaðinu að fullu kunn ugt um vinnslugetu þeirra. Samtals er vinnslugeta verk- smiðjanna, eða á að verða í sum ar 80100 mál á sólarhring. FERÐAHANDBOKIN í FJÓRÐA SINN BLAÐINU hefur barizt fjórða útgáfa af Ferðahandbókinni og er hún enn aukin og endurbætt, 24 síðum stærri en áður og fylg ir henni auk þess 16 síðu fylgi- rit. Sérstakt vegakora með núm- eruðum reitum auðveldar leit á kortinu að þeim stöðum, sem um getur í bókini. Meðal ný- mæla er leiðarlýsing Gísla Guð mundssonar og er yfir Austur land, frá Jökulsá á Fjöllum til Jökulsár á Breiðamerkursandi, en fyrir í bókinni var hliðstæð lýsing yfir Vestfirði, Snæfells- nes og Dali. Þá fylgir hinni nýju Ferða- handbók ritið Gönguleiðir eftir Sigurjón Rist, og gefur höfund- ur þar hinar gagnlegustu leið beiningar um val gönguleiða í öllum landshlutum. En fyrir í bókinni var kafli um bifreiða- slóðir á miðhálendi fslands, sem í nýju útgáfunni en endurbætt- ur. Þá eru í handbókinni aðvör- unarorð frá lögreglunni, slysa varnafélaginu og bifreiðaeftirliti og skrá er um sæluhús, listi yfir fuglana, minnisblað fyrir stanga veiðimenn, sagt frá gististöð- um, olíustöðvum o. m. fl. Ferðahandbókin er nauðsyn- leg ferðafólki og hún er líka góð vinargjöf. Verksmiðjurnar austanlands geta unnið 33300 mál. Þróarrými samtals í verk- smiðjunum norðanlands og aust an er 433 þús. mál. þar af 65 þús mála þróarrými í byggingu. Á Suður- og Vesturlandi er allmikið af síldarbræðslum og hafa þær verið stækkaðar veru lega í seinni tíð og ráðgert að síldarflutningaskip flytji til þeirra síld af miðunum austan við land. Hefur einni slíkri verk smiðju verið veitt ríkisábyrgð fyrir kaupum á síldarflutninga- skipi til slíkra flutninga. Um það mál hefur verið ritað all- mikið í blöðum nú í vetur og vor. En af framansögðu er ljóst, að ef unnt er að miðla síldaraflan um norðanlands og austan til vinnslu og verkunar til hafna á Austurlandi og Norðurlandi, er hægt að nýta mikinn afla er á land kann að berast, miðað við venjulega nýtingu sumar- veiddrar síidar hér við land. RÁDSTEFNA um atvinnumál á Norðurlandi var haldin á Akur eyri dagana 29. og 30. maí sl. Þátttakendur á ráðstefnunni voru 39 kjörnir fulltrúar frá fimm kaupstöðum og átta stærri kauptúnum á Norðurlandi. Þá voru boðnir til ráðstefnunnar allir alþingismenn úr kjördæm- um Norðurlands og ennfremur fulltrúi frá Sambandi ísl sveitar félaga. Formaður undirbúningsnefnd ar Áskell Einarsson setti ráð- stefnuna kl. 1,30 e.h. á laugar- dag 29. maí í Gagnfræðaskóla Akureyrar. Hann gat aðdrag- anda ráðstefnunnar og megin- verkefna. Kom fram í ræðu hans, að ráðstefnan er haldin að forgöngu bæjarstjóranna á Norð urlandi, sem skipuðu undirbún- ingsnefndina og í þeim tilgangi að hefja samstarf á milli sveitar félaga með líka atvinnuhætti, um framgang sameiginlegra hagsmunamála. Megin verkefni ráðstefnunnar væri að leita úr- ræða um lausn atvinnumála fjórðungsins nú í dag, jafnframt því að benda á ráð til þess að treysta atvinnulífið til frambúð - HEILDARVELTA K.E.A. VARÐ 700 MILU. (Framhald af blaðsíðu 1). þakka félagsmönnum öllum, er svo að segja undantekningar laust hafa staðið traustlega með félaginu, falið því viðskipti sín hvort heldur vöruinnkaup eða vörusölu. Sýnir hin mikla sölu aukning félagsins í öllum þess um verzlunum, jafnt á Akureyri sem í útibúunum við Eyjafjörð, að Eyfirðingar og Akureyringar treysta félaginu jafnt til útveg unar neyzluvöru sem afurðar- sölu. Aldrei hefur skráð úttekt ágóðaskyldra vara félagsmanna reynzt eíns mikil og á síðast- liðnu ári, sem sannar það bezt, að félagsmenn meta endur- greiðsluna á undanförnum ár- um og skilja hvers virði það er að fá, þótt ekki sé nema 4% af viðskiptum ársins fært í stofn- sjóð sinn, sem er handbært fé á elliárum eða þegar alvarleg veikindi, brottflutningur eða dauðsföll bera að höndum.“ Jakob Frímar.nsson Fram- kvæmdastjóri KEA flutti mikla og ítarlega skýrslu um rekstur og hag félagsins, sem í senn var mjög fróðleg í heild og glögg í einstökum atriðum. Hann rakti þróun verzlunar í hverri deild og hverju útibúi, sagði frá niður stöðum þeirra og bar saman við næsta ár á undan. Heildaraf- komu félagsins taldi fram- kvæmdastjórinn fremur hag- stæða og hann sagði, í sambandi við væntanlegar framkvæmdir: Fyrir fáum dögum hófst Mjólk ursamlagsbyggingin nýja, sem er stærsta Grettistakið. Seglin munu ekki verða dregin saman, en varasamt er að berjast á mörgum vígstöðum í senn. Því eru nú færri verkefni á óska- lista okkar um framkvæmdir en oft áður, en þeim mun stærri. Framkvæmdastjórinn minnt- ist þess, að þetta væri 27. sinn, sem honum væri falinn sá heið ur að birta fulltrúunum árs- skýrslu Kaupfélags Eyfirðinga, og hefði hún jafnan verið fagn aðarefni fulltrúum. KEA væri enn í vexti og yrði það 80 ára á næsta árí, væri eitt af elstu og traustustu kaupfélögum landsins og hann vonaði, að Eyfirðingar ættu jafnan þann metnað fyrir hönd samtaka sinna, að enn yrði haldið í horf inu. Hann skýrði frá því að heild arsala Kaupfélags Eyfirðinga hefðu á árinu orðið yfir 700 millj. kr. og er það 28,5% aukn- ing frá fyra ári. Fundur stóð enn yfir í gær, þegar þessar línur eru ritaðar og lýkur honum í dag. Verður síðar sagt nánar frá aðalfundin um, eftir því sem ástæða þykir til. Fyrsta síldin komin Húsavík 31. maí. Fyrsta síldin kom hingað á laugardaginn, 29. maí, og er það jafnframt fyrsta síldin, sem tekið er á móti í norðlenzkri höfn á þessu ári. Það voru Helgi Flóventsson, sem kom með 1800 mál og Ak- urey með 250 mál. Dagfari kom svo með 800 mál síldar í nótt. Síldin fer í frystingu og bræðslu. Það er skrítin tilviljun, að Helgi Flóventsson landaði líka fyrstu síldinni í fyrra, sem þá barst til norðlenzkrar hafnar — og sama mánaðardaginn. For maður er Hreiðar Bjarnason. ar og finna leiðir til samvinnu um uppbyggingu Norðurlands, með heildarskipulagningu og framtíðar áætlup um fram- kvæmdir og framfarir. Fundarstjóri var kjörinn Jón ísberg, sýslumaður, Blönduósi og fundarritarar voru Kristján Helgi Sveinsson, Sigurður Tryggvason og Árni Jónsson. í upphafi ráðstefnunnar flutti fjármálaráðherra Magnús Jóns son ávarp og gat þess að ríkis- stjórnin hyggðist beita sér á næsta Alþingi fyrir nýrri laga- setningu um framkvæmdasjóð strjálbýlisins. í ávarpi fulltrúa Sambands ísl. sveitarfélaga Unnars Stefáns sonar komu fram upplýsingar um þær fyrirætlanir, sem efstar eru á baugi um skipulags- bundna uppbyggingu landshluta t.d. Vestfjarðaráætlunina. Þá gat hann um í helztu atriðum hvernig aðrar þjóðir t.d. Norð- menn höguðu uppbyggingu landsbyggðarinnar og benti á að margt mætti af þeim læra. Fyrir ráðstefnunni lágu frá undirbúningsnefnd greinargerð ir og tillögur varðandi atvinnu- ástand og úrbætur frá kauptún um og kaupstöðum á Norður- landi, auk annarra þingskjala. Ráðstefnunni var skipað í þrjár verkefnanefndir er skiptu þannig með sér verkum: fram- tíðarmál, atvinnumál og sk-yndi úrræði. Á laugardagskvöld bauð bæj arstjórn Akureyrar fulltrúum til kvöldverðar í Skíðahótelinu. Fundir á ráðstefnunni hófust að nýju á sunnudag kl. 2 e.h. og að loknum umræðum um tillög ur og nefndarálit var gengið til afgreiðslu mála. Allar ályktanir ráðstefnunnar voru samþykktar samhljóða. í þeim kemur m.a. fram að nauðsynlegt sé að á Norðurlandi fari fram svæðis- skipulagning og kerfisbundin byggðaruppbygging. Lýst er á- nægju yfir fyrirhugaðri stofnun framkvæmdasjóðs strjálbýlisins. Lögð áherzla á skipulagða at- vinnuuppbyggingu með auknu fjármagni og .verkaskiptingu í atvinnugreinum á milli byggðar laga. Þá taldi ráðstefnan nauðsyn að ríkisstjórnin hlutaðist til um að bæjar- og sveitarfélögum verði lánað fé þegar í vor til atvinnuaukningar. Atvinnuleys isbætur verði hækkaðar og fjár magni atvinnuleysistrygginga- sjóðs verði fyrst og fremst beint til þess að lána til atvinnuupp- byggingar í þeim byggðarlög- um er búa við ónóg atvinnuskil yrði og verjast þurfa atvinnu- leysi. Aflatryggingasjóður bæti að mestu mismun á aflahlut og kauptryggingu, þeirra báta er leggja upp í heimahöfn. Stofn- lán fiskibáta verði lengd. Ríkið hafi forgöngu um síldar og fisk flutninga til Norðurlands til at vinnuaukningar. Þá fól ráðstefnan undirbún- ingsnefndinni að starfa áfram og fylgja eftir tillögum hennar og kalla saman fulltrúafund kaupstaða og kauptúna á Norð urlandi til þess að ræða um at- vinnu og svæðismál Norður- lands. Undirbúningsnefndina skipa: Áskell Einarsson, bæjarstjóri, Húsavík, formaður, Magnúe E. Guðjónsson, bæjarstjóri, Akur- eyri, ritari, Ásgrímur Hart- mannsson, bæjarstjóri, Ólafs- firði, Rögnvaldur Finnbogason, bæjarstjóri, Sauðárkróki, Stef- án Friðbjarnarson, bæjarritari, Siglufirði. Sjómannskonan Um aldaraðir við erfiðiskjör er öll hennar bundin saga. Við skort og ótta um ótrygg för og einveru, langa daga. Við ástvinamissi, söknuð, sorg og sárindi brostinna vona. Hún bar þó ei þjáning né þraut sín’a á torg hin þolgóða sjómannskona. En mikið um þig er ei skjalað og skráð né skrumað á forsíðum blaða. í hógværri þögn er oft drýgð sú dáð, sem drýgst er til varna skaða. I kjöltu þér sveinninn sat og hló, með sögnum til framtaks hann hvattir. Þú baðst fyrir honum, á djúp er hann dró en dáða hann aldrei lattir. Þú lífgar og hlúir með líknandi mund að langþreyttum, hröktum og þjáðum, og marga þú átt hefir andvöku stund þá aðrir sváfu í náðum. Þótt aldrei að verðleikum gjaldist þér gjöld þér gefast skal landsins sona þökk og virðing — um ár og öld — þú íslenzka sjómannskona. F. G. IKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKKHKHKHKí RONALD FANGEN EIRÍKUR HAMAR Skáldsaga 43 KHSÍHSCBSÍHSOÍHSÍHSÖ' — Og samt held ég, að þér blygðist yðar, sagði Eiríkur, þótt ekki væri af neinni annarri ástæðu, en að yður er ljóst að það myndi ekki auka álit yðar, ef alkunnugt yrði, hvers- konar störf þér hafið fengizt við. Fylkir brosti vorkunnsamlega: — Haldið þér mig það barn, að ég kæri mig um álit og viðurkenningu. — Viðurkenningu hvaðan og hverra? Hald- ið þér að mér sé ekki ljóst, hverskonar samfélagi við lifum og hrærumst í? Peningar eru alltaf í miklu áliti og fínir. Hamar, ef ekki í fyrstu umferð, Jiá að minnsta kosti í Jreirri næstu. — Það eru aðeins hlægilegar ósjálfstæðar mannskepn- ur, sem reika víðs vegar og þyrstir í almenningsálit, falleg blaðaummæli og Jressháttar. Þær lifa og hrærast á skóla- strákastiginu og eru smeykar um einkunnirnar sínar. Þess- háttar hefi ég enga Ji>örf fyrir. — Þér gerið peningana að algerlega hlutlausu hugtaki, og sarnt væru J)eir einkis virði, ef Jaeir væru ekki ímynd ájjreifanlegra verðmæta. Og áþreifanleg.verðmæti eru aftur háð mörgum siðrænum eiginleikum. — Já, Jretta virðist all-áheyrileg heimspeki, svaraði Fylkir kaldhæðnislega, en engu síður eru peningarnir í sjálfu sér áþreifánlegir, og Jieir una sér ef til vi 11 helzt hjá Jreim, sem aldrei hafa aflað sér verðmæta í yðar gjálfuryrta skilningi. Það eru aðeins afar fáir sem hafa vit á peningum, sem hafa eðilsávísun á þeim vettvangi, og þangað leita peningarnir. Og þeir menn beina peningum sínum á ný þangað sem Jreir una sér.vel, eða með öðrum orðum samkvæmt sérstöku pen- inga-siðgæði, sem er hátt upphafið yfir yðar tilfinningar og „verðmæti“. Það er Jressvegna sem ber og verður að útmá alla tiifinninganæma viðskiptamenn á fjármálavettvangi! — Þetta er nú samt ekki alveg óskeikult, sagði Eiríkur. Því að samkvæmt óhagganlegri eðliskvöt viðurkennir sam- félagið suma peninga og aðra ekki. Peningar okurkarla eru til dæmis ekki mikils virtir. — Eg neita Jdví ekki að til séu hleypidómar, og það sem Joér nefnið er heimskulegur hleypidómur. Okrararnir gegna gagnlegu starfi í mannfélaginu, og hve mjög sem Joeir eru fyrirlitnir, Jrá J^yrpast alltaf umsækjendur utan um Jrá. Þeir eru máttugir. Það eru allir peningamenn. Og álit Jrað sem þér talið um, Jrað fylgir peningunum, en ekki persónunum. Þér getið veitt því eftirtekt, að Jrað eru alltaf Jjeir sem óheppnir hafa verið í fjármálum, sem látlaust predika sið- gæði. Drottinn minn dýri, þeir hafa eitthvað sér til huggun- ar, en gera með þessu alla aðra leiða á kjaftæði sínu,. því Jrað eina sem fullorðnir skilja, er að peningarnir eru hátt upp hafnir yfir allar þessar barnalegu siðfræðilegu hug- myndir. — Þér talið öldungis eins og Joér ættuð ekki snefil af mannlegri sögu, Fylkir lögmaður. Það hefir bæði glapið mér sýn og valdið mér gremju, að Jrér hafið svo algerlega útmáð hvern vott um uppruna yðar. — Það stafar af því eingöngu, að ég fyrirlít hinn meðal- mennskulega norska kaupsýslumann, sem vissulega á að græða fé, en einnig jafnvissulega hlaða utan að sér öllum sína erfða- og áunnu ónothæfu siðgæðishugmyndum, sem aldrei koina að neinu haldi. — Þér eruð Joá með öðrum orðum algerlega utangátta samfélagslega, sagði Eiríkur. Fylkir svaraði stuttur í spuna: — Já, mér myndi vera alveg sarna, hvar ég væri, að Joví undanskildu að Jrað er alltaf uppörvun og hvatning í því að vinna þar, sem manni fyrst og fremst hefur liðið illa, og þar sem fólk er að meðaltali svo framúrskarandi heimskt á hinn bóginn. — Þér hafið Joá í raun og veru algerlega stjórnleysingja heimsskoðun. — Þér finnið yður ekki tengdan við nokkurn skapaðan hlut. Yður mætti því vera nokkurnveginn alveg sama, hverskonar samfélagi þér lifðuð í, og hvernig okkar eia;ið samfélasfi ves;nar. O o o — Já, Sagði Fylkir, — Jretta barnahjal að velta fénu, Jjað tek ég ekki sérlega alvarlega. Það gæti ef til vill valdið nokkrum erfiðleikum skamrha liríð, en mínir peningar munu gæta sín vel, og þótt hinir stjórnandi þjóðbyltingar- merin geti skipað öllu öðru og látið það skrölta um hríð, þá strandar Jrað ætíð á Joví, að þeir hafa ekki vit á pening- um, Jdví það hefir enginn Jressara rugluðu tilfinningablesa. Og þá er þörf fyrir fjármálamanninn. Hans er ætíð þörf. Og mjft vérður ætíð Jrörf. Og sem sagt, Hamar, ég hélt að a þér hefðuð rétta hörku í starfinu. Árum saman varð ég ekki var eins einasta rangs viðbragðs hjá yður. Þér gerðuð ná- kvæmlega það sem gera átti, og eins og Jaað átti að gera. — Já, það er satt, sagði Eiríkur, það stafaði af Jdví að ég var sljór. — En nú eruð þér Joá vaknaður, sagði Fylkir með snögg- um, stuttum hlátri. Segið mér hreinskilnislega, Hamar, haf- ið þér orðið ástfanginn? Ég hefi verið að velta því fyrir mér, hvort Jrað myndi vera eitthvað Jaessháttar, sem væri að yður. — Jafn hreinskiínislega svarað: Það kemur yður ekkert við! — Nei, nei, nei, við vorum aðeins eftir atvikum farnir að tala hreinskilnislega, en því má ekki ofbjóða, það er alveg rétt hjá yður. — En hamingjan góða, sagði Eiríkur, hve þér hljótið að þjást af huggunarlausum leiðindum með yður sjálfum. — Nú gæti ég svarað með yðar eigin orðum: — Það kem- ur yður ekkert við, en ég ætla að halda áfram í hreinskilni, og ég fullvissa yður um,- að mér líður á allan hátt alveg framúrskarandi vel. Ég hefi takmarkað mitt svonefnda einkalíf, eins og mér er frekast unnt. Þér mynduð vera léleg- ur sálfræðingur, ef þér skylduð halda, að ég sé einskonar siðgæðislegur lausalopi. Þvert á móti, ég J^ykist mega segja að ég sé nokkurn veginn laus við allt jnað, sem í daglegu tali telst lestir. Skilyrði mín í því tilliti hefi ég beitt róttækri hörku. Og ég fullvissa yður um að það er óviðjafnanlega miklu fróðlegra að athuga þetta hjá öðrum. Ég hefi því raunverulega aldrei byrjað nýjan dag spenningarlaust. Ég hefi alhliða útsýn yfir mannleg fyrirbæri hérlendis og get því daglega fylgst með fróðlegum sjónleik og skemmtileg- um, sem auk Jiess hefir Jjann kostinn, að allt sem Jrar fer fram er ótvírætt sat.t. — Hvaðan hafið Joér alla yðar miklu manriþekkingu? spurði Eiríkur. — Látum nú eitthvað fá að vera mitt eigið leyndarmál, svaraði Fylkir undirhyggjufullur. Ég mun aðeins svara því almennt, að því er eins farið með Jressháttar mannþekkingu eins og peninga: — Hún leitar þangað sem henni er unnað, og þar sem skilningur fyrirfinnst á því að hagnýta hana skynsamlega. Fylkir stóð skyndilega upp og gekk fram að dyrum fram- skrifstofunnar og opnaði þær. Hann nam staðar í dyrunum. — Sjáið þér nú allt það, sem þér hafið yfirgefið, Hamar, — en mér annars til mikillar gleði. Hér uni ég mér alveg dásamlega. Hér hefir allt tætzt eins og ég vonaði. Og ég get fullvissað yður um, að nú fara fróðlegir tímar og forvitni- legir í hönd, og margt furðulegt mun henda bæði hér heima og úti um víða veröld. Ég sem bý að mínum fróðleik og get hælt mér af því að hafa áreiðanlega og glögga innsýn um óorðna viðburði, sé Jrað fyrirfram að fjöldi mjög virtra og hátt metinna manna mun hrapa, en ég mun ekki lirapa, og einmitt Jressvegna mun álit mitt, — sem Jaér hafið svo miklar áhyggjur af, - aukast og hækka. Ekkert hefði verið Jjví til fyrirstöðu, að þér hefðuð getið fengið að fylgjast með, því að hefðuð þér haldið áfram að vera eins og J>ér voruð í upphafi, hefði ég haft yðar fulla þörf. En nú er ekki að fást um Jntð. Þegar þér kornuð fram á fundinum til hags- muna fyrir Bjart, voruð Jrér bæði duglegur og hugrakkur, en það var afskaplega æsandi, að Jrað var samtímis auðséð, að Jrér eigið heima meðal amlóðanna og skussanna hérlend- is, sem kjósa fremur lítinn fánýtan svonefndan siðgæðisleg- an sigur og spilla þar með allri framtíð sinni, heldur en að fylgja þeirri eðlishvöt, að tilfinningar snerti alls ekki við- skiptamál. Þessvegna sagði ég þar, og það kaldhæðnislaust, að í yður færi mikill kraftur til spillis, því að sé afstaða manns ekki rétt, hvað stoðar Jrá að vera góðum hæfileikum gæddur! Eiríkur sat og virti fyrir sér grannvaxna og unglega glæsi- mennið í dyrunum, og síðan skrifstofurnar Jrar sem hann hafði gengið út og irin árum saman, og enn á ný dáðist hann að Fylki. Hann hafði rétt að mæla. Við hlið hans hafði Eiríkur gengið samfeta öll sín sljóleika-ár. Sá var að- eins munurinn á Jreim tveim, að Fylkir vissi hvað hann hafðist að, og að Eiríkur gat ekki lengur gert Jiað, er honum loks varð ljóst, hvernig honum væri varið, og í hverju Jrað væri fólgið sem honum væri nokkurs varði. En Fylkir vissi sannarlega hvað hann gerði. Og hvernig gæti Eiríkur and- mælt honum. Hann hafði jafnrétt fyrir sér og Eiríkur. Það væri barnalegt að beita einhverjum siðgæðishugleiðingum, sem ættu að vera jafngildar fyrir Fylki sem fyrir sjálfan hann. í raun og veru lægju öll siðfræðihugtök eins og dauð og ónothæf lnúga, unz þar kærni að hraustur maður og hugaður sem kysi sér jrað, sem hann þarfnaðist og mótiði Jrað samkvæmt dýpstu Joörf lífsorku sinnar. Við Jdví væri ekkert að gera, og Eiríkur sagði: — Ég hefi lært mikið hjá yður, Fylkir lögmaður. Yður virðist ég heldur aumur og lítilmótlegur, og ég vil hrein- skilnislega játa, að ég dáist að yður. Því verður ekki neitað, (Framhald)'.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.