Dagur - 10.06.1965, Qupperneq 7
7
Ný efnarannsóknarstofa fyrir landbúnaðinn
(Framhald af blaðsíðu 1).
íngu við bændurna á sviði rækt
unar og heyöflunar. Ræktunar-
félagið hafði ekki nóg fé undir
höndum til að koma þessari
stofnun á fót, en ýms fyrirtæki
hlupu undir bagga. Fyrir utan
framiag Ræktunarfélagsins, sem
var 370 þús kr. gaf KEA 250 þús
kr., SÍS lagði fram 300 þús. kr.
til tækjakaupa í tilefni afmælis
síns, Kaupfélag Þingeyinga mun
leggja til 100 þús. á næstu fjór-
um árum og búnaðarsambönd-
in, Kaupfélag Skagfirðinga og
kaupfélögin í Húnavatnssýslum
munu einnig leggja fram sinn
skerf. Samanlögð munu fjárfram
lög vera um ein millj. kr.
Til forstöðu Efnarannsóknar-
stofu Norðurlands var fenginn
Jóhannes Sigvaldason. Hann er
útskrifaður í Lanbúnaðarháskól
anum í Kaupmannahöfn, þar
sem hann lagði síund á jarð-
vegs og næringarfræði. Rann-
sóknarstofan er til húsa í Efna
verksmiðjunni Sjöfn á Akur-
eyri. Þar verða aðeins fram-
kvæmd efnarannsóknarstörf, en
öll grófari störf verða framkv.
í húsnæði Búnaðarsambands
Eyjafjarðar á Gleráreyrum.
Þetta fyrirtæki markar ótví-
ræð tímamót í sögu hins norð-
lenska landbúnaðar, eins og Til-
raunastöðin gerði á sínum tíma
í grasrækt og skógrækt. Með
náinni samv. við bændur, von-
ast stjórn Efnarannsóknarstofu
Norðurlands til þess að gera
þeim Ijóst, að nú á tímum verð
ur landbúnaður ekki byggður á
brjóstviti einu saman heldur á
vísindalegri undirstöðu, þekk-
ingu og rannsóknum. Stofnunin
vill reyna að bjarga verðmætum
og e.t.v. mun hún gefa aftur
margfaldlega það, sem til henn
ar er varið.
Gjald fyrir efnagreiningar og
ráðleggingar verður í samræmi
við taxta Atvinnudeildar Há-
skólans.
Stofnunin er sjálfseignastofn
un, en stjórn hennar en undir
umsjá Ræktunarfélags Norður-
lands. Stjórn rannsóknarstofunn
ar skipa: Steindór Steindórsson
frá Hlöðum, Ólafur Jónsson
ráðunautur og Jónas Kristjáns-
son samlagsstjóri.
MOKAFLI AF SILD A AUSTURMÍÐUM
(Framhald af blaðsíðu 1).
að, Jörundur III með 2000 mál
og Loftur Baldvinsson með 12—
1300 mál.
FYRSTA SÍLDIN TIL
HJALTEYRAR
Samkvæmt upplýsingum frá
síldarverksmiðjunni á Hjalteyri
mun bræðsla hefjast þar á föstu
daginn kemur. Síldarflutninga-
skipið, Askita, kemur um miðj
an mánuð og veður þá sett í það
ný síldardæla, japönsk að gerð,
sams konar og er í Höfrungi III
Fyrsta skipið kom í fyrrinótt,
Vigri GK með 1231 mál og Helgi
Flóventsson kom litlu síðar með
um þ. bl. 1200 mál. Síldin veidd
ist um 130 mílur út af Langa-
nesi.
GLAFURBEKKUR
FYRSTUR
Ólafsfirði, 9. júní. Ólafur Bekk-
ur kom með fyrstu síldina til
Ólafsfjarðar í gær, 827 mál. Þor
leifur kom með 284 mál og Skag
firðingur kom tvisvar með 300
og 150 mál. Bræðsla er hafin.
Það er alltaf sama aflatregðan
hjá trillunum og hyggja nú sum
ir á snurvoð. B.S.
Af sérstökumi ástæðum
eru til sölu 3 árgangar af
„VIKUNNF, innbundið.
Verð aðeins kr. 1700.00.
Upplýsingar gefur
Gunnar H. Tryggpason,
útibússtjóri K.E.A.,
Glerárhverfi.
STÖÐUGLÖNDUN Á
RAUF ARHÖFN
Raufarhöfn 9. júní. Hér hefur
verið stöðug löndun síðan fyrir
Hvítasunnu og búizt er við að
þrærnar hjá síldarverksmiðj-
unni fylist í dag. Bræðsla getur
ekki hafist í þessari viku vegna
þess að ísinn tafði allar skipa-
ferðir til okkar í nærfellt þrjá
mánuði. 18 tonna ketill, sem áttj
að fara til verksmiðjunnar, var
loks fluttur landleiðina og er nú
kominn. Unnið hefur verið við
að skipa út 700 tonnum af fiski-
mjöli í hollenzkt skip, sem nú er
farið. Þá er unnið við að skipa
upp tunnum. Líklega verður
byrjað að salta seinast í þessum
mánuði. Hér er sólskin og blíða
12 stiga hiti, en frysti samt í
nótt. H.H.
LÖNDUNARBIÐ Á
REYÐARFIRÐI
Reyðarfirði 9. júní. Fyrsta síld-
in kom hingað 29. fyrra mánað-
ar, Halkion með 1700 mál og
Helga Guðmundsdóttir með 1150
mál. Nú eru allar þrær orðnar
fullar. Bræðsla hófst í gær en
verið er að steypa ofan á nýju
bryggjuna svo að ekki verður
unnt að taka á móti síld í bili.
V. S.
| . 7
? Alúðar þakkir frcri ég öllum, scrn glödclu mig f
£ fertugan. — Guð borgar fyrir hrafninn. t
¥ ^ §
| FRIÐJÓN KRISTINSSON. *
Framlög í Davíðshús
SAFNAÐ í Neskaupstað krónur
11740. Bjarni Þorsteinsson Borð
eyri 500. Safnað af Svövu Jóns-
dóttur, Hveragerði, 5000. Safn-
að í Glæsibæjarhreppi af Árna
Hermannssyni og Stefáni Hall-
dórssyni 2200. Safnað í Dala-
sýslu af Bjarna Finnbogasyni
3650. Safnað á ísafirði af Berg-
þóru Eggertsdóttur og Maríusi
Helgasyni 7005. Innk. á Davíðs
kvöldi á Húsavík 2650. Safnað
af Halldórj Pálssyni, Reykjavík
1300. Safnað á Dalvík 17575.
Safnað af Jórunnj Oddsdóttur,
Eyrarbakka 2141,50. Safnað
af Morgunblaðinu, Reykjavík
10570. Safnað af Guðmundi Ei-
í-íkssyni, Raufarh. 8200. Kven-
félagið Aldan 3000. Sólveig
Rögnvaldsdóttir 500. Safnað af
Þóru Jóhannsdóttur, Sauðár-
króki (viðbót) 400. — Safnað
af Magnúsi Jónssyni, ráðherra:
Jóhann Hafstein 1000. Ásgeir
Pétursson 1000. Sig. Ágústsson
1000. Matthías Bjarnason 1000.
Sigurður Bjarnason 1000. Matt-
hías Á. Mathíesen 500. Jónas G.
Rafnar 1000 og Magnús Jónsson
1000. — Beztu þakkir. — Söfn-
unarnefndin.
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju n.k. sunnúdag kl. 10,30
f. h. Sálmár nr. 4, 52, 114, 105
og 684. — B. S.
KA-félagar, komið á skrifstof-
una, Hafnarstræti 83, og greið
ið árgjöldin. Opið er kl. 5—7
daglega. — Knattspyrnufélag
Akureyrar.
FERÐIR í SKÍÐAHÓTELIÐ —
Virka daga frá L og L kl. 13,30
og 21,30. — Frá Skíðahótelinu
kl. 14,30 og 23,00. ;— Laugar-
daga frá L og L kl. 13,30 og
18,00. Frá Skíðahótelinu kk
14,00 og 18,30. — Sunnudaga
frá L og L kl. 10,00, 13,30,
18,00 og 21,30. Frá Skíðahótel
inu. kl. 10,30, 14,00, 18,30 og
23,00. — Hópferðir s.f.
FRÁ LEIKFÉLAGI AKUREYR
AR — Aðalfundur Leikfélags
Akureyrar, fyrri hluti, verður
haldinn í leikhúskjallaranum
föstudaginn 11. þ.m. kl. 8,30
e.h. — Venjuleg aðalfundar-
- störf. Stjómin.
HJÓNEFNI. — Á hvítasunnu-
dag opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Ásgerður Ragnarsdótt
ig forstjóra í Sjöfn og Gunn-
ar Eydal.
HJÚSKAPUR: — Laugardag-
inn 5. júní sl. voru gefin sam-
an í hjónaband af sóknarprest
inum í Grundarþingum, ung
frú Eyrún Selma Jónsdóttir
Valdemarssonar úr Hrísey og
Bjarni Benedikt Kristjánsson,
kennari, frá Sigtúnum í Eyja-
fyrði. — Á hvítasunnudag
voru gefin saman í hjónaband
af sóknarprestinum í Grund-
arþingum, ungfrú Halldóra
Vilhjálmsdóttir frá Steinnesi
í Neskaupstað og Haraldur
Friðrik Bjarnason, iðnnemi,
Oddeyrargötu 28, Akureyri.
S.l. laugardag voru gefin sam
an í hjónaband í Akureyrar-
kirkju brúðhjónin ungfrú Inga
Olafía Haraldsdóttir cand phil
Goðabyggð 2 Akureyri og Jón
Gunnar Gunnlaugsson stud.
Oecon. Hofi á Álftanesi. — Á
Páll og Tímamyndin
í GÆR birtist í Tímanum
mynd af Stefnisbílnum A-704,
sem sagt var að ekið hefði verið
út af á veginum milli Sveina-
tungu og Fornahvamms. Bíl-
stjórinn, Páll Ásgeirsson frá Ak-
ureyri, segist vita betur en
þarna var frá skýrt. Bíll hans
stendur á miðjum vegi og sökk
þar í forarpytt með löglegan
þunga á palli, en um útaf-
keyrslu var hér ekki að ræða,
og eru orð Páls ekki véfengd
hér. — Þetta atvik er því vott-
ur um ástand vegarins en hæfni
bílstjórans. □
- STÓRIÐJUMÁLIÐ
(Framhald af blaðsíðu 8).
menn ættu sæti í þingmanna-
nefndinni. Var þetta furðuleg af
staða, sem e'ridaði í hringsnún-
ingi, eins og fleiri hjá þessari
ríkisstjórn. Þetta er gott dæmi
þess hve stjórnin er oft reikul
í ráði og hún er það ekki síður
í stórmálum.
Sýsliifundur Eyjafj.s.
var haldinn dagana 24.—28. maí
sl. — Til vega í sýslunni voru
áætlaðar kr. 683000,- Til mennta
mála kr. 184500,- Til heilbrigð-
ismála kr. 109000,- Til búnaðar
mála kr. 278000,- — Þá var á-
kveðið að láta prenta viðauka
við núgildandi markaskrá sýsl-
unnar.
I.O.G.T. sí. ísafold—Fjallkonan
no. 1. — Fundur að Bjargi
fimmtud. 10. þ.m. kl. 8,30. —
Fundarefni: Vígsla nýliða, —
Hagnefndaratriði. — Eftir
fund, kvikmynd og kaffi. Æt.
HLÍFARKONUR: — Munið
skemmtiferðina sunnudaginn
13. júní. -— Farið verður frá
Lönd og Leiðum kl. 9 árdeg-
is. Nefndin.
AHEIT Á MUNKAÞVERÁR-
KIRKJU. Frá ónefndum kr.
200.00. — Kærar þakkir —
Sóknarprestur.
Refir heima við bæi
Stórutungu 9. júní. Veðráttan
hefur verið hagstæð í vor, still-
ur miklar og úrkomulaust. —
Sauðburður gekk yfirleitt vel
og skepnuhöld góð. Á stöku
stað bar á óhreysti í lömbum,
og að ær létu lömbum. Nú er
fé sleppt af túnum, sem höfðu
mjög verið beitt er gróa tók, en
annars ám gefið fóður úti. Verið
er að bera áburð á tún og sumir
hafa þegar lokið því. — Mjólk-
urflutningum er haldið uppi
svipað og að undanförnu.
Allmikið verður vart við ref,
jafnvel heima við bæi, en ekki
hefir hann gert skaða enn sem
komið er.
Mánudaginn 6. þ. m. áttu
silfurbrúðkaup hjónin Jónína
Egilsdóttir og Gústaf Jónsson á
Rauðafelli. í tilefni þess buðu
þau sveitungum heim og veittu
af rausn. Þ. J.
- ER VIÐREISNARKRÓNAN ÓNOTHÆF?
(Framhald af blaðsíðu 4).
Fyrir 5—6 árum hefði áreiðanlega engum ráðherra jress-
arar ríkisstjórnar dottið í hug að hreyfa slíkri breytingu.
En sannleikurinn er sá, að á þessum 5—6 árum hefur
verðgildi krónunnar, í stað þess að standa stöðúgt eins og
gert var ráð fyrir, farið hraðminnkandi. I>ær ráðstafanir,
livítasunnudag var systrabrúð
kaup í Akureyrarkirkju Brúð
hjónin ungfrú Sigrún Kristj-
ánsdóttir og Jónas Stefánsson
blikksmíðanemi. Heimili
þeirra er að Stórholti 6 Akur-
eyri og ungfrú Hildur Kristj-
ánsdóttir og Hjálmar Vigfús-
son húsasmíðanemi. Heimili
þeirra er að Hringbraut 77,
Húsavík.
HJÚSKAPUR. Hvítasunnudag
voru gefin saman í hjónaband
í Akureyrarkirkju ungfrú
Birna Kristjana Jónsdóttir og
Þorsteinn Áskelsson trésmið-
ur. Heimili þeirra verður að
Bjarmastíg 10, Akureyri. —
Sama dag voru gefin saman í
Akureyrarkirkju ungfrú Sól-
ey Hansen og Sigurjón Karl
Vignir Kárason múraranemi.
Heimili þeirra verður fyrst
um sinn að Glerárgötu 2B,
Akureyri.
Akureyri—Þórshöfn
Tvær ferðir í viku
á mánudögum og
O O
fimmtudögum.
úr striga, nylon og
terylene.
NYLONFÓÐUR
sem áttu að vernda krónuna, liafa reynst gagnslausar svo
að ekki sé meira sagt. En það skyldu menn hafá hugfast,
að ný gjaldmiðilseining er engu færari um það en gamla
krónan, að vernda sig sjálf. Það er ekki nafn eða stærð
gjaldmiðilsins, scm skiftir aðalmáli í þessu sámbandi, held-
ur stjórnarstefnan og meðferð efnahagsmála á hverjum
tíma.
Það er ekki gömlu krónunni að kenna, hvemig „við-
reisnarstjórnin“ svonefnda hefur farið.að ráði sínu. □
í miklu úrvali.
MARKAÐURINN
Sími 11261
AUGLÝSIÐ í DEGI