Dagur - 18.09.1965, Blaðsíða 1

Dagur - 18.09.1965, Blaðsíða 1
Ðagur kemur út tvisvar í viku og kostar kr. 25,00 á mán. í lausasölu kr. 4,00 - ......— ■ ■"- Nýjar sfúlkur með hverri ferð Raufarhöfn 17. september. Hér er búin að vera ágæt síldar- hrota í meira en viku og stend- ur ennþá. Hingað kemur fólk, einkum síldarstúlkur, daglega með flugvélum. T. d. komu einn daginn 10 konur frá Sand- gerði. Annars vantar fólk til- finnanlega. Skólafólkið, sem margt var hér í sumar, getur ekki komið nú. í síldai'verksmiðjunni eru nú þriðjungi færri menn en í sum- ar og eiga því langan vinnudag. Verksmiðjan hefur tekið á móti 180 þúsund málum. Búið er að salta í 37 þúsund tunnur, þar af 12 þúsund þessa síðustu daga. Síldin veiðist nú einkum á svæði, 60—100 sjómílur nox-ð- austur. En nokkur skip fengu veiði mun nær, eða 30 sjómílur út, nú um miðja vikuna. Hér hefur tæplega stytt upp í viku. Er því öll vinna, m. a. síldarsöltun, mun erfiðari en annars væri. Sú síld, sem hér er söltuð, er ákaflega misjöfn. Nýting til söltunar er mest 50%. H. H. | LÍF [ GAMLA SÍLDARBÆNUM | Saltað hefur verið á Siglufirði undanfarið Ilér erú sex fóstrur með þ«:á barnahópa. — Efs! til vinstri eru Soffía Sævarsdótir og Ragnhildur Ingólfsdóttir. í næsta hóp eru þær Fanny Jónsd ittir og Rósa Áskelsdóttir, með sinn hóp og neðst Svála Tómasdóttir og Jakobína Kjartansdóttir, með sinn barnahóp. (Ljósmynd: E. D.) BARNAHEIMILIÐ PÁLMHOLT LÝKUR STÖRFUM Þar hafa hundrað börn dvalið í sumar og unað mjög vel hag sínum Siglúfirði 17. september. Siglu- fjarðarskarð er þungfært og þó gott, meðan það er ékki ófært. Engin næturf rost á Vopnafirði Vopnafirði 17. september. Þótt kuldar hafi gengið og hvítt sé í fjöllum, hefur kartöflugrasið enn ekki fallið. Búið er að salta í 2500 tunnur síldar síðustu dagana og í dag mun berast hingað meiri síld til söltunar. Heyskapur gengur fremur treglega hjá bændum og tölu- vert mikil hey úti, einkum upp sett. Heyfengur er talinn minni en fyrirfarandi ár og stafar það hæði af því, að víða var illa sprottið, og svo af þurrkleysi seinnipartinn í sumar. Sauðfjárslátrun hófst hér í dag og mun verða lógað um 14 þúsund fjár. Hafnarframkvæmdum hefur miðað allvel áfram í sumar og eru hafnarbæturnar, sem byrj- að var á í fyrra og fram haldið nú, að koma í gagnið. Allir vegir eru færir að og frá Vopnafirði. En tæplega munu þeir góðir yfirferðar eftir allar rigningarnar og krap mun á sumum leiðum, sem hátt liggja yfir sjó. K. V. Vonandi verður þess langt að bíða, að Skarðið verði okk- ur sá Þrándur í Göty, sem það hefur jafnan verið mikinn hluta ársins, og á ég þar við jarðgöngin gegn um Stráka, sem nú er unnið aS og mun létta umferðinni af Siglufjarðar skarði. Þar er unnið frá kl. 7 að mcrgni til 7 að kveldi, en vaktavinna er enn ekki hafin, svo sem gert var ráð fyrir í upphafi. Samt sækist verkið vel. í hverri sprengingu lengj- ast göngin um 3 til 4 metra. Það hefur enn á ný færst h'f í gamla síldai'bæinn okkar, því nú er söltuð síld. Að vísu er ekki um mikla söltun að ræða, en hvert þúsundið er síldar- saltendum og verkafólkinu mik ils virði. Fólksekla hamlar enn ekki söltun, því ekki heíur síld- (Framhald á blaðsíðu 2). Á MIÐVIKUDAGINN lauk sumardvöl bai-na í Pálmholti við Akureyri, en þar hafa 100 börn verið á dagheimili í sum- ár, í umsjá 11 starfsstúlkna. Kvenfélagið Hhf, sem er 58 ára gamall félagsskapur, heíur annast þennan rekstur um 16 ára skeið. Félagið nýtur þakk- lætis fjölda bæjai'búa fyrir þetta starf. Mánaðardvölin í Pálm- holíi kostar 1000 krónur cg er þar í innifalinn flutningur barn- anna heiman cg heim. Hvernig það er hægt, veit ég ekki og annað mun hér ráða en aiðs- vonin. Formaður Kvenfélagsins Hlíf ar er frú Jónína Steinþórsdótt- ir, en formaður dagheimilis- nefndar er frú Kristín Péturs- dóttir. Ráðskona um 14 ára skeið er frú Sigurlaug Péturs- dóttir. En forstöðukona Þoi'- björg Pálsdóttir. Sumar fóstr- urnar hafa starfað þai'na árum saman. Fréttamaður Dags skrapp upp í Pálmholt síðdegis á mið- mikudaginn. — Barnahópai'nir, ásamt fóstiunum, voi'u þá að leggja af stað í bæinn í eins konar skrúðgöngu, greidd og þvegin. Þann dag voiu þau að kveðja sumardvalai'stað sinn og höfðu þau verið leyst út með gjöfum. Án þess að hlaða oflofi á kon- ur og án kunnugleika á Barna- heimilinu Pálmholti, rekstri þessum og daglegum háttum, mun óhætt að benda á óeigin- gjörn störf margra kvenna í þvi sambandi og að þau störf haíi borið gæfuríkan ávöxt. □ NÝ BÓK EFTIR HALLDÓR LAXNES KOMIN er út ný bók eftir Halldór Laxness. Heitir hún „Upphaf niannúðarstefnu“ og er safn ritgerða. Ritgerðirnar, sem eru 32 að tölu, hafa flestar verið skrifaðar fyrir erlend blöð og tímarit og aðeins fáar þeirra komið fyrir augu ís- lenzkra lesenda áður. □ Enn eitt flugfélag FREGNIR hernia, að Albert Guðmundsson stórkaupmaður í Reykjavík, — fyrrum frægur knattspyrnumaður, — hafi í hyggju að kaupa tvær farþega- þotur til áætlunarferða milli Reykjavíkur og Lundúna. Nýtt flugfélag er ekki stofnað, en Albert hefur upplýst, að það sé í athugun milli sín og brezkra aðila, að stofna slíkt félag, ef nauðsynleg fyrirgreiðsla fáist. Til vinstri: Edda Pétursdóttir, Sigurlaug Pétursdóttir. Til liægri: Aðalbjörg Áskelsdóttir og Þor- björg Sigurðardóttir, ásamt elztu drengjunum. Að ofan er Páhnholt. (Ljósmynd: E. D.)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.