Dagur - 30.10.1965, Side 1
Dagur
SiivIAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
Grsmseyingar kynna sér
meðferð björgunartækja
Grímsey 29. október. — S. S.
ERINDREKI frá Slysavarnar-
félaginu, Hannes Hafstein, kom
hingað og kenndi mönnum með-
ferð slysavarna- og björgunar-
tækja. Á meðan var ekki farið
á sjó, því allir sjómenn settust
á skólabekk.
Snjóföl er á jörð, en veður
ágætt og bátar á sjó í dag. —
Sæmilega aflast, þegar á sjó er
farið.
Haustslátrun er lokið og bú-
ið að salta það kjöt, sem bænd-
ur hafa til innleggs hjá kaup-
félaginu. En heimaslátrun er
hjá sumum ólokið ennþá. Féð
er fremur vænt. □
Rafmagn á al!a bæi í Svarfaðardal
Síðustu bæirnir fengu rafmagn í gær
LOUISE-VATNIÐ fagra í Klettafjöllum.
Sjá viðtal á blaðsíðu 4 og 5.
FÉÐ MÁ EKKI LEGGJA AF
segir dr. Halldór Pálsson búnaðarmáiastjóri
f GÆR var ætlunin að tengja
fimm bæi í Skíðadal Laxárvirkj
un. Með þeim áfanga er raf-
LÁGU í GANGNA-
MANNAKOFA
Þórshöfn 29. október. — Ó. H.
BÆNDUR eru nú í síðustu
göngum. Þeir fóru á þriðjudag
og lágu í gangnamannakofa í
fyrradag. Þeir munu koma í
dag. — Rjúpnaskyttur þóttust
hafa séð allmargt fé á heiðinni,
sem góðviðrið hefur lokkað
þangað nú í haust. — Ekki er
búizt við því, að um óheimt fé
sé að ræða, svona að óreyndu.Q
SÚ SAGA flaug um bæinn, að
Ásgrimi Þorsteinssyni, Aðal-
stræti 74 á Akureyri hefði ver-
ið neiíað um það í Grímsey, að
MERKIR MENN
LÁTNIR
Blönduósi 29. október. — Ó. S.
BRÁÐKVADDUR varð um síð-
ustu helgi, Hermann Þórarins-
son útibússtjóri Búnaðarbank-
ans, oddviti Blönduósshrepps,
52 ára að aldri Hann var mað-
ur vinsæll og hið mesta glæsi-
menni. Útför hans verður gerð
á morgun. 1 nótt lézt hér í
sjúkrahúsinu Jónas Bjarnason
frá Litladal í Svínavatnshreppi,
nærri tíræður að aldri. Hann
var samvinnufrömuður, bjó í
Liíladal á unga aldri, en átti
síðan lengi heima hér á Blöndu-
ósi. Hann var um skeið forstj.
Sláturfélags Austur-Húnvetn-
inga.
Hér er stillt veður og bjart í
dag, lítilsháttar föl á jörð og
hálka á götum. □
magn komið á hvern bæ í
Svarfaðardalshreppi. Þar af
hafa enn nokkrir bæir sérstak-
ar heimilisrafstöðvar. Er þetta
hin ánægjulegasta framkvæmd
og sitja allir við sama borð í
þessu efni. Rafvæðingin er að
vísu dálítið á eftir áætlun, en
Svarfdælingar munu þó fagna
þessari framkvæmd af heilum
hug, og eru þakklátir þeim, sem
á margan hátt hafa að unnið.
Búið er að steypa og þekja
nýja viðbygingu við Iiúsabakka
skólann í Svarfaðardal. Er hér
um að ræða 1800 rúmmetra
byggingu, sem talin var brýn
þörf á. Þessi framkvæmd kost-
ar nú 1,4 millj. kr. □
seíjast þar að, er hann var
þangað kominn með búslóð sína
íyrir hálfum mánuði síðan.
Blaðið hitti Ásgrím í gær og
spurði hann um, hvað sannast
væri í þessu máli. Hann sagði
söguna vera sanna. Hefði hann
leitað eftir húsnæði í Grímsey
og trevst því, að þangað gæti
hann flutt, þegar þar að kæmi.
En þegar hann svo, fyrir hálf-
um mánuði, tók sér flugfar til
Eyjarinnar og sendi sama dag
búslóð sína alla með póstbátn-
um, hafi sér verið neitað um að
flytja þangað og hótað því af
oddvita eyjarinnar, að ef hann
ekki færi samdægurs með póst-
bátnum, yrði hann, af yfirvald-
ínu, tekinn með valdi og flutt-
ur um borð. Þá hefði verið lagt
bann við því, að upp væri skip-
að búslóðinni. En málið væri
nú í höndum bæjarstjóra og
bæjarfógeta, góðra manna, sem
myndu rétta hlut sinn. Sagð-
ist hann aldrei fyr hafa komizt
í annað eins og ætti sh'k með-
ferð betur við glæpamenn en
þá, sem frjálsir gengju.
BLAÐID náði tali af búnaðar-
málastjóra, dr. Halldóri Páls-
syni, í gær og spurði hann
frétta af sviði landbúnaðar-
mála.
Slátrun sauðfjár er víðast
lokið, sagði hann, en um fjölda
sláturfjár á þessu hausti eru
engar fullnaðartölur komnar
ennþá, og ekki heldur um væn-
leikann. Yfirleitt stefnir í þá
átt, að fé fjölgi. Áhugi á því
hefur raunar lengi verið fyrir
Ásgrímur Þorsteinss. á son í
Grimsey og unnustu, tjáði hann
blaðinu. — Að þessu athuguðu
virðist hér um óvenjulegt atvik
að ræða, sem ætti að heyra for-
tíðinni til. Hinsvegar mun hús-
næði það, sem Ásgrímur treysti
á að fá til afnota í Grímsey,
hafa brugðizt. Og nú er Ásgrím
ur kominn til sama lands, —
reynslunni ríkari og hugleiðir
mál sín. Fylgzt verður með
framvindu þess, sem gæti orð-
íð hin sogulegasta, ef sýslumað-
ur skerst í málið fyrir alvöru,
og Grírr.seyingar halda fast við
áíorm sín □
Húsavík 29. október. — Þ. J.
SAUÐFJÁRSLÁTRUN lauk á
Húsavík 16. október og var 3óg-
að 32436 kindum, eða á þriðja
þúsund fleira fé en í fyrra. —
Meðalvigt dilka að þessu sinni
varð 14,45 kg.
Þyngsta dilkinn átti Haukur
Aðalgeirsson á Grímsstöðum í
hendi meðal bændanna og eykst
vegna breyttra verðhlutfalla
milli mjólkur og kjöts. En
breyttir búhættir, eins og þeir,
DR. HALLDÓR PALSSON.
sem hsr um ræðir, gerast ekki
allt í einu, sagði búnaðarmála-
stjóri. Og nú biða memi eítir
nýrri löggjöf frá Alþingi um
verðlagsmálin.
Tvennt er það einkum, sem
ég vil benda sérstaklega á
núna, sagði dr. Halldór Pálsson.
Mývatnssveit og vóg hann 27
kg.
Að sauðfjárslátrun lokinni
hófst stórgripaslátrunin og var
319 lógað, mest nautgripum.
Sýnt þykir, að bændur séu
þegar farnir að fjölga fé sínu í
sýslunni og stafar það eflaust
af verðbreytingunni milli kjöts
og mjólkur síðustu árin. Q
Annað er það, að láta sauðfé
ekki leggja af á næstunni, en í
sumum landshlutum er þessa
ekki gætt nægilega vel og féð
látið liggja úti í illviðrum langt
fram eftir vetri, jafnvel þar sem
landkostir eru ekki nógu góðir.
Hitt er að trassa ekki að bólu-
setja á þeim svæðum, sem
garnaveiki herjar. Hyggilegt tel
ég að fóðra ærnar til mikilla af-
urða, svo sem mjög víða er nú
farið að gera, og fá ærnar tví-
lembdar.
Að þessu sinni eru bændur
sæmilega og víða mjög vel heyj-
aðir á svæðinu frá Austur-
Skaftafellssýslu að Norður-Þing
eyjarsýslu. En á Austurlandi
var hið versta ástand, sem kal-
nefndin svokallaða hefur haft í
rannsókn og síðan unnið að úr-
bótum með stóríelldum hey-
kaupum.
Um fóðrun kúnna, benti bún-
aðarmálastjóri á, að gefa þeim
á síðari hluta mjólkurskeiðsins
takmarkað kraftfóður. Sér léki
grunur á, að sú kraftfóðurgjöf
gæfi stundum lítið í aðra
hönd. □
Látlaus bræðsla
Seyðisfirði 29. október. Hér er
látlaus bræðsla beggja verk-
smiðjanna og enn er saltað á
tveimur plönum. En síldin er
seinsöltuð og fólk fátt til starfa,
enda verður naumast saltað
meira.
Enn virðist nóg síld vera í
sjónum og veiðist þegar gefur.
Undanfarið hafa margir bátar
verið inni. Allir vegir eru færir
enn þá. Þ. J.
JÓLABLAÐ DAGS
JÓLABLAÐ Dags er nú í und-
irbúningi. Þeir, seni senda ætla
því greinar til birtingar, ættu
að gera það sem fyrst. Q
Manni neitað um „landvisfaríeyfi" í Grímsey
og hann gerður afturreka með búslóð sina alla
Sauðfé fjölgar í S.-Þingeyjarsýslu