Dagur - 01.12.1965, Blaðsíða 1
axminster
gólfteppi
annað ekki
EINIR H.F
HAFNAHSTHÆTI 61 . SÍMI 115 36
XLVIII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 1. des. 1965 — 89. tbl.
HAFNARSTEÆTI 81 . SÍMI 115 36
Fullkomin ölgerð sett
á stofn á Akurevri
Mun hefja framleiðslu sína á næsta ári
STJÓRN SANA H.F. á Akur-
*eyri bauð í gær fréttamönnum
á sinn fund og tilkynnti, í til-
•efni af fréttum í sunnanblöðum
Tim fyrirhugaða ölverksmiðju
,-syðra, að hér á Akureyri væri
fullkomm ölgerð í undirbúningi
hjá Sana h.f. með aðstoð dansks
fyrirtækis kennt við Alfreð
•Jörgensen.
í fréttatilkynningu um þetta
■efni segir stjórn Sana h.f. m. a.:
„Málið er komið á lokastig og
hefur firmað Alfred Jörgensen
A/S, Kaupmannahöfn, tekið að
sér að reisa fyrirhugaða ölgerð,
útvega allar vélar og tæki, sem
eru þau nýjustu og fullkomn-
ustu, sem þekkist á heimsmark-
aðinum í dag. Enda hafa um-
bjóðendur okkar mjög mikla
reynslu í þessum málum og við-
urkenndir sem ágætir sérfræð-
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Lágu í sæluhúsi á Fjarðarheiði
'Seyðisfirði 30. nóv. Við erum
búnir að vera því nær mjólkur-
lausir í allt að viku tíma. Leið-
ir lokuðust og enginn snjóbíll
tiltækur. Tveir menn brutust
þó á ýtu héðan og voru 13 klst.
til Egilsstaða. Þá var vitlaust
veður á Fjarðarheiði. í baka-
leiðinni fóru þeir í sælukofa til
að hvíla sig og höfðu ýtuna í
hægagangi á meðan. Er þeir
lomu út, var ýtan ekki lengur
í gangi og hreyfillinn neitaði
■algerlega. Þrjú þúsund lítrar af
mjólk voru á ýtusleðanum.
Mennirnir máttu dvelja í kof-
anum á annan sólarhring, en
höfðu símasamband og leið ekki
illa.
Lagði nú önnur jarðýta upp á
Fjarðarheiði frá Seyðisfirði, en
komst ekki á ákvörðunarstað.
í gær fór Helgi vegaverkstjóri
frá Egilsstöðum gangandi upp á
Fjarðarheiði og yfir. Hann kom
ýtunni í gang hjá þeim félögum
í sælukofanum. Var nú haldið
til Seyðisfjarðar. í það sinn
komst ýtan og blessuð mjólkin
langleiðina, en strand'aði í Efri-
Stöfum, en mennirnir komust í
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Andapollurhin á Akureyri. (Ljósm.: E. D.)í
S$5Í$ÍSÍ555S55$555555555$S55$$55555$5555555555555$555Í555555$5555«55S5555535S55SS555555555555555555Í5S55555I
Nýlt húsnæði Keuplélags Húnvefninga
tekið í notkun fyrir Iielgi og þykir vandað
KAUPFÉLAG Húnvetninga á
Blönduósi tók hið nýja og glæsi
lega verzlunar- og skrifstofuhús
sitt í notkun fyrir síðustu helgi.
Nýll leilarskip lyrir síldveiðillotann
Veiðiflotinn og síldarkaupendur greiði stofn-
kostnaðinn, sem er áætlaður um 30 miiljónir
_Á AÐALFUNDI LÍÚ var ein-
lóma samþykkt eftirfarandi til-
laga, sem flutt var af fulltrúum
Útvegsmannafélags Eyjafjarðar
•og nágrennis:
Aðalfundur LÍÚ haldinn í
Reykjavík 25—27. nóv. 1965
"bendir á, að starfsaðstaða Jak-
•obs Jakobssonar fiskifræðings,
við stjórn síldarleitarinnar er á
•engan hátt viðunandi vegna
vöntunar á hentugu skipi. Þar
sem ekki liggur fyrir að hið
opinbera hafi tryggt fé til kaupa
á hentugu síldarleitarskipi, þá
samþykkir fundurinn að fela
stjói-n samtakanna að vinna að
því, að fjár verði aflað til kaupa
á nýju skipi, sem afhent verði
hinu opinbera til rekstrar. Skip
ið verði byggt eftir fyrirsögn
Jakobs Jakobssonar. Fjárins
verði aflað með því, að tekið
A NORÐURLANDI voru vegir
flestir illfærir en sumir ófærir
með öllu í gær. En byrjað var
að ryðja snjó af þeim, enda
breytt um veður. □
verði af aflaverðmæti síld-
veiðiflotans, og kaupendur síld-
arinnar greiði jafnhátt framlag
og útvegsmenn og sjómenn.
Fundurinn felur stjóm LÍÚ
að vinna að því að fá samstöðu
hjá samtökum sjómanna og síld
arkaupenda um þetta mál, og
að því fengnu óski hún eftir því
við ríkisstjórn og Alþingi, að
lög verði sett um innheimtu á
andvirði skipsins, en það gjald
standi þó eigi lengur en þar til
(Framhald á blaðsíðu 5)
BRÁÐUM KOMÁ SKÁTAR
LANDSMENN bregðast jafn
an vel við þegar til þeirra er
leitað fyrir einhverja þó,
sem bágt eiga, jafnvel þótt
þeir bágstöddu séu á öðrum
heimshornum. En jafnframt
verðum við að líta okkur
nær. Hér á Akureyri er efna
hagur góður og við sjáum
hvorki hungruð börn eða
klæðlítið fólk, og ekki held-
ur ónothæf íbúðarhreysi.
Samt eru til þau heimili, sem
hjálpar þarnast vegna fá-
tæktar, veikinda og af öðr-
um ástæðum. Og meðal okk-
ar eru líka einstaklingar, t. d.
einstæðar mæður, sem eru
skuggamegin og þarf að reíta
hjálparhönd. En þetta fólk á
flest það stolt að auglýsa
ekki vandræði sín.
Eins og fyrirfarandi ár
m u n Mæðrastyrksnefnd
hefia peninga- og fatasöfnun
einhvern næstu daga til hjálp
ar bégstöddu fólki í bænum.
Skátar ganga fyrir hennar
hönd fyrir hvers manns dyr
af þessu tilefni.
Með þá síaðreynd í huga,
að hjálpar er þörf, og hún
mim vera meiri en flestir
áiíta, má ætla að bæjarbúar
bregðist vel við eins og jafn-
an áður.
Það stendur norðan Blöndu á
góðri lóð við hliðina á félags-
heimilinu, og verður þar fram-
tíðarrekstur kaupfélagsins.
Grunnflötur byggingarinnar
er 1193 fermetrar. Þar af eru
360 fermetrar á tveimur hæð-
um, en alls er byggingin 5700
rúmmetrar. Efri hæð er ekki
tilbúin til notkunar, en kapp
verður lagt á að fullgera hana
eins fljótt og kostur er.
Á neðri hæð, sem nú hefur
verið tekin í notkun, eru tvær
aðal-verzlunardeildir, annars-
vegar nýlenduvörudeild og kjöt
búð og búsáhalda- og vefnaðar-
vörudeild, ásamt ritfangadeild.
í kaupfélagshúsinu eru sænsk
ar innréttingar frá sænsku sam-
vinnufyrirtæki, sem Ólafur
Sverrisson kaupfélagsstjó'ri og
arkitekt frá SÍS völdu ytra eftir
langa leit og samanburð á slík-
um vörum. Þetta eru mjög álit-
legar innréttingar og sýnast
mjög vandaðar einnig.
Á efri hæð verða skrifstofur,
fundarherbergi o. fl.
Síðdegis á föstudaginn hafði
kaupfélagið boð inni, þar sem
mættir voru þeir, sem að fram-
kvæmdum þessum hafa unnið,
auk framkvæmdastjóra félags-
stjórnar, fasts starfsfólks og
fleiri gesta, samtals um 200
manns. Voru þar margar ræður
fluttar og árnaðaróskir fram
bornar. Meðal gesta var fram-
kvæmdastjóri Iðnaðardeildar
SÍS, Harry O. Frederiksen og
Páll H. Jónsson forstöðumaður
Fræðsludeildar og ritstjóri Sam-
vinnunnar. Flutti Harry sér-
stakar kveðjur og árnaðaróskir
SÍS.
Teiknistofa SÍS teiknaði hús-
ið. Yfirsmiður er Einar Evens-
(Framhald á blaðsíðu 2.)
FÉ TEKIÐ Á GJÖF
Á GRÍMSSTÖÐUM
Grímsstöðum 30. nóv. Hríðar-
veður hefur verið hér meira en
í viku. Snjór er dálítill og frost
mikil öðru hverju. Vörubílar
fóru hér síðast um á fimmtu-
daginn. í dag verður farið héðan
á jeppa til Mývatnssveitar og
póstur sóttur.
Fé er komið á hús, en eitt-
hvað vantar enn af fé, sem ekki
er þó óttast um, því hörkuveð-
ur hafa hér engin verið.
Bændur voru sæmilega undir
veturinn búnir, hvað hey snert-
ir. K. S.
Bændaklúbbsfundur
VERÐUR a» Hótel K. E. A.
mánudagskvöldið 6. desember,
og hefst kl. 9 e. h. Rætt verður
að þessu sinni um sauðf járrækt.
Helgi Haraldsson fjárræktar-
maður frá Hrafnkelsstöðum í
Hrunamannahreppi flytur inn-
gangserindi. Helgi hefur, sem
kunnugt er, rekið sauðfjárrækt-
arbú á Hrafnkelsstöðum um
langt skeið og mun erindi hans
fyrst og fremst fjalla um fóðr-
im og kynbætur sauðfjár. □