Dagur - 08.12.1965, Síða 4
4
5
-----— X
Skrifstoíur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Súnar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Nýja skjaldborgin
ALÞJÓÐ, hefur orðið vitni að rang-
látari embættisveitingu í Hafnarfirði
en dæmi eru til og hefur meira verið
um það rætt og ritað en flest anriað
af því tagi. Mótmælin hafa dunið
yfir úr öllum áttum og dómsmálaráð-
herra flúði, sem frægt er, af.jMMtli á
Alþingi Jjegar málið var j>ar til um-
ræðu. Það vekur sérstaka athýgli, a3
ráðherrar Aljjýðuflokksins skuli hafa
verið svo freklega óvirtir af samráð-
herrum sínum, sem hér er raun á.
Nærri má geta, að Guðm. I. Guð-
mundssyni, fyrrv. utanríkisráðherra,
hafi lilotið að vera }>að áhugamál, að
ekki yrði níðzt á Jieim manni, sem
gegnt hafði fyrir hann embætti í nál.
heilan áratug og á þann hátt að bæði
embættinu og ráðherranum var
sæmd að, og að hann hafi ætlað
flokksmönnum sínum í ríkisstjórn-
inni að sjá um að hlutur hins setta
embættismanns yrði ekki fyrir borð
borinn. En eftir }jví sem þeir segja
sjálfir voru orð Jjeirra að engu höfð
í þessu máli, og Jjað láta Jieir sér
lynda.
Sjálfstæðismennirnir í ríkisstjórn-
inni vita vel, að embættisveitingin í
Hafnarfirði mælist illa fyrir. En
Jjeim er það að skapi að láta sjá hver
völdin hefur á stjórnarheimilinu.
Embættisveitingin er liður í áður
gerðri áætlun um einskonar sýslu-
mannaskjaldborg Sjálfstæðisflokks-
ins. Sú skjaldborg hefur stækkað ört
í dómsmálaráðherratíð Bjarna Ben.
og Jóh. Hafsteins. Frá embættistíð
Jjessara ráðherra sitja nú Sjálfstæðis-
menn sem bæjarfógetar og sýslumenn
í Jjessum umdæmum: Mýra- og Borg-
arfjarðarsýslu, Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu, Dalasýslu, Barða-
strandarsýslu, Húnavatnssýslu, Norð-
ur-Múlasýslu og Seyðisfirði, Suður-
Múlasýslu, Neskaupstað, Skaftafells-
sýslu, Vestmannaeyjum, Kópavogi,
Keflavík og nú síðast í Hafnarfirði
og Gullbringu- og Kjósarsýslu. Um
næstu áramót verður skipaðúfc nýr
bæjarfógeti á Siglufirði. Flestir af
nefndum skjaldborgar-sýslumöriniítn
eru J>egar komnir í framboð fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og sumir vara-
Jjingmenn en aðrir framarlega í
flokkssamtökum Sjálfstæðismanna í
umdæmum sínum. Engum dettur í
hug, að hér sé um tilviljun að ræða
og enn síður að aðrir hafi ekki fund-
izt hæfir til starfanna. Hér er vitandi
vits unnið að settu marki. Fyrrum
treysti danska stjórnin mjög á emb-
ættismenn sína hér á landi í pólitísk-
um átökum. Hin nýja sýsluntanna-
skjaldborg íhaklsins hér á landi á ef-
laust að gegna svipuðu hlutverki.
Gremasafn eftir Snæbjöm
Jónsson. Reykjavík 1965.
„Það er kallað til mín frá
Seír: Vökumaður, hvað líður
nóttinni?" Þannig kemst spá-
maðurinn að orði. En allir þeir,
sem andleg störf vinna, heyra
við og við þessi hróp frá Seír,
landinu, sem enginn veit hvar
er, og þeim er skipað að tala,
ella væru þeir ekki vökumenn.
Einn af slíkum mönnum er
Snæbjörn Jónsson. Þetta er
þriðja ritgerðabók hans, sem ég
hef nú handa milli. Lokasjóður
beitir hún, og höfundurinn tel-
ur :að þessi muni verða sín síð-
asta bók. Sú hugsun fyllir mig
. ó.ypdi, því að alltaf er það gam-
. ap/bæði fyrir augun og andann
að handleika bók, sem Snæ-
björn hefur ritað og gefið út.
Allar eru þær fallegar og hafa
—margvíslég umhugsunarefni að
-flytja lesendum sínum.
Ekki er mikið til af þeim bók-
um hér á landi, sem Englend-
ingar kalla Essays en Guðmund
ur Finnbogason kallaði Hugan-
ir. Og það er ekki laust við að
sumir haldi, að slíkar bækur séu
leiðinlegar. En því fer fjarri. Þá
verða til mestir dýrgripir and-
ans, þegar vitið og snilligáfa um
málfar og stíl vinna saman,
hvort heldur er í skáldritum eða
ritgerðum. Fám er skáldgáfan
gefin í ríkum mæli með andríki.
En ýmsir eru gæddir góðum
gáfum og eru nægilega mikil
skáld til að eiga ímyndunarafl
og geta komið því harmkvæla-
laust á pappírinn, sem þeir vilja
segja. Þessir menn eru oft frjó-
ir og hugkvæmir rithöfundar,
sjá kost og löst á mönnum og
málefnum. Og ef þeir eru góð-
viljaðir hugsjónamenn, eru þeir
salt jarðar. Ritgerðir þeirra
vekja og eggja til skilnings,
hvort sem menn eru með þeim
eða móti. Þær drepa Iognmoll-
unni á dreif, skapa hreint og
bjart veður. Þannig er ávallt í
kringum Snæbjörn Jónsson.
Snæbjörn hefur oft á sinni
löngu ævi deilt á ýmislegt, sem
honum hefur þótt miður fara
með þjóð vorri. Sumum finnst
slíkir menn vera óþolandi nöldr
unarseggir og halda, að skallar
þeirra séu fullir upp úlfúðar. En
stundum er sá meiri vinur, sem
til vamms segir. Og ekki þarf
að djúpt að leggjast í ritgerðir
Snæbjarnar til að finna að á
umvöndunarsemi hans
býr: eínlæg góðvild. Hann vill
sórha þjóðar sinnar sem mest-
an.' Og það er í fullu samræmi
við hans hlýju og heilsteyptu
lund, tryggð hans og drengskap.
Enda er svo langt frá því, að
ritgerðir hans séu eintómt nöld-
ur, að langoftast skrifar hann
af því að hann hrífst af ein-
hverju, sem honum þykir fal-
legt eða eftirbreytnisvert, hvort
heldur er í bókmenntum eða*
fari samferðamannanna. Mikið
af þessari bók er t. d. manna-
minni, hlýjar greinar, frjóar og
víðskyggnar.
En það sem gerir greinarnar
svo sérstaklega hugþekkar til
lesturs er að þær eru fullar af
alls konar fróðleik, hugsun og
marmviti. Höfundurinn hefur
kynnzt svo mörgum mönnum og
málefnum á lífsleiðinni, að ég
álít, að klassisk menntun hans
standi langtum dýpri rótum en
Séra BENjAMÍN
skrifar nm
bækur
margra, sem langskólagengnir
eru. Hann er einn af þeim, sem
verið hefur að læra alla sína
ævi.
S.næbjörn hefur verið einn af
vökumönnum þjóðar sinnar og
þeytt lúðurinn ákaft, þegar
honum hefur þótt mikils við
þurfa til að vara við, eða hvetja
til þess, sem giftusamlegra er.
Oft hefur honum eflaust fundizt
hróp sín týnast út í veður og
vind, og fáir gefa orðum sínum
gaum. Lík er reynsla allra, sem
gegna kallinu frá Seír. En hver
var það, sem orti um örina?
Enginn veit upp af hverju sáð-
korninu sprettur.
Líklega væri ekki hægt að
hrella Snæbjörn meir en segja
honum, að hann sé prestur að
upplagi. Samt er þetta satt. Hér
er þó ekki átt við þá tegund-
ina, sem er af páfagauksættinni.
því að slíkir prestar eru trú-
lausir, þvert ofan í það, sem
margir halda. Hann er af þeirri
ættinni, sem andinn ónáðar
öðru hverju og eru svo barna-
legir að vera einlægir og reyna
að segja satt. En fyrir þess kon-
ar þjónsstarf þarf enginn að
vænta sér skilnings eða upp-
hefðar, annarrar en á krossi.
Það var hrækt framan í Frels-
arann og Jesaja sagaður sund-
ur.
Benjamín Kristjánsson.
MERKIR ISLENDINGAR
nýr flokkur, sem Jón Guðna-
son fyrrv. skjalavörður bjó til
prentunar, er nýkomin bók
hjá Bókfellsútgáfunni h.f. í
Reykjavík.
Hér er um að ræða stóra bók,
336 bls. og fjallar um 12 merka
menn og eftir ýmsa höfunda.
Þeir eru þessir: Jón Ögmunds-
son helgi, Þormóður Torfason
sagnaritari, Jónas Hallgrímsson
skáld, Oddgeir Stephensen deild
arforseti, Skúli Gíslason pró-
fastur, Gunnar Gunnarsson pró
fastur, Jón Þorkelsson þjóð-
skjalavörður, Þorvaldur Jakobs
son prestur, Jón Helgason
biskup, Guðmundur Hannesson
prófessor, Þorsteinn Gíslason rit
stjóri og Björn Bjarnason frá
Viðfirði. Myndir fylgja af þeim,
sem um er ritað.
í bók þeirri, er hér um ræðir
og þeim sem á undan eru komn
ar í þessum bókaflokki, er mik-
il fróðleiksnáma.
Fylgjur og fyrirboðar eftir
Sigurð Haralz er ein af nýju
bókunum frá Bókfellsútgáfunni.
Hún fjallar, eins og nafnið bend
ir til, um dulræn efni, drauma,
sýnir og hverskonar einkenni-
lega fyrirburði, sem höfundur-
inn segist hafa reynt sjálfur.
Ennfremur er frásögn af viður-
eign hans við Bakkus. Alls
skiptist bókin, sem er 190 bls., í
179 stutta kafla. Hér er snert á
ýmsu efni, sem fjölmargt venju-
legt fólk hefur einhverja
reynslu af, en talar oftast lítið
um, og er dulræns efnis. Oftast
er frásögnin stutt og mjög skýr.
Ef til vill er baráttan við of-
drykkjuna merkasti hluti bók-
ar þessarar og mætti verða
mörgum til umhugsunar.
Vísnabók Káins er ein af Bók
fellsútgáfubókum og ritar Tóm-
as Guðmundsson formála.
Kristján Níels Jónsson eða Ká-
inn fæddist á Akureyri 7. apríl
1860 en fluttist til Ameríku 18
ára gamall og dvaldi þar síðan,
lengst af í Dakota. Ekki þarf að
kynna hið sérstæða skáld, svo
kunnur er hann af kveðskap
sínum. Að honum látnum safn-
aði dr. Richard Beck kvæðum
hans og stökum og var þetta
gefið út undir nafninu „Kvið-
lingar og kvæði“ af Bókfellsút-
gáfunni árið 1945, en aldarfjórð
ungi fyrr hafði Káinn sjálfur
gefið út Kviðlinga. Þessar bæk-
ur eru löngu ófáanlegar og var
því tími kominn til að bæta úr
því. Er það nú myndarlega gert
og mun vera í þökk fjölmargra
Ijóðavina.
Vísnabók Káins er yfir 200
blaðsíður og í henni 200 vísur
og kvæði.
Ferðabók efir Ólaf Olavíus
er enn ein Bókfellsútgáfubók
þýdd af Steindóri Steindórssyni
frá Hlöðum. Þetta er II. bindi
og hefst a lysingu a Vaðlasýslu
síðan er Þingeyjarsýslum lýst
°g Múlasýslu. Lýst er lands-
högum, svo sem landbúnaði og
sjávarútvegi, siglingum og
veiðiskap. Þá eru sérstakir kafl-
ar um náttúrufræði og fornleif-
ar, skyrsla um brennisteinsnám
ur eftir Ole Henschel og lýsing
á nokkrum surtarbrandslögum
eftir Christian Ziener.
Ferðabók þessi er frá 1775—
1777 og er að öllu leyti hin
merkilegasta. Hún er á fjórða
hundrað blaðsiður og vel úr
garði gerð að ytra útliti.
DANSKAR
HANNYRÐAVÖRUR
nýkomnar:
KLUKKUSTRENGIR
RYAPÚÐAR
JÓLAREFLAR
JÓLASTRENGIR
JÓLASVUNTUR
BAKKABÖND
o. fl.
Verzlunin DYNGJA
Hafnarstræti 92
ALFRÆÐASAFN AB
Nýr bókaflokkur á vegum Almenna bókafél.
Á UNDANFÖRNUM árum hef-
ur Almenna bókafélagið gefið
út bókaflokkinn Lönd og þjóð-
ir, þar sem einstök lönd, íbúar
þeirra og landshættir, hafa ver-
ið kynntir íslenzkum lesendum
með aðgengilegum texta og
fjölda mynda. Hafa þessar bæk
ur verið gefnar út í samvinnu
við 12 bókaútgefendur í ýmsum
Evrópulöndum, en frumútgef-
andi bókanna er Time-Life.
Hefur þessi alþjóðlega sam-
vinna gert kleift að ráðast í
þessa útgáfu á íslenzku, en al-
þjóðleg útgáfusamvinna sem
þessi færist nú mjög í vöxt, þeg
ar um er að ræða vönduð verk
eða bókaflokka, sem einstökum
útgefendum mundi annars um
megn að gefa út í takmörkuðu
upplagi.
Nú þessa dagana er nýr bóka-
flokkur að hefja göngu sína hjá
Almenna bókafélaginu, og nefn
ist hann ALFRÆÐASAFN AB.
Þessar bækur eru gerðar með
sama hætti og Landabækurnar,
en eru þó stærri og efnismeiri
en þær, og farið inn á ný svið
og kynntar ýmsar greinar tækni
og vísinda. Eru allar þessar bæk
ur þannig úr garði gerðar að
hinn almenni lesandi geti haft
af þeim full not, og það jafnvel
þó verið sé að segja frá flókn-
ustu og nýjustu uppfinningum
nútímans.
Þessi nýbreytni, sem hófst
með útgáfu Landabókanna, hef
ur notið óvenjumikilla vin-
sælda, og er nú svo komið, að
þrátt fyrir að upplag þeirra hafi
verið stórt á mælikvarða ís-
lenzkra útgefenda þá eru 6 af
þeim 12 bókum um lönd og
þjóðir, sem út hafa komið þeg-
ar uppseldar og hinar á þrotum.
I hinum nýja bókaflokki, AL-
FRÆÐASAFNI AB, er fjallað
um vísindaleg og tæknileg efni.
Fjallar hver bók um afmarkað
svið, og einkum þau, þar sem
vísindaleg þekking hefur auk-
izt hvað mest á undanförnum
árum, en að sjálfsögðu er ekki
hægt að gera efni af þessu tagi
full skil án þess að jafnframt
sé gerð grein fyrir tengslum við
aðrar fræðigreinar og um þær
fjallað. Er með þessum bókum
stefnt að því, að gefa lesendum
nýja innsýn í þessa þekkingar-
heima á tímum þar sem hver ný
uppgötvun rekur aðra, og að
þeir fái jafnframt tækifæri til
að kynnast starfi og lífi vísinda-
manna sem vinna að þessum
mikilvægu verkefnum. Hefur
einmitt á þessum þekkingarsvið
um verið skortur á aðgengileg-
um ritum á íslenzku, þar sem
leikmönnum gæfist kostur á að
afla s?r grundvallarþekkingar
um ýmis atriði, sem fyrir fáum
áratugum eða árum, voru al-
menningi þýðingarlítil og fjar-
læg, en hafa í dag sívaxandi
þýðingu fyrir hvert mannsbarn.
Er það ætlun AB, að AL-
FRÆÐASAFNIÐ bæti hér að
nokkru úr miklum skorti fræði
bóka og gefi íslenzkum lesend-
um tækifæri til að kynnast stór
stígum framförum á ýmsum
sviðum. Má ætla, að þessar bæk
ur séu sérstaklega fengur ungu
fólki, sem mun verða að hag-
nýta sér þessa auknu þekkingu
í sivaxandi mæli í framtíðinni.
Er þegar ráðið að gefa út 10
bækur í þessum bókaflokki og
verða tvær þær fyrstu á ís-
lenzkum bókamarkaði fyrir jól.
Eru það bækurnar FRUMAN
og MANNSLÍKAMINN.
FRUMAN er þýdd af dr.
Sturlu Friðrikssyni, jurtaerfða-
fræðingi. Gerir hún ýtarlega
grein fyrir frumunni, grund-
vallareiningu alls lífs á jörðinni.
Sagt er frá því, hvernig hún
starfar sem sjálfstæð eining, og
einnig hvernig hún með öðrum
frumum myndar vefi og líffæri
og verður hluti af því lífkerfi,
sem við nefnum plöntu eða lík-
ama. Nákvæm athugun á því,
hvernig frumurnar afla sér nær
ingar, hvernig þeim fjölgar og
hvernig þær verjast árásum fel-
ur í sér hina vísindalegu við-
leitni til að lengja lífið og verj-
ast sjúkdómum.
MANNSLÍKAMINN er þýdd
af læknunum Guðjóni Jóhannes
syni og Páli V. G. Kolka. í þess-
ari bók getur lesandinn kannað
furður mannslíkamans. Hann
kynnist líffærunum, líffæra-
kerfum, beinagrindinni, skiln-
ingarvitunum, efnasamsetning-
unni og hvernig þetta allt vinn-
ur saman. Lesandinn kynnist
einnig lögmálum fjölgunarinn-
ar, og erfðanna og svar má finna
við því af hverju við erum ung
og verðum gömul.
Auk þessara tveggja bóka er
ákveðin útgáfa á eftirfarandi
bókum: KÖNNUN GEIMSINS,
MANN SHU GURINN, VÍS-
INDAMAÐURINN, VEÐUR,
HREYSTI OG SJÚKDÓMAR,
STÆRÐFRÆÐIN, EFNIÐ,
FLUGIÐ.
Hverri bók fylgir ýtarleg
atriðaorðaskrá til að auðvelda
uppflettingu á einstökum atrið-
um.
Ritstjóri hinnar íslenzku út-
gáfu Alfræðasafnsins er Jón Ey-
þórsson, veðurfræðingur.
HÚN ANTÓNÍA MÍN
Almenna bókafélagið hefur
sent frá sér skáldsöguna Hún
Antónía mín og er það septem-
berbók félagsins.
Hún Antónía mín eftir banda-
rísku skáldkonuna Willa Cather
kom fyrst út árið 1918 og vakti
þá þegar mikla athygli, og var
á næstu árum þýdd á fjölmörg
tungumál. Á síðari árum hefur
hún verið endurútgefin í fjölda
landa og öðlast sess meðal
klassiskra skáldsagna — en
kemur nú út í fyrsta sinni í ís-
lenzkri útgáfu.
Viðfangsefni Willa Cather í
þessari bók er saga landnem-
anna í Nebraskaríki í Banda-
ríkjunum, barátta þeirra sigrar
og sorgir. Skeður sagan laust
fyrn- síðustu aldamót, einmitt á
svipuðum tíma og fjöldi íslend-
inga flytzt búferlum vestur um
haf. Sögupersónurnar eru inn-
flytjendur frá Norðurlöndum og
frá Bæheimi í Tékkóslóvakíu.
Aðalpersónur sögunnar eru
Antónía og Jón Burden, ungl-
ingar af ólíkum stofni og frá-
brugðnu umhverfi. Segir sagan
frá æskuparadís þeirra og rek-
ur síðan feril þeirra til ólíks
hlutskiptis.
Willa Cather er talin standa
í fremstu röð skáldsagnahöf-
unda í Bandaríkjunum á fyrri
hluta 20. aldarinnar. Hugstæð-
asta viðfangsefni hennar var
barátta landnemans, lýsingin á
harðrétti hans og erfiðleikum
við að skapa nýjan heim. Willa
Cather lézt í New York árið
1947.
Séra Friðrik A. Friðriksson
hefur íslenzkað bókina, sem er
330 bls. að stærð. Bókin er
prentuð í Prentsmiðju Hafnar-
fjarðar h.f., en bundin í Félags-
bókbandinu h.f. Kápu og titil-
síðu hefur Kristín Þorkelsdótt-
ir teiknað.
- ÁVARP
(Framhald af blaðsíðu 1.)
Á hverri viku ferst um þús-
und manns á þjóðbrautum
Bandaríkjanna, en 35 þúsundir
slasast.
Þetta eru geigvænlegar tölur,
þótt um stórveldi sé að ræða.
Mest af þessu böli mætti fyrir-
byggja.
Við erum fá hér á landi, en
nægilega mörg til þess að þola
sár og fella tár. Ef við athuguð-
um skaðræðisverk áfengisneyzl
unnar aðeins s. 1. sumar, kom-
umst við ekki hjá að skilja, að
hún veitti mörgum djúp sár og
þjóðinni mikinn skaða. — Og
nú eru jólin framundan.
Höldum nú áfengislaus jól,
góðir landsmenn.
Þeir menn, sem ekki geta far
ið með áfengi, án þess að skaðá
sig og sína nánustu á einhvern
hátt, eiga umfram allt að úti-
loka áfengið. Eigingirni veitir
engum manni hamingju, en að
auka á ánægju og gleði ann-
arra, það veitir hamingju og
frið.
Þeir hinir, sem geta með-
höndlað áfenga drykki, án þess
að skaða sýnilega sig og sína,
eiga einnig a ðhalda áfengislaus
jól og gefa þar með börnum
sínum og öllum, sem þeir um-
gangast, hið æskilega fordæmi.
Enginn getur verið blindur
gagnvart því tjóni, sem áfengis-
neyzlan veldur þjóðinni og
mörgu heimili. Því ekki binda
endi á allt þetta sjálfskapaða
böl? Slíkt er ekki mikil fórn, en
myndi veita mikla farsæld og
blessun.
Leiðin er auðveld. Ekkert
annað en gleyma áfengu drykkj
unum. Við höfum nægilegt af
gæðum lífsins til að gleðjast
yfir. — Höldum því áfengislaus
jól, og við munum hrósa sigri á
eftir.
Stjóm landssambandsins.
JÓLAMERKI Franitíðarinnar
fást á pósthúsinu. Ágóðinn
rennur í elliheimilissjóð fé-
lagsins. Munið einnig minn-
ingarspjöld félagsins, en þau
fást í verzl. Skemman.
- STÓRIÐJA
(Framhald af blaðsíou 1.)
virkjun reynast fleipur eitt.
IVIeð útlendu fjármagni á að
skapa nýja sogdælu og hana
svo stórvirka að um munar,
suður við Faxaflóa. Ekki þarf
að efa, að íslendingar hefðu,
eins og Norðmenn, getað ráðið
staðsetningu slíks fyrirtækis, ef
í það var ráðizt. En til þess hef-
ur ríkisstjórnina og þá sem að
henni standa, skort vil.a eða
manndóm, nema hvorttveggja
sé.
Það virðist nú vera ætlun
ríkisstjórnarinnar að friða Norð-
lendinga með því að stofna
framkvæmdasjóð strjálbýlisins,
sem svo er nefndur. En mjög
mikið fjármagn þarf þar til að
koma, ef sjóður sá á að hamla
á móti hinni nýju sogdælu
syðra, þegar það er jafnframt
haft í huga, að klipið er samtím-
is af öllum ríkisframlögum til
verklegra framkvæmda, t. d.
hafna, vega, rafvæðingar og
skóla. Þess er að sjálfsögðu
vænzt, að hin nýja sogdæla
ráði, á sinn hátt, bót á atvinnu-
leysi, sem vart hefur verið á
sumum stöðum norðanlands.
Margir munu nú minnast
þess, að Magnús Jónsson fjár-
málaráðherra gaf í skyn hér í
blaðinu fyrir einu eða tveimur
árum, að hann hefði á hendi
„tromp“ það, er duga myndi til
að tryggja stórvirkjun og iðju-
ver á Norðurlandi, ef til kæmi.
Mun nú ekki seinna vænna, að
ráðherrann spili út „trompi“
þessu. □
- BÆNDAFUNDUR
(Framhald af blaðsíðu 8.)
fæddust þroskamikil, þó fleira
þyrfti til að koma til að fá væn
sláturlömb. Síðan ræddi Helgi
um vetrarfóðrun ánna og lagði
áherzlu á, að féð mætti ekki
leggja af fyrrihluta vetrar. Með
því að fóðra ærnar mjög vel
mánuð fyrir burð, væri í raun
og veru verið að lengja vaxtar-
tímann, hliðstætt því að láta
kartöflur spíra inni í húsi áður
en þær væru settar niður.
Þá vék ræðurmaður að því,
að fyrrum hefðu Reykjavíkur-
blöðin auglýst „norðlenzkt dilka
kjöt“, sem hið eina og sanna,
en nú væri fjárræktin syðra
komin á hærra stig en þá var.
Stefnt væri að því syðra, að láta
tvílembur ganga á uppþurrk-
uðu landi og að einhverju leyti
á ræktuðu landi einnig, enda
væri ekki síður ástæða til þéss
en láta kýr ganga á túnum.
Frummælandi sagði frá heim
sókn sinni að Lundi við Akur-
ey1'!, og spáði því, að kynbóta-
hrútamir þar myndu geta bætt
fjárstofninn hér um slóðir veru-
lega.
Hér er á fátt eitt drepið úr
ræðu Helga Haraldssonar. Að
henni lokinni hófust umræður,
sem stóðu fram yfir miðnætti.
Voru þar m. a. ræddar stefnur
í sauðfjárrækt, svo sem um há-
fætta féð og það lágfætta, sem
oft hafa verið á dagskrá, enn-
fremur kosti og galla þeirra
fjárstofna, sem kenndir eru við
Þingeyj arsýslu og Vestfirði. □
LÁRA PÁLÍNA
JÓNSDÓTTIR
húsfreyja að Dæli, Sæ
mundarhlíð, Skagafirði.
Fædd 31. júlí 1903, dáin
3. nóvember 1965.
; Vertu blessuð, elsku amma mín.
Við ylinn drottins vermist sálin þín.
Minningarnar mun ég geyma vel.
Ég man þitt bros og varma hugarþel.
Hinzta kveðja til ömmu
frá nöfnu á Akureyri.
Nú ertu horfin elsku amma mín
svo aldrei framar, strýkur höndin þín.
Einnig farið blíða brosið þitt.
Hér birtist, nafna, kveðju Ijóðið mitt.
- NÝR SKÓLI FYRIR SJÚKRALIÐA
(Framhald af blaðsíðu 8).
Hvar er kennt og hverjir
kenna?
Það má segja, að kennsía fari
fram á öllum sjúkradeildúm'
sjúkrahússins og taka allar okk
ar hj úkrunarkonur þátt í henni.
Við erum tvær, sem kennum
bókleg fög og verklegar hjúkr-
unaræfingar, en að öðru leyti
starfa nemendur á deildunum
undir eftirliti hjúkrunar-
kvenna. Við tókum eina stofu
á III. hæð, sem notuð var til
geymslu á rúmum og öðrum
sjúkragögnum og breyttum
henni í kennslustofu. Þar er að
vísu þröngt, en hjá okkur er
alls staðar þröngt, svo að það
er í samræmi við annað — en‘
vonandi stendur það tií bóta.
Þar fer fram kennsla í hjúkrun
arfræði, líffæra- og lífeðlis-
fræði, heilsufræði og siðfræði.
Þeir tímar eru rúmlega 80 aíls,
en námskeiðið stendur yfir í 8
mánuði, og verður því þessi
fyrsti hópur okkar búinn í maí-
lok.
Hver verða réttindi og skyldur
sjúkraliða?
Sjúkraliðar munu vinna hin
einfaldari hjúkrunarstörf og sjá
um ræstingu á umhverfi sjúk-
lings undir stjórn hjúkruhár-
kvenna. Þeim verður óheimilt
að stunda sjálfstæð' hjúkrunar-
störf. Laun munu þéir taka
samkvæmt launalögum;
:i:Í5pÚÍÍ«ÍB:
TIL SÖLU:
5 tonna Thames
Trader vörubifreið
með vélsturtum, árg 1963.
Vel með farin.
Uppl. í síimu 1-11-67.
Menntaskólapiltur
óskar eftir
einhvers konar VINNU
í jólafríinu.
Uppl. í síma 1-13-03.
Hvernig er svo hægt að þekkja
þetta nýja hjálparfólk frá venju
legum hjúkrunarkonum?
Sjúkraliðar munu fá sinn sér
staka klæðnað eða búning —■
það er að vísu ekki fullgengið
frá honum enn, en verður gert ,
áður en fyrstu hóparnir ljúka
námi.
Er þessi fyrsti hópur álitlegur?
Já. Þetta eru ánægjulegar
stúlkur, glaðlegar og góðar, á
aldrinum 17—24 ára.
Líta hjúkrunarkonur hina nýju
stétt hornauga?
Því ættum við að gera það?
Þetta verða samherjar okkar en
ekki keppinautar. Stétt, sem
ætti að auðvelda okkur erfitt og
umfangsmikið starf og vinna
með okkur að bættri þjónustu
fyrir þá sjúku.
Það er ósk okkar og von, að
í þessa nýju stétt veljist gott
fólk — góðir menn og góðar
konur — að það verði farsælt í
námi og starfi og hljóti viðun-
andi kjör og starfsskilyrði, seg-
ir frk. Ingibjörg Magnúsdóttir
yfirhjúkrunarkona að lokum og
þakkar blaðið upplýsingamar.
RJÚPNASKYTTU Allt ráp og rjúpnadrá hér með bannað í lar eign minni í Vaðiah Jón Haraldsson, Flóru. R! p er idar- eiði.
ÞRÍLIT BLEYÐA í óskilum í Norðurgötu 36.
^ rV ' lí S
GÍTAR TIL SÖLU
Er til sýnis eftir kl. átta á
kvöldin í Ránargötu 28.
Sími 1-28-24.
TIL SÖLU.
Tvenn skíði og skór,
skautar og skór.
Uppl. í síma 1-20-79.