Dagur - 02.04.1966, Page 1
XLIX. árg. — Akureyri, laugardaginn 2. apríl 1966 — 25. tbl.
Dagur
kemur út tvisvar í viku
og kostar kr. 30.00 á
mán. í lausasölu kr. 5.00
Ishrafl við
Grímsey
í GÆRMORGUN sást nokkur
ís vestur af Grímsey og rak
hann suður. Lengra, í norðvest-
•ur, syndist þéttari ís.
Af bæjum á Sléttu sást ekki
ís og ekki heldur frá Skoruvík
i gær, Skyggni var allgott öðru
hverju.
Ut frá Hornbjargi er ísinn
Jangt undan, eða 55 sjómílur,
samkvæmt frétt frá Jóhannesi
Snorrasyni flugstjóra í gær, er
hann flaug til Grænlands. En
60 mílur norður ai Horni var
aðalísbrúnin, og er hún fjær en
menn hugðu.
Veðurstofan kl. 6 í gær: ísinn
er 13 sjómílur út af Rauðunúp-
um og 19 mílur út af Gjögri.
ísröndin er gisin á 20—30 milna
.belti. □
X ■
X ; i ... 8HÉ9I
X 1 *«
■ ■
íshrafl var í gærmorgun komið a'ð Grímsey og rak þaö í suðurátt. (Ljósm.: G. J.)
SAMKVÆMT samtali við
Skoruvík sást samfeld ísrönd
þaðan á miðvikudaginn í góðu
skyggni. Undanfarið hefur ver-
ið mjög kalt á Langanesi og
móða yfir hafinu, sem gefur til
kynna að ísinn sé nærri.
Á miðvikudagskvöldið gerði
norðvestan aftakaveður. Snjór
er mikill og jaiðlaust með öllu,
enda hjarn yfir allt. Samgöngu-
leysið er þjakandi austur þar.
Mikið hefur rekið á Langanes-
fjörur og enn rekur þar. □
sagði forstjóri Svtss ÁSuminium eftir að iðnaðarmálaráðherra hafði
skrifað undir afúmínsamningana
Þessi lctta trébrú liggur yfir Skátagil á Akureyri.
(Ljósm.: E. D.)
Lá úti heila nótt á Brekknalieiði
Gunnarsstöðum Þórshöfn 1.
apríl. í fyrrnótt lá maður að
nafni Tryggvi Jónsson frá Þórs-
höfn úti á Brekknaheiði í of-
stopaveðri, og lifði af nóttina.
Tryggvi fór með Þórshafnarpóst
á móti Bakkafjarðarpósti á mið
SEXTÁN BÍLAR í
ÁREKSTRLM
í GÆR og fyrradag lentu 16 bíl-
ar í árekstrum á Akureyri,
sagði lögreglan í gær. Að öðru
leyti er fremur rólegt á vett-
vangi lögreglunnar, þegar frá
er dregin nokkur ölvun borgar-
anna, sem er vanalegt viðfangs-
efni. □
vikudaginn og fór austur í Höfn
á Langanesströnd. Sama dag kl.
5 fór hann af stað frá Felli heim
leiðis, en er hann kom ekki
heim á eðhlegum tíma, var leit
hafin og snjóbíllinn nýi notaður.
En vegna þess hve veður var þá
illt orðið, bar leitin ekki árang-
ur um nóttina.
En klukkan að ganga sjö
næsta morgun fannst Tryggvi á
miðri heiði. Hafði hann fylgt
stauralínu meðan á milli staura
sást. En í beygju einni sá hann
ekki næsta staur og lét þar
fyrir berast um nóttina.
Tryggvi er hið mesta karl-
menni og þótt honum væri kalt,
hresstist hann fljótt og mun
hafa verið lítt eða ekki kalinn.
Glíklegt er talið, að för þessi
hefði endað vel, ef Tryggvi hefði
freistað þess að halda áfram för
sinni um nóttina, eins og veður
var þá á þessum slóðum. Ó. G.
Á MÁNUDAGINN voru undir
ritaðir í Reykjavík samingar
milli íslenzku ríkisstjórnarinnar
og forráöamanna Sviss Alumin-
íur.r Ltd. u~. álbræðslu við
Straumsvík og raforkusölu til
hennar. Að Iokinni undirskrift,
sem þó er með þeim fyrirvara,
að Alþingi samþykki sanming-
ana, ræddi forstjóri Sviss Alum
iníum, E. R. Meyer við blaða-
Álúmmálið lagt fyrir
Álþingi í gær
1 GÆR var lagt fram á Alþingi
frumvarp til laga um lagagildi
samnings við Swiss Aluminium
um álbræðslu við Straumsvík,
og hefjast umræður um það í
dag.
Hér er um að ræða citt allra
fyrirferðamesta þingskjal, sem
lagt hefur verið fyrir Alþingi
rúmlega 230 bls. og er þar prent
aður með frumvarpinu, ásamt
greinargerð, aðalsamningurinn
við svissneska alunifyrirtækið
og undirsamningar milli Iands-
virkjunar, Hafnarfjarðarbæjar
og hins íslenzka álfélags, sem
svo er nefnd ásamt fleiri fylgi-
skjölum. □
menn og gaf þá m. a. þessar
upplýsingar.
Sviss Aluminíum er almenn-
ingshlutafélag með þátttöku 12
þús. aðila í Sviss, stofnað 1889.
Fyrirtækið hefur reist 9 ál-
bræðslur, eins og hér er fyrir-
hugað að reisa, m. a. í Noregi,
ítalíu, Sviss, Austurríki, V-
Þýzkalandi, Bandaríkjunum og
Hollandi.
Álbræðslan hér á landi á að
vera 30 þús. tonna en stækka
(Framhald á blaðsíðu 7.)
GEYSIR
SÖNG GEYSIS í Samkomu-
húsinu á fimmtudagskvöldið
var mjög vel tekið, bæði kór
og einsöngvurum. í gær-
kveldi söng kórinn þar aftur
en á sunnudagskvöldið hefur;
hann söngskemmtun í Sjálf-j
stæðishúsinu.
Kórfélagar eru nú rúmlega
40 talsins og er kórinn nú að
hálfu skipaður nýjum mönn- j
um og söngskráin að sumu
leyti nýstárleg.
Söngstjóri er Árni Ingi-
mundarson.
MikiS velrarriki og illviðrin eru fið
YTtri-Nýpum Vopnafirði 31.
marz. í Vopnafirði er mikill
snjór, með því mesta, sem hér
hefur verið og löngum ill og
leið veðrátta. Engin leið á landi
er rudd og er farið á dráttar-
vélum ofan á snjcnum í ýtuslóð
Víðast er haglaust með öllu
og eru menn uggandi um fóður-
vöntun ef vorið verður einnig
hart.
í haust var byrjað að sprengja
fyrir laxastiga við fossinn í Selá
og ætlunin að Ijúka byggingu
laxastiga næsta sumar.
í vetur hefur mikið af bolviði
rekið á fjörur, en hann er verð-
mætt og eftirsótt girðingarefni.
Um lengri tíma höfum við lifað
og hrærst í snjó. Nú bætist við
nokkur beygur vegna ísafrétt-
anna síðustu daga frá Grimsey
og Langanesi. Þorsteinn.