Dagur - 11.05.1966, Blaðsíða 5
!
s
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Simar 1-1166 og 1-1167
Kitstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Áum er þeirra ævi
MARGT verður Alþýðuflokkurinn
að þola um þessar mundir, síðan
hann gafst upp á því að berjast við
íhaldið, svo sem hann var stofnaður
til. Síðan hann gafst upp og afhenti
lijarna Benediktssyni próventu sína
hefur hann orðið að leggja á liilluna
allt tal um þjóðnýtingu en heimtar
frjálsa verzlun með þciin í Morgun-
blaðinu. Fleira verður hann að
vinna, sem cnginn liefði fyrrum ótt-
azt að hann gerði, því Iiann verður
að huðstrýkja sjálfan sig með því að
hjálpa íhaldinu tif að skamma vinstri
stjórnina, sem liann sjálfur tók þátt
í. En í þeirri stjórn sátu tveir ráð-
herrar frá Alþýðuflokknum og
gegndu mikilvægum ráðherra-
embættum.
Samskipti Alþýðuflokksins og nú-
verandi forsætisráðlierra eru all sögu-
leg orðin. Talið er að Bjarni Bene-
diktsson hafi hafizt til vegs og valda
í Sjálfstæðisflokknum vegna.þess að
i það hafi verið hann, sem fyfir 1940
hafi lagt á ráðin um það, hvernig
eyða skyldi áhrifum Alþýðuflokks-
ins, fyrst í verkalýðshreyfingunni en
síðan í stjórnmálum. í þeim tilgangi
hafi Bjarni Benediktsson átt frum-
kvæði að því, að Alþýðuflokkurinn
hætti að vera stjórnmálaflokkur Al-
þýðusambandsins.
1 sömu atliigu tókst kommúnistum
að ná til sín hluta af Alþýðuflokkn-
um og mynda Sósíalistaflokkinn. Nú
er svo komið fyrir eftirmönnum Jóns
Baldvinssonar, að þeir lúta ráðbana
sínum og stæra sig af í útvarps-
umræðum, að heimilislífið á stjórn-
arheimilinu sé svo gott, að slíks séu
engin dæmi. Hinsvegar segja þeir, að
Framsóknarmenn hafi alltaf verið
örðugir í stjórnarsamvinnunni við
íhaldið og hahlið fram sínum mál-
stað með „ráðríki“. Bjarni má því
muna tímana tvenna!
Svo hláleg er framvinda lífsins, að
ýmsir gamlir kommúnistar vinna nú
að því ásamt Hannibal Valdimars-
syni, að koma á því fyrirkomulagi á
ný, sem þeir með aðstoð Sjálfstæðis-
manna eyðiliigðu fyrir rúmum aldar-
fjórðungi: Alþýðusambandið geri út
stjórnmálaflokk á sínum vegum. Að-
ur var það Alþýðuflokkurinn. En ár-
ið 1956 var Alþýðubandalagið stofn-
að með það fyrir augum að það yrði
stjórnmálaflokkur Alþýðusambands-
ins. Nú er sagt, að verkamenn og
launþegar þurfi að eiga stjórnmála-
flokk til þess að kjarabætur verði
ekki af þeim teknar með löggjöf og
stjórnarráðstöfunum. En er ekki hætt
við, að sagan endurtaki sig ef Alþýðu
sambandið eða launþegasamtökin
ætla að verða stjómmálaflokkur á
ný?
Verksmiðjuhverfi samvinnunianna við Glerá á Akureyri og hið ört vaxandi Glerárhverfi,
(Ljósm.: E. D.)
IÐNAÐURINN A AKUREYRI
AKUREYRI hefir með réttu verið nefndur einn mesti iðnaðarbær
landsins, og má það til sannsvegar færa, því á umliðnum árum,
hefir risið hér upp margþættur iðnaður, á vegum samvinnuhreyf-
ingarinnar, einstaklinga og hlutafélaga í bænum. Margar greinar
þess iðnaðar sem hér hefir verið staðsettur, hafa náð vinsældum
allra landsmanna, þann veg að lágt verð og mikil vörugæði hafa
farið saman.
Hér vinnst eigi tími til að fara
að rekja sögu hverrar iðngrein-
ar fyrir sig, en segja má, að síð-
an um 1930 hafi verið vaxandi
gróska í flestöllum iðngreinum,
er hér hófu starfsemi sína, til
þess tíma, að núverandi stjórn-
arvöld hófu skefjalausan inn-
flutning hverskonar iðnvarnings
frá flestum löndum heims,. án
þess að hafa áður gefið íslenzk-
um iðnaði tækifæri til að mæta
þeirri samkeppni, svo sem með
bættum vélakosti, lækkun tolla
á vélum og hráefni til iðnaðar,
ásamt hagfelldari stofnlánum í
sambandi við ný vélakaup og
endurnýjun vélakosts. Sama
máli gegnir einnig um fasteign-
ir, er iðnaðurinn'hefir orðið að
leggja fé í vegna nýrra iðngreina
er risið hafa á umliðnum árum.
Margar þær vélar, sem iðnaður-
inn notar, er sífellt verið að
fullkomna. Látlaus tækniþróun
á sér stað í þeim verksmiðjum,
er framleiða vélarnar, og komið
getur fyrir að 4—5 ára gömul
vél sé alveg úrelt, að þeim tíma
liðnum, sökum þess að ný vél
er komin á markaðinn, marg-
falt fullkomnari í ganghraða, af-
köstum o. m. fleiru. Erlendar
verksmiðjur er standa í harðri
samkeppni um framleiðsluvörur
sínar, og standa auk þess á göml
um merg fjárhagslega, taka
hverja nýja véltækniþróun mun
fljótar í þjónustu sína en við
hér heima, bæði sökum þess að
þeir eru neyddir til þess vegna
samkeppninnar, en líka sökum
hins, að þeir eiga mun auðveld-
ari aðgang að nauðsynlegu fjár-
magni til endurnýjunar véla
sinna en íslenzkur iðnaður hefir
att kost a hér heima.
Stuðningur stjórnarvaldanna
við íslenzkan iðnað.
Það er að sjálfsögðu
góðra gjalda vert, að nú
virðist sem íslenzk stjórnar-
völd hafi vaknað af þyrnirósar-
svefni í sambandi við íslenzkan
iðnað og lofi nú gulli og græn-
um skógum þeim iðnaði, sem
standa mun uppi, þegar gullið
fer að streyma í iðnaðinn að
nokkrum árum liðnum hér frá.
Þetta gull er nú fengið á þann
hátt, að hinn lamaði íslenzki iðn
aður er sjálfur látinn greiða viss
an hundraðsþluta til svonefnds
Iðnlánasjóðs, en fjármagninu á
síðan að verja til eflingar þeim
iðnaði, er sérstök stjórnarnefnd
sjóðsins telur þess verðan að
njóta fjárhagslegs stuðnings frá
Iðnlánasjóði.
Meðan verið er að afla þessa
fjár, er ein og ein iðngrein að
týna tölunni. Flestar eða allar
skyrtugerðir landsins munu nú
vera að hætta eða hættar störf-
um. Kexverksmiðja hér á Akur
eyri er hætt störfum. Nærfata-
gerð, sem rekin hefur verið hér
á Akureyri, mun lítið sem ekk-
ert hafa starfað lengri tíma.
Vinnufataframleiðsla bæði hér
á Akureyri og í Reykjavík hefir
dregizt saman, og heyrzt hefir,
að Sveinn B. Valfells, fyrsti
stofnandi vinnufataverksmiðju
hér á landi og fyrrverandi for-
maður iðm-ekenda í Reykjavík,
sé Orðinn umboðsmaður fyrir
ameríska vinnufataverksmiðju
og flytji framleiðslu hennar í vax
andi mæli til landsins. Ein veið-
arfæragerð mun nú uppistand-
andi í Reykjavík, og af skrifum
er framkvæmdastjóri verksmiðj
unnar hefir látið frá sér fara,
virðist mega ráða, að það sé að-
eins tímaspursmál,- hve lengi
honum tekst að halda verksmiðj
unni gangandi. Margskonar fata
iðnaður á í vök að verjast. Inn
er fluttur tilbúinn fatnaður frá
Póllandi, Ungverjalandi, Kína
o. fl. löndum með verði, sem oft
er mun lægra en almennt mark
aðsverð. Þá má ennfremur geta
þess, að eina skóverksmiðjan,
sem enn er við lýði í landinu, er
skóverksmiðja samvinnuhreyf-
ingarinnar hér á Akureyri. Hin
ar, sem staðsettar voru í Reykja
vík og framleiddu um 100 þús.
pör af skóm árlega, hafa orðið
að hætta starfsemi sinni.
Þannig hefir stuðningur við-
reisnarstefnunnar orðið fyrir ís-
lenzkan iðnað. Til viðbótar
þessu hafa núverandi valdhafar
gefizt upp við að stöðva dýrtíð-
ina, en fátt hefir leikið íslenzk-
an iðnað verr en sú óðaverð-
bólga, er viðreisnarstefnan hefir
leitt yfir íslenzkt þjóðlíf. Mörg-
um virðist sem stjórnarvöldin
hugsi sér enn að lofa verðbólg-
unni að æða yfir þjóðina laus-
beizlaðri, fremur en kippa í
tauma með karlmennsku.
Fyrir Akureyrarbæ er þessi
stjórnarstefna vissulega mikið
alvörumál. Iðnaðurinn er hér
svo sterkur þáttur í atvinnulífi
bæjarins, að hánn mún senni-
lega greiða um 60—70 milljónir
króna í laun árlega, auk margs
annars, sem hann greiðir til bæj
arfélagsins. Má hverjum sem er
vera það ljóst, að ef svo tækist
til fyrir stórum iðngreinum hér
eins og farið hefir fyrir hliðstæð
um iðngreinum í Reykjavík, þá
mundi það valda bæjarfélaginu
háskalegum kyrkingi, sem hafa
mundi cfyrirsjáanlegar afleið-
ingar.
Fagurt skál mæla.
í stefnuyfirlýsingu Sjálfstæð-
isflokksins í síðasta tbl. íslend-
ings, en gera má ráð fyrir að
lík stefnuyfirlýsing hafi komið
frá Alþýðuflokknum hér, lýsir
flokkurinn ánægju sinni yfir
því, hversu mörg og glæsileg
Arnþór Þorsteinsson.
iðnfyrirtæki eru nú starfandi
hér á Akureyri og heitir stuðn-
ingi sínum við þau og uppbygg-
ingu annarra nýrra. Það er gott
og blessað að fá slíka yfirlýs-
ingu sem þessa. En sá hængur
er á, að þessir góðu menn ráða
ekki stjórnarstefnunni. Þeir
mega sín einskis til að fá nokkra
leiðréttingu þeirrar stefnu, sem
stjórnarvöldin hafa tekið gagn-
vart íslenzkum iðnaði.
Ný iðngrein, stálskipasmíði.
Þrátt fyrir þessar aðstæður,
sem hér hefir verið bent á, er
nú að rísa upp í bænum nýr iðn
aður, stálskipasmíði, sem vissu-
lega ber að fagna. Fyrir síðustu
bæj arstj órnarkosningar bentum
við Framsóknarmenn á, að vart
væri sæmandi fyrir jafnmikinn
iðnaðarbæ og Akureyri, að önn-
ur bæjarfélög kepptust við að
koma upp stálskipasmíði í sín-
um byggðarlögum, á sama tíma
og við héldum að okkur hönd-
um í þeim efnum. Slippstöðin
hér „undir forustu Skafta Ás-
kelssonar“ og samvinnuhreyfing
in í bænum hafa rutt málinu
braut. Fyrsta stálskipið mun
fullsmíðað á þessu ári, senni-
lega í júní eða júlí n. k. Eftir
því sem bezt er vitað, hafa
stjórnarvöld landsins og lána-
stofnanir stutt þessa starfsemi
mjög verulega, og ber að fagna
því. Gera má ráð fyrir, að hér
sé aðeins fyrsta skrefið stigið,
að stálskipasmíði megi á kom-
andi tímum verða merkur þátt-
ur í iðnaðarsögu bæjarfélags
okkar, því sjálfu og þeim, er
að því standa, til verðugs heið-
urs.
Dráttarbrautin.
Þá má segja, að ákveðið sé,
að á komandi ári verði hér haf-
in smíði 2000 tonna dráttarbraut
ar á vegum bæjarins, en sú
framkvæmd á að skapa aðstæð-
ur fyrir stórauknar skipavið-
gerðir og nýsmíði skipa frá því,
sem verið hefur. Mun þetta
verða ein stærsta dráttarbarut
landsins. Við báðar þessar fram
kvæmdir eru miklar og góðar
vonir tengdar, bæjarfélagi okk-
ar til hagsbóta á margan hátt.
Mciri orka. Viðbótarvirkjun við
Laxá.
Hafinn ei' undirbúningur að
12. þús. kw. viðbótarvirkjun við
Laxá, en talið er, að sú orka
frá Laxá og dieselstöðvum, sem
nú er fyrir hendi, verði fullnot-
uð á næstu þrem árum, eða því
tímabili, sem talið er þurfa til
að koma upp viðbótarorkuveri.
Eins og menn vita, fullnægir
Laxárvirkjunin nú rafmagns-
þörf Akureyrar, Húsavíkur, Dal
víkur, og fjölda sveitaheimila
í Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýsl-
um. Þótt vitað sé, að þær orku-
spár, sem við er miðað um raf-
magnsnotkun komandi ára á
nefndu oi'kusvæði, séu gerðar
eftir beztu vitund sérfræðinga
á þessu sviði, þá má eigi loka
augunum fyrir því, að svo gæti
farið að bæta yrði við diesel-
stöðina 1000—2000 kw. til að
brúa bilið að lokum viðbótar-
virkjunarinnar. Er það að vísu
ill nauðsyn, því gera má ráð fyr
ir, að slík dieselstöð kosti aldrei
undir 5—10 milljónir króna. Við
verðum að vona, að unnt reyn-
ist að hraða verkinu, svo að til
þessa þurfi ekki að koma.
Eftir er að fá leyfi stjórnai'-
valda landsins fyrir þessari við-
bótarvirkjun ásamt nauðsyn-
legri fyrirgreiðslu um útvegun
fjármagns til framkvæmdanna.
En á þessu stigi málsins virðist
engin ástæða til annars en gera
ráð fyrir, að aðkallandi orku-
þörf Laxárvirkjunarsvæðisins
mæti fullum skilningi og vel-
vild stjórnarvalda landsins.
H.ugsanlegur möguleiki væri
að leysa með þeirri viðbótar-
virkjun,erhér hefir verið nefnd,
aðkallandi rafmagnsþörf Austur
lands, sem mundi þýða fyrir
okkur skjótari nýtingu þess raf
magns, sem viðbótarvirkjunin
veitir. Vandamálið í því sam-
bandi er línubyggingin austur,
sem óefað mundi kosta nokkra
t-ugi milljónir króna. En þegar á
það er litið, að slík línubygging
yrði í raun og veru eðlilegur
þáttur þeirrar þróunar, sem
koma skal og keppt virðist að.
Það er samtenging allra orku-
vera laridsins til hagfelldrar nýt-
ingar orkunnar fyrir alla þjóð-
ina. Þá má segja, að hér sé að-
eins verið að flýta fyrir því, sem
gert verður hvort sem er 'síðar.
Raforkan er orðin svo snar
þáttur í nútímalífi manna, að án
hennar má segja, að mörgum
finnist vandlifað. Þá má eigi
gleyma að mörg sveitaheimili
eru enn ótengd rafmagnskerf-
inu, og munu flestir sammála
um, að tengingu þeirra beri að
flýta, svo hægt verði að segja,
að öll þjóðin sitji við sama borð
varðandi rafmagnið.
Æskan — framtíð Akureyrar.
íþróttamálin.
í sambandi við mál æskunnar
í dag mætti margt segja. Ég tel
æskuna í dag líklega til mikils
manndóms. Æskan í dag býr við
betri aðstöðu til menntunai' og
margskonar þroska en sú kyn-
slóð,- sem nú er að kveðja, bjó
við á sínum uppvaxtarárum.
Samhliða þeirri aðstöðu, er æsk
an í dag býr við til andlegs
þroska, þá er og einnig stór bætt
aðstaða til margskonar líkams-
ræktar. Þótt segja megi, að bæj
arfélag okkar hafi orðið helzt
til síðbúið í sambandi við bygg-
ingu íþróttahúss fyrir æsku bæj
arins, þá mun nú á komandi ár-
um verða lögð á það megin
áherzla að bæta fyrlr þau mis-
tök.
Það hefir verið sagt, að það
sé fleira matur en feitt ket. Svo
er og um líkamsrækt. Hana er
hægt að stunda á fleiri stöðum
en í íþróttahúsi. Sú aðstaða er
bæjarfélagið hefir skapað æsk-
unni í Hlíðarfjalli með byggingu
Skíðahotelsins, hefir gjörbreytt
getunni til skíðaiðkana, og ber
vissulega að fagna þeirri fram-
kvæmd. Áhugamenn um skíða-
íþróttina, en það eru fyrst og
fremst æskumenn þessa bæjar,
hafa komið upp tveim skíðalyft
um, er geta dregið 200—300
metra vegalengd upp í fjallið.
Ber að virða og fagna þessum
áfanga í skíðalyftumálinu. Hér
(Framhald á blaðsíðu 2.)
fólkiá kefur
ÞURFUM FLEIRI LEIKVELLI í BÆNUM
ARNÝ A. RUNÓLFSDÓTTIR,
er 22 ára húsmóðir, gift og
tveggja barna móðir. Hún er
Austfirðingur, fædd og uppalin
í Skriðdal en fluttist til Akur-
eyrar fyrir 8 árum. Blaðið lagði
fj'rir hana nokkrar spurningar
og fara svör hennar hér á eftir.
Hvernig finnst þér að vera
húsmóðir á Ak-ureyri?
Mér finnst skemmfilegt að
vera húsmóðir, því það er frjáls
legt því maður getur hagað störf
um á margan veg. En það felur
líka í sér mikla ábyrgð að ann-
ast heimili og ala upp börn,
kannski meiri en maður gerir
sér fulla grein fyrir á mínum
aldri. Ég ólst upp í sveit og vildi
helzt, að mín börn ættu þess
líka kost, af því þar er svo
miklu heilnæmara umhverfi fyr
ir börnin og óþrjótandi viðfangs
efni. Það er mesti ókosturínn
við bæjárlífið hve börnin hafa
takmarkað athafnafrelsi. Leik-
vellirnir eru of fáir og þarf nauð
synlega að bæta úr því með
stórum, lokuðum leikvöllum,
þar sem hægt væri að skilja
börnin eftir í umsjá gæzlukonu,
svo mæður þurfi ekki að hafa
áhyggjur af eða óttast um þau.
Áttu margar tómstundir,
Árný?
Já, maður hefur öðru hverju
tómstundir, ef svo vill verkast.
Þá nýt ég þess að hlusta á tón-
list og hef ég sérstaklega gaman
að þjóðlögum. Einnig les ég
töluvert. Svo nota ég líka tóm-
stundir mznar til að drýgja
heimilistekjurnar með því að
vinna ofurlítið utan heimilis. Ég
hef af og til unnið við afgreiðslu
á Hótel KEA og hef gaman af
að kynnast mörgu fólki.
Finnst þér rétt að konur vinni
niikið utan heimilis síns?
Það er sjálfsagt álitamál og
vandi að skipta hér á milli móð-
POLLURINN ÁCÆTUR FYRIR SJÓSPORT
á landi. En kennara- og hús-
næðisskortur hamlar æskileg-
asta árangri. Með nýja iðnskóla
húsinu opnast nýjar leiðir og
námsaðstaðan batnar á þann
veg, að þá verðul- hægt að
stunda ýmiskonar verklegt nám
innanhúss.
Nokkuð um íbúðabyggingar,
almennt?
Já, þær eru að sumu leyti að
fara út í öfgar, því enginn vill
búa í húsi, sem er eins og hjá
nágrannanum. Mér finnst, að
með betra skipulagi mætti
byggja heil íbúðahverfi sams-
konar húsum. Með því móti
væri hægt að koma á mikilli
vinnuhagræðingu og lækka
byggingarkostnaðinn til muna
ef þessar byggingar væru á
einni hendi. Fjölbreytnina
mætti svo skapa innanhúss,
eins og hver vildi. Einstaklings-
hyggjan ræður of miklu í þess-
um málum og á verulegan þátt
í hinum óhóflega kostnaði.
Nokkuð sérstakt um bæjar-
málin, Sigurður?
Um þau er margt að segja. En
mér hefur stundum dottið í hug,
í sambandi við miðbæinn, að
hlutar hans líta út eins og
fátækrahverfi. Þar eru hús með
brotnum rúðum og sundurtætt-
um veggjum og ónýtir bílar o. fl.
standa til vitnis um óhirðuna.
Hins vegar vantar bílastæði og
virðist opin leið að slá tvær
flugur í einu höggi á þessum
SIGURÐUR HERMANNSSON
er rúmlega tvítugur iðnnemi,
um það bil hálfnaður með nám
siít, og sézt stundum bruna á
sjóskíðum hér um Pollinn.
Sigurður Hermannsson.
Dagur ræddi við hann litla
stund nú um helgina og lagði
þá fyrir hann nokkrar spurn-
ingar. Fara svör hans hér á eftir.
Hvernig líkar þér nám þitt við
húsasmíðar?
Húsasmíðar gefa marga mögu
leika og í þeirri grein virðast
næg verkefni framundan, ef
ekki koma hreinir krepputímar.
Aðstaðan er sæmileg til þessa
náms, eftir því sem gerist hér
urhlutverksins og vinnunnar
utan heimilis svo vel fari. En
að ýmsu leyti er það þó gott
fyrir húsmæður. En eins og nú
er ástatt er naumast hægt að
velta þessu fyrir sér þegar
Árný A. Runólfsdóttir.
vinnu er að fá, miðað við þarfir
heimilisins annars vegar og hins
vegar dýrtíðina, sem nú er,
nema húsbóndinn vinni þá fram
á kvöld á hverjum degi. Ég tala
nú ekki um, ef maður á að eign-
ast þak yfir höfuðið.
Ef þú ættir þér svolitla ósk í
sambandi við bæjarmálin?
Auk barnaleikvallanna, vil ég
minna á það vandræðaástand
víða í bænum, að ekki skuli
hægt að fara út úr húsi nema
vaða í for fram á sumar, þar
sem eru moldargötur og engar
gangstéttir. Síðan þornar forin
og bílarnir þyrla upp rykinu.
Akureyri, sem er annars bæði
fallegur og menningarlegur
bær, yrði miklu ánægjulegri, ef
hægt væri úr að bæta á þessu
sviði, segir frú Árný að lokum
og þakkar blaðið svör hennar.
stöðum, því öll viljum við láta
bæinn líta vel út.
Hvað gerirðu í tómstundum
þínum?
Skemmtilegast þykir mér að
vera á sjó hérna á Pollinum, í
hraðbát, sem við eigum tveir
saman og á sjóskíðum. Pollur-
inn mun vera betri fyrir hvers-
konar sjósport en annarsstaðar
þekkist hér á landi. í því efni
ei' hin ágætasta aðstaða, en lítið
notuð. En betur þyrfti að gæta
þess, að hverskonar rusl sé ekki
á reki á Pollinum. Svo vil ég
nefna handknattleikinn. Ég hef
dálítið stundað hann. Þakklátir
erum við fyrir Rafveituskemm-
una, en hún er ófullnægjandi og
bíðum við nú eftir nýrri og beti'i
aðstöðu. Nýja íþróttahúsið, sem
nú virðist vera alvara að byggja,
þarf að vera af fullkominni
stærð, miðað við hópíþ’róttir og
áhorfendur, en fyrir óhóf og
íburð gef ég ekkert, segir Sig-
urður Hermannsson að lokum
og þakkar blaðið viðtalið. □
VIÐ EIGUM GOTT EFNI í ÁGÆTA PELSA
BALDVIN ÞÓRODDSSON,
Glerárhverfi á Akureyri er 21
árs gamall iðnnemi, góður
íþróttamaður og hefur um skeið
kynnt sér pelsasútun í Finn-
landi. Blaðið liitti hann að máli
fyrir helgina og varð hann fús-
lega við þeim tilmælum að svara
nokkrum spurningum þess.
Þú ert í nýrri iðngrein, Bald-
vin?
Já, litun og sútun pelsgæra
er ný iðngrein hér á landi þótt
framleiðsla slíkra vara sé ekki
ný. Samvinnumenn eru nú að
leita nýrra aðferða til að auka
verðmæti gæranna. Á vegum
Skinnaverksmiðjunnar Iðunnar
var ég í Finnlandi um tíma til
að læra sútun, einkum varð-
andi litun og sútun á pelsgær-
um. En þar er sú iðngrein talin
standa á háu stigi og Finnár í
fremstu röð með þær vörur á
heimsmarkaðinum.
Alítur þú möguleikana mikla
í þessari grein?
Mér varð það þá betur Ijóst
en áður hve mikla möguleika
íslenzku gærurnar hafa. En enn
þá er það samt svo, að verðmæt-
ustu gærurnar, þ. e. fyrsta
flokks gráar gærur eru allar
fluttar óunnar úr landi. Á þessu
þarf auðvitað að verða breyting
hið allra fyrsta. Við megum
ekki sætta okkur við annað en
fullvinna þessa vörutegund og
senda loðskinnin, bæði sútuð og
saumuð, úr landi. Við erum ann
ars 5 ungir menn í þessu hér á
Akureyri og ferðinni er heitið
til Finnlands aftur nú í sumar
til frekara náms.
Hi'að gerirðu einkum í tóm-
stundum þínum?
Stunda íþróttir mér til ánægju
og heilsubótar. Æfingar og
keppni er án efa mjög þrosk-
andi, enda er sagt, að þeir sem
iðki íþróttir í æsku verði ávalt
ungir þótt þeir eldist að árum.
Þú heíur þá væntanlega áliuga
'á nýju íþróttahúsi?
Já, og við erum mörg, sem
viljum láta'þá ósk í ljós, að nýtt
íþróttahús rísi hér sem allra
fyrst. Og það verður að svara
Baldvin Þóroddsson.
kröfum tímans og vera bænum
til sóma. Einhvers virði ætti
það að vera, að fjöldi ungs fólks
stefni þangað til æfinga í tóm-
stundum, í staðinn fyrir að fara
í ballhús eða bíó. Mér finnst, að
Akureyri ætti að keppa að því
að verða íþróttabær, sá fremsti
á landinu, því bærinn hefur til
þess mörg skilyrði, ef fólkið að-
eins vill. Við viljum auðvitað fá
betri aðstöðu í mörgum grein-
um íþróttanna. Einnig þarf
að hugsa meira um þá, sem
yngri eru en ég, hvað skemmt-
unar- og tómstundaaðstöðu
snertir. Svo vil ég að lokum
þakka bæjarstjórn fyrir það, er
hún hefur vel gert í þessum
málum, segir Baldvin Þórodds-
son að lokum og þakkar blaðið
greinargóð svör hans. ' Q
TIL NEMENDA MINNA
OG ANNARRA VINA Á AKUREYRI
NÚ, ÞEGAR sumarið nálgast,
hlýt ég að snúa aftur heim
til ættlands míns, Bandaríkj-
anna. En aður en eg fer, langar
mig til að láta í ljós þakklæti
mitt til ykkar fyrir góða við-
kynningu og gott viðmót þann
tíma, sem ég hefi dvalizt á Ak-
ureyri.
Þið hafið látið mig finna mjög
greinilega, að ég hefi verið vel-
kominn og hafið sýnt mér margs
konar greiðvikni og hjartahlýju.
Mér hefir þótt vænt um að mega
koma á heimili ykkar og fá að
vera með ykkur í starfi og leik
á liðnum vetri. Það hefir verið
afar ánægjulegt að vera kenn-
ari á Akureyri. Nemendur mín-
ir í skólunum hafa verið fullir
eftirtektar og áhuga við ensku-
námið, og mér hefir einnig vei'-
ið mikil ánægja að starfa með
svo mörgum fullorðnum á kvöld
námskeiðunum. Ég vona, að
kennsla mín hafi oi'ðið ykkur
að einhverju liði.
Margir Bandaríkjamenn vita
lítið um hina einstöku og oft
hrikalegu fegurð íslands. Snævi
þakin fjöllin, frið og yndisleika
Mývatns, útsýnið yfir Akur-
eyri frá Súlutindi, allt eru
þetta dæmi um hina hrífandi
fegurð, sem ég hefi fundið í
landi j'kkar og mun hafa heim
með mér á ljósmyndum.
Ég hlakka til þess dags, þeg-
al' ég get komið aftur til Akur-
eyrar til endui-funda. Þakka
ykkur fyrir allt.
David Rolhel,
Fulbright-kennari,