Dagur - 08.06.1966, Page 8

Dagur - 08.06.1966, Page 8
8 SMÁTT OG STÓRT Gisli- og kvikmyndahúsið Varðborg á Akureyri, eins og það er íyrirhugað. Fyrsta skóflustungan að nýbygg- ingu við Varðborg Gisti- og veitingarúm aukið, síðan byggður nýr salur til kvikmyndasýninga A S13NNUDAGINN átlu fréita xnenn kost á að kynna sér fyrir , hugaðar framkvæmdir hjá I.O.G.T. hér á Akureyri, en þá haíði framkvæmdaráð stúkn- anna fund með blaðamönnum í veitingastofu sinni í Varðborg. * Arnfinnur Arnfinnsson stjórn ©rforma'ður fulltrúa- eða fram- kvæmdaráðs I.O.G.T. bauð gesti velkomna en Stefán Ág. Kristjánsson flutti síðan ræðu óg skýrði fyrirhugaðar fram- kvæmdir reglunnar, sem nú eru að hefjast við Varðborg. Byggð verður viðbót sunnan við aðaibygginguna, á tveim hæð- um. Verða þar 8 gistiherbergi Og veitingarúm niðri. Bindindis mannahótelið Varðborg rúmar þá 60 næturgesti og veitinga- stofan allt að 100 manns. Þessi framkvæmd er nú að hefjast og er verktakinn Hagi h.f. Næsti áfangi verður svo að byggja forsal einn mikinn og síðast 400 sæta bíósal. Ræðumaður lýsti þessu svo nánar, kvað gistihúsarekstur ekki arðvænlegan að vetrinum, en Varðborg yrði næsta vetur bústaður nemenda MA eins og si. vetur og væri það báðum stofnunum hagkvæmt, einnig sagði hann frá því, að skrifstofu húsnæði, er Sjúkrasamlagið áður hafði til afnota, yrði nú í vetur leigt reglunni og ætlað til æskulýðsstarfa. Stefán Ág. Kristjánsson tal- aði djarfiega og af skilningi um áfengisvandamálin og starf SVAVAR GUÐNASON SÝNÍR HINN kunni listamaður, Svav- ar Guðnason, opnaði í gær sýn ingu í húsakynnum Bólstraðra húsgagna h.f. í Amarohúsinu 2. hæð. Þar eru 14 vatnslita- myndir frá ýmsum tímum, er að nokkru skýra listþróun höf- undar. „Við tvímennum þama með húsgögn og málverk“, sagði Svavar í gær, er blaðið hitti hann sem snöggvast að máli og bætti því við, að frá sinni hendi væri sýning þessi þakklætis- vottur til fjölda kunningja hans hér í bæ. Akureyringar munu fagna því, að eiga kost á þessari sýn- ingu listaverka, enda í „lista- verkahungri“ ef svo má segja. Svavar Guðnason hefur ekki sýnt verk sín hér áður. □ ■■•ýX Stefán Ág. Kristjánsson mælti nokkur orð á grunni nýbygg- ingar templara og tók fyrstu skóflustunguna. (Ljósm: E. D.) bindindismanna hins vegar, sagði ástandið versnandi í áfengismálum og þörf nýrra átaka almennings til varnar, hér hefði vagga reglunnar stað- ið og margar hugsjónir fæðzt, hugsjónir þessar væru enn afl- gjafi þeirra, sem að heilindum vildu vinna fyrir aðra á vett- vangi bindindismála. Að lokinni ræðu Stefáns Ág. Kristjánssonar og að lokinni (Framhald á blaðsíðu 5). OTTASLEGNIR MENN Alþýðuflokksmenn vöknuðu við þann vonda draum, eftir kosningar, að bæjarstjóri kaup staðarins væri í bráðum háska, eða flokkur þeirra ef þeir töp- uðu honum úr bæjarstjórasæt- inu. Um þetta vitnar síðasti Al- þýðumaður og upphefur vitna- leiðslur honum til stuðnings. Að öðru leyti eru skrif blaðsins um þetta efni fremur brosleg og bera ekki þess vott, að ritstjór- inn eða viðmælendur hans hafi íylgzt með þróun mála eftir kosningar — sýnist jafnvel vatnið farið að renna móti brekkunni. ALLUR VINDUR HORFINN Sjálfstæðismönnum er nú þorr inn allur sá vindur, sem flokki þeirra fylgir jafnan um kosn- ingar, enda töpuðu þeir fylgi misstu t. d. bæði sökku og beitu hér á Akureyri. Þeir skipuðu lista sinn ekki sigurstranglega hér í bæ og treystu ólieppnum utanbæjarmönnum fyrir blaði sínu og áróðursvinnu, enda brást þeim fylgið og eru miður sín. f blaði þeirra virðist engin vonarglæta. ÞORSKUR Á STÖNG Fyrr í sumar veiddu 3 menn um 1000 pund af vænum þorski á stöng á 5 klst. hér skammt úti á firðinum. Þorskurinn þykir nú vera orðinn dálítið „snobb- aður“ á stundum. En þetta var óneitanlega góð veiði. MISHEPPNAÐUR BÚSKAPUR Það þykir hrakleg útkoma hjá bændum þegar viðkoma búpen ingsins misferst á vori, hvað þá ef eitthvað ferst af stofninum líka. 1 framhaldi af þessu segir Þjóðólfur: „Nú hefur þannig farið hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykja- vik við síðustu bæjarstjómar- kosningar, að hann hefur ekki aðeins misst alla viðkomuna (þ. e. fjölgun kjóscndanna), held- ur og einnig nokkuð af stofn- inum. Hvernig geta svo forystu- menn flokksins, húsbændurnir á heimilinu, státað af því að „það hafi náðst, sem að var stefnt“? Samanber ummæli borgarstjórans í Reykjavík. Ef þetta er stefnan, er stutt í ver- ganginn. i B-LISTA ! " SKEMMTUN ’ I & I Svavar Guðnason, listmálari. verður að HÓTEL KEA laugardaginn 11. júní kl. 9 e. h. — Allt starfsfólk og stuðningsfólk B-listans í bæjarstjórnarkosningunum velkomið meðan hús- rúm leyfir. — Aðgöngumiðar afhentir á skrifstofu ý Framsóknarflokksins, Hafnarstræti 95, n.k. fimmtu- T dag, 9. júní, kl. 8—10 e. h. — Skemmtiatriði aug- | lýst síðar. I t 1 I t í t t í | LOGREGLAN OG RIGNINGIN Það er að verða föst venja í ná- grannasveitum höfuðborgarinn ar, að ungt fólk þaðan fari hóp- um saman í nágrannasveitir borgarinnar um hvítasunnuhelg ina til að ærslast. Mörg hundr- uð ungmenni söfnuðust að þessu sinni að Laugarvatni. Rigningin og lögreglan hjálp- uðust við að hrekja fólkið burtu. Mikil ölvun var þarna og áttu margir vesalingar ömur- legustu vist á hinum fagra stað. Á sumum öðrum stöðum, svo sem í Borgarfirði, var viðbún- aður hafður til varnar þessari liöfuðborgarplágu. SUÐURGÖNGUR Nýlega fóru tveir hópar manna og kvenna frá Akureyri til Reykjavíkur. í öðrum hópnum voru knattspyrnumenn, sem háðu sinn fyrsta kappleik í I. deildarkeppninni og léku við Reykjavíkurmeistarana Þrótt. Jafntefli varð, en öllum kemur saman um yfirburði okkar manna í þessum fyrsta leik. í hinum hópnum fóru karlar og konur á vegum Leikfélags ins og sýndu Bæinn okkar, sjón leik, er hér var sýndur áður við góðan orðstír. Aðsókn var góð og leiknum vel tekið syðra. SKIPIN OG HAFNAR- MANNVIRKIN Fyrir nokkrum dögum sigldi Fjallfoss hér inn á Pollinn, fær andi hendi og velkominn. En er hann lagðist að Torfunefs- hryggju gerði hann það svo gróflega, að bryggjukanturinn skemmdist verulega. Logn var á. Of oft verða bæjarbúar vitni að því, að skipum er svo klaufa lega lagt að hafnarmannvirkj- um, að skemmdir hljótast af. Sumir furða sig á slíkri sjó- mennsku. HART EÐA MJÚKT? Tunglið er eins og malbik, segja vísindamenn, sem skoðað hafa myndir frá Surveyor — eldflaug Bandaríkjamanna, er þar lenti. Þegar Luna hin rússneska lenti þar fyrr á ár- inu var það mjúkt eins og’ hveitibingur! HENGDU FJÓRA RÁÐ- HERRA Það var mikil hátíð í höfuðborg Kongó, þegar hengdir voru á stóru torgi Iiöfuðborgarinnar fjórir fyrrverandi ráðherrar landsins. Enda fyrirskipaður frídagur og til þess mælzt, að borgarbúar væru sem flestir viðstaddir. Er athöfnin íór fram trylltist lýðurinn og konur og böm tróðust undir. NÝJAR LANDBÚNAÐAR- VERKSMIÐJUR Ein er sú búgrein á íslandi, sem sjaldan er nefnd á nafn, en kann að eiga mikla vaxtarmögu leika, en það er heymjöls- eða (Framhald á blaðsíðu 7.)

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.