Dagur - 10.08.1966, Blaðsíða 1
I ffYT'f '" I Herbetgis-
i ft— L. pcntanir.
FerSa-
Ekriístoian
Túngötu 1.
Akureyri,
Sízni 11475
XLIX. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 10. ágúst 1966 — 55. tbl.
Ferðaskrifstofani
Skipuleggjum
ierðir skauta
á milli.
Farseðlar með
Flugfél. ísl. og
Loííleiðum.
Minkurinn kominn í Vopnafjörð
BLAÐIÐ hafði tal af Þorsteini
bónda Þorgeirssyni á Ytri-
JNTýpum á mánudaginn. Sagði
hann, að þó þurrklaust hefði
verið í rúmlega hálfan mánuð,
væri ástand í heyskaparmálum
ekki alvarlegt ennþá. Spretta
væri góð bæði á ræktuðu landi
og úthaga. Seinnipart júlímán-
aðar hefðu þurrkar verið góðir
og bændur þá náð inn verulegu
ÍBA-KR leika á Akur-
eyri á fimmtudaginn
N. K. FIMMTUDAG, 11. ágúst,
kl. 8 e. h. leika ÍBA og KR hér
á íþróttavellinum. Þetta ér 8.
leikur ÍBA en 7. leikur KR í I.
deildarkeppninni. Mjög hörð og
skemmtileg keppni er nú í I.
deild og ómögulegt að segja um
það enn, hvaða lið hreppir ís-
landsmeistaratitilinn í ár. Valur
stendur þó bezt að vígi enn, er
með 11 stig eftir 8 leiki, þá kem
ur IBK með 8 stig eftir 7 leiki,
þá ÍBA nieð 7 stig eftir 7 leiki,
síðan Akranes og KR með 6 stig
eftir 6 leiki og Þróttur rekur
lestina með 2 stig eftir 6 leiki.
Búast má við mjög skemmti-
legum leik hér á fimmtudags-
kvöldið, því nú er hvert stigið
dýrmætt í lok keppninnar. □
magni af heyjum og sumii' jafn
vel alhirt fyrri slátt á túnum
sínum.
Minka hefur nú orðið vart við
Selá en ekki var um þá vitað
fyrr í sveitinni. Að sjálfsögðu
geta þeir víðar verið. Það var
veiðimaður einn við Selá, sem
varð minka var í urð á efsta
veiðistað árinnar, við fossinn.
Þrír minkar voru skotnir þar
og ráðgerð er nú minkaleit, því
efalítið mun þá víðar að finna í
Vopnafirði.
Laxveiði hefur verið treg í
ánum í sumar og langt undir
meðallagi. Þó hefur aflinn
glæðzt að undanförnu, sagði
Þorsteinn bóndi. □
LAGARFLJÓTSBRÚ og Egilsstaðakauptún.
(Ljósmynd: E. D.)
Framleiðslukosfnaður búvara hefur hækkað um 130% síðasfl. 5 ár
Mjólkurframleiðsla hefur minnkað. smjörf jall-
ið lækkað, sagði Gunnar Guðbjartsson á aðal-
fundi Stéttarsambandsins í Reykjavík
AÐALFUNDUR Stéttarsam-
bands bænda hófst í Bændahöll
inni í Reykjavík á mánudaginn
og mun ljúka í dag. Aðalvið-
fangsefni fundarins eru að sjálf
sögðu framleiðslu- og verðlags
MARGIR FARA MÚLAVEG
Yegur Jiessi er þó enn lokaður en við hann unnið
MARGIR stytta sér í sumar
leiðina vestur og aka Múlaveg
hinn nýja. Misjafnlega láta
menn af gæðum hans en um
vegalengdina efast enginn. Þeg
ar blgðið spurðist fyrir um
Múlaveg á mánudaginn, upp-
lýsti Guðmundur Benediktsson
vegaverkstjóri eftirfarandi:
í fyrsta lagi er Múlavegur
lokaður allri umferð, svo sem
merki sýna. í öðru lagi er hann
nú mjög illur yfirferðar vegna
bleytu eftir miklar rigningar. í
þriðja lagi er unnið við Múla-
veg og tefur umferð vinnuna,
auk þess sem hún á stundum
lokar allri umferð ökutækja, og
í fjórða lagi er mikil umferð um
veginn, þrátt fyrir það, sem að
framan greinir. Menn fara þann
veg á eigin ábyrgð.
Fólki er ráðlagt að kynna sér
vegarástandið áður en það ekur
Múlaveg, því stundum er hann
alls ófær bifreiðum. □
mál landbúnaðarins. En bænd-
ur, sem áður voru tekjulægsta
stétt Iandsins hafa orðið fyrir
fjárhagslegum áföllum einkum
vegna verðbólguþróunarinnar
og afleiðingum hennar á þróun
efnahagsmála.
Gunnar Guðbjartsson, for-
maður Stéttarsambands bænda
flutti erindi í upphafi fundarins,
á eftir ávarpi landbúnaðarráð-
herra og rakti þá þróun verð-
lagsmála landbúnaðarins, allt
frá því sexmannanefndin varð
óstarfhæf í fyrrahaust og rikis-
stjórnin gaf út bráðabirgðalög
um sama verðlagsgrundvöll og
gilt hafði, en þriggja manna
nefnd embættismanna skyldi
svo ákveða verðið samkvæmt
honum. Stéttarsambandið og
Framleiðsluráð hefðu mótmælt
þessum lögum, m. a. vegna þess
að lagabrot ASÍ, þ. e. brott-
hlaup úr sexmannanefndinni,
hefði ranglega verið látið bitna
á bændastéttinni.
Gunnar Guðbjartsson minnti
á, að um sl. áramót hefði vant-
að 70—80 millj. kr. upp á út-
flutningsbætur til þess að
grundvallarverðið næðist. Fram
leiðsla mjólkur hefði, sagði
hann, aukizt um 40% sl. 5 ár en
salan um aðeins 15—18%. Þá
sagði hann, að framleiðslukostn
aðarverð búvaranna hefði hækk
að um 130% síðustu 5 árin en
tiltölulega litlar verðbreytingar
orðið á verði landbúnaðarvara
í markaðslöndum okkar. Þess
vegna hefði verið þörf meiri út
flutningsbóta.
Um framleiðslu og söluhorfur
búvaranna sagði Gunnar Guð-
bjartsson, að smjörsalan hefði
(Framhald á blaðsíðu 5).
BÚPENIN6IFÆKKAR í HRÍSEY
KONUNGSHÖLL RÍS VIÐ JÖKULSÁ A FJÖLLUM
f HLJÓÐAKLETTUM við Jök-
ulsá á Fjöllum er búið að
byggja konungshöll í fornum
stíl með skíðgarði. Danskt kvik
myndafyrirtæki setur þar á
svið kvikmyndina „RAUÐU
SKIKKJUNA“ sem er forn-
sögulegs efnis, ofin utan um
hina skráðu heimild um Signýu
og Hagbarð.
Þarna í Hljóðaklettum hefur
mikið verið um að vera í sum-
ar. Um 70 kvikmyndaleikarar,
smiðir og aðrir starfsmerin hafa
verið þar að verki og 50—60
hestar, að því er talið er. En
aðkomufólkið hefur aririars
dvalarstað í Skúlagarði og
Lundi. Leikararnir munu flestir
vera danskir og sumir allfræg-
ir, en þó er þarna fólk af fleiri
þjóðum og einhverjir heima-
menn í Kelduhverfi og Axar-
firði koma fram í kvikmynd-
inni. Ekki munu byggingarnar
í Hljóðaklettum hafa reynzt
tiaustar í áfellinu á dögunum,
enda fyrst og fremst ætlaðar til
að sýnast en ekki til frambúðar.
Sagt er, að hinn útlendi leik-
stjóri hafi kysst jörðina af hrifn
ingu þegar hin stórbrotna nátt-
úrufegurð við Jökulsá birtist
honum í fyrsta sinn — og að
framleiðslukostnaður kvikmynd
arinnar sé áætlaður 18 milljón-
ir íslenzkra króna (3 millj.
danskar krónur). □
Hrísey .8 ágúst. Að undanförnu
hafa flestir legið í landi og ekki
komizt á sjó vegna ógæfta. Það
er fyrst í dag að nokkrir fóru á
sjó. Þetta er því mesta hörmung
hjá okkur eins og er, enda allt
bundið við sjósóknina hér í eyj
unni.
Megnið af túnum þorpsbúa er
í sinu því menn hafa á síðari
árum orðið fráhverfir búskap.
Árið 1940 voru hér t. d. 40 kýr
en nú ein. Árið 1950 mældust
hér 50 hektara tún og var hér
þá, auk nautgripa, allmargt
sauðfé.
Samkvæmt umsögn þeirra
fuglafróðu rnanna, sem í Hrísey
dveljast öðru hverju til að rann
saka lifnaðarhætti rjúpunnar,
hefur um helmingur af rjúpna-
ungunum di’epizt í norðanveðr-
inu fyrir hálfum mánuði. ásamt
fjölda af ungum annarra fúgla.
Nú erum við prestlausir og
þykir ekki gott. Ágætur emb-
ættisbústaður bíður hér nýs
sálusorgara. Mjög fer vel á því,
að prestur sinni einnig kennslu
störfum hér, þegar til kemur.
Bráðlega kemur hingað sér-
fróður maður til að gera frekari
athuganir á heita vatninu, sem
nú streymir úr borholunum í
Hrisey og Dagur hefur líkt við
gullfund. Rétt er það, að heita
vatnið mun mega teljast mjög
verðmætt fyrir framtíðina. En
ekki er sopið kálið þótt í aus-
una sé komið því dýrt mun
reynast, að koma vatninu inn í
þorpið og gera hitaveitu. En
eitthvað mega menn líka á sig
leggja til þess að fá langþráð
heitt vatn til heimilisnota. Þ V.
Gamanieikuritin „Bun-
bury“ sýiidur í kvöld
GESTALEIKHÚSIÐ hefur að
undanfömu sýnt gaitianleikinn
„Bunbury“ eftir Oskar Wilde
og liefur leikurinn lilotið góða
dótna. Lcikflokkurinn liefúr
þegar sýnt leikinn á Austfjörð-
um, cn er nú kominn til Akur-
eyrar og hafði sýningu í Sarrt-
komuliúsinu í gærkveldi og
ætlar að sýna aftur í kvöld,
miðvikudag. Síðan heldur leik-
flokkur þessi til Véstfjarða.
Leikendur eru þessir: Helga
Valtýsdóttir, Kristín Anna Þór-
arinsdóttir, Sigríður Þorvalds-
dóttir, Bríet Héðinsdóttir, Arn-
ar Jónsson, Bjarni Steirigríms-
son, Krtrl Guðmundsson og
Kjartan Thcrs. □