Dagur - 10.08.1966, Blaðsíða 8
8
SMÁTT OG STÓRT
íþróttaskemman í smíðum. Stálmót og krani auðvelda bygginguna.
(Ljósm.: E. D.)
íþróttaskemman er í byggingu
UNGT FÓLK á Akureyri hef-
ur sótt fast eftir stuðningi Ak-
ureyrarkaupstaðar við hvers
konar aukna og bætta íþrótta-
aðstöðu, sem í mörgum grein-
um hefur verið svarað á verð-
ugan hátt. Má þar nefna sund-
laug, íþróttahús, íþróttavöll,
Skíðahótelið o. fl.
Á síðustu árum hefur vöntun
á öðru íþróttahúsi leitt til þess,
að ákveðið er að reisa mikið
íþróttahús. En til þess að koma
sem fljótast til móts við æskuna
í þessu máli, ákvað bæjarstjórn
in í örlæti hjarta síns, fyrir
síðustu bæjarstjórnarkosningar,
að koma fljótt og vel til móts
við æsku bæjarins með því að
koma upp nýju 25x40 m hús-
hæði til innanhússíþrótta, sem
síðar yrði áhaldahús bæjarins,
er ný og fullkomin íþróttahöll
risi.
Þetta verk var boðið út, eina
eða ein af fáum byggingafram-
'kvæmdum þessa bæjar, sem út
hafa verið boðnar. Hagi h.f. und
ir stjórn Hauks Árnasonar
gerði hagfeildasta tilboð og var
ÞURFA AÐ MINNKA
BÚSTOFNINN?
Svarfaðardal 6. ágúst. Heyskap
ártíðin hér í sumar hefir verið
éin sú versta sem menn muna
éftii'.'Sífeldur norðan þræsing-
Ur, rigning, þoka og súld.
Um helgina fyrir hálfum mán
Uði var óvenjulegt illviðri á
þessum tíma árs. Setti þá nið-
ur mikinn snjó til fjalla, og hef-
ir þann snjó ekki leyst að fullu
énnþá.
Sláttur hófst með langsiðasta
•móti eða ekki fyrr en kringum
10. júlí.
Heyöflun gengur að vonum
mjög seint og hafa sumir náð
litlu af heyi í hlöðu ennþá. Víða
eru tún orðin mjög blaut og
torveldar það umferð véla og
þurrkun heys. Gras er víðast
mikið, en nú orðið úr sér sprott
ið. Skipti ekki fljótlega um tíð-
arfar til hins betra, lítur út fyr-
ir að fækka verði búfé í stórum
Stíl. G. V.
því tekið. Skyldi bygging hafin
9. júlí en byggingu lokið 30.
október í haust, húsið múrhúð-
að utan og innan og einangrað.
Er hér um að ræða stóran
íþróttasal með 5 metra breiðu
áhorfendasvæði. Hæð undir loft
bita á að vera 6 metrar.
Nú stendur bygging yfir og
eru stálmót notuð. Á dag er
hægt með þessum vinnubrögð-
um að steypa 20 lengdarmetra í
venjulegri vegghæð. Tilboðið
hljóðar upp á verð, sem svarar
til þess að hver rúmmetri húss-
ins kosti 450 krónur. í því er
ekki upphitun, rafmagn eða inn
réttingar innifalið. Allt útlit er
fyrir, að verkáætlun standist og
mun það gleðja íþróttafólkið, og
fylgist það vel með framkvæmd
um. Margir voru tortryggnir og
töldu loforðum um bygginga-
framkvæmdir bæjarins lítt
treystandi. Vonandi er, að sú
tortryggni reynist ástæðulaus.
HJÁLPAÐI 600 BÍLUM
Félag íslenzkra bifreiðaeigenda
hjálpaði ferðafólki um verzlun-
armannalielgina síðustu víða
um land. Alls veitti félagið 605
bílum aðstoð og er sú vegaþjón
usta ómetanleg og mjög þakkar
verð. Hjálparbílar FÍB á vegum
úti, 17 að tölu, voru betur búnir
og fleiri talsins en áður. Félagið
hafði m. a. 2 kranabíla í þjón-
ustu sinni, og var þeirra full
þörf.
Það er algengara að fjalla um
ökuníðinga og klaufa í umferð-
inni en það, sem vel er gert.
Félag íslenzkra bifreiðaeigenda
á hrós skilið fyrir góða viðleitni
og ómetanlegt hjálparstarf.
UMFERÐARMENNINGIN
VEX
Almennt er litið svo á, og vill
sá, sem þetta ritar, einnig votta
það, að umferðarmenningin hef
ur aukizt smám saman á síðari
árum. Það mun nú fáum þykja
til fyrirmyndar að þjösnast
áfram í umferðinni á þjóðveg-
um landsins. Sumir vilja að vísu
aka hratt og gefa slíkt óspart til
kynna. En almenn umferðar-
kurteisi hefur aukizt verulega
og er sérstök ástæða til að
þakka þá tillitssemi, sem veg-
LANDSMOT SKÁTA Á HREÐAVATNI
LANDSMÓT SKÁTA að Hreða
vatni stóð yfir frá 25. júlí til 1.
ágúst. Fastir þátttakendur voru
um 1700 en alls munu um 2000
skátar hafa komið á mótið. Auk
þess bjuggu hufidruð manna í
svonefndum fjölskyldúbúðum,
en þær voru einkum ætlaðar
gömlum skátum og foreldrum,
sem bjuggu þar með börnum er
ekki höfðii náð skátaaldri.
„Unglingarnir" í þessum búðum
voru á aldrinum 5 til 65 ára.
Þeir, sem ekki sáil þetta mót
geta tæplega gert sér fulla
grein fyrir því mikla verki, sem
lá í undii’búningi þess. Það gef-
ur þó nokkra hugmynd um ytri
ramma mótsins, að allt tjald-
búðasvæðið var skipulagt eins
og bær eða borgarhverfi með
vatnsleiðslum, síma, póststofu,
banka . og sjúkraskýli þar sem
starfandi var lærð hjúkrunar-
kona og læknir auk þeirrar
þjónustu, sem hjálparsveitir
skáta geta veitt. Löggæzlu og
umferðarstjórn önnuðust skát-
arnir sjálfir eins og alla aðra
þjónustu á mótinu.
Þetta mót sóttu 74 skátastúlk
ur frá Akureyri og rösklega 90
skátadrengir héðan komu á mót
ið en fastir þátttakendur frá
Skátafélagi Akureyrar (dreng-
ir) voru 84.
Tjaldbúðunum var þannig
skipt að stúlkur bjuggu í Kyrra
hafsbúðum, mótsstjórn og opin-
ber þjónusta var í Miðjarðar-
hafsbúðum, drengir bjuggu í
Indlandshafsbúðum en fjöl-
skyldubúðirnar vóru í Þang-
hafinu.
Hvert félag nefndi tjaldsvæði
sitt eftir landi eða eyju, sem
liggur að því hafi, sem tjald-
búðasvæðið dró nafn sitt af. Ak
ureyrarstúlkurnar bjuggu t. d.
á Rasóía í Kyrrahafinu en
drengirnir ’ á Maldiveeyjum í
Indlandshafi, sem er minnsta •
ríki Sameinuðu þjóðanna.
Á mótinu gafst þátttakendum
kostur á að fara ferðir.um Snæ-
fellsnes og Breiðafjarðareyjar,
um Stafholtstungur að Húsa-
felli og inn í Víðgelmi og að
Tröllakirkju á Holtavörðuheiði.
Einnig voru farnar gönguferðir
á Grábrók, Rauðbrók, Hrauns-
nefsöxl og Baulu, og síðast en
ekki sízt má nefna „markferð-
ir“ sem tóku 8, 12 eða 24 tíma.
Markferðir fara skátaflokkar
leiðsagnarlaust um ókunnugt
land og verða þá með stuðningi
áttavita og korts að finna til-
tekna staða, þar sem þeir verða
að leysa af hendi ákveðin verk-
efni. Þegar heim er komið skil-
ar flokkurinn skýrslu um ferð-
ina og oft verður hann einnig
að leggja fram hluti, sem hann
hefur tekið á tilteknum stöðum.
Auk þessara dagskrárliða
fóru fram keppnir í leikjum og
skátaiþróttum alla daga en á
kvöldin skemmtu menn sér við
varðelda.
Skátafélag Akureyrar sá um
víðavangsleiki, sem voru mjög
veigamikill þáttur í móti þessu
og einnig komu þeir upp barna-
leikvelli í fjölskyldubúðunum.
(Framhald á blaðsíðu 2)
Tryggvi Þorsteinsson skátaforingi með verðlaunagrip Akureyrar-
skátanna. (Ljósm.: E. D.)
farendur yfirleitt sýndu um síð
ustu verzlunarmannahelgi. í
umferðarmálum bæjanna er aft
ur á móti pottur brotinn og
ástæða til að ræða þau niál sér-
staklega.
DÝRMÆTUR HVALUR
Grindhvalur, tveggja metra
langur, var fangaður lifandi í
Færeyjum fyrir rúmri viku og
látinn í útisundlaug. Dýragarð-
ar sækjast eftir slíkuni skepn-
um, sem sjaldan liefur tekizt að
fanga óskaddaða. Flamingo
Park-dýragarðurinn í London
keypti skepnuna þegar í stað.
En það var öllu erfiðara með
flutninginn.
HEITASTA BORHOLAN
Á Nesjavöllum suður, á um-
ráðasvæði Reykjavíkurborgar,
en þar er mikill jarðhiti, er nú
verið að bora eftir vatni. Á 720
metra dýpi var hitinn kominn
upp í 259 stig og hefur aldrei
áður mælzt annar eins á landi
hér í nokkurri borholu. En
hvorki gaf borhola þessi gufu
eða vatn, en við miklu var bú-
izt.
ÞAR SEM FLEST ER STÓRT
Margir íslendingar finna til
smæðar lands og þjóðar er þeir
gista milljónaþjóðir, þar sem
svo margt sýnist stórt í sniðum,
sem af mannahöndum er gjört.
En vandamálin eru ekki síður
risavaxin þar,i og ekki er ör-
yggi borgaranna, líf þeirra eða
fjármunir, tryggt sem skyldi.
Nýlega voru átta hjúkrunar-
nemar á skóla einum í Banda-
ríkjunum myrtar á einni nóttu
innan veggja þeirrar stofnunar,
sem átti að veita þeim fræðslu
og öryggi. Og á lítilli stundu
myrti háskólanemi 14 manns
með skotvopnum, áður en hann
sjálfur féll fyrir byssukúlu rétt
vísinnar.
Framkvæmdir á Húsa-
víkurhöfða vegná
nnar
Húsavík 8. ágúst. Undanfarið
hefur verið ófært á gjó, en ann-
ars hefur þorskafli verið mjög
sæmilegur í sumar og sjórinn
fast sóttur af mörgum dugandi
sjómönnum hér á staðnum.
Hingað kom Dagfari í gær
með síldarfarm og voru saltað-
ar 300 tunnur. Alls eru komin
2750 tonn í bræðslu og er það
álíka magn og á sama tima í
fyrra.
Ráðgerðar eru töluverðar
framkvæmdir við Húsavíkur-
höfða vegna Kísiliðjunnar og
uppfylling. Þar verður og reist
mikil vöruskemma á vegum
sama fyrirtækis.
. Mikið er byggt á Húsavík í
sumar og atvinna því mjög mik
il. Meðal bygginga í almanna-
þágu er verzlunarhús K. Þ. við
Garðarsbraut. Fréttaritari.