Dagur


Dagur - 26.10.1966, Qupperneq 8

Dagur - 26.10.1966, Qupperneq 8
8 GILDRIT? MÁNUDAGINN 17. okt. hélt Bjarni Benediktsson forsætis- róðherra ræðu í Varðarfélaginu í Reykjavík, sem hann nefndi: „Á vegamótum velgengis og vandræða“. Skoraði hann þar á ferystumenn verkalýðssamtaka að semja um óbreytt kaupgjald fram í ágústmánuð 1967 eða fram yfir kosningar. Frjáls þjóð segir 20. okt., að með þessu hafi Bjarni og hans menn lagt „gildru“ fyrir verka- lýðsleiðtogana. Um þetta segu- Frjáls þjóð orðrétt: „Gildruna telja þeir svo hag- lega setta upp að hvað sem verkalýðshreyfingin geri muni það rýra álit hennar og stjórnar andstöðunnar. Fallist þeir á kaupbindingu — án verulegra kjarabóta — muni það vekja mikla og almenna óánægju í röðutn launþega, sem muni vaxa eftir því sem betur kemur í Ijós, að í framkvæmd stjórnar innar mun stöðvun leiða til kjaraskerðingar eða atvinnu- leysis: Annaðhvort verður fjár til ' styrktar atvinnuvegunum aflað með stórauknum sköttum, eða ekkert verður að gert og Játning í ílokksráði Sjálfstæðisflokksins 14. október „MARGIR liafa fengið þá til- finningu, að liér sé allt á hverl'- andi hveli og að hruni komið“. Undirskrift: Bjami Bene- diktsson. Mbl. 23. október. □ Brætt á Skagaströnd Skagaströnd 24. okt. Alls eru komin 10 þús. mál síldar til Skagastrandar og var verksmiðj an fljót að bræða þau, eða á þriðja sólarhring með hálfum afköstum. Það gladdi fólk mjög að fá þessa síld og ennfremur að sjá síldarverksmiðjuna að starfi og í mjög góðu lagi. Aðeins önnur pressan var notuð að þessu sinni. Hér verður vonandi fram hald á. Menn eru ögn að fara til rjúpna en fá lítið sem ekkert. frystihúsin, bátarnir og togar- arnir ekki reknir í vetur. Fari á hinn bóginn svo, að verka- lýðsforystan telji sér nauðugan einn kost að hafna tillögum Bjarna, sem tilraun til að láta verkalýðinn bera einan afleið- ingar ófarnaðar viðreisnarstefn unnar, mun áróðursvél íhalds- ins. sett .í gang og stjórnarand- staðan gerð ábyrg fyrir hruni atvinnuveganna.“ Ekki álítur Frjáls þjóð þó „gildruna11 eins hættulega og forsætisráðherrann telji sér trú um, að hún sé. □ Glímdi viS Ivo prólessora Á ALÞINGI því, sem nú er nýbyrjað, flytja þeir Þórarinn Þórarinsson, Ingvar Gíslason og Halldór E. Sigurðsson til- lögu um að skora á ríkisstjórn- ina að hlutast til um, að Seðla- bankinn kappkosti að fullnægja því hlutverki, sem honum er ætlað í lögum frá 24. marz 1961. að vinna að því, að „fram- leiðslugeta atvinnuveganna sé hagnýtt á sem fyllstan og hag- kvæmastan hátt“ eins og það er orðað í lögunum. Miðvikudaginn 19. okt. kom þetta mál til umræðu í samein- uðu þingi, og mælti Þórarinn fyrir tillögunni. í umræðunum þurfti hann að glíma við tvo hagfræðiprófessora, sem veitt- ust að honum og tillögunni. Voru það þeir Gylfi Þ. Gísla- son viðskiptamálaráðherra og Ólafur Björnsson. Var það mál manna, að Þórarinn hefði haft í fullu tré við prófessorana, enda nú talinn einn af snjöll- ustu kappræðumönnum þings- ins. Þórarinn sagði, að reksturs- kostnaður atvinnufyrirtækja myndi síðan á árinu 1959 hafa hækkað um 160—170%. En end urkaup Seðlabankans á fram- leiðsluvíxlum hefði aðeins hækkað um 36% á árunum 1960—1965 og útlán banka og sparisjóða um 111%. Hefðu end urkaupin numið 857 millj. árið 1959 og 1164 millj. árið 1965, en útlán banka og sparisjóða 3899 millj. árið 1959 og 8242 millj. árið 1965, samkvæmt skýrslum Fjármálatíðinda. Útlánaaukn- ingin væri þannig of lítil í hlut (Framhald á blaðsíðu 2.) Þyngslð dilkurinn 33 kíló Blönduósi 24. okt. Lógað var 44 þús. fjár. Meðalþungi dilka var 13,7 kg. en 14 kg. í fyrra. Fjár- talan var 6 þús. hærri en sl. ár. Á Bollastöðum í Blöndudal hef ur jafnari verið vænt fé og þyngstir dilkar, en nú hefur þetta ekki verið borið saman. En vænsta dilkinn sem vóg 33 kg„ átti Skafti Kristófersson, Hnjúkahlíð við Blönduós. Stórgripaslátrun hefst á mið- vikudag. Fleiri nautgripum verður lógað en nokkru sinni áður, og síðast er svo folalda- slátrun. Sú tala verður svipuð og áður, eða um eitt þúsund, þar af ofurlítið af fullorðnum hrossum. Sláturhússtjóri er Magnús Daníelsson bóndi á Syðriey í Vindhælishreppi. Barna- og unglingaskóli er byrjaður fyrir nokkru. Skóla- stjóri er Þorsteinn Matthíasson, en hann er í fríi og annast Guð mundur Ólafsson skólastjórn- ina á meðan. Ó. S. Kúnum fækkar Haganesvík 24. okt. Heyskapur varð sæmilegur í Fljótum í sumar enda spretta allgóð þótt háarspretta brygðist að mestu. Bændur fækka því ekki bú- peningi sínum. En sú breyting er ljós, að kúm fækkar en sauð fé fjölgar. Heimavistarbarnaskóli er í Sólgörðum hjá Barði og hefst SMATT OG STÓRT MÁLFÆRSLA OG með því, en meirihluti Alþingis DÓMGREIND samþykkti að visa því til ríkis- Til eru málflutningsmenn, sem stjórnarinnar. Helgi Bergs er, taka að sér eða eru til þess eins og áður, framsögumaður skikkaðir vegna stöðu sinnar, þessa máls. þó mætir menn séu, að verja rangt mál og tekst með tungu- LANGAR f STÓLINN MINN mýkt og lagakrókum að fá dóm Magnús Jónsson sagði í útvarps ara til að sýkna þann, sem sek- umræðum, að ádcilur þing- ur er. Hitt mun þó algengara manna á stjómarfarið og dýr- sem betur fer, að dómarar séu tíðarsukkið, kynnu að stafa af nógu skarpskyggnir til að sjá því að þá langaði til að komast við málaflutningi af þessu tagi. Og ætla má, að dómgreind ís- lenzkra kjósenda nægi til að meta réttilega málflutning ráð- lierra, sem í embættisnafni verja stjórnleysið í Iandinu og sukkið í ríkisbúskapnum, sbr. útvarpsúmræður um fjárlaga- frumvarpið 18. okt. sl. LANGUR SKÖLI Það tekur 6 ár í framhaldsskól- um að ná stúdentsprófi. Álíka tíma eða heldur lengri hefir það tekið Bjarna Benedikss. og hans menn að læra það, að hyggilegt sé fyrir stjórnarvöld að hafa samstarf við stéttarsamtökin um ráðstafanir til að halda niðri verðbólgu. Þegar vinstri stjómin undir forystu Iler- manns Jónassonar, setti þetta samstarf á stefnuskrá sína og hóf framkvæmd þess, sögðu Bjarni Ben. og Co., að stjórnin væri að fremja óhæfu með því að semja við „menn út í bæ“ um löggjöf í efnahagsmálum og draga úr höndum Alþingis vald sem það eitt ætti að liafa. Nú biður Bjarni þessi sömu stéttar samtök um samstarf við að lialda niðri öllu kaupgjaldi og afurðaverði fram yfir kosning- ar og segist skuli borga verð- liækkanir úr ríkissjóði. Kaup- máttur krónunar væri meiri ef menn þyrftu ekki svona langan tíma til að læra. EFLING VBGASJÓDS Enn flytja Framsóknarmenn á Alþingi frumvarp til laga um, að leyfisgjald af bifreiðum skuli renna í vegasjóð og því varið til nýbygginga. Leyfis- gjald þetta er áætlað nálega 170 millj. kr. á næsta ári. Af núver- andi tekjum vegasjóðs sem eru áætlaðar rúmlega 260 millj. kr. fara aðeins um 60 millj. kr. til nýbyggingar þjóðvega. Rúm- lega 100 millj. kr. fara í við- liald, en aðrar 100 millj. kr. samtals til sýsluvega, gatna, vélakaupa, stjómar og undir- búnings vegamála o. fl. Þegar þetta frv. var flutt á síðasta þingi, mælti vegamálastjóri en fénu fjölgar einhvem næst dag. Skólastjóri er Svavar Jónsson. Féð reyndist lakara hér í haust en menn höfðu vonað. Meðalvigt dilka var 13,19 kg. og er það minna en í fyrra. Snjólaust er og vegir góðir nema á Lágheiði og Siglufjarð- arskarð lokaðist alveg. E. Á. í ráðherrastólana. Auðheyrt er á þessu, að Magnúsi þykir vænt um stólinn sinn og vill nokkuð til þess vinna að þurfa ekki að láta hann af hendi. Ýmsum öðrum niun, eins og sakir standa, ekki sýnast sá stóll eftirsóknarverður. Gera má ráð fyrir, að velunnarar Magnúsar sjái ráð fyrir honum og losi hann úr stólskönuninni á þann hátt, sem lionum er fyrir beztu. ÍSLANDSPÓSTUR KOM MEÐ KVEÐJU Vonandi kann Gunnar Tlior- oddsen sendiherra vel við sig í sínum nýja stól ekki síður en eftirmaður hans í fjármálaráðu neytinu. Samt lilýtur honum að liafa brugðið í brún, þegar liann fékk fjárlagaræðu Magn- úsar Jónssonar í fslandspóst- inuni, Gunnar var sem sé búinn að vera fjármálaráðherra í 5Yz ár á undan Magnúsi, og í upp- liafi ráðherradómsins lofaði liann miklum umbótum í ráðu- neyti sínu. M. a. var þá talið að hann hefði gefið út 59 spamað- arloforð, sem frægt er orðið. Nú segir Magnús, að þama hafi verið ill aðkoma og er ekki myrkur í máli. Hann segir t. d. orðrétt, að „fjárlagagerðin“ hafi verið með þeim hætti „að ekki hafi verið auðið að sjálfsögðu að kryfja svo til mergjar nú þegar þá þætti ríkiskerfisins, sem helzt kæmu til mála að breyta“. MAGNÚS SAGÐI MEIRA M. J. lieldur áfram og segir orð rétt: „Það er enguin efa bund- ið, að þörf er rækilegrar endur skoðunar á þeim grundvallar- sjónamiiðum, og reglum, er ákveða veigamikla þætti ríkis- útgjalda“. — Og nú spyrja menn: Hvað var Gunnar að gera í 514 ár og Magnús sjálfur í eitt ár og nokkra mánuði? Tvennt vita menn þó um að- gerðir M. J. í sinni tíð: Að liann hefir ráðið sér undirráðlierra (hagsýslustjóra) til að koma því í lag, sem Gunnar á að hafa vanrækt, og að nýja fjárlaga- fmmvarpið er rúmlega 850 milljónum hærra en fjárlögin lians í fyrra. 20% NIÐURSKURÐURINN Hér má raunar bæta við liinu þriðja, og ekki vert að gleyma því, enda kom það glöggt frarn í fjárlagaræðunni. Ráðherrann liefir skorið niður framlög til ýmissa verklegra framkvæmda um 20%. Þetta kemur einkum niður á hinni dreifðu lands- (Framhald á blaðsíðu 2)

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.