Dagur - 02.11.1966, Síða 1
Horbergis-
pantanir.
Ferða-
■krifstoian
Túngötu 1.
Akureyri,
Sími 11475
Ferðaskrifstofan .TúD9Sti* *•
I Siml 11475
Skipuleggjum
ierðir skauta
á millL
Farseðlar með
Flugfél. Ísl. og
Loftleiðum.
MÁRGIR BIFREIÐAÁREKSTRAR
SEX bifreiðaárekstrar urðu á
Akureyri frá því aðfararnótt
laugardags til hádegis í gær.
Þar með er talin bílvelta við
vestustu Eyjafjarðarárbrú að-
fararnótt laugardags. í bifreið-
inni voru 3 menn, en engan
sakaði. Bifreiðin skemmdist
talsvert. í fyrrakvöld varð harð
ur árekstur á Hörgárbraut norð
an við Skúta. Tíu ára drengur
slasaðist eitthvað, og bifreiðir
skemmdust mjög. Framan við
Skjaldborg fór bifreið í sjóinn
og skemmdist en ökumann sak-
aði ekki. Fjórir ökumenn voru
kærðir fyrir of hraðan akstur í
bænum.
Dalvíkurlögreglan flutti
mann einn þaðan, grunaðan um
ölvun við akstur.
(Frá lögreglunni).
SPURT OG SVARAÐ
ÞAÐ ERU fleiri en fjármálaráð
herrann, sem ekki vita sitt „rjúk
andi ráð“ um þessar mundir.
Forsætisráðherrann, Bjami
Benediktsson, er líka í vanda
staddur og því meiri, sem hann
er hærra settur í stjómarráð-
inu, en M. J.
Hinn 14. okt. sl. kom „flokks-
ráð“ Sjálfstæðismanna saman á
fund í Reykjavík. Þar flutti
flokksformaðurinn og forsætis-
ráðherrann langa ræðu, sem
var „hljóðrituð“ á fundinum og
fyllti tvær og hálfa síðu í Mbl.
23. okt. Þar með var hún orðin
opinber boðskapur til kaupend-
anna.
Forsætisráðherrann ræddi
um verðbólguna og spurði:
„Hvemig stendur á því, að okk-
ur á íslandi skuli ganga verr en
ýmsum öðrum að ráða við þenn
an vanda? Hvernig stendur á
því, að liér skuli vera meiri
NORÐURFLUG 7 ÁRA
SJÚKRAFLUGVÉLIN Piper
Apache TF- JMH lenti á Akur
eyri í fyrsta sinn 1. nóvember
1959 eftir 6 klst. flug frá Syðri-
Straumfirði á Grænlandi.
Nú á Norðurflug 5 vélar. Sú
stærsta rúmar 8 farþega. Starfs
menn voru 8 í sumar þegar
mest var að gera. Starfsemin
hefur gengið vel og aukizt ár
frá ári, ekki sízt í yfirstand-
andi ári. Q
verðhækkanir og verðlag vera
óstöðugra, þegar einmitt mætti
ætla, að atvik væru slík, að hér
gæti verið meiri stöðugleiki?“
Við höfum átt erfitt með að
skilja þetta, sagði forsætisráð-
herrann. Honum fannst stjóm-
in ekki hafa legið á liði sínu.
Um það farast honum svo orð
í ræðunni:
„í okkar stjómartíð hefur
rösklega og af meiri þekkingu
og meiri samkvæmni en áður
verið reynt, að berjast á móti
verðbólgunni. — — — Við
liöfum átt þátt í vaxtahækkun.
Við höfum átt þátt í bindingu
sparifjár. Við höfum átt þátt í
skattalagabreytingum, til þess
að taka umframfé af mönnum,
ef svo má segja, og fleira mætti
telja, sem livarvetna annars
staðar er talið sem frumstæð-
ustu og sjálfsögðustu ráð til
þess að berjast gegn verðbólg-
unni.“
Að viðreisnarformanninum
læðist nú Ijótur gmnur. Á ein-
um stað í ræðunni segir hann:
„Spyrja mætti, hvort það sé
rétt, sem andstæðingar okkar
hafa stundum sagt, að efnahags
lögmál þróaðra iðnaðarríkja
eigi ekki við hjá okkur. Það
getur verið nokkuð til í þessu.
Þess vegna segja þeir, að það
þurfi allt aðra aðferðir á fs-
Iandi“.
Loksins kom þá að því, að
liann skildi það eða viður-
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Minjasafnið á Akureyri á 3 þúsund skráða rnuni
Aðalfundur lialdinn á Hótel KEA í fyrradag
AÐALFUNDUR Minjasafnsins
á Akureyri var haldinn á Hótel
KEA sl. mánudag. Formaður
safnstjóx-nar, Jónas Kristjáns-
son setti fundinn en fundar-
stjóri var Steindór Steindórs-
son, fundai-ritari Daníel Pálma
son. Auk stjói’nar og endur-
skoðenda mættu 13 fulltrúar af
15, sem þar höfðu fulltrúarétt.
Sverrir Pálsson, ritari safn-
stjómar flutti skýi-slu stjómar-
innar og Þórður Friðbjarnai’son
framkvæmdastjóri safnsins
flutti skýrslu sína. Ennfremui’
lýsti Jónas Kristjánsson reikn-
ingum og lögð var fram fjár-
hagsáætlun fyrir næsta ár.
Meðal þess er fram kom í
skýi-slum þessum var sú stað-
reynd, að húsnæði safnsins er
orðið of lítið og hefur safnið
komið munum fyrir á þrem stöð
um í bráðabii-gðahúsnæði. Á
lóð safnsins er rúm fyrir við-
bótai’byggingu, sem tengja
mætti aðalhúsinu með sameigin
legum inngangi, en fjái’magn er
af skornum skammti til fram-
kvæmda.
Gamla kii-kjan á Svalbarði í
Svalbarðsstrandai’hreppi er
eign safnsins. Ráðgert hefur
verið að flytja hana til Akur-
eyrar og setja hana niður á
grurmi hinnar gömlu Akureyr-
arkii’kju, sem stóð skammt þar
frá, sem Minjasafnið er nú, þ. e.
(Fi-amhald á blaðsíðu 5).
BÆTT AÐSTAÐA HJA LEIKURUM
Frumsýna fyrsta leik sinn 10. nóvember
LEIKFÉLAG AKUREYRAR Menntamálaráðuneytið hefur
boðaði fi-éttamenn á sinn fund ákveðið að veita L. A. 100 þús.
í gær í tilefni af því, að frum- krónur í tilefni fimmtugsafmæl
sýning á fyrsta sjónleik félags- isins. En sem kunnugt er veitir
ins, ameríska gamanleiknum bær og ríki L. A. 100 þús. kr.
Koss í kaupbaeti, verður í hvor aðili.
næstu viku, væntanlega á Ungfrú Ragnhildur Stein-
fimmtudaginn. grímsdóttir setur Koss í kaup-
í Samkomuhúsi bæjarins hef bæti á svið. Meðal leikenda í
ur sú breyting á orðið, að bún- þeim sjónleik eru: Þói-halla Þor
ingsklefar eru nýir og stæi’ri steinsdóttii’, Mai'inó Þorsteins-
Kjördæmisþing á Iðavöllum
Egilsstöðum 1. nóv. Hér er grátt
í rót. Vegir eru færir, en þó
vax'ð Fjarðarheiði þungfær í
gær.
Framsóknarmenn á Austur-
landi héldu kjördæmisþing sitt
á ■Iðavöllum í Vallahreppi um
síðustu helgi. Um 50 manns
ELDSVOÐI í SYÐRA-
VALLHOLTI
SÍÐASTA miðvikudag brann
gamalt íbúðai'hús í Syði'a-Vall
holti í Seyluhi'eppi. Gunnar
bóndi Gunnarsson og kona hans
voru að heiman, en nágrönnun-
um tókst að bjarga nokkru af
húsmununum. Hús þetta var úr
timbri og toi'fi. Q
sóttu þingið og þeii-ra á meðal
þingmenn flokksins í kjördæm
inu, þeir Eysteinn Jónsson, Hall
dór Ásgrímsson og Páll Þor-
steinsson. Þingforsetar voru
Guðmundur Bjömsson Stöðvar
firði og Vilhjálmur Sigui-björns
son Egilsstöðum.
Margar ályktanir voru gerð-
aj;, bæði um héx'aðsmál og lands
mál og kosin var framboðs-
nefnd til að undirbúa framboð
flokksins fyrir þingkosningarn-
ar í vor,- Stjórn kjöi'dæmissam-
bandsins skipa nú: Vilhjálmur
Hjálmarsson Brekku fox-maður,
Sveinn Guðmundsson Hrafna-
björgum, Magnús Einax'sson
Egilsstöðum, Ólafur Ólafsson
Seyðisfirði, Marinó Sigui'björns
son Reyðai'firði, Kristján Ing-
ólfssón Eskifirði, Bjöin Stein-
dórsson Neskaupstað, Vilhjálm
ur Sigui-björnsson Egilsstöðum
og Hrafn Sveinbjamai'son Hall
oi-msstöðum.
Rjúpnamemv hafa fengið
(Framhald á blaðsíðu -2)
en áður var.
Hinn 17. api-íl í vetur er 50
ára afmæli Leikfélags Akur-
eyi'ar og vei-ður þess að sjálf-
sögðu minnzt með sýningu, en
enn er ekki ákveðið hvaða verk
efni vei'ður valið sem afmælis-
leikrit.
Ákveðið er að sýna í vetur
■bamaleikinn Karamellukvörn-
ina, sem er sænskux- sjónleikur.
Þjóðbúningar, batik og tízka
SUNNUDAGINN 6. nóvember
mxm Zontaklúbbur Akureyrar
sjá um sýningu á þjóðbúning-
um frá ýmsum löndum, batik
og tízkufatnaði.
Sýningin vei'ður í Sjálfstæðis
húsinu og hefst stundvíslega kl.
15, en húsið verður opnað hálf
tíma fyrr. Kaffiveitingar með
heimabökuðum kökum vei'ða á
boðstólum.
Aðgöngumiðasala verður
laugardaginn 5. nóvember í
Vei-zl. Ragnheiðar O. Björns-
sonar kl. 15—17.
Allur ágóði sýningarinnar
rennur til styrktar vangefnum.
son, Bjöi-n Sveinsson, Saga
Jónsdóttir og Sæmundur Guð-
vinsson.
FÁ UPP í 7 TONN
í RÓÐRI
Ólafsfirði 1. nóv. Línubátarnir
Guðbjörg og Anna hafa fiskað
sæmilega þessa viku eða allt
upp í 7 tonn í róðri. En trillu-
bátai-nir hafa sáralítinn afla
fengið að undanförnu, enda
stopular gæftir.
Lógað var hér í haust 1981
kind. Meðalvigt dilka var 14,25
kg. en í fyrra var meðalvigt
14,95 kg.
Föl er á jörðu í Ólafsfirði.
Múlavegur og Lágheiði eru auð
fai'nar leiðir bifi'eiðum, en flest
ir fara nú fyrir Múlann og lítil
umferð er um Lágheiði. B. S.