Dagur - 19.11.1966, Page 7
7
Um starfsemi H.S,Þ.
SUNNUDAGINN 23. okt. sl.
boðaði stjóm HSÞ til fundar að
Laugum með formönnum sam-
bandsfélaganna og fleiri gest-
um. Fonnaður HSÞ Óskar
Ágústsson setti fundinn og tal-
aði meðal annars um starfsemi
sambandsins, fjármál og fleira.
Verður nú rakið það helzta sem
kom fram á fundinum.
Haldin voru 4 íþróttamót að
Laugum og 1 íþróttamót í Kinn,
þar sem vígður var nýr íþrótta
völlur, ennfremur tók HSÞ þátt
í mörgum mótum utan héraðs.
Á fundinum var lögð fram 10
manna afrekaskrá í frjálsum
íþróttum, kom þar fram að sett
höfðu verið 27 héraðsmet, þar
af 2 íslandsmet og 117 persónu-
leg met. íslandsmetin voru
þessi: Sigríður Baldursdóttir
setti met í langstökki án
atrennu, stökk 2,52 og Lilja Sig
urðardóttir setti met í 80 m.
grindahlaupi, hljóp á 12,7 sek.
Knattspyrna var mikið stunduð
á félagssvæðinu, voru send 3
lið á Norðurlandsmótið í II.
deild og varð lið umf. Mývetn-
ings í fyrsta sæti. Handknatt-
leikur er lítið stundaður nema
á Húsavík, sent var lið frá
Völsungi á íslandsmeistaramót
í II. flokki kvenna. Sundáhugi
er mikill meðal unglinga í sýsl-
unni og eigum við þar margt
efnilegt sundfólk. Haldið var
héraðsmót í sundi á Húsavík
auk þess sem sundfólk okkar
fór til keppni út úr héraði. Um
600 manns syntu á sundstöðum
sýslunnar í norrænu sundkeppn
inni. Haldið var bindindismót í
Vaglaskógi um verzlunarmanna
helgina, ásamt öðrum aðilum úr
Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýsl-
um og Akureyri, tókst þetta
mót mjög vel. Fjárhagur HSÞ
er ekki sem beztur eins og er.
Skuld er nú um kr. 17.600.00.
Var mikið rætt um fjáröflunar-
leiðir og meðal annars útbýtti
stjóm HSÞ á fundinum reglu-
gerð fyrir ævifélaga HSÞ. Hún
er í aðalatriðum á þá leið, að
allir þeir sem orðnir eru 65 ára
geti gerzt ævifélagar HSÞ gegn
1000 kr. gjaldi. Margt fleira var
rætt á fundinum, m. a. um út-
gáfu ársrits og fl. Dvöldu menn
í góðu yfirlæti við rausnarlegar
veitingar á heimili formanns til
kl. 1, er fundi var slitið.
Fréttaritari HSÞ.
Akademía í Færeyjum
(Framhald af blaðsíðu 5)
ástæðu til að vona, að hér verði
brátt breyting á, og ekki ein-
asta færeysk fræði, heldur og
færeysk náttúruvísindi muni
innan tíðar flytjast heim, og fá
aðstöðu í Setrinu.
Nokkur skuggi hvílir þó enn
yfir þeim „setursmönnum" en
það eru húsnæðismálin. Hefur
Setrið til bráðabirgða fengið
inni uppi á háalofti í svokall-
aðri Bátahöll í Þórshöfn. Eru
þar að vonum þrengsli mikil og
lítið næði.
Setursmenn eru þó bjartsýn-
ir á, að úr þessu muni rætast,
enda hefur þegar verið lögð
fram teikning að nýrri bygg-
ingu fyrir Setrið. En þótt þeir
megi enn um sinn vinna sín
störf undir bjálkum Bátahallar
loftsins, eru þeir öfundsverðh-,
af því að eiga eldinn í æðum,
þann hugsjónaeld, sem við
frændur þeirra þekkjum nú
tæpast nema af bókmenntum.
NÝ SENDING:
Síðdegiskjólar
úr crimplene og ull
Svissneskar blússur
ítölsk herðasjöl
TÍZKUVERZLUNIN
Sími 1-10-95
f B Ú Ð
2, 3 eða 4 herbergja íbúð
óskast sem fyrst tii leigu.
Má þarfnast viðgerðar. —
Tilboð sendist biaðina
fyrir mánaðamót, merkt
„íbúð“.
ATHUGIÐ!
Vantar HERBERGI eða
LITLA ÍBÚÐ. - Tilboð
sendist í pósthólf 107,
Akureyri.
St.: Sk.: 596611196 Vn. — 8
HJALPRÆÐISHEBINN: Bri-
. gader Ingibjörg Jónsdóttir
talar á samkomu Hjálpræð-
ishersins n. k. sunnudag kl.
20.30. Allir velkomnir.
AKUREYRINGAR! Munið
kaffisöluna í kirkjukapell-
unni að lokinni messu á
morgun, sunnudag, kl. 3 —
Kvenfélag Akureyrarkirkju.
FRÁ Ferðafélagi Akureyrar:
Athygli skal vakin á augl. í
blaðinu í dag um kvöldvöku
n. k. þriðjudagskvöld.
STYRKTARFÉLAG vangef-
inna: Kr. 1000.00 gjöf frá B.
B. Með þökkum móttekið. Jó
hannes Óli Sæmundsson.
SÉRA Jón Kr. fsfeld prédikar
i skólahúsinu í Glerárhverfi
kl. 5 á sunnudaginn.
LEIÐRÉTTING. í frásögn af
gjöf til Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri í síðasta tbl.
misritaðist nafn Júníönu
Helgadóttur — þar ranglega
nefnd Júlíana.
SÖFNUN til hjálpar flóttamönn
um: Við messu í Vallakirkju
og úr Vallasókn kr. 2440.00.
Við messu í Tjamarkirkju og
úr Tjarnarsókn kr. 1400.00.
ið messu í Urðakirkju kr.
550.00. Alls kr. 4390.00. Fjár-
hæð þessa hef ég sent bisk-
upsskrifstofunni. Frá barna-
og unglingaskólanum á Húsa
bakka hafa mér borizt þessar
gjafir: Frá Hæringsstöðum
kr. 300.00, frá Hóli kr. 100.00,
frá Hofsá kr. 100.00, frá Ellý
á Steindyrum kr. 10.00. —
Samtals kr. 510.00. Ég þakka
þessar gjafir og þann hug
samúðar og vináttu í garð
þeirra, sem bágt eiga, sem að
baki liggur. Stefán Snævarr.
VINNINGASKRÁ
Happdrætti Iláskófa íslands
í 11. flokki 1966.
10.000 kr. vinningar: — 5222,
14029, 28679, 29320, 31111, 43915,
45307, 49086, 54059, 59775.
5.000 kr. vinningar: 5016, 7393,
7506, 8238,13793, 14798, 15996,
21949, 23576, 30527, 36499, 46816,
51718, 52599, 57917.
1.500 kr. vinningar: 1164, 1533,
2135, 3353, 3845, 4667, 4672,
5007, 5015, 7013, 7110, 7147,
8515, 8522, 8998, 9767, 10208,
10635, 11314, 12089, 12180, 12222,
12434, 12448, 13153, 13263, 13266,
13395,13903, 14263,15235, 16052,
16071, 16923, 16925,17060,17064,
17305,17867, 18041, 18469,19005,
19581, 20510, 20714, 21928, 22133,
22141, 22248, 23022, 23587, 24766,
24908, 25598, 25696, 25973, 28584,
29034, 31128, 33194, 33505, 36453,
36455, 37035, 40585, 40587, 42824,
42836, 42847, 43078, 43307, 43309,
43912, 44593, 45308, 46809, 46983,
48281, 49164, 49277, 51741, 53932,
53936, 93944, 54740, 58032, 59599.
Birt án ábyrgðar.
TAPAÐ
Sá sem fann
ÖKUSKÍRTEINI með
nafni Sturlu Meldal, er
beðinn að hringja í síma
2-16-32 eða í-18-00.
NÝLEGA opinberuðu trúlof-
un sína ungfrú Erna Sólveig
Sigvaldadóttir, Stafni, Svart-
árdal, Húnavatnssýslu, og
Hreinn Gunnarsson, Tjöm-
um, Saurbæjarhr., Efjs. Einn
ig ungfrú Brynhildur Garð-
arsdóttir, Skarðshlíð 9, Ak.
og Ármann Gunnarsson
Tjörnum, Saurbæjarhr. Efjs.
BRÚÐHJÓN. Hinn 2. nóvem-
ber voru géfin saman í hjóna
band í Akureyrarkirkju ung
frú Guðrún Elísabet Aradótt
- ir og Sigurður Sigmannsson
vélvirkjanemi. Heimili þeirra
verður að Lækjargötu 14 Ak
ureyri.
FR AMSÓKN ARFÓLK Akur-
eyri! Munið aðalfund Fram-
sóknarfélagsins n. k. mánu-
dagskvöld kl. 8.30 í skrifstofu
flokksins, Hafnarstræti 95.
DÝRALÆKNAVAKT næstu
helgi, kvöld og næturvakt
næstu viku hefur Ágúst Þor-
leifsson, sími 11563.
- SJÓMENN Á FUNDI
(Framhald af blaðsíðu 1)
kjaraskerðingu sem sjómenn
hafa orðið fyrir með lækkun
síldarverðs úr kr. 1.71 í 1.120.
Teljum við óréttlátt að laun okk
ar lækki um þriðjung á sama
tíma og allt verðlag í landinu
og laun annarra stétta hækka.
Þótt lækkun yrði á síldarafurð-
um átti hún ekki eingöngu að
lenda á sjómönnum og útgerð
skipanna. Teljum við æskilegt
að lækkað yrði útflutningsgjald
ag síldarlýsi og síldarmjöli en
af þeim er tekið hærra gjald en
öðrum afurðum og var gjaldið
áætlað hátt á annað hundrað
milljónir króna fyrir þetta ár.
Sjómenn eru mjög óánægðir
með rekstur á Síldarverksmiðj -
um ríkisins og telja Verðlags-
ráð sjávarafurða óstarfhæft þar
sem það hefur ekki aðgang að
öðrum rekstrarreikningum en
frá ríkisverksmiðjunum einum
og teljum við að fulltrúar okk-
ar geti ekki tekið þátt í störf-
um Verðlagsráðs eins og að því
er búið. Þar sem síldarsjómenn
eiga kjör sín að mestu komin
undir rekstri og afkomu Síldar
verksmiðju ríkisins gerum vér
kröfu til þess að eiga fulltrúa í
stjórn þeirra en nú er stjóm
Síldarverksmiðja ríkisins skip-
uð fulltrúum stjórnmálaflokk-
anna kosnum af Alþingi“.
Fundi var enn fram haldið
daginn eftir og voru þá mættir
formenn sjómannafélaga á Ak-
ureyri og Reykjavík og tóku
þeir þátt í umræðunum. Aftur
var álíka fjölmenni á frrndi
enda 70—80 skip inni.
Tillaga um stöðvun síldveiði-
flotans var þá dreginn til baka,
svo til stöðvunar kom ekki.
Fundarstjórar voru Kristján
Jónsson og Hrólfur Guðnason
en fundarritari Axel Schiöth.
Fundirnir fóru vel fram og ein
kenndust þeir af alvöru þeirra
viðfangsefna, sem fyrir þeim
lágu. Aldrei fyrr munu jafn
margir menn hafa setið fund á
Reyðarfirði. V. G.
COLLO lykteyðir
í ísskápa.
Nytt, sem gefur góða raun.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
J88(L<^|^>1060 Nýlenduvörudeild
Eiginmaðurinn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KRISTINN SIGURGEIRSSON,
bóndi, Öngulsstöðum,
verður jarðsettur frá Munkaþverárkirkju mánudag-
inn 21. þ. m. kl. 2 e. h.
Guðný Teitsdóttir, böm, tengdasynir og barnabörn.
Jarðarför eiginkonu minnar,
ÞÓRU INGIBJARGAR SIGURJÓNSDÓTTUR,
Aðalstræti 13,
fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 22. þ. m.
kl. 1.30 e. h.
Fyrir hönd barna okkar, tengdabarna, barnabarna
og annarra ættingja.
Sigurgeir Guðmundsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
fráfall og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
PÉTURS BJÖRGVINS JÓNSSONAR,
skósmíðameistara,
Gleráreyrum 2, Akureyri.
Sigurbjörg Pétursdóttir, börn, tengdaböm,
barnabörn og barnabarnaböm.
Innilegustu þakkir færum við öllum þeim, er sýnt
hafa okkur vinarliug vegna fráfalls
VILHELMlNU SIGURÐARDÓTTUR ÞÓR,
Brekkugötu 34, Akureyri.
Fyrir hönd systrabarna og stjúpbarna.
Stefanía Jónsdóttir,
Jóna Sigurðardóttir, Ásgeir H. Magnússon,
Vilhelmína Sigurðardóttir, Páll Sigurðsson.