Dagur - 26.04.1967, Page 1
HOTEL Herbergis-
pantanir.
Ferða-
skrifstoían
Túngötu 1.
Akureyri.
Sími 11475
r * I -f 1 r Túngötu 1.
Feroaskrifsfofan sími n4?5
Skipuleggjum
ódýrustu
ferðirnar
til
annarra
landa.
Áburðarframieiðsla dregst saman
Á AÐALFUNDI Áburðarverk-
smiðjunnar sem haldinn var um
miðjan þennan mánuð kom í
Ijós að framleiðsla áburðar á
síðasta ári var nálega 7 % minni
en árið áður. Raforka til verk-
smiðjurekstursins var minni en
hún hefur nokkru sinni áður
verið og fengust aðeins um 40%
þeirrar raforku, sem verksmiðj
an þarf til þess að fullnýta af-
kastagetu sína. Af þessum orsök
um þurfti að flytja mikið inn af
ammoníaki. Sú ákvörðun að
flytja inn fljótandi ammoníak í
tankskipum var því hin þarf-
asta, enda hefði lítil áburðar-
framleiðsla orðið ef a,ð þessi
leið hefði ekki verið valin.
Ammoníak, sem inn var flutt,
var að verðmæti 25.5 milljónir
króna. Afkoma fyrirtækisins
hefði að sjálfsögðu orðið mun
betri og áburðarverðið hefði
getað orðið mun lægra, ef nægi
leg raforka hefði verið fyrir
hendi. Á þessum ammoníak inn
flutningi byggðist meira en
helmingur af ársframleiðslu
kjarnaáburðar. Q
GRENIVlKURBÁTAR AFLA VEL
Grenivík 24. apríl. Grenivíkur-
bátar hafa aflað vel að undan-
förnu. Frosti, Sævar, Víðir og
Bi úni hafa komið með meiri
afla á land en oftast áður á
þessum tíma. Ennfremur er góð
S K Á K Þ IN G
AKUREYRAR
EFTIR sex umferðir á Skák-
þingi Akureyrar er Margeir
Steingrímsson efstur með 5
vinninga, næstur Jón Björgvins
son með 4V2 af fimm tefldum
skákum, og Jóhann Snorrason
er þriðji með 3 V> vinning, einn-
ig úr fimm skákum.
hrognkelsaveiði og stunda
nokkrir hana þrátt fyrir óvissu
um verðlag á grásleppuhrogn-
unum.
Frystihúsið, sem hér er í
byggingu, verður væntanlega
tekið í notkun seint á þessu
sumri og á þá útgerðaraðstaðan
hér á Grenivík að batna veru-
lega.
Menn óttast, að hin miklu
frost undanfarið hafi valdið kal
skemmdum á ræktuðu landi,
því að snjór var of lítill til að
hlífa jörðinni í 10—14 stiga
frostum nótt eftir nótt. En nú
hefur brugðið til betri veðráttu
og vona menn að sumarið sé
komið. S. G.
Um fyrstu sumarhelgi var ís á Akureyrarpolli. Sumir fóru á skauta en aðrir á dorg.
íþróttahús senn vígt á Dalvík
Dalvík, 24. apríl. íþróttahúsið,
sem verið hefur í smíðum und-
anfarið, verður tekið í notkun
í vor, sennilega vígt 17. júní.
Salurinn, ásamt böðum og bún-
ingsherbergjum, áhaldageymslu
og bakinngangi í húsið, er næst
um tilbúið til notkunar. íþrótta
salurinn er 18x24 metrar, og hús
ið er þannig byggt, að hægt er
Símstöðyarhúsið á Grenivík brann til kaldra kola
Grenivík 24. apríl. Síðastliðna
laugardagsnótt varð eldur laus
í símstöðvarhúsinu á Grenivík
við Eyjafjörð. Brann það til
kaldra kola á stuttum tíma.
Magnús Jónsson stöðvarstjóri
bjó einn í húsinu og slapp
hann ómeiddur. Símasamband
rofnaði þegar. Eldsins varð vart
um kl. 3 um nóttina. Ásgeir
Kristinsson, röskur nágranni,
ók þegar til Yztuvíkur til þess
að biðja slökkviliðið á Akur-
eyri um aðstoð. Slökkviliðið
kom svo á sjötta tímanúm, en
þá var húsið að mestu brunnið.
StöSvarhúsiS var gamalt timbur
hús en múrhúðaS utan, ein hæð
á kjallara. Okunnugt er um elds
upptök.
Síminn hefur verið lagður í
næsta hús, Velli, til bráða-
birgða. Þar er ekki skiptiborð
og verðum við sveitamenn að
nota gamla lagið og fara á sím-
stöðina til að síma. Ragna Jó-
hannsdóttir annast símann. Enn
mun óráðið hvað gert verður í
símamálum okkai-. Væntanlega
verður sett upp bráðabirgða-
afgreiðsla eins fljótt og við
verður komið. S. G.
að stækka hann um þriðjung.
Þetta nýja íþróttahús mun vera
eitt hið vandaðasta utan Reykja
víkur.
Undanfarið hafa togskipin
Björgvin og Björgúlfur lagt upp
afla sinn hjá Frystihúsi KEA,
samtals rúm 500 tonn. Björg-
úlfur landar hér einhverju til
viðbótar í fyrramálið.
Hrognkelsaveiði hefur verið
ágæt og rauðmaginn hefur að
mestu verið sendur á markað
sunnanlands. En senn hefst svo
grásleppuveiðin og verða þá
hrognin söltuð.
Leikfélagið og ungmennafé-
lagið eru búin að sýna Skugga-
Svein 6 sinnum fyrir fullu húsi
og við ágætar undirtektir. Á
sýninguna á laugard. komu
um 30 manns frá Leikfélagi Ak
ureyrar og blönduðu leikarar
geði eftir sýningu, í búnings-
og veitingaherbergi. Fór vel á
með mönnum, þrátt fyrir
þrengslin. Jón Ingimarsson, for
maður LA hafði orð fyrir Ak-
ureyringunum, en Steingrímur
Þorsteinsson leikstjóri þakkaði
heimsóknina. Þarna var drukk-
ið kaffi sameiginlega og vonast
menn til, að þær óskir leikara
rætist, að efnt verði til nánara
samstarfs milli þessara leikfé-
laga. Næstu sýningar á Skugga-
Sveini verða á miðvikudag,
laugardag og sunnudag.
Á sumardaginn fyrsta var
hér skátaguðsþjónusta á Dalvík
í fyrsta sinn. Séra Stefán Snæ-
varr flutti guðsþjónustuna. —
Skótar gengu fylktu liði til
kirkjunnar. Töluvert á annað
hundrað börn og unglingar
tóku þátt í skrúðgöngu og guðs
þjónustu.
Mikils er um það vert, að hin
ir fullorðnu fylgi æskufólkinu
(Framhald á blaðsíðu 5).
Eysteinn Jónsson.
mmrn kjósendafundir A húsavík og akureyri
ALMENNIR KJÓSENDA-
FUNDIR verða á Húsavík föstu
daginn 28. apríl kl. 8.30 e. h. í
Samkomuhúsinu, og á Akureyri
laugardaginn 29. apríl kl. 2 e. li.
í Samkomuhúsinu.
Eysteinn Jónsson flytur ræðu
en ávörp flytja: Ingvar Gísla-
son, Stefán Valgeirsson, Jónas
Jónsson, Björn Teitsson, Sigurð
ur Jóhannesson og Guðríður
Eiríksdóttir.
Fundarstjóri á Húsavík Karl
Kristjánsson, og á Akureyri
Valur Arnþórsson.
Framsóknarflokkurinn.
Ingvar
Stefán
Jónas
Björn