Dagur - 10.05.1967, Blaðsíða 2
2
Híeíndfra vtða varf í feyggi eysfra og gæ
Egilsstöðum 9. maí. Mikið er
um hreindýr hér um allt Hér- •
að, og hefur þeirra or'ðið vart
æði víða alveg niður í byggð.
Lítur út fyrir, að þau séu ekki
að ráði .farin að halda inn til
fjalla aftur, enda mun þar
lítill gróður eða enginn enn
sem komið ei\ Oft hsfur það
verið svo, þegar hreindýrin
hafa leitað út á Hérað á annað
borð, að þau hafa ekki farið
aftur upp í fjöll fyrr en langt
er liðið á sumar, og stundum
nýræktum
hefur komið fyrir, að þau hafa
haldið sig í námunda við bæi
allt. sumarið.
Hreindýrunum fækkaði
töluvert síðustu ár, en í fyrra
voru þau alfriðuð, og vona
Austfirðingar, að svo verði
áfram þetta árið, svo stofninn
nái sér á strik aftur. Þegar
hreindýraveiðar voru leyfðar
var ihverjum hreppi úthlutað
„vissum kvóta“, sem skjóta
mátti, en mikil drápsfýsn
brauzt fram í mönnum, og ótt
azt er, að skotin hafi verið
fleiri dýr, en leyfi var gefið
til, og sé það ástæðan til' þess,
hve mjög þeim fækkaði.
Áður fyrr sáust hreindýr
öll sumur í Austurfjöllunum,
og höfðu menn mikla ánægju
af að fylgjast með þeim, og nú
er það ósk allra, að þau fái að
vera friðuð áfram um sinn,
svo þeim fjölgi aftur.
Bændur eru ókátir hér um
slóðir yfir þeim miklu gæsa-
hópum, sem hér hafa sézt að
undanförnu. Gæsirnar leggj-
ast á nýræktir og vinna mikil
spjöll því þær kippa jafnvel
' upp graskólfinum öllum þar
sem þær koma, nú á meðan
frost er að fara úr jörðu. Hef-
ur ásókn þeirra verið með
mesta móti, en einnig er geysi
mikið um álftir þessa dagana.
Er það skoðun manna, að ein
aðalástæðan fyrir ásókn þess
ófagnaðar sé sú, að öll vötn
uppi á öræfum er ísi lögð, og
sækja því álftir og gæsir niður
í byggð-. Þess má geta, að
meira að segja Lögurinn er.
enn að mestu undir ísi, og er
það heldur óvenjulegt þegar
orðið er þetta áliðið vors. V. S.
Ársþing Unffmennasanifcands Skaffafiarðar
ÁRSÞING Ungmennasambands það með sér, að mikið starf hef- vænzt, að skagfirzk ungmenni Skagafjarðar um nokkurt árabil.
Skagafjarðar var haldið á Sauð
árkróki 30. apríl sl. Gestir þings
ins voru Gísli Halldórsson for-
seti íþróttasainbands fslands,
Gunnlaugur J. Briem og Sveinn
Björnsson báðir úr stjórn
íþróttasambandsins, eitinig
mætti sem gestur Eysteinn Þor
valdsson, sem var fullírúi
stjómar Ungaiennafélags ís-
lands á fundinum.
Ávörp fluttu þeir Gísli Haíl-
dórsson, forseti ISÍ, og Eystsinn
Þorvaldsson, fyrir hönd stjórnar
UMFI. Einnig voru gestir fund-
arins frú Jóhanna Blöndal og
sonur hennar, Auðunn Blöndal,
vegna sérstaks tilefnis.
Stjórn Ungmennasambands
Skagafjarðar lagði fram starfs-
skýrslu sína, en samkvæmt henni
eru 13 félög í sambandinu og fé-
lagsmenn alls 600. Skýrslan bar
NEMENDATÓNLEIKAR Tón-
listarskólans verða í Eorgarbíói
lauáardaginn 13. tnaí og í Lóni
mánudaéinn 15. maí (annan í
hvítasunnu) kl. 5 e. h., bá'ða dag-
ana.
A tónleikunum koma fram
bæði eldri og yngri nemendur
skólans og leika þeir á píanó,
fiðlu og orgel harmoníum. Einn-
ig er ráðgert að fram komi strok-
hljóðfærasveit.
Á tónleikunum í Borgarbíói
Akureyrartogarar
HARÐBAKUR landaði á Akur
eyri á mánudaginn 170 tonnum
eftir 6 daga veiðiferð.
Svalby.kur landar væntanlega
dag einnig í heimahöfn.
Kaldbakur og Sléitbakur eru
báðir. nýkomnir úr söluferð til
Bretlands.
Afli Akureyrartogaranna hef
•ur verið meiri undanfarið en á
sama tíma í fyrra, þrátt fyrir
miklar ógæftir á miðunum. Við
Austur-Grænland eru margir
íslenzkir togarar að veiðum og
hafa fiskað vel, allt upp í 20
tonn í holi. Sagt er að Harð-
hakur hafi lent í óvenjulega
miklum fiski síðasta daginn í
síðustu veiðiferð á heimamið-
um. Q
ur verið unnið á árinu, bæði á
sviði íþróttamála og félagsmála.
Sárstök æskulýðsnefnd starfaðL
á vegum sambandsins síðasta ár,
og braut hún upp á ýmsum nýj-
ungum í starfi sínu, svo sem úti-
legu unglinga og veiðiferð, —
ásamt kvöldskemmtunum og bíó-
sýningum, og má mikils vænta
af starfi nefndarinnar í framtíð-
irini.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa voru rædd ýmis málefni
sambandsins, íþróttamál og önn-
ur félagsmál, og gerð um þau
margvíslegar samþykktir fyrir
viðtakandi stjórn að starfa eftir.
M. a. var samþykkt, að koma
upp sumarbúðum fyrir unglinga
að Hólum í Hjaltadal seinni
hluta júní-mánaðar, og verður
Höskuldur Goði Karlsson stjórn-
andi þeirra sumarbúða. Er þess
munu aðallega koma fram eldri
r.emendur skólans, en á tónleik-
unum í Lóni kcma fram yngri
nemendur.
Bæjarbúar eru hvattir til að
sækja þessa tónleika og sýna
með því, að þeir vilji fylgjast
með starfi þessa unga fólks, sem
mikið hefur lagt á sig við undir-
búning tónleikanna, — samhliða
undirbúningi unair próf í öðrum
skólum.
Aðgangur að báðum tónleikun-
um er ókeypis og allir hjartan-
lega velkomnir, meðan húsrúm
leyfir. □■
ÞAÐ HEFUR verið og er fastur
liður í starfsemi Handknattleiks
deildar KA að bjóða hingað liði
að sunnan til keppni í hand-
knattleik um hvítasunnuna. í
fyrra komu hingað Haukar og
F. H. úr; Hafnarfirði, eins og
flestum er í fersku minni.
Nú leitar Handknattleiks-
deildin til Reykjavíkur, og er
ákveðið, að KR-ingar koma
með sitt sterkasta lið. En eins
og flestnm er kunnugt sigruðu
þeir í 2. deild í nýafstöðnu ís-
landsmóti í handknattleik. —
Leikirnir fara fram í íþrótta-
skemmiuini.
taki þátt í þessu starfi, sem ekki
hefur áður verið fitjað upp á, á
vegum sambandsins.
Þess má geta, að í sambandi
við þetta þing voru afhentir tveir
veglegir verðlaunagripir til þess
að keppa um í sundi og frjálsum
íþróttum, og eru þeir báðir gefn-
ir til minningar um Valgarð
Blöndal, sem var mikill áhuga-
maður um félagsmál, og þá ekki
sízt ungmennafélögin — og var
fcrmaður Ungmennasambands
(Framhald af blaðsíðu 1)
um eða 4.7% minna en árið
áður. Hjá Mjólkursamlagi KEA
hefði innlagt mjólkurmagn ver-
ið 19.479.740 lítrar, sem væri
693.120 lítrum eða 3.43% minna
en árið áður. Framleiðendur
hefðu verið 484 og hefði þeim
fæklcað um. 8 á árinu.
Fitumagn mjólkurinnar var
að meðaltali 3.973% eða 0.014%
meira en árið áður. í Hrafna-
gilsdeild, Ongulsstaðadeild og
Svalbarðsstrandardeild hafði
fitumagnið náð 4% að meðal-
tali. Hver framleiðandi hefði á
árinu lagt inn að meðaltali
40.204 lítra, sem er 1.83% minna
en árið áður. Flokkun mjólkur
innar hafði verið heldur betri
en árið áður. Höfðu 92.23% far-
ið í fyrsta og annan gæðaflokk,
en 3.77% í 3. og 4. flokk. Flutn
ingsgjald hefði verið sem næst
Á 2. í hvítasunnu verður svo
skemmtun í Sjálfstæðishúsi.nu
á vegum Handknattleiksdeildar
K.A.
Leikir í Hvítasunnumóti KA
veroa sem hér segir:
Laugard. 13. apríl kl. 4.
4. fl. karla KA—ÞÓR
Mfl. karla KR—ÍBA
Sunnud. 14. apríl kl. 2.
(Hraðmót)
KR—KA
KA—ÞÓR
KR—ÞÓR
Handknattlelksdeild K.A.
Annan gripinn gaf ekkja hans,
frú Jóhanna Blöndal, en hinn gaf
dóttir hans, Álfheiður Blöndal,
og maður hennar, Henry Boucher
sem er borgarstjóri í Fairbanks í
Alaska. Þessir gripir eru báðir
hinir veglegustu og vandaðir
mjög.
Stjórn sambandsins skipa nú
Guðjón Ingimundarson, Stefán
B. Petersen, Árni M. Jónsson,
Helgi Rafn Traustason og Stef-
án Guðmundsson. □
41.52 aurar á. lítra, en var árið
áður 35.70 aurar.
Þá vék samlagsstjóri að fram
leiðslunni og sölu hennar. Fram.
leitt hafði verið á árinu 1966
444 tonn smjör, 508 tonn ostur,
43 tonn mysuostur, 98 tonn
kasein og 110 tonn þurrmjólk.
Birgðir um áramót voru 367 tn.
af smjöri og 130 tn. af osti.
Á árinu höfðu verið seld 554
tonn af smjöri á móti 271 tonni
árið áður. Þá höfðu 323 tonn af
osti verið seld til útlanda. Af
undanrennu höfðu verið seld
1800 tonn, sem mest fór til
bænda. í upphafi þessa árs voru
seldir suður 63.000 lítrar af
rjóma og talsvert af skyri.
Vernharður sagði að reksturs
kostnaður hefði verið 166 aurar
á lítra, en sölukostnaður 62
.aurar á lítra. Rekstrarkostnaður
hafði hækkað m. a. vegna launa
hækkana. Rekstursreikningur
hafði verið lagður fram fjölrit-
aður, og skýrði samlagsstjóri
reikninginn. Mánaðarleg út-
borgun til framleiðenda hafði
numið 585.86 aurum á lítra, en
til búnaðarmálasjóðs höfðu
framleiðendur greitt 7.98 aura
og jafnhátt gjald til Stofnlána-
sjóðs. Eftirstöðvar voru þá
245.78 aurar.
Samlagsstjóri tók fram, að
hann teldi að hver bóndi yrði
að vega og meta, hvort hann
ætti að minnka mjólkurfram-
leiðsiu sína. Hitt væri stað-
reynd, að fjóra mánuði þessa
árs hefði framleiðslan verið
16.45% minni en á sama tíma
1966. Þetta hlvti að vaida
áhyggjum, því að erfitt væri að
lækka reksturskostnaðinn. Þá
sagði hann, að vörubirgðir um
áramót hefðu verið reiknaðar á
•heildsöluverði og síðan afskrif-
aðar um 13%.
Að iokum þakkaði Vemharð
Sumarbúðir ÆSK við
Vestmannsvatn
SUMARSTARFTÐ í sumarbúð-
unum hefst 14. júní n.k. Ákveð-
in eru fimm 17 daga námskeið:
1. — 14. júní til 30. júní —
telpur yngri flokkur 8—10 ára.
2. — 2. júlí til 18. júlí —
drengir yngri flokkur 8—10 ára,
3. — 20. júlí til 5. ágúst —
telpur eldri flokkur 10—12 ára.
4. — 8. ágúst til 24. ágúst —•
drengir eldri flokkur 10—12 ára.
5. — 26. ágúst til 4. sept. —
stúlkur 12—14 ára.
í athugun er að hafa stutt
námskeið fyrir drengi 12—14
ára, dagana 5.—11. sept. Óskað
er eftir, að þeir, sem áhuga hafa
á því námskeiði, gefi sig sem.
fyrst fram.
Daggjald verður hið sama og
í fyrra.
Sóknarprestar á Norðurlandi
eru beðnir að taka á móti um-
sóknum á námskeiðin og senda
þær fyrir þriðjudaginn 16. maí
til formanns sumarbúðanefnd-
ar, séra Sigurðar Guðmunds-
sonar, prófasts, Grenjaðarstað.
Á Akureyri verður tekið á
móti umsóknum í síma 1-18-54,
eftir kl. 5 á föstudag. Stjóm-
endur sumarbúðanna verða
•hjónin Gylfi Jónsson stud. theol.
og Þorgerður Sigurðardóttir.
Fyrirkomulag á starfseminni
verður svipað og í fyrra. Hafin
er bygging svefnskála, og reynt
verður að ljúka smíði hans í
sumar.
Ákveðið er hið árlega æsku-
lýðsmót í búðunum. Fer það
fram næst seinustu helgi í júlí
—; dagana 22. og 23. júlí.
Fréttatilkynning frá ÆSK í
Hólastifti.
ur Sveinsson.starfsliði samlags-
ins og þó sérstaklega fráfarandi
samlagsstjóra", Jónasi Kristjáns
syni, vel unnin störf.
Þegar hér var komið sögu,
var gefið fundarhlé en kl. 14
hófst fundur á ný.
Hjörtur Þórarinsson á Tjöro
hafði af hálfu stjómar fram-
sögu um ráðstöfun eftirstöðva
mjólkurverðsins. Tillaga stjórn
ar \rar á þá leið, að 230 aurar
færðust inn á reikninga félags-
manna, 15 aurar færu í samlags
stofnsjóð og 0.78 aurar yrðu
færðir til næsta árs. Þessi til-
laga var samþykkt samhljóða
eftir nokkrar umræður. Einnig
voru reikningar samþykktir at-
hugasemdalaust.
Við umræðurnar tóku til
máls Árni Jóhannesson, Friðrik
Þorsteinsson, Stefán Jónsson,
Jónmundur Sophoníasson, og
Jakob Frímannsson og Vern-
harðiur Sveinsson. Jakob Frí-
mannsson sagði, að ekki væri
útlit fyrir að hægt yrði að halda
lengra áfram á þessu ári með
byggingu nýja samlagsins, enda
væri nú ekkert fé eftir í sam-
lagsstofnsjóðnum og lánsfé ekki
fáanlegt. Sagði Jakob, að það
virtist hagkvæmara fyrir bænd
ur að draga byggingarfram-
kvæmdirnar meðan framleiðsl-
an minnkaði heldur.
Vernharður Sveinsson svar-
aði fyrirspumum um smjör-
birgðir þannig, að fyrirliggjandi
hefðu verið 367 tonn um ára-
mót, en í maíbyrjun hefðu
birgðirnar verið komnar niður
í 172 tonn hér nyrðra, en 15
tonn syðra, en birgðirnar
myndu ekki minnka meira fyrr
en haustaði.
Næsti liður ’ á dagskrá var
skýrsla héraðsnefndar Eyfirð-
inga um verðlagsmálin, og flutti
Stefán Valgeirsson bóndi í Auð
brekku þá skýrslu. Var rteða
hans ýtarleg, og verður hennar
getið í blaðinu síðar, og meiri
fréttir sagðar af fundinum. □
H VIT A S U N’N U M 0 T K, A.
KR-iiisar í heimsókii
Frá ðððlfundi Mjólkunamlagsins