Dagur - 17.05.1967, Blaðsíða 6
8
Stefán Ág. Kristjánsson og frú Sigríður Friðriksdóttir í afnsælis-
hófinu í Varðborg. (Ljósinynd: E. D.)
- Glæsileg nýbygging vígð
(Framhald af blaðsíðu 1)
ingastofunni út þennan mánuð.
í sumar verður 14 manna starfs-
lið á Varðborg.
Meðal þeirra breytinga, sem
gerðar hafa verið í eldri bygg-
ingu hótelsins má nefna, að
gestamóttaka hefur verið flutt
niður í anddyrið, og skapast við
það aðstaða til þess að hafa
setustofu á annarri hæð, þar sem
móttakan var áður. Einnig er
mjög vistleg setustofa á efstu
hæðinni, og hefur hún notið mik-
illa vinsælda gesta. Símar verða
á öllum herbergjum í sambandi
við skiptiborð í afgreiðslunni og
útvarp verður einnig í hverju
herbergi. Góð bílastæði eru bak
við hótelið, en þau verða þó
bætt enn. Akveðið er að ganga
frá nýbyggingunni að utan nú á
næstunni og ætlunin að því verði
að fullu lokið fyrir 17. júní.
Búast má við, að MA hafi hót-
elið á leigu næsta vetur, og hafa
nemendur sjálfir sótzt mjög eftir
að fá að vera þar áfram. Sagði
Stefán Ag. Kristjánsson, að sam-
vinnan hefði verið hin bezta, og
ágreiningsatriðin ekki verið al-
Varleg. Taldi hann samvinnuna
milli skólans og hótelsins hag-
kvæma fyrir báða aðila, og von-
aðist til þess að hún mætti hald-
ast
Stefán sagði að lokum, að Góð-
templarar hefðu tryggt sér lóð
vestan við Hótel Varðborg, og er
þar hugmyndin að reisa nýtt bíó.
Hafa þeir tTyggt sér allt skipulag
þar, þannig að þarna verður hægt
að hafa í íramtíðinni bílastæði
bæði fyrir hótelið og bíóið. í
þessu nýja bíói á hljómleikahald
að geta farið fram, en með til-
komu bíósins verður hægt að
nota gamla bíóið til annars. Þar
verður væntanlega útbúinn rúm-
góður og þægilegur samkomu-
salur, sem verður helgaður ungu
fólki, sem vill skemmta sér án
áfengis. — Þetta eru stórar fram-
tíðaráætlanir, sem hlýtur að taka
langan tíma að framkvæma, en
að þeim verður unnið af miklu
kappi framvegis.
Verktakar voru Hagi h.f., fram-
kvæmdastjór* Haukur Ámason,
en aðalverkstjóri byggingarinnar
var Sigurður Hannesson. Eftir-
litsmaður fyrir hönd IOGT var
Sigtryggur Stefánsson tæknifræð-
ingur. Innréttingar á herbergjum
smíðaði Valbjörk h.f., en rúm-
grindur og dýnur allar voru
keyptar frá Englandi. Innrétt-
ingar í anddyri annaðist Ýmir h.f.
forstjóri Valdimar Jóhannsson,
sem einnig smíðaði og setti upp
sölubekki í anddyri Borgarbíós.
Málarameistarar, sem önnuðust
allt, sem málningu við kom, voru
Benedikt Benediktsson og Skúli
Flosason. Miðstöðvarlagningar
ÞEGAR slagari vorsins ,Hvað á
að gera við Þorvald Garðar —
þegar hann kemur að vestan“
upphófst á skemmtistöðum höf-
uðborgarinnar, fékk margur reyk-
vískur Sjálfstæðismaður sting í
hjartað. Og það var engin furða.
Osköpin, sem á gengu vestra, eru
þjóðfræg. Það byrjaði á því, að
ungum alþingismanni sem unnið
hafði baráttu kjördæmi fyrir
flokkinn á sínum tíma og verið
þar á eftir framkvæmdastjóri
hans, var rutt úr fyrra sæti sínu
á flokkslistanum, og neitaði að
taka þar annað sæti. Sjálfstæðis-
menn úr 2 sýslum neituðu einn-
ig að taka þar sæti. Og þegar
Þorvaldur síðan hófst handa vest
ur þar, studdu mörg hundruð
flokksmenn hann með undirskrift
sinni. Síðan þetta gerðist, brenn-
ur jörðin undir fótum Sjálfstæð-
isflokksins á Vestfjörðum.
Hrelldir Sjálfstæðismenn þörfn
uðust huggunar. Þá var það, sem
Mbl. bjó til reyfarann um „fall“
Jakobs Frímannssonar og Þor-
stein á Vatnsleysu við mið-
stjórnarkjör á flokksþingi. Þetta
átti að sýna, að Framsóknar-
flokkurinn ætti líka sinn Þor-
vald Garðar og kannske fleiri en
einn. Sagan er af vanefnum
gerð. Mbl. segir, að flokksþingið
hafi kosið 100 manna miðstjórn.
Hið sanna er, að flokksþingið
teiknaði Guðmundur Guðmunds-
son, en allar lagnir eru fram-
kvæmdar af feðgunum Austfjörð.
Sigtryggur Þorbjörnsson raf-
virkjameistari teiknaði ljósalagn-
ir og Raforka h.f. framkvæmdi
hið verklega. Teppin eru keypt
hjá Vefaranum h.f. í Reykjavík,
en Iagnir þeirra önnuðust bræð-
umir Björn og Guðlaugur Bald-
urssynir. Húsgögn í veitingastof-
urnar eru öll keypt frá Stálhús-
gögn í Reykjavík. Útidyrahurð
er smíðuð á verkstæði Gríms
Valdimarssonar, en teikningu að
hótelmerkinu á hurðinni gerði
frú Ruth Hansen, en sandblást-
uninn annaðist Sandblástur og
málmhúðun s.f.
Þess má svo að lokum geta, að
framkvæmdastjórinn, Stefán Ág.
Kristjánsson, átti sjötugsafmæli
á hvítasunnudag og tók á móti
gestum í Varðborg. Kom þar
fjöldi manns og hyllti afmælis-
barnið og færði því miklar og
góðar gjafir og margir tóku til
máls.
Stefán hefur verið framkvæmda
stjóri Sjúkrasamlags Akureyrar í
31 ár og er enn. Árið 1923 gekk
hann í stúkuna Brynju og hefur
síðan verið í fararbroddi bind-
indismanna og umboðsmaður há-
templars á Akureyri, ennfremur
lengi sverð og skjöldur Tónlist-
arfélagsins.
Blaðið hefur átt mörg skipti
við Stefán Ág. Kristjánsson og
öll góð. Megi sú starfsemi, sem
hann og aðrir bindindismenn hafa
með höndum aukast og blessast.
Það björgunarstarf ber öllum að
virða. Blaðið sendir hinum sjö-
tuga heiðursmanni beztu afmæl-
isóskir. □
kýs aðeins 15 af 90, sem eru í
miðstjórninni, en kjördæmasam-
böndin kjósa meiri hluta ár
hvert. Á kjörseðilinn setti upp-
stillingarnefnd 60 nöfn. Þar á
meðal nöfn Jakobs og Þorsteins.
15 hlutu flest atkvæði. Jakob
hafði ekki verið flokksþingsfull-
trúi í miðstjórninni, en Þorsteinn
hafði verið það um skeið. Þar
sem hundruð manna kjósa þetta
marga, dreifast atkvæði, og al-
títt, að menn séu ekki kosnir
tvisvar í röð. Þetta er eðlilegt og
ekki til tíðinda talið. Hitt er a.
m. k. smáskrítið að þingflokkur
Sjálfstæðismanna skyldi ekki
endurkjósa Bjartmar Guðmunds-
scn í úthlutunarnefnd lista-
mannalauna □
- Kristinn Hallsson
syngur á Akureyri
(Framhald af blaðsíðu 8).
Einnig söng hann í 2 óperum
í London.
Kristinn Hallsson hefur ekki
áður sungið fyrir Tónlistarfélag
Akureyrar, en hélt hér sjálfstæða
tónleika fyrir 13 árum.
Undirleikari með Kristni á
þessum tónleikum verður enski
píanóleikarinn Philip Jenkins,
sem Akureyringum er að góðu
kunnur frá fyrri tónleikum fé-
lagsins.
ÞEGAR JÖRÐIN RRANN
Á VESTFJÖRÐUM
Nýkoraið:
KORSELETT,
stórar stærðir.
Verzlunin DYNGJA
TIL SÖLU:
Taunus 17 M, árg. 1965
Góð lán. '
Taunus 17 M, árg. 1962
Volvo Amazon, árg. 1965
Rambler Classic, árg. ’66
Daf, árg. 1964
Ekinn 11 þús. km.
CHRYSLERUMBÖÐIÐ
Akureyri, sími 2-13-44
FORD FAIRLANE ’55
(A-406)
Til sölu, ef viðunandi
boð fæst.
Upplýsingar gefur
Hörður Hafsteinsson,
síma 1-24-94.
TIL SÖLU ER
BIFREIÐIN A—92,
sem er Ford Cortina,
árg. 1965.
Uppl. í síma 1-12-90.
GÓÐ AUGLÝSING -
GEFUR GÓÐAN ARÐ
AUGLÝSIÐ í DEGI
UPPSLÁTTAR-
TIMBUR til sölu.
Hagstætt verð.
Friðrik Þorvaldsson.
Uppl. í síma 1-12-02.
TIL SÖLU:
Barnavagn, barnakarfa
og kenupoki.
• Uppl. í sírna 1-11-98.
TIL SÖLU:
Lítið notuð
BARNAKERRA.
Uppl. í síma 2-11-74.
HEY TIL SÖLU
Gauti Valdimarsson,
sími 2-13-37, Akueyri.
ÍBÚÐ TIL SÖLU
5 herbergja íbúð á góðum
stað á Oddeyri, á eignar-
lóð, er til sölu. Laus til af-
hendingár í vor.
Upplýsingar gefur
undirritaður.
Sigurður M. Helgason,
sími 1-15-43.
TVEGGJA HER-
BERGJA ÍBÚÐ
á efstu hæð í nýju fjöl-
býlishúsi til sölu nú þeg-
ar. Máluð með tréverki.
Uppl. í síma 1-15-88
eftir kl. 19.
ADIDAS knattspymuskór
koninir
MODEL ARGENTINE, fyrir malarvelli,
stærðir 36—45
MODEL INTER, fyrir grasvelli, með skrúfuðum
tökkum, stærðir 39—45
Höfum einnig LAUSA TAKKA
ATH. 75% af leikmönnunum í síðustu heims-
meistarakeppni voru á ADIDAS skóm.
Póstsendum.
SIÍÓBÚÐ K.E.V.
NÝKOMIN:
GÓLFTEPPI, vönduð #g falleg
STÆRÐIR: 183x274, 230x274, 274x320, 274x366 cm.
TEPPADEILD