Dagur - 10.01.1968, Qupperneq 1
DAGUR
SIMAR 1-11-66 og
1-11-67
LI. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 10. janúar 1968 — 2. tölublað
DAGUR
er útbreiddasta blaðið
á Norðurlandi
Þörf á ódýruin íbúð-
um mikil á Akureyri
í FRAMHALDI af samþykkt
bæjarstjórnar Akureyrar þanii
29. júní sl. hefur félagsmálaráð
herra skipað Framkvæmda-
nefnd byggingaáætlunar fyrir
Akureyri.
Nefndin kom saman til síns
fyrsta fundar í fundastofu bæj-
arráðs mánudaginn 8. janúar sl.
Samkvæmt skipunarbréfi er
hlutverk nefndarinnar sem hér
segir:
1. Að rannsaka ítarlega hver
raunveruleg þörf er fyrir slíkar
íbúðir (þ. e. ódýrar íbúðir fyrir
efnalitla meðlimi verkalýðsfé-
laga) í kaupstaðnum.
2. Að gera skýra og nákvæma
áætlun um væntanlegar bygg-
ingaframkvæmdir, stærð íbúða,
byggingahraða, byggingakostn-
að og fjármagnsþörf.
3. Að kanna að hve miklu
leyti Akureylarkaupstaður
hyggst sjálfur leggja fram fjár-
magrt til framkvæmdanna.
4. Að hafa samráð við Seðla-
banka íslands um fjáröflun til
bygginganna.
Hér er um að ræða samskon-
ar byggingaframkvæmdir og nú
standa yfir í Breiðholtshverfi í
Reykjavík. í reglugerð um þær
framkvæmdir, nr. 78 frá 28.
apríl 1967, segir m. a. (17.
grein):
„Greiðsluskilmálar á andvirði
þeirra íbúða, sem seldar verða
samkvæmt 15. — 16. gr. reglu-
gerðar þessarar skulu vera sem
hér segir:
a) Kaupandi greiðir 20% af
andvirði íbúðarinnar á fjórum
árum þannig, að 5% greiðast 12
mánuðum áður en íbúðin er
fullgerð og afhent kaupanda.
Síðan greiðir kaupandi 5% af
andvirðinu á ári, næs.tu þrjú
árin, á sama gjalddaga og fyrstu
afborgunina. Setja skal hann
tryggmgu fyrir þessum þremur
árgjöldum, sem Veðdeild Lands
bankans metur gilda.
b) Afgangur andvirðis íbúð-
arinnar 80% af söluverðinu,
greiðist með láni frá Húsnæðis-
málastofnun ríkisins, sem vera
skal til 33 ára, afborgunarlaust
Akureyrartogararnir
HARÐBAKUR seldi 161 tonn
í Grimsby í gær fyrir 15.018
pund, eða kr. 12,76 pr. kg.
Sléttbakur kom með 70 tonn
til Akureyrar í gær.
Kaldbakur og Svalbakur eru
á veiðum. O
fyrstu þrjú árin, en endurgreið
ist síðan á 30 árum. Að öðru
leyti skulu kjör á þessum lán-
um vera hin sömu og á lánum
Húsnæðismálastofnunar ríkis-
ins á hverjum tíma.
Nefndina skipa eftirtaldir
menn: Tilnefndur af bæjar-
stjórn Akureyrar: Bjarni Ein-
arsson. Tilnefndir af Fulltrúa-
ráði verkalýðsfélaganna: Björn
Jónsson og Jón Ingimarsson, til
(Framhald á blaðsíðu 2).
ÞRJÚ INNBROT
í FYRRINÓTT voru framin
tvö innbrot. Annað í verzlun-
inni Brekku við Byggðaveg,
brotið upp söluop og einhverj-
um peningum stolið úr ólæst-
um peningakassa. Hitt í klæða-
verzlun Jóns M. Jónssonar við
Glerárgötu, stunginn upp lás á
bakdyrahurð, smávegis af pen-
ingum stolið úr ólæstum pen-
ingakassa og e. t. v. fleiru. Um
helgina var brotist inn í Ný-
lcnduv'örudeild KEA, brotin
rúða á bakhlið og enn stolið
lítilsháttar af peningum í
ólæstri hirzlu.
Fyrir hádegi í gær var ekið á
tvo ljósastaura í bænum i og
tveir bifreiðaárekstrar höfðu pá
orðið, tveir bifreiðaárekstrar í
fyrradag og þrír á sunnudaginn.
Um borð í Mælifelli er skipið kom til Akureyrar nú fyrir skömmu. Eins og sjá má, er ísingin
ofboðsleg og ísaxirnar koma að gagni þótt seinvirkar séu. (Ljósm.: E. D.)
FJÁRHAGSÁÆTLUN AKUREYRARKAUPSTAÐAR LIGGUR NÚ FYRIR
ÚTSVÖRIN MUNU HÆKKA UM 14%
VÖl uskiptajöfnuður- Forseti Islands lierra Ásgeir Ásgeirsson.
inn enn óhagstæður
SAMKVÆMT upplýsingum
ITagstofu íslands var vöru-
skiptajöfnuðurinn við útlönd
frá janúar—nóvember 1967
samtals 2.804.3 inilljónir króna.
Á sama tíma árið áður var við-
skiptajöfnuðurinn óhagstæður
um 1.008 millj. kr. □
FORSETAKOSNINGAR I SUMAR
1 ÁRAMÓT AÁV ARPI sínu
sagði forseti íslands, herra Ás-
geir Ásgeirsson, að hann yrði
ekki í kjöri við næstu forseta-
kosningar, sem fram eiga að
fara á miðju næsta sumri. En
hann hefur gegnt hinu virðu-
lega embætti hins íslenzka þjóð
höfðingja í 16 ár eða fjögur kjör
tímabil, er kjörtímabilið rennur
út nú í sumar.
íslendingum er mikll vandi á
höndum um val nýs forseta og
(Framhald á blaðsíðu 2).
FRUMVARP að fjárhagsáætl-
un bæjarins fyrir árið 1968 var
lagt fram og rætt á bæjar-
stjórnarfimdi í. gær. En um
liana fara fram tvær umræður
í bæjarstjórn og getur hún
tekið breytingum áður en hún
verður endanlega samþykkt.
Niðurstöðutölur tekna og
gjalda eru 113,3 milljónir kr. á
móti 104 milljónum fyrir síð-
asta ár.
í fjárhagsáætluninni er ekki
gert ráð fyrir lántökum, en
bærinn þanf fjármagn til fram-
kvæmda og verður eflaust
reynt að fá það, einkum með
Rithöfunda- og tón-
listarverðlaun
AÐ ÞESSU SINNI hlutu þeir
Björn J. Blöndal rithöfundur
og bóndi og Helgi Hálfdánarson
lyfsali verðlaun úr Rithöfunda-
sjóði Ríkisútvarpsins.
Magnús Blöndal Jóhannsson
hlaut verðlaun úr Tónlistar-
sjóði Ríkisútvarpsins. Helgi af-
þakkaði verðlaunin.
Steingrímur J. Þorsteinsson
afhenti bókmenntaverðlaunin
en Viiihjálmur Þ. Gíslason tón-
listarverðlaunin. Athöfnin fór
fram í húsakynnum Þjóðminja-
safnsins. □
tilliti til þverrandi atvinnu í
bænum. Þá er á þessu stigi
heldur ekki vitað, hvernig áætl
uð útsvarsupphæð kemur út
við álagningu og gæti áætluð
útsvai-supphæð því tekið breyt-
ingum við endurskoðun.
Vatnsveitan, Rafveitan og
Hafnarsjóður hafa sérstaka
reikninga, sem ekki liggja enn
fyrir.
Erfiðleikar verðbólgimnar.
Fjánhagsáætlunin ber það með
sér, hvernig efnahagsástandið
er yfirleitt. Dýrtíð hefur enn
vaxið mjög frá því í fyrra og
er allur framkvæmdakostnaður
því mun hærri. Af völdum dýr-
tíðarinnar er efnahagur manna
mun lakari nú, en hann var áð-
ur beztur, þótt launatekjur séu
sennilega svipaðar i krónutölu
og árið áður. Þá þekkja allir
hina miklu erfiðleika hinná
ýmsu fyrirtækja, félaga og ein-
staklinga í bænum. Gjaldalið-
ir fjölmargra greina, sem bær-
inn annast hafa hækkað veru-
lega af fyrrgreindum ástæðum
og of lítið fé er því til fram-
kvæmdanna og tekjustofnar
sveitarfélaga hafa að nokkru
brugðizt frá því sem gert hafði
verið ráð fyrir.
Hér fara á eftir í grófum
(Framhald á blaðsíðu 5).