Dagur - 10.01.1968, Blaðsíða 6
e
„FJALLA-EYVINDtIR“ Á DALVÍK
Dalvík 9. jan. Tvær smátrillur
róa með línu og reita dálítið.
Hér hafa 3 menn keypt bátinn
Orra frá Akureyri og eru það
þeir Snorri Snorrason, Júlíus
Snorrason og Símon Ellertsson.
Verið er að búa Björgvin og
Björgúlf á togveiðar.
Færi er 'sæmilegt fram um
.'sveitir og til Akureyrar, enda
mokað í-gær. En skemmst er að
minnast 32 klst. ferðar frá Akur
eyri til Dalvíkur.
Leikfélágið og Ungmenna-
félagið éru að undirbúa sjón-
leikinn Fjalla-Eyvind. J. H.
„Yið gleymdum öllum sorgunum"
Hrísey 9. jan. Jól og áramót
voru róleg hér í Hrísey. Við
nutum þess aðeins að lifa enn
þessi tímamót og gleymdum
öllum sorgum um stund.
Ekki hefur verið farið telj-
andi á sjó á þessu ári, bæði
vegna ógæfta og íshroða á firð-
inum. í dag reru þó einhverjir
með línu, hver sem aflinn kann
að verða.
Það er lítið að gera um þess-
ar mundir, en breytist fljótt
þegar fer að fiskast. Og við von
um allt það bezta á nýbyrjuðu
ári, eins og ætíð áður. S. F.
„Hinn eilífi fagnaðarboðskapur"
SUNNUDAGINN 14. janúar
munu vottar Jehóva hér í bæ
sýna kvikmynd Varðturnsfélags
ins „Hinn eilífi fagnaðarboð-
skapur'1 boðaður um allan heim.
Þessi mynd hefur áður verið
sýnd á Akureyri, en verður
núna endursýnd til þess að
fleiri fái tækifæri að sjá
þessa athyglisverðu mynd.
Myndin, sem er í litum og
tveggja tíma löng, er tekin í hér
um bil 25 löndum og fjallar
- Forsetakjör
(Framhald af blaðsíðu 1).
er óskandi, að gæfan verði okk-
ur hliðholl í því efni, hér eftir
sem hingað til.
Eitthvað mun farið að vinna
á bak við tjöldin í þessu máli
og hálfkveðnar vísur hafa birzt
í blöðum. Þetta þarf að færast
á opinberan vettvang en á ekki
að vera neitt laumuspil fárra
manna. □
meðal annars um kristileg mót
þar sem fleiri en 580.000 voru
viðstaddir á mismunandi stöð-
um í heiminum. Athyglisvert er
að fá að sjá svipmyndir frá
biblíulöndunum svonefndu, m.
a. Betlehem og Jerúsalem, þar
sem Jesús fæddist, gekk um,
dó og var grafinn. Þar að auki
hefur myndin mikilvægan boð-
skap að flytja fólki þar sem hún
sýnir fram á sameiginlegan
uppruna margra trúarbragða
með því að sýna hvernig margs
konar kenningar og siðvenjur
eru komnar frá Bobylon hinni
fornu. íslenzkur skýringartexti
verður lesinn með myndinni.
Myndin verður sýnd að Bjargi
á sunnudaginn kemur kl. 16.00
og eru allir bæjarbúar velkomn
ir, sem hafa áhuga á að sjá
myndina.
Þess má einnig geta að vottar
Jehóva munu í næstkomandi
mánuði á hverjum sunnudegi
kl. 16.00 hafa biblíufyrirléstra
í ’ Kaupvangsstræti 4, II hæð, og
munu þá fleiri ræðumenn úr
söfnuði. þeirra hér í bæ flytja
■ erindi. . (Aðsent)
r r
NAMSKEIÐIMALMSMÍÐI
Námskeið í málmsmíði fyrir unglinga (handunnir
bakkar, ker o. fl. úr áli, kopar og tini) hefst miðviku-
daginn 17. janúar kl. 5 e. h. í íþróttavallarhúsinu. —
Kennari Arne Sanderud. — Námsskeiðsgjald kl. 300.
Innritun daglega í sírna l-la-46.
Þá er ráðgerð að hafa sarns konar námskeið fyrir
fullorðna að degi til kl. 1,30—4 e. h. Námskeiðsgjald
kr. 500. — Þeir sem hug hafa á að taka þátt í þessu
námskeiði, hafi samand við Bergþóru Eggertsdóttur í
síma 1-10-12.
Sýnishorn muna, sem fyrirhugað er að smíða, verða
til sýnis í glugga Járn- og glervörpdeildar KEA næstu
daga. . '
Æskulýðsráð Akureyrar.
DROTTNINGARHUNANG
°g
GINSENG-RÓTARSAFI
fær góða reynslu við notkun
■y »• * I l-» < *•
NÝLENDUVÖRUDEILD
17 ÁRA STÚLKA
óskar eftir
vinnu allan daginn.
Vön afgreiðslu.
Uppl. í sírna 2-14-25.
TIL SÖLU:
Mercedes Benz 220 S, ár-
gerð 1963. Ekinn 52 þús.
km. — Thames Trader
vörubifreið, árgerð 1961.
Yfirbyggður. — Góðir
greiðsluskilmálar.
Kristján P. Guðmunds-
son. — Símar 12-9-12 og
11-8-76.
AÐALFUNDUR
Þingeyingafélagsins á
Akureyri
verður haldinn að Hótel
Varðborg sunnudaginn
14. janúar n. k. og hefst
kl. 3 e. h. Venjuleg aðal-
fundarstörf. Eftir fund-
inn verður kaffi og síðan
sýndar íslenzkar kvik-
myndir. — Árshátíð fé-
lagsins er fyrirhuguð laug
ardaginn 10. febrúar.
Stjórnin.
GÓÐ AUGLÝSÍNG -
GEFUR GÓÐAN ARÐ
VIL KAUPA
ll/á—3 tonna trillu.
Má vera vélalaus.
Jón Ævar Ásgrímsson.
Sími 2-13-GO,
á kvöldin 1-28-55.
Óska eftir að kaupa
notaða trésmíðavél
(combineraða) eða sam-
byggðan þykktarhefil og
afréttara.
Baldur Halldórsson,
Hlíðarenda. Sími um 02
BÁTUR.
8—12 tonna þilfarsbátur
óskast til kaups. Tilboð
ásamt nákvæmum upp-
lýsingum sendist til af-
greiðslu Dags fyrir jan-
úarlok, merkt „Bátur“.
TAPAÐ
SNYRTIVESKI,
gult með svörtum rósum,
tapaðist þann 20/12.
í veskinu voru m. a. gull-
eyrnalokkar með tópas-
steinum.
Finnandi vinsamlegast
hafi samband við
afgreiðslu Dags.
FUNDARLAUN.
' SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ
,,Allra meina bót”
LEIKSTJÓRI: ÁGÚST KVARAN.
Næstu sýningar föstudags- og sunnudagskvöld kl. 20,30.
Kvöldverður framreiddur frá kl. 18,30.
Orfáar sýningar eftir.
SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ
TIL SÖLU
OLÍUSÖLUDEILD K.E.A.
hefja starf aftur þriðjudaginn 16. janúar. Ennþá geta
nemendur komist að í eftirtöldum námsgreinum — ef
næg þátttaka fæst:
Enska, danska, franska, spænska, vélritun, myndlist,
föndur.
Innritun fer fram föstudaginn 12. jaúnar kl. 8—9
síðdegis og laugardaginn 13. janúar kh 1—3 síðdegis
í Geislagötu 5, efstu hæð.
Uppl. verða gefnar í símum 1-12-74 og 1-18-44.
Jón Sigurgeirsson . Þórarinn Guðmundsson
TILKYNNING
frá Skattstjóra Norðurlandsumdæmis eystra, Akureyri.
Allir þeir, sem skattstjóri hefur krafið skýrslugerðar
um srreidd Jaun, hlutafé oq: arðqreiðslur, eru áminnt-
ir um að gera skil eigi síðar en 20. jaúúár n.k. FrékáriL
frestur verður eigi \ eittur. Þótt um erigar kaupgreiðsl-r
ur. hafi verið að ræða, er eigi að síður nauðs.ynlegt að.
skila eyðublöðunum aftur.
Frestur til að skila skattframtölum til skattstjóra eða
umboðsmanna hans er til 31. janiiar n.k: Þeir, sem at-
vinnurekstur hafa með liöndum, þurfá þó ekki að hafa
skilað framtalsskýrslu fyrr en fyrir lok. febrúar. “
Þar, sem að frekari framtalsfrestir verða. eigi veittir, '
nema sérstaklega standi á, er því hér með beint til .
allra, sem geta búizt við að vera fjarverandi eða for-ý
fallaðir at öðrum ástæðum við lok framtalsfrestsins,
að telja fram nú þegar.
Þeir aðiláf, sem nauðsýnlega þurfa á frekari fram-
talsfresti að halda, verða að sækja uhf fresí til skatt-
stjóra eða umboðsmans hans og fá samþykki þeirri
fyrir frestinum.
I 47. gr. laga nr. 90/1965, um tekju- og eignaskatt
er kveðið svo á, að ef framtalsskýrsla berst eftir að
framtalsfrestur er liðinn, skal miða skattmatið við
raunverulegar tekjur og eign að viðbættu 15—25%
álagi.
Til 31. janúar n.k. veitir skatts.tjóri eða umboðs-
maður hans, þeim, sem þess óska og sjálfir eru ófærir
að rita framtalsskýrslu sína, aðstoð við framtalið. Þeim
tilmælum er því beint til þeirra, sem ætla sér að fá
framtalsaðstoð, að koma sem allra fyrst til skattstjóra
eða umboðsmanna hans.
Frá 16. til 31. þ. m. verður Skattstófari í Strandgötu
1 opin, auk venjulegs skrifstofutíma, frá kl. 4—7 og
laugardaga kl. 1—4, vegna framtalsaðstoðar.
Akureyri, 9. janúar 1968.
Hallur Sigurbjörnsson,
skattstjóri.