Dagur - 20.06.1968, Side 2
2 Á
Akureyringar lialda forustimni
Hafa hlotið 5 stig í 3 fyrstu leilvjunum - Gerðu
r
jafntefli við Fram 1:1 - Enn skoraði Kári Arna
SL. ÞRIÐJUDAGSKVÖLD
léku Akureyringar sinn þriðja
leik í 1. deild í sumar, og mættu
Fram á Laugardalsvellinum í
Reykjavík. Það er skemmst frá
því að segja að leiknum lauk
með jafntefli 1:1. Framarar
skoruðu sitt mark úr víta-
spyrnu, en Kári Árnason jafn-
aði fyrir ÍBA. Bæði mörkin
voru skoruð í fyrri liálfleik. Ak-
ureyringar sóttu mjög í síðari
hálfleik, og höfðu yfirhöndina í
þeim hálfleik, en tókst ekki að
skora þótt þeir ættu nokkur góð
tækifæri.
Að þessum þrem leikjum
loknum finnst mér ekki ástæða
til annarsj en að vera bjartsýnn,
,þó ég 'Vilji á engan hátt gera
lítið úr mótherjunum, 'og ég vil
biðja menn að muna það, að -allt
getur gerzt í knattspyrnu og
enginn leikur er unninn fyrir
fram. Það er érfitt verk, sem
knattspyrnumenn á Akureyri
eiga framundan, en að hljóta
5 stig í 3 fyrstu leikjum móts-
ins gefur vissulega tilefni til
bjartsýni, og það er gott að eiga
eftir leiki á “heimavelli.
Staðan í deildinni er nú
þannig: ÍBA 5 stig (3 leikir),
Fram 4 stig (3), Valur 3 stig (3),
ÍBV 2 stig (2), KR 2 stig (3) og
ÍBK 0 stig (2). Þriðju umferð
er ekki lokið, því leik ÍBV og
ÍBK var frestað vegna erfið-
leika á flugi til Eyja, og hafa því
ÍBK og ÍBV aðeins leikið 2 leiki
en hin liðin 3.
Þá má að lokum geta þess, að
Kári Árnason hefur skorað 4 af
5 mörkum ÍBA í þessum 3
fyrstu leikjum, og er marka-
hæstur í 1. deild ásamt Helga
Númasýni Fram.
Sunnanblöðin segja.
Dagblöðunum ber saman um,
að Framarar hafi verið heppnir
að hljóta annað stigið í leiknum
við Akureyringa, og er lið ÍBA
talið gott, og það hafi sýnt á
köflum, sérstaklega í síðari hálf
leik, góðan leik.
Sv. O.
])
TÁIMANOV kemnr
til Akureyrar
EINN af fremstu skákmönn-
um heims, stórmeistarinn
Taimanov, sem m. a. hefur
orðið skákmeistari Sovétríkj
anna, kemur til Akureyrar
n. k. föstudag og mun tefla
fjöltefli um kvöldið í Lands-
bankasalnum. Öllum er
heimil þátttaka, cn þátítöku
gjald er kr. 125.00.
Væntanlegir þátttakendur
eru beðnir að hafa með sér
töfl. Fjölteflið byrjar kl. 8.30
stundvíslega.
Á laugardagskvöld mun
Taimanov sennilega tefla
samtímaskákir við 10 meist-
araflokksmenn á sama stað.
Stjórn Skákfélags
Akurevrar.
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
til að unnið verði á skynsamleg-
an hátt að þeim málum, en ef
staðreyndir væru viðurkenndar
með þeirri tregðu, sem hjá ýms
um verður vart. En hefur trúar
þörf manna nokkrum breyting-
um tekið? Ekki held ég það.
Víst er, að ýmsir sértrúarsöfn-
uðir eru starfandi og margt fólk
þar er áliugasamt hvað sem um
þá má annars segja.
GANGA í HÚS
í einu blaði Dags í vor auglýstu
þessir samkomur: Akureyrar-
kirkja og fl. kirkjur, Hjálpræðis
herinn, Vottar Jehóva, kristni-
boðshúsið -Zion, Gideonsfélagið,
Sjónarhæð og Fíladelfía. Það er
nokkuð algengt hér á Akureyri,
að boðberar sumra sértrúar-
flokka gaiigi í hús til þess að
ræða trúmál við fólk. Ekki er
hér einn lastaður né annar lof-
aður en á það bent, að þegar
þjóðkirkjan bregst fólki sínu
eða það henni, vcx sá fjöldi, sem
Ieitar trúarþörf sinni svölun hjá
öðrum aðilum.
HAFIN ER sveitakeppni í skák
á vegum Ungmennafélags fs-
lands og taka 10 héraðssambönd
þátt í keppninni. Keppt er í
fjögurra manna sveitum.
í for'keppni er keppt í þremur
riðlum, og fer efsta sveitin úr
hverjum riðli í úrslitakeppnina,
sem háð verður að Eiðum um
leið og landsmót UMFÍ fer þar
TfamT*næstá"mánuði.
Um síðustu helgi fór fram
keppni í tyeim riðlum forkeppn
innar. Á Akureyri kepptu Ung-
menna- og íþróttasamband
Austurlands, Héraðssamband
Suður-Þingeyinga og Ung-
mennasamband Eyjafjarðar.
Fóru leikar þannig að UÍA
vann HSÞ Sýé—V2, UMSE. vann
UÍA 21/2—11/2 og UMSE vann
HSÞ 3V2—1/2. Ungmennasam-
band Eyjafjarðar hlaut því sam-
anlagt 6 vinninga, UÍA 5 vinn-
inga og HSÞ 1 vinning. UMSE
sá um mótið.
Þá kepptu á sama tíma í
Kópavogi Jið Héraðssambands
Snæfellsness og Hnappadals-
sýslu, Héraðssambandsins
Skarphéðins og Ungmennasam-
bands Kjalarnessþings. Leikar
fóru þannig að UMSK vann
HSH 4—0, HSK og HSH gerðu
jafntefli 2—2 og UMSK vann
HSK 21/2—11/2. Samtals hlaut
UMSK því 61/2 vinning, HSK
31/2 vinning og HSH 2 vinninga.
ATHUGASEMD
ÞANN 6. júní sl. birtist í blaði
yðar grein, sem er undirrituð af
KR-ing frá Akureyri. í Alþýðu
manninum 14. júní sl. er því
haldið fram, að ég undirritaðui'
sé höfundur greinarinnar. Ég
vil leyfa mér að upplýsa, að ég
hefi ekki samið umrædda grein,
og veit ekki hver gerði það.
Reykjavík 16. júní 1968
Haukur Leósson.
- HÁTÍÐAHÖLDIN
(Framhald af blaðsíðu 1).
er lauk með dansi. Þar söng
Geysir undir stjórn Jan Kisa,
Rósberg G. Snædal, Einar
Kristjánsson og Jóhann Ög-
mundsson skemmtu, Gígjan
söng og enn fleira var þar til
skemmtunar. □
Skákstjóri var Gísli Pétursson.
UMSK sá um mótið.
I sigursveit Ungmennasam-
bands Eyjafjarðar voru þessir
menn: Guðmundur Eiðsson,
Ármann Búason, Hjörleifur
Halldórsson og Hreinn Hrafns-
son.
í sigursveit UMSK voru:
Lárus Johnsen, Jónas Þorvalds-
son, Björgvin Guðmundsson og
Ari Gúðmundsson.
(Fréttat ilkynning.)
TIL SÖLU:
VOX-gítarmagnari,
30 AC Twin.
Upplýsingar hjá
Sigurði J. Þorgeirssyni,
Fjólugötu 12.
Til sýnis og sölu á tæki-
færisverði:
Fimm ára gamalt
SÓFASETT.
Uppl. í síma 1-27-91
milli k.l. 8 og 10 á kvölclin
Vel meðfarnar
HLAÐ-KOJUR
til sölu.
Uppl. i síma 2-10-14.
GÍTAR og MAGNARI
til sölu á kr. 9.000.00.
Uppl. í síma 1-23-82.
HÖFUM TIL SÖLU,
notað:
PREMIER Trommusett
á góðu \ erði.
Einnig notað
PÍANÓ á kr. 8.500.00.
TÓNABÚÐIN
MAGNARI
Til söhi góður 45 watta
MAGNARI á hagstæðu
verði.
Uppl. í síma 1-12-08
eitir kl. 7 á kvöldin.
Á SUNNUDAGINN kemur,
kl. 4, eiga Akureyringar að
leika sinn fyrsta leik á heima
velli í sumar, og eru það
Vestmannaeyingar, sem fyrst
ir sækja okkur heim, nýlið-
arnir í 1. deild. — Þeir hafa
leikið 2 leiki í deildinni, sigr
uðu íslandsmeistara Vals, en
töpuðu fyrir Fram, en leik
þeirra og Keflvíkinga var
frestað. Sagt er að Vest-
mannaeyingum hafi farið
mikið fram frá því í fyrra,
en þjálfari hjá þeim er Ilreið
ar Ársælsson, KR. Það má
því búast við skemmtilegri
viðureign á sunnudaginn.
Ekki er að efa að knatt-
spyrnuunnendur í bæ og
nágrenni fjölmenna á völl-
inn og hvetja lið sitt vel. —
Vonandi láta þeir, sem staðið
hafa í Brekkugötu og Klapp
arstíg undanfarin sumur og
horft þaðan á kappleiki, af
þeim leiða sið og koma nú
inn fyrir vallargirðinguna, á
sunnudaginn.
Samkvæmt upplýsingum
Hreins Oskarssonar forstöðu
manns íþróttaleikvangsins,
er völlurinn nú óðum að ná
sér eftir kalið, en er þó mun
verri en undanfarin sumur.
Mikið annríki hefur verið
og er hjá starfsmönnum vall
arins, en við skulum vona, að
okkar ágæti íþróttaleikvang
ur nái sér og verði bæjar-
búum til augnayndis eins og
verið liefur undanfarin sum-
ur.
Sv. O.
Reynir Hjartarson, Þór, var stigahæstur
100 m. hlaup. sek.
Reynir Hjartarson, Þór 11.3
400 m. hlaup. sek.
Sigvaldi Júlíusson, UMSE 55.6
1500 m. hlaup. mín.
Sigvaldi Júlíusson, UMSE 4.47.5
4x100 m. boðhlaup. sek.
Sveit UMSE 48.5
Sveit Þórs 49.5
Spjótkast. m.
Sigurður Viðar UMSE 43.94
Kringlukast. m.
Sigurður Viðar, UMSE 34.98
Kúluvarp. m.
Þóroddur Jóhannss. UMSE 12.73
Langstökk. m.
Sigurður Viðar, UMSE 5.99
Hástökk. m.
Halldór Matthíasson, KA 1.70
Reynir Hjartarson, Þór, vann
afreksbikar 17. júní-mótsins fyr
ir 100 m. hlaup, 11.3 sek., og
vann bikai'inn til eignar.
TAPAÐ
Lítill blár
PÁFAGAUKUR
tapaðist á sunnudaginn.
Þeir, sem kynnu að hafa
orðið hans varir, eru vin-
samlegast beðnir að
hringja í síma 1-29-06.
MÁLNING H.F.
Umboð á Akureyri: EYGGINGAVÖRUVERZLUN
AKUREYRAR - Sími 1-15-38
Umboð á Húsavík: HAFLIÐI JÓNSSON - Sími 4-11-49