Dagur - 17.07.1968, Blaðsíða 1

Dagur - 17.07.1968, Blaðsíða 1
EFNAVERKSMIÐJAN SJÖFN Dagur LI. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 17. júlí 1968 — 32. tölublað FIL.MU HÚSIÐ Hafnarstræti 104 Akureyri Sími 12771 • P.O. Box 397 SÉRVERZLUN: LjOSMYNDAVÖRUR FRAMKÖLLUN - KOPIERiNG Nýja dráttarbrautiu á Akureyri senn tekin í notkvui Skemmtisnekkjan Eros í Akureyrarhöfn. (Ljósm.: E. D.) VERIÐ ER að setja upp öfluga dráttarbraut á Akureyri, þá stærstu utan Reylctavíkur og jafna þeirri stærstu þar. Hún á að bera 2000 tonn, en Akur- eyrarkaupstaður og ríkissjóður bera allan kóstnað af fram- kvæmdinni, sem þegar er talin nema 40 milljónum króna. Nýja dráttarbrautin er á sama stað og sú eldri var, á Oddeyri. Sleðinn er nýr en að nokkru leyti er byggt á undirstöðum gamla slippsins. Dráttarbrautin er 230 metra löng, þar af 150 metrar í sjó. Hægt verður að taka 800 tonn í hliðarfærslu. Á mánudaginn, er blaðamað- ur athugaði hið nýja mannvirki var verið að ljúka við að setja upp aðal vagninn og verður hann reyndur innan tíðar. Um 150 metra viðlegukant er þarna einnig verið að setja upp, að norðanverðu við innsiglinguna. Umsjón með verkinu annast Þreftán brýr byggSar í sumar TALIÐ ER, að í sumar verði 13 brýr, smærri og stærri, byggð ar. Lengst þessara brúa er Fnjóskárbrúin nýja. En stöplar hennar voru reistir í fyrra og vegur gerður að brúarstæðinu. Aðrar stórbrýr verða ekki byggðar en nauðsynlegar engu að síður. Mjög margar gamlar brýr eru orðnar algerlega óvið- unandi í hinni ört vaxandi um- ferð. □ Pétur Bjarnason frá Hafnar- sjóði Akureyrar og Sveinn Sveinsson frá Vitamálastjórn. En verklegar framkvæmdir að öðru leyti annast Slippstöðin h.f. á Akureyri og vinna hjá henni 170 manns um þessar mundir. Slippstöðin h.f. undir fram- kvæmdastjórn Skafta Áskels- sonar hefur einnig í smíðurn þúsund smálesta strandferða- skip og miðar því verki vel, að því er séð verður. Slippstöðin veitir mörgum góða atvinnu um þessar mundir, sem sjá má af framanskráðu, en mun sjálf í mikilli fjárþröng með síp stóru verkefni. En bæði dráttarbrautin og skipasmíða- stöðin virðast lífvænleg fyrir- tæki og atvinnulífi bæjarins mjög nauðsynleg. □ Látum nýja íbrótfaöldu rísa Dr. Ingimar Jónsson er ráðinn til Akureyrar KOMINN er til starfs í bænum, Akureyringurinn Ingimar Jóns- son, sem nýlega lauk doktors- prófi í uppeldisvásindum í Þýzkalandi, en hann gekk þar einnig á íþróttaháskóla. Æskulýðsráð Akureyrar, ÍBA, KA og Þór hafa ráðið Ingimar til leiðbeiningastarfa hér á Ak- ureyri. Og í kvöld hefst sérstætt íþróttanámskeið á íþróttavellin um, undir stjóm hans. Nám- skeiðið er ætlað bæði ungling- um og þeim, sem lagt hafa íþrótt imar á hilluna, en vilja nú stunda léttar og styrkjandi íþróttir, svo sem ýmiskonar knattleiki og fl. Um þetta er auglýsing á öðrum stað í blað- inu í dag og vísast til þess að öðru leyti. En segja má, að það námskeið, sem hér um ræðir og hefst í kvöld, sé einskonar „allt fyrir alla“, svo sem áðurnefndir knattleikir, frjálsar íþróttir, lyft ingar, hlaup án keppni, sem áhugamenn fá upplýsingar um hjá leiðbeinenda á staðnum. Væri ómaksins vert fyrir þá, sem hugleiða vilja þessi mál, að snúa sér beint til Ingimars og velja íþróttagreinar við sitt hæfi. Námskeiðið er tvíþætt: annars vegar þjálfun íþróttamanna og (Framhald á blaðsíðu 5). FLUGVÉL TÝNI) Sleði dráttarbrautarinnar tilbúinn til reynslu. (Ljósm.: E. D.) f FYRRAKVÖLD, um kl. 20.30, fór eins hreyfils, fjögurra manna flugvél frá Reykjavík áleiðis til ísafjarðar. Hún komst ekki á ákvörðunarstað og var enn ófundin í gær. Mikil leit var hafin, m. a. leituðu 10 flug- vélar og leitarflokkar á landi í gær. | Lágskýjað var og rigning öðru hverju, er vélin hóf för sína. f henni voru fjórir menn. Ein- kennisstafir hennar eru: TF — DGT. □ Baguk kemur ekki út næstu tvær vik- ur vegna sumarleyfa. f GÆR var opnaður í Glerár- hverfi nýr smábarna-gæzluleik völlur, við Lönguhlíð. En það er á vel skýldum og sólríkum stað norðan Glerár. En þar skammt frá er leikvöllur fyrir eldri börn, að mestu sjálfgerður frá náttúrunnar hendi, búinn SALTAÐ UM BORÐ BUIÐ var í fyrrakvöld að salta 1000 tunnur um borð í leigu- skipi Valtýs Þorsteinssonar, Haf örnin vai' á leið til lands í gær með fullfermi, Síldin var einnig fulllestuð á miðunum. □ ýmsum leiktækjum. Á nýja vell inum, sem í gær var opnaður, er hinn bezti búnaður, sem leik- völl fyrir 2—6 ára börn mega prýða, jafnvel leiktæki, sem annarsstaðar hafa ekki sézt hér á landi. Má segja, að íbúar Gler árhverfis séu ekki afskiptir í þessu máli. • Þá hefur leikvallanefnd tjáð blaðinu, að í sumar verði byggð ur smábarna-gæzluleikvöllur milli Vanabyggðar og Norður- byggðar, en eftir honum mun beðið með eftirvæntingu, svo nauðsynlegir þykja þessir leik- vellir. □ Nýja dráttarbrautin á Akureyri er mikið mannvirki. (Ljósm.: E. D.) Nýr leikvöllur var opnaS- ur í Glerárhverfi í gærdag

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.