Dagur - 17.07.1968, Blaðsíða 2

Dagur - 17.07.1968, Blaðsíða 2
2 Og knöíturiim haínaði í marki sunnanmaima. (Ljósm.: E. D.) Baráttan liarðnar í fyrstu deild IBA náði aðeins Jafsitefli gegn Keflvíkingum sídaki halfleikur. SL. SUN'NUDAG léku Akureyr ingar við Kefivikinga á íþrótta- veliinum á Akureyri og lauk leikniun með. jafntefli; 1- mark gegn 1. Ahorfendur voru fjöl- margir, en urðu fyrir vonbrigð- um raeð leikinn, því hann ein- kenndist öðru fremur af lélegri knaítspyrnu en því meiri hörku, og átti dómarinn, Jörundur Þor steinsson, sinn þátt í því að svo fór, því dómur hans var vægast sagt lélegur, og oft á tíðum furðulegur. T. d. var Magnús Jónatansson bókaður í fyrri hálf leik, en á 29. mín. síðari liálf- leiks er hann rekinn út af fyrir brot, sem ég kom ekki augn á. Þá raá geta þess, að 2 Ákureyr- ingar urðu að yfirgefa völlinn vegna meiðsla, þeir Steingrím- ur og Skúli, og 1 Keflvíkingur. Það hlýtur að vakna sú spurn- ing, hve margir aðalleikmanna liðanna verða eftir er keppnis- tímabilinu lýkur, ef svo heldur áfram sem nú horfir, að margir leikmenn meiðast í hverjum leik. í leik Keflvíkinga og Fram, sem fram fór í Keflavík um dag inn, meiddist Anton Bjarnason, Fram og varð að yfirgefa völl- inn, og sögðu Reykvíkurblöðin að Keflvíkmgar liefðu leikið af dæmafárri hörku, eöa eins fast og vægur dómari leyfði (Valur Benediktsson) sagði þar. Sama sagan endurtók sig hér á vell- inum. Dómarinn var vægur og fyrst og fremst þess vegna varð sú harka í leiknum, sem raun bar vitni og 3 leikmenn meidd- ust. Það er ekki þetta, sem áhorf endur vilja sjá, heldur góða knattspyrnu, þeir liafa enga ánægju af að sjá gróf brot og stympingar leikmanna. Það er hægt að leika fast, þótt ekki sé gengið eins Iangt og gerðist í þessum leik. Það er ekki ósann gjarnt, þótt spurt sé, hvort það sé staðreynd, að ekki sé til á : Lið ÍBA os; FH leikai; : á sumiudaginn ; NK. SUNNUDAG kl. 4 e. h. |j jleikur B-lið ÍBA við FII í jj j Bikarkeppni KSÍ og fer leik ; ; urinn fram liér á íþrótta-; i vellinum. Garnan verður að l j sjá hvernig B-liðið spjarar | : síg. I íslandi sá fjöldi „dómara“ til að dæma I. deildarleikina, að leik- menn og áhorfendur geti slopp- ið við jafn lélegan, dóm og átti sér stað hér á veffinum sl. sunnu dag. Eiga þessir „vægu“ dóm- arar að ráða úrsliium í íslands- mótinu? Þá má bæta því við að Jón Stefánsson meiddist í leikn um við Val í Reykjavík um dag inn og lék ekki með ÍBA-Iiðinu móti Keflavík. Það er því farið að „havðna á dalnum“ fyrir Akureyringum, ef Jón, Skúli og Steingrímur verða ekki leik- færir á næsíunni. FYRRI HÁLFLEIKUR. Keflvíkingar unnu hlutkestið og kusu að leika á syðra markið, undan norðan-strekking, sem er því miður mjög algengur hér á vellinum, ekki sízt á þeim tíma sem leikið er. (Margir knatt- spyrnuunnendur spyrja nú þeirrar spurningar, hvort ekki sé hægt að breyta leikdögum í íslandsmótinu, láta t. d. leika á kvöldin í miðri viku. Það yrði áreiðanlega vinsælla en sunnu- dagsleikirnir bæði hjá áhorfend um og knattspyrnumönnunum sjálfum, það hlýtur að vera þreytandi fyrir leikmennina, að vera bundnir um svo til hverja einustu helgi yfir sumarið, að ekki sé talað um þá þeirra, sem eiga fjölskyldu). Akure^ring^r hófu leikinn, en misstu.af knettinum og barst ■hánn aS jnarki ÍBA, og vantaði nú Jón illilega, því mistök urðu hjá varnarrijöfínum ÍBA og hvökk khötiui'mn til Hólmberts, Keflavík, sem náði að skjóta þrumuskoti, óverjandi fyrir Samúel, undir þverslá og í net- ið. Ekki létu Akureyringar bil- bug á sér finna, og á 2. mín. lyft ir Skúli yfir opið mark Keflvík inga. Á 13. min. á Kári skalla að mai-ki ÍBK en rétt yfir. Á 14. mín. á Steingrímur skot yfir. Þetta var bezti leikkafli ÍBA í fyrri hálfleik. Keflvíkingar náðu nú tökum á leiknum Og sóttu fast. Á 21. mín. áttu þeir skot rétt yfir þverslá ÍBA- marksins. Á 24. mín. biargar Samúel eftir hornspyrnu. Á 32. mín. eiga Keflvíkingar skot framhjá í dauðafæri. Á 34. mín. fá svo Keflvíkingar aukaspyrnu rétt utan vítateigs, og lenti knötturinn í stöng ÍBA-marks- ins. Þá bjarga Akureyringar enn á 36. mín. Það sem eftir var hálf leiksins var leikurinn eintómt þóf og langspyrnur. Fyrri hálf- leik lauk því 1:0 fyrir ÍBK. Fyrstu, 15 mín. síðari hálfleiks einkenndust af þófi og hörku. Akureyringar léku nú undan norðan-strekkingnum, og léku nú Þormóður og Sævar með lið inu, komu inn fyrir Skúla og Steingrím. Á 16. mín. er mikil pressa á m.ark ÍBK og lauk henni á 17. mín. með því, að Þor móður skoraði fyrir ÍBA og jafn aði metin, að því er virtist úr lokuðu færi, en knötturinn fór alveg út við stöng fram hjá Kjartani markverði og í mai'kið en Keflvíkingar hreinsuðu úr markinu, áður en knötturinn fór í netið. Á 22. mín varð Keflvík- ingur að yfirgefa völlinn vegna meiðsla, en hann fór inn á aftur og var síðan það sem eftir var leiksins, ýmist inn á vellinum eða utan hans. Á 23. mín. skall hurð nærri hælum við mark ÍBK, og var Kári þar að verki. Á 29. mín. er svo Magnúsi Jóna- tanssyni vísað af velli, fyrir brot sem enginn kom auga á, nema trúlega dómarinn. Síðasta hættu lega tækifæri Akureyringa kom svo á 35. mín. er Kári fær knött inn fram miðjuna og brunar að marki, lyftir knettinum yfir (Framhald á blaðsíðu 5). HÚSEIGENDUR! Menntaskólakennari ósk- ar eftir 2ja herbergja íbúð frá 15. sept. n.k. Uppl. í síma 1-15-45 eftir kl. 7 e. h. HERBERGI ÓSKAST næst:a v.etur fyrir mennta- skólastúlku, helzt á syðri brekkunnm. Friðrik Kristjánsson, Kristnesi, sími 02. VANTAR ÍBÚÐ 1. okt. n,k. Ekki stigar. Sími 2-14-11. HERBERGI ÓSKAST fyrir menntaskólapilt frá Olafsfirði næsta vetur. Upplýsingar veitir Kristinn G. Jóhannsson, skólastjóri, Ólafsfirði, sími 6-21-33. SMÁTT OG STÓRT (Framhald af blaðsíðu 8). veiðimenn sem njóta vilja veiði í Eyjafjarðará og reyna að koma í hana laxi, ekki ánægðir yfir laxveiði á Pollinum, enda lax- veiði í sjó bönnuð með lögum. KJARVALSSÝNING Á AKUREYRI? Yfir 60 þúsund manns sáu Kjar- valssýningu í Reykjavík, sem nýlokið er. Hvers vegna ekki að setja hana upp hér á Akureyri? Vilja Akureyringar fá Kjarvals sýningu hingað? Ef svo er, ættu áhugamenn, jafnvel bæjar- stjórn, að hafa forgöngu í því efni. Ekki eiga að vera teljandi erfiðleikar í flutningi málverka, JARÐVINNSLA! Tek að mér jarðvinnslu með tætara og plógi. Einnig jöfnun, vinnslu á lóðum og túnaslátt. Uppl. í síma 2-15-77. BÆNDUR! 15 ára piltur, vanur sveita vinnu, óskar eftir vinnu í sumar. Uppl. í síma 1-20-21. TIL SÖLU FORD PICK UP, árg. 1959, í ágætu lagi. Eiríkur Geirsson, Veigastöðum. TIL SÖLU: FIAT 600, ÁRG. 1957. Ódýr. Uppk í síma 2-12-66. TIL SÖLU: MOSKVITHS 1958, gangfær. Verð kr. 10.000. Ennfremur öxlar undir heyvagna. SÍMI 1-12-51. TIL SÖLU: FORD FAIRLANE, árg. 1957. Rúmgóður sex rnanna bíll. Vel með far- inn og í góðu lagi. Uppl. gefur Ríkharð Þór- ólfsson í síma 1 -23-17. TIL SÖLU: GHEVROLET, Convair Monza 900, ár- gerð 1963. Uppl. gefur Jóhann Kristinsson, Ránarg, 9, sírni 1-15-83. MOSKVITHS, árg. 1963 til sölu. — Skipti á jeppa koma til greina, Ragnar Elísson, Kotá. TIL SÖLU ER VAUXHALL, ÁRG. ’54 í góðu lagi. Uppl. gefur Hilmar, Bifreiðaverk- stæðinu Þórshamri. og það væri mikils virði, að lista maðurinn kæmi hingað sjálfur. ORGANISTABLAÐIÐ Svo heitir 16 síðu rit, sem selt er í Huld á Akureyri en Félag íslenzkra organista gefur út. I fyrsta hefinu, sem út er komið ritar Páll ísólfsson ávarpsorð, sagt er frá Félagi ísl. organleik- ara og norrænni samvinnu org- anleikara. Þá er grein um Kirkjukórasamband íslands, tón leikahald í Reykjavík og ná- grenni o. fl. - FORSETABÚÍÐ (Framhald af blaðsíðu 4). in búi þannig að búinu, að vel sje, og jafnframt að þangað velj ist dugandi og snjall bústjóri, sem veldur vandanum að búa með sæmd og þrifnaði. En hvor- ugt þetta hrekkur til nema for- setinn, húsbóndinn á forseta- setrinu Bessastöðum, hafi áhuga á því, að vel farnist þar um bú- skap allan. Það má ljóst vera hver stuðningur og uppörvun það er dugandi bústjóra, að for- setinn sýni það í verki og fram- komu, að honum sje annt um búið og hann líti á bújörðina Bessastaði sem setur sitt. Og um leið, að hann líti á jörð og bú sem, snaran þátt af virðuleik bú staðárins og embættisins. rjett fyrir forsetakosninguna að leggja niður búskap á Bessa- stöðum? Væri ekki viðkunnan- legra að bíða með að taka ákvörðun um BessastaðabúiS þangað til ráðið er hver tekur við forsetastörfum og sezt að á Bessastöðum, á sumri kom- anda? Vel mætti virða vilja hins nýja forseta nokkurs, í því máli. Reykjavík, snemma í júní 1968. Árni G. Eylands. Pedegree BARNAVAGN til sölu. — Sími 2-11-59. TILSÖLU BARNAVAGN OG BURÐARRÚM. Uppl. í síma 1-16-12. TIL SÖLU: Barnavagn á 1000 kr., rugguhestur á 400 kr., skólaritvél á 2500 kr., ódýrar mvndir og mál- verk. Uppl. í síma 1-23-31. NÝLFGT HJÓNARUM til sölu í Ægisgötu 3. Til sölu, tvær fimm vetra HRYSSUR af góðu kyni. Bandvanar. Uppl. í síma 2-15-77. TIL SÖLU: VARAHLUTIR í Skoda í miklu úrvali. 4 nýleg dekk á lelgum. Vönduð klæðning í Skoda Station ’56. Útvarp, 12 volta, o. fl. Uppl. í síma 1-22-35 næstu kvöld kl. 7—8.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.